Helgarpósturinn - 07.08.1986, Page 8
AKÆRÐIR FYRIR FOLSUN
OG RANGAN FRAMBURÐ
ÓLAFUR HRÓLFSSON, FYRRUM STJÓRNARMAÐUR íLÖGVERND, OG VALGEIR
KRISTINSSON, FYRRUM BÆJARLÖGMAÐURIHAFNARFIRÐI, HAFA VERIÐ
ÁKÆRÐIR FYRIR MEINTA FÖLSUN Á VOTTORÐI VEGNA ERFÐASKRÁR, RANGAN
FRAMBURÐ OG ÓLAFUR FYRIR ÓLÖGMÆTA RÁÐSTÖFUN Á EIGNUM ÚR
DÁNARBÚI. FRAMBURÐUR VITNA STANGAST Á. EINKADÓTTIR HINS LÁTNA
HEFUR AÐ ÖLLUM LÍKINDUM TAPAÐ SÍNUM HLUTA ARFSINS.
Ríkissaksóknaraembœttid hefur
gefid út opinbera ákceru á henclur
Ólafi Hrólfssyni, fyrrum stjórnar-
manni í samtökunum Lögvernd, og
tveimur ödrum einstaklingum fyrir
meinta fölsun vid frágang á erföa-
skrá móöurbróöur Ólafs, Magnúsar
Ólafssonar heitins, sem um árabil
var sundkennari og sundlaugavörö-
ur á Akureyri. Eru þeir ákœröir fyrir
meinta fölsun á vottoröi erföaskrár-
innar og Ólafur fyrir ólögmœta ráö-
stöfun á eignum dánarbúsins. I
tengslum viö máliö hefur ákœru-
valdið svo oggefiö út ákœru á hend-
ur Valgeiri Kristinssyni, lögmanni
og fasteignasala, fyrrverandi bœjar-
lögmanni í Hafnarfiröi, fyrir meinta
hlutdeild í röngum framburöi vitn-
anna.
Tildrög þessa máls eru þau, að í
desember 1983 lést á Vífilsstöðum
áðurnefndur Magnús Ólafsson,
móðurbróðir Ólafs. Við lát hans tók
Ólafur að sér að sjá um málefni dán-
arbúsins. Samkvæmt heimildum
Helgarpóstsins felur hin opinbera
ákæra í sér að Ólafur hafi gengið frá
vottorði vegna erfðaskrár Magnús-
ar og kvatt til tvo votta — að Magn-
úsi látnum og Valgeiri Kristinssyni
viðstöddum. Ólafur tók síðan að
ráðstafa eignum úr dánarbúinu,
seldi meðal annars húseign Magnús-
ar að Laxagötu 6 á Akureyri og
keypti íbúð að Öldutúni 14 í Hafnar-
firði. Magnús átti dóttur utan hjóna-
bands, Huldu Magnúsdóttur, en
þeirra samskipti höfðu aldrei verið
náin og var hennar ekki getið í
erfðaskránni.
Nokkru eftir lát Magnúsar gerist
það að Ólafur og eiginkona hans,
Ragnheiður Gústafsdóttir, skilja.
Mun sá skilnaður ekki hafa verið án
átaka, enda bú þeirra tekið til gjald-
þrotaskipta. Við yfirheyrslur vegna
búskiptanna í fógetarétti kom fram
sá framburður Ragnheiðar, að ekki
hefði allt verið með felldu hvað
varðaði frágang á erfðaskrá Magn-
úsar heitins. Dóttir Magnúsar,
Hulda, hafði fylgst með málinu og í
gegnum Iögmann sinn fór hún fram
á uppskrift á eignum dánarbúsins
og að afhendingu arfsins yrði frest-
að. Var skiptaráðanda, Má Péturs-
syni, bent á vafasamar kröfur Ólafs
Hrólfssonar, sem meðal annars hélt
því fram að Magnús hefði gefið sér
við hin og J>essi tækifæri ýmsar
eignir sínar. A þessar kröfur var hins
vegar ekki hlustað að því er virðist
og var meðal annars íbúðin að Öldu-
túni í Hafnarfirði seld og mun
skiptaráðandinn, Már Pétursson,
síðar hafa skrifað undir afsal vegna
þeirrar sölu.
Þótt Huldu Magnúsdóttur hafi
ekki verið getið í erfðaskrá Magnús-
ar er kveðið á um það í lögum, að sé
um skylduerfingja að ræða (maka
eða börn) megi ekki ráðstafa með
erfðaskrá meiru en einum þriðja
hluta eigna til annarra. Samkvæmt
heimildum Helgarpóstsins voru
eignir dánarbúsins metnar á um
tvær milljónir króna og fólu meðal
annars í sér húseign með innbúi, fé
á sparisjóðsbók og bifreið. Sam-
kvæmt lögum átti því Hulda tilkall
til sem nemur tveimur þriðju hlut-
um þessara eigna, sem nú hefur
hins vegar verið ráðstafað. að
fullu eftir þrotabúskiptin, þar sem
einhliða yfirlýsingar Ólafs Hrólfs-
sonar um gjafir Magnúsar til sín
voru teknar gildar þrátt fyrir viðvar-
anir lögmanns Huldu í þeim efnum.
