Helgarpósturinn - 03.10.1985, Side 22
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagurinn 4. október
19.15 Á döfinni?
19.25 Svona byggjum við hús. Sænsk
fræðslumynd fyrir börn. Ergó: sænsk
barbiehús!
19,35 Kínverskir skuggasjónleikir. Vonandi
fyrir börn líka.
19.50 Fingragrip á táknmáli.
20.00 Stuttar fréttir í dagskrárbyrjun. Plús
veður.
20.40 Saga Bítlanna. Ný bandarísk heimild-
armynd um þennan evangelísk-lúth-
erska drengjakór frá Marsey.
21.40 Börn tveggja landa. Fræöslumynd,
þið vitið.
22.30 Fjallið í skugga mánans. Sænsk bíó-
mynd, árgerð 1984. Leikstjóri Lennart
Hjulström. Aðalhlutverk Gunilla
Nyroos, Thommy Berggren og Bibi
Andersson. Myndin er ástarsaga
rússnesks stæröfræöings frá síöustu
öld í Stokkhólmi. Alvarlegra getur það
varla verið.
00.05 Klæðskeranámskeið í sjónvarpssal.
Páll Magnússon lýsir og segir helstu
fréttir inn á milli...
Laugardagurinn 5. október
16.30 íðróddir. Usjona-mar Bjaðni Felishon.
19.25 Eitthvað fyrir krakkaskarann á meðan
pabbi skrælar og mamma brennur á
sér nýnaglalökkuðu fingurna!
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttaágrip á talmáli. Og suðvestan-
átt, spái ég.
20.35 Bundinn í báða skó. Gísli Ferdinands-
son flytur inngangsorð.
21.10 Saga Bítlanna. Endursýnd frá fyrra
kvöldi og svo áfram út vikuna ef ein-
hver sýnir áhuga.
22.15 Maðurinn frá Ríó. Frönsk gamanmynd
frá '64. Leikstjóri Philippe de Broca.
Aðalhlutverk: Sjar-mör Belmondo,
Francoise Dorléac og Jean Servais.
Hörkuþriller með frönskum fupa milli
atriða. Þyrfti fyrir mína parta fleiri
nektarsenur til að vega upp á móti
þessu tungumáli þarna í Frans.
00.05 Búið, víddeóiö í gang.
Sunnudagurinn 6. október
18.00 Sunnudagszzzzzzzzzh.
18.10 Á framabraut. Teygða útgáfan af bíó-
myndinni Fame.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttaágrip á ritmáli. Fáein mistök og
svo veður.
20.40 Sjónvarp síðustu viku.
20.50 Tónskáldin ungu og íslenska hljóm-
sveitin. Ah.
21.05 Litli maðurinn. Tékkneskur látbragðs-
leikur. Og ég sem hélt aö allir væru
jafn stórir þarna austurfrá.
21.45 Njósnaskipið. Allt að fattast.
22.35 Samtímaskáldkonur. Ég skal segja
ykkur það.
23.15 Stillimyndin.
©
Fimmtudagurinn 3. október
12.00 Hádegisútvarpiö hefst með látum.
12.20 Jón Múli Árnason leiðréttir fréttirnar.
14.00 „Á ströndinni". Njörður þýðir — upp-
hátt.
14.30 Á frívaktinni. Gylfi Ægis semur jafn-
óðum.
15.15 Af landsbyggðinni. Viðleitni.. .
16.20 Klassík.
17.05 Börn.
19.00 Fréttir af Steingrími og þessum strák-
um.
19.50 Fallegt mál Sigurðar Gé.
19.55 Frá Kaprí. Sveinn Einars var þar.
20.30 Sinfónían okkar í klukkustund.
21.30 Samtímaskáldkonur! Líka í útvarpinu,
nei hættiði nú alveg.. .
22.25 Fimmtudagsumræðan. Gissi fjallar
um fiskeldi og bregður upp nokkrum
línuritum. Fleiri tala.
