Helgarpósturinn - 11.12.1986, Qupperneq 21
Vrni BJörnsson
/»oníil)IóI
ÍSLENSK FRÆÐI OG ALPJÓÐLEG
Þqrrablót
á íslandi
eftir Áma Bjömsson þjóðháttafræðing
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur er löngu þjóðkunnur sem
fræðimaður, rithöfundur og útvarpsmaður. Margir þekkja bækur
hansJóláíslandi, Sagadaganna, Merkisdagar á mannsævinni og
í jólaskapi. Hér er á ferðinni ný bók eftir Arna um þorrann og
þorrablót á íslandi fyrr og nú. Þetta er sannkölluð veislu- og
skemmtanabók. Þangað má sækja söngtexta og veislugaman tii
að nota á góðri stund. í bókinni eru á þriðja tug söngtexta með
lögum. Þar eru á 8. tug Ijósmynda auk teikninga þar sem Sigurður
Valur Sigurðsson myndlistarmaður dregur fram hugmyndir
fræðimanna um forna siði og horfna þjóðhætti.
Bók handa öllum sem unna þjóðlegum fræðum og þeim sem
ætla sér á þorrablót.
f J 1 ; II Ifj Íji || * iii
m jjaS$|
Spakmælabókin
Præg og fleyg orð í gamni og alvöru.
TorftJónsson safnaði, setti saman og þýddi.
„Qóð bók er eins og aldingarður sem maður
er með í vasanum," segja Arabar. Þessi bók
er ómissandi öllum þeim sem þurfa að nota
fleyg orð með stuttum fyrirvara í ræðu og riti
því hér er að finna margt það snjallasta sem
sagt hefur verið og ritað.
Bók til fróðieiks og skemmtunar.
Draumar og
ráðning þeirra
eftir Qeir Gunnarsson
íslensk bók byggð á reynslu kynslóðanna
Þetta er bók sem veitir svör við ótal
spurningum. Frá fyrstu tíð hefur fólk til sjávar
og sveita gert sér ljóst að draumar eru
táknrænir og geta jafnvel á stundum verið
dýpri og sannari en sjálf vökuskynjunin. Þeir
eru vitranir, fýrirboðar og spásagnir um
óorðna atburði.
Þessi bók hjálpar þér við að ráða í
táknmál draumanna.
Horfnir heimar
Leyndardómar sögunnar í nýju Ijósi
eftir Ólaf Halldórsson
Höfundur býður upp á spennandi könnunar-
ferð um baksali sögunnar og fjallar um það
sem hefðbundin sagnfræði veigrar sér við.
Bókin skiptist í allmarga þætti og fjallar um
fjölmörg svið, allt frá uppruna íslendinga til
áhrifa framliðinna á fornleifafundi. Magnað
lesefni þar sem margt kemur á óvart.
Indiánar í Mið-Ameríku tilbáðu guðinn
Quetzalcoatl sem var hvítur og skeggjað-
ur. Var þetta Björn Breiðvíkingakappi?
BÓKAÚTGÁFAN ÖKN & ÖKLYGUR
Síðumúla 11, sími 84866
HELGARPÓSTURINN 21 B