Eftir framburð Ragnheiðar Gúst-
afsdóttur við þrotabúskiptin um
vafasaman frágang erfðaskrárinnar
fór málið til Rannsóknarlögreglu
ríkisins til rannsóknar. Niðurstöður
þeirrar rannsóknar voru sendar
ríkissaksóknaraembættinu, sem
síðan gaf út opinbera ákæru gegn
Ólafi, vottunum tveimur og Valgeiri
Kristinssyni lögmanni, fyrir sak-
næmt athæfi við gerð erfðaskrár-
innar; vottorðafölsun, rangan fram-
burð og ólögmæta ráðstöfun eigna
úr dánarbúinu.
Málið er nú í höndum Guðmund-
ar L. Jóhannessonar, dómara í
Hafnarfirði. Hann hefur haft málið
hjá sér um nokkurt skeið, en í sam-
tali við Helgarpóstinn sagði Guð-
mundur að hann væri nú að íhuga
að leita til dómsmálaráðuneytisins
um að setudómari yrði fenginn í
málið vegna persónulegra tengsla
Valgeirs við embættið, meðan ann-
ars sem fyrrverandi bæjarlögmað-
ur.
Ekki tókst Helgarpóstinum að ná
tali af Ólafi Hrólfssyni vegna þessa
máls. í samtali við Helgarpóstinn
vildi Valgeir Kristinsson ekkert tjá
sig um málið, en sagði ásakanir á
hendur sér alvarlegar og óréttmæt-
ar. Samvkæmt heimildum Helgar-
póstsins stangast framburður hans á
við framburð annarra ákærðra í
máli þessu. Það skal ítrekað og und-
irstrikað að enginn dómur hefur
fallið í máli þessu og engin sekt
sönnuð, en ef á hin bóginn ásakanir
á hendur Valgeiri verða sannaðar á
hann á hættu að missa lögmanns-
réttindi sín. „Það er sem betur fer
afar fátítt að lögmenn missi réttindi
sín,“ sagði Sveinn Snorrason, íor-
maður Lögmannafélags Islands, í
samtali við Helgarpóstinn, en stjórn
félagsins kemur til með að fjalla um
mál Valgeirs og meta mögulegan
réttindamissi í ljósi umfjöllunar
dómstóla. Annar lögmaður taldi í
samtaíi við Helgarpóstinn, að senni-
lega hefðu aðeins þrír lögmenn
misst þannig réttindi sín frá upphafi.
í máli þessu fyrir dómi verður
væntanlega fjallað um þrotabú-
skipti Ólafs og Ragnheiðar. í því
sambandi hlýtur meðferð skiptaráð-
andans, Más Péturssonar, að koma
til tals, en hann hefur samkvæmt
þessu ekki talið þörf á því að draga
búskiptin á langinn þrátt fyrir við-
varanir lögmanns Huldu um að
framburður Ólafs um gjafir Magnús-
ar til sín væri vefengjanlegur og
þrátt fyrir framburð Ragnheiðar um
vafasaman frágang á erfðaskránni.
-FÞG
Uppapresturinn frá Uppsölum verður í Reykjavík nú um helgina
VERÐI MINN VILJI
Á morgun, föstudaginn 8. ágúst,
kemur sœnski guðfrœðingurinn Ulf
Ekman til landsins. Hann er mjög
umdeildur í heimalandi sínu eins og
viö greindum frá hér í HP fyrir hálf-
um mánuði, en nú gefst Islending-
um tœkifœri til þess aö kynnast Ek-
man og boöskap hans afeigin raun.
Samkomurnar veröa haldnar í Bú-
staöakirkju í Reykjavík og verða
þœr töluvert ólíkar því messuhaldi
sem þar hefur fariö fram til þessa, ef
eitthvaö er aö marka þœr fregnir
sem borist hafa hingaö til lands frá
Svíþjóö.
í Svíaríki hefur mikið verið skrif-
að um Ulf Ekman og söfnuð hans,
Livets ord, á þessu ári. Dagblað í
Uppsölum, Upsala Nya Tidning,
hefur m.a. birt um þetta heila
greinasyrpu, enda er þeim málið
skylt þar sem höfuðstöðvar safnað-
arins eru þar í borginni. Af þessum
greinum má ráða að það sé helst
Biblíutúlkun Ekmans, sem menn
hnjóta um og eiga erfitt með að
samþykkja, en einnig hefur umbún-
aðurinn og hið ytra form á samkom-
um verið umdeilt. Að endingu hafa
efasemdamenn bent á fjárhagshlið-
ina á stofnuninni og þóst sjá þar
ýmsa maðka í mysunni.