23.25 Kammertónlist af nokkrum vel völd-
um plötum.
24.00 Lokafréttir.
Föstudagurinn 4. október
07.00 Sjöbæn og véfréttir.
07.20 Jónína spriklar í þykjustunni.
09.05 Væmin saga fyrir krakkana.
10.40 Sögusteinn. Eitthvað að norðan.
11.10 Málefni aldraðra. Eitthvað að sunnan.
11.25 Tónlist Gershwin. Eitthvað að heyra.
12.20 Fréttir, aldrei þessu vant.
14.00 Njörður ennþá aö þýða „Á strönd-
inni".
14.30 Sveiflur. Mjúk lög.
15.15 Létt lög.
16.20 Síðdegistónleikar. Þung lög.
17.00 B.Ú. Barnaútvarpið.
19.00 Fréttirnar.
19.45 Rólegt mál Guðvarðar Más.
19.50 Um fjölmiðlun vikunnar. Magnús
Ólafsson talar greindarlega í góða
stund.
20jO0 Lög unga fólksins. Ég meinaða.
20.40 Sagnaskáld af Suöurlandi. Dagskrá af
því að Gvendur Dan er orðinn 75.
21.30 Atli Heimir slær penna og símtóli sam-
an og skilgreinir hljóðið sem fæst við
það, sem sagt nútímatónlist. Og síðan
kvöldtónleikar.
22.55 Svipmynd. Jónas, segðu mér. . .
24.00 Slys dagsins tekin saman í dagskrár-
lok.
Laugardagurinn 5. október
07.00 Veðurbæn.
09.00 Óskalag sjúklingsins.
11.00 Á tólfta tímanum. Að mönnum skuli
detta í hug svona sneddí nafn á þátt,
ha...
12.20 Kvöldfréttir, færðar fram um nokkra
tíma.
14.00 Þar og þá. Hinar eiginlegu fréttir undir
dulnefni.
15.10 Debussy og fleiri hevví gæjar.
15.50 íslenskt mál, frekar en hvað?
16.20 Listagrip. Listaliðið gripið og greitt
sundur.
17.00 Tónlistarár æskunnar. RÚV neyðist til
þess að punga út pening í verðlaun
handa einhverjum undir 30 ára sem
getur samið sæmilegt tónverk, bara af
því að árið er í ár er í ár, annars ekki.
19.00 Hádegisfréttir, færðar aftur um nokkra
tíma.
19.35 Erindi, þjóðlegt að sjálfsögðu.
20.00 Harmoníkuþáttur. Gamla fólkið snýr
sig á ökkla.
20.30 Sögur tveggja kvenna. Það er ekki að
spyrja aö jafnréttinu þessa dagana.
21.00 VísnaGísli Helgason með vísnaþátt.
21.40 Ljóö Betu Jökuls: „Orð eru villidýr".
— Gæludýr líka, finnst mér...
22.25 „Geföu mér litla sæta eyrað þitt". Van
Gogh sker af sér eyrað aftur. Sigmar B.
matreiðir.
23.10 Gömlu dansarnir, fyrir þá sem tíma
ekki á ball.
00.55 Búið með miönæturgauli. Muniö,
takkinn lengst til hægri slekkur á
tækinu...
Sunnudagurinn 6. október
08.00 Morgunandakt = vakniði, letingjarnir
ykkar.
08.25 Létt lög; guö minn almáttugur. . .
09.05 Morguntónleikar; nei ég meinaða,
plís...
10.25 Sagnaseiður; ókey, ókey, ég gefst
upp. ..
11.00 Messa; þetta var líka alltaf vonlaust
mál.
12.20 Fréttir; fyrir þá sem vilja leggja sig
aftur.
13.30 Um dulsmál á íslandi: Jesúsamía!
14.30 Miðdegistónleikar: Jú, jú — takkinn
er lengst til hægri.
15.10 Frá íslendingum vestanhafs: On the
Road Again.
16.20 Erindi um Hallfreð vandræðaskáld.
Ha?
17.00 Síðdegistónleikar: Þeir gefast ekki
upp!
19.00 Fréttir að hætti hússins, medium rare.
19.35 Eyvindur Erlendsson rausar. . .
20.00 Léttblandaður þáttur fyrir léttruglaða
krakka.
20.40 íslenskir einsöngvarar og kórar reyna
hver um annan þveran, aö syngja,
skilst mér.
21.15 Norsk Ijóð, til dæmis. . .
21.30 Útvarpssagan eftir Dostojevskí.'
22.25 iþróttir, eða öllu heldur afreksíþróttir.
22.40 Djassþáttur. Jón Múli leiðréttir sjálfan
sig og leyfir að djass heyrist þess á
milli. Fínt.
23.35 Guðað á glugga: Pálmi prestur hjá
Rúvak gerist pervert í smá stund. . .
00.50 Dagskrárlok, að því að haldið er...
JMMMMMMA
fM
Val Björgvins Ólafssonar
útlitsteiknara
Auglýsingar eru uppáhaldssjónvarpsefnið mitt. Verst er eiginlega að
þær sömu eru sýndar nógu oft til að maður fái graenar. Því miður er ég
búinn að slíta bítlaskónum en samt ætla ég að glápa á bítiaþættina sem
þýðir auðvitað að bæði kvöldin verður maður límdur. Þannig fæ ég sjálf-
sagt sænsku myndina og Jean-Paul Belmondo í ábót. Kannski kíki ég á
litla manninn á sunnudagskvöldið ef ég nenni. Nú rás tvö heyri ég ef það
er kveikt en ekki ef það er slökkt og stundum kveiki ég meira að segja
til að láta glymja. Rás eitt? Hvað er það? Eitthvað oná brauð?
Fimmtudagurinn 3. október
14.00 Dægurlög. Einna léttustu lögin í dag,
held ég.
15.00 I gegnum tíðina. Toggi tárast yfir gam-
alli tíð.
16.00 Bylgjur. Sennilega eitthvað um vís-
indi?
17.00 Berti Möller tárast yfir liðinni tíð.
18.00 Bilun í tvo tíma.
20.00 Má ég segja 3 uppáhaldslögin mín?
21.00 Ragnheiður Davíðsdóttir fer yfir á
rauðu.
22.00 Svavar Gests á sírenustiginu.
23.00 Noröurrokk: Óli Þórðar hvað?
24.00 Búið spil.
Föstudagurinn 4. október
10.00 Geiri og Palli fastir á milli laga.
12.00 Hlé sem virkar þannig að ekkert heyr-
ist.
14.00 Pósthólfið. Frímerki sleikt og soleiöis.
Namm.
16.00 Verulega léttir sprettir. Jón ískrar.
18.00 Hlé again.
20.00 Spurt: Hvaða lag byrjar svona, gaba-
gíju, hoho?
21.00 Bergmál: Siguröur Gröndal heyrist
aftur. Og aftur!
22.00 Á svörtu nótunum: A-ha; apartheid!!!
23.00 Vignir og Toggi halda vöku hvor fyrir
öörum. Einhverjir úti í bæ hlusta og
hringja inn allskonar vitleysur og allir
fara ánægðir í háttinn.
03.00 Ðí end.
Laugardagurinn 5. október
10.00 Morgunþáttur. Ég skil nafngiftina!
12.00 Matarhlé.
14.00 Við rásmarkið. Haft upp á hreyfanlegu
fólki og því lýst hvernig það hreyfir
sig. Stutt lög á milli. Gamansögur.
Gort.
16.00 Listapopp. 2. þáttur af 4 alls.
17.00 Hringborðið. Frekar aflangt finnst
mér!
18.00 Lögboðinn frítími tæknimanna.
20.00 Línur: Rispur í plötusafninu skoðaðar.
21.00 Venni vinur djassins spinnur og spinn-
ur.