MONGÓLÍTAR GETA
LÆKNAST
Túlkun Ekmans á Biblíunni verð-
ur að kallast afar jákvæð, jafnvel
glannalega jákvæð. Sænski blaða-
maðurinn, sem skrifaði fyrrnefndan
greinaflokk, fór á samkomu hjá
Livets ord þar sem amerískur lækn-
ingaprestur lagði hendur yfir fólk
með alls kyns kvilla. Þar á meðal
var mongólíti, en hingað ti! hefur
ekki mikið verið reynt að ,,lækna“
þá. Þegar blaðamaðurinn spyr síð-
an Ulf Ekman hvort mongólítinn
hafi virkilega haft von um bata eftir
þessa handayfirlagningu, hafði
hann eftirfarandi að segja:
„Sjúkdómar eru engin Guðsbless-
un. Syndin, dauðinn og sjúkdómar
eru verk erkifjanda mannanna,
djöfulsins. Jesús læknar þá sjúkl-
inga, sem á hann trúa.
Það eru dæmi þess að mongólítar
virðast lifna við og taka meira við
sér. Ég trúi því, að þeir hafi mögu-
leika á að verða alheilbrigðir. Guð
getur gert kraftaverk á sviðum, sem
okkur mönnunum virðast óhugs-
andi.“
EKMAN SKIPAR OG
GERIR KRÖFUR
Einn fyrrum lærifaðir Ekmans við
guðfræðideildina í Uppsalaháskóla,
Sigbert Axelson lektor, fylgist
grannt með framgangi mála hjá
Livets ord. Hann segir að Ulf Ekman
hafi strax í skóla tilheyrt hópi
manna, sem reyndi að sanna tilvist
Guðs með því að sýna fram á að
kraftaverk gætu gerst. Axelson hef-
ur ýmislegt við starfsemi safnaðar-
ins að athuga, m.a. persónudýrkun-
ina á Ekman og það gífurlega vægi,
sem hann sjálfur hefur í allri starf-
seminni. Þessi mikla áhersla á Ulf
Ekman sem einstakling telur Axel-
son hins vegar að muni verða til
þess að hreyfingin verði ekki langlíf.
Segir hann að boðskapurinn sé
alltof innantómur og einhæfur til að
geta staðið undir svo stórum söfnuði
til lengdar.
Samkvæmt upplýsingum frá þess-
um sænska guðfræðilektor, mun
Ekman hafa sótt framhaldsmennt-
un til babtistaprests í Oklahoma í
Bandaríkjunum. Presturinn heitir
Kenneth Hagin og er hann sagður
hitta himneskar verur eða jafnvel
Jesú sjálfan, þegar hann sér sýnir.
Hagin þessi tengist samtökum, sem
kallast Full Gospel, en það er trúar-
hreyfing sem byggir á hægriöfgum,
að því er Sigbert Axelson segir. I
blaðaviðtali fyrr í sumar heldur
Axelson því einnig fram að Full
Gospel séu samtök ríkra atvinnu-
rekenda og að þau hafi m.a. veitt
kontra-skæruliðum í Nicaragua fjár-
stuðning.
Að endingu finnur guðfræði-
lektorinn að viðhorfi Ekmans til
Guðs, og segir að hann feli Guði
aldrei vandamál sín til úrlausnar á
þann hátt sem Honum sé þóknan-
legur. Orðrétt segir Axelson: „Mað-
ur leggur vandamálin í hendurnar á
Guði og síðan verður það sem verða
vill. Ekman skipar Guð hins vegar
fyrir og setur fram kröfur. Aldrei hef
ég heyrt hann segja „Verði þinn vilji,
en ekki minn“.“
Eins og fyrr segir, er allt hið ytra
form á samkomum Livets ord af-
skaplega ólíkt því sem fólk á að
venjast í guðsþjónustum innan ís-
lensku þjóðkirkjunnar. Söfnuðurinn
tekur mikinn þátt í því sem fram fer,
klappar saman lófunum, teygir upp
hendurnar og syngur með lítilli
hljómsveit, sem þarna er. Einnig er
fólk hvatt til þess að snúa sér að
sessunautum sínum og tjá þeim t.d.
að maður sé því feginn að Jesús lifi
og annað í þeim dúr. Síðast en ekki
síst, er það ekki algeng sjón í ís-
lenskum guðshúsum að ílát séu látin
ganga á milli kirkjugesta í þeim til-
gangi að þeir láti fé af hendi rakna
til safnaðarstarfsins. Þetta er hins
vegar regla hjá Livets ord, enda er
það einkastofnun og hefur ekki ann-
að rekstrarfé en það sem velunnar-
ar reiða af hendi.
Hvort sama „stemmning" verður
á samkomunum í Bústaðakirkju og
Ulf Ekman hefur tekist að skapa í
Uppsölum, kemur í ljós nú um helg-
ina. Orð forstöðumanns Livets ord
verða túlkuð af Asmundi Magnús-
syni lækni, sem numið hefur við
Biblíuskóla Ekmans í Svíþjóð ásamt
konu sinni og a.m.k. einum öðrum
íslendingi. Tungumálaerfiðleikar
ættu því ekki að standa í vegi fyrir
því að boðskapur Ulfs Ekman kom-
ist til skila. Hvort orð hans falla í
frjósama jörð hér uppi á lslandi,
verður reynslan hins vegar að skera
úr um. -JL
3 HELGARPÓSTURINN