22.00 Bárujárn: Þáttur um viðhald gamalla
húsa.
23.00 Svifflugur: Sýrður rjómi í loftinu.
24.00 Næturvaktin: Haldið vöku fyrir fólki á
neöri hæðinni í alls þrjár stundir. Ég
meinaða.
03.00 Friður fólksins á neðri hæðinni.
Sunnudagurinn 6. október
13.30 Krydd I timburmennina. Helgi Már
leggur hausinn í bleyti.
15.00 Tónlistarkrossgátan: Nei, er hún virki-
lega ennþá í dagskránni!
16.00 Óskalög símhringjara. Þú hringir, viö
birtum, það ber árangur. Mundu; sex-
áttasjöeinntveirþrír.
18.00 Tími til að setja upp kartöflurnar.
jmmmmmmmmL
UTVARP
*
A nýjum morgni
SJÓNVARP
Bretinn svíkur ekki
Um leið og ég byrja að berja þetta á rit-
vélina mina, er ég að velta þvi fyrir mér
hvaða kröfur ég geri eiginlega til morgun-
útvarps. Það skiptir nefnilega meginmáli
fyrir mig og þjóðina alla, að farið sé um
okkur mjúkum höndum þegar við förum
fram úr rúmi á morgnana, — að ekki sé
talað um ef það er öfugu megin.
Eg held ég sé að komast að niðurstöðu;
í fyrsta lagi e.r ég syfjuð. Útvarpið, ásamt
sturtubaðinu, verður að vekja mig til lífsins
á ný. Það gerist best með músík. Valið verð-
ur hins vegar vandasamt, því ég er ógur-
lega viðkvæm á þessum tíma; vil ekkert of
blítt af músíktagi og ekkert of ögrandi.
I öðru lagi er ég fréttaþyrst. Frá því ég
sveif í svefninn í gærkvöld hefur liðið heil
nótt, — ég vil þess vegna fá að vita hvar ég
stend í veröldinni á nýjum morgni. Hvað
hefur gerst? Á hverju á ég von? í þriðja lagi
er ég Islendingur, eins og meginþorrinn í
landinu. Það þýðir einfaldlega að mig
hungrar í veðurfregnir. Eg vil til að mynda
gjarnan fá upplýsingar um hvort ástæða sé
til að hafa með sér reipi út úr húsi, ef ske
kynni að maður þyrfti að njörva sig fastan
einhvers staðar undir beru í baráttu við
Gloríu eða aðra álíka. Nota bene; ekki bara
í föstum veðurfregnatíma morgunsins,
heldur í einföldu máli stjórnenda þáttarins.
Og tvennt til viðbótar. Auðvitað viljum
við heyra eitthvað elskulegt af mannlífinu
inn á milli, og svo viljum við glettni. Ég fer.
ósköp blátt áfram fram á það við stjórnend-
ur þessa mikilvæga dagskrárliðar í útvarpi,
að þeir hjálpi mér yfir þröskuldinn á milli
dags og nætur með huggulegu spjalli, þar
sem drungalegum hátíðleika er varpað fyr-
ir róða.
Og því er svo við þetta að bæta, þar sem
niðurstaða vangaveltna minna liggur fyrir,
að mér finnst þau Gunnar Kvaran og
Sigríður Árnadóttir komast býsna nálægt
því að uppfylla óskir mínar í þessu efni, og
hef lúmskan grun um að þau eigi fremur
eftir að sækja í sig veðrið en hitt. Ætli gagn-
rýni mín á þau tvö mundi ekki einna helst
beinast í þá áttina, að þau mættu gjarnan
vera liprari í ákveðnum tengingum dag-
skrárliða.
Hins vegar ætla ég að viðurkenna að
mér varð um og ó svona til að byrja með
þegar ljóst var að fréttamenn tækju að sér
umsjón morgunþáttar. Fréttamenn hljóð-
varps eru fínir í sínu fagi, flestir hverjir að
minnsta kosti, en var nú ekki verið að gefa
okkur einum um of stóran skammt, þegar
við bættist svo Hér og nú á laugardögum?
Veit ekki — Hér og nú er enn ekki á dag-
skránni, svo ég segi pass í bili — en dreg
efasemdir um morgunþátt til baka. Ég er
jákvæð hingað til.
Breskt sjónvarpsefni er frægt að gæð-
um. Sjónvarpsleikrit tjallans hafa ávallt
verið hátt skrifuð um heim allan og einn-
ig á íslandi. Ég held að ég leyfi mér að
taka það djúpt í árinni að fullyrða, að án
breskra sjónvarpsleikrita og leikinna
sjónvarpsmynda hefðum við Islendingar
aldrei kynnst alvöruleik, alla vega ekki
æðstu gæðum leikhússins hvað leik
snertir.
Sl. mánudag áttum við kost á að horfa
á eitt meistaraverkið enn frá Bretlandi,
Fílabeinsturninn (Ebony Tower), sjón-
varpsmynd frá fyrra ári í leikstjórn
Robert Knight. Aðalhlutverkin voru ekki
í höndum viðvaninga; gamli meistarinn
Sir Laurence Olivier lék hinn aldraða,
sérvitra málara sem dregið hefur sig í hlé
frá amstri Bretlands og lifir á list sinni á
frönskum herragarði. Sér til dægrastytt-
ingar hefur hann tvær stúlkur. Roger
Rees, hinn blæbrigðaríki og öruggi leik-
ari sem við munum hve best eftir í aðal-
hlutverki Nickolas Nickelby, lék ungan
rithöfund sem kemur á fund málarans til
að skrifa um hann bók. Hinn sérstæði
Leikarar á við Sir Laurence Olivier hafa gert
bresk sjónvarpsleikrit heimsfræg.
fundur sem reyndar stendur aðeins í tvo
daga er uppistaða myndarinnar sem
byggir á sögu John Fowles.
Sem fyrri daginn er það leikurinn sem
ber þessa bresku mynd uppi. Með allri
virðingu fyrir kvikmyndatökunni, bún-
ingunum og klippingunni, voru það leik-
ararnir sem skiluðu hinum eftirminni-
legu persónum ,,yfir“ (eins og sagt er á
leikhúsmáli) með einstæðum hætti.
Maður veltir því oft fyrir sér, hvers
vegna Bretar eigi betri leikara en aðrar
þjóðir. Hefðin, jú vissulega, og leikhús-
menning. En hvað með Frakka, ítali og
Grikki? Svo nefnd séu dæmi af handa-
hófi. Kannski er skýringuna þar einfald-
lega að finna, að Bretar hafa veðjað á
leiklistina í ríkisfjölmiðlum sínum. Þeir
hafa þorað að setja mikla peninga í leik-
listardeild BBC, bæði fyrir útvarp og sjón-
varp og skera nú upp ríkulegan ávöxt af
þeirri viðleitni. Sannleikurinn er nefni-
lega sá, að bresk kvikmyndaframleiðsla
er dapur kafli í alþjóðlegri kvikmynda-
sögu allt fram að sjöunda áratugnum þeg-
ar breska raunsæið varð heimsfrægt.
Bestu sjónvarpsleikrit heims í dag byggja
ekki á glæsilegri fortíð í kvikmyndum.
Stundum leyfir maður sér að hugsa
sem svo; ef til væru nægir peningar í göt-
óttum ríkiskassanum íslenska, ef til væru
hugaðir menn á valdatindum útvarps og
sjónvarps og ef til væri einhver raunhæf
stefna í íslenskri menningu: Fengjum við
kannski fyrsta íslenska sjónvarpsleikritið
sem stæði undir nafni?
En meðan mann dreymir um betri tíð í
íslenska sjónvarpinu, er best að nota
hvert tækifæri til að horfa á bresk sjón-
varpsleikrit.
22 HELGARPÓSTURINN