Helgarpósturinn - 11.12.1986, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 11.12.1986, Blaðsíða 22
texti: Anna Kristine Magnúsdóttir „ÁSTAMÁL OG SPENNA FYRIR UNGLINGANA - JÓLASVEINAR OG FURÐUVERUR FYRIR BÖRNIN" Lítii geimvera sem komin er til jarðarinnar, skemmtilegir jólasvein- ar á ferðalagi um landið, fimm ára heimsmeistari í bata og hvalveiði- mennirnir Óli og Maggi eru meðal þeirra sem yngri lesendurnir geta fengið að kynnast um jólin. íslenskir barnabókahöfundar standa sig vel í stykkinu og fyrir jólin koma á mark- að margar góðar bækur sem vert er að huga að. Sigrún Eldjárn sendir frá sér barnabókina B2-Béfveir sem segir frá litla snáðanum Áka og geimver- unni Bétveir. Bétveir er kostuleg vera með tvö höfuð og fjóra fætur og segist vera kominn til jarðarinn- ar til að kynnast stórkostlegu fyrir- bæri sem hann hefur frétt að sé til þar. Þessi bók er unnin í fullum lit- um og er prýdd fjölda litmynda. Bókin sem dreifir huga barnanna fyrir jólin heitir ,,Ekki á morgun, ekki kinn. . .“ og er eftir Ragnheiöi Gestsdóttur. Á hverjum degi fram til jóla geta börnin lært eitthvað nýtt í máli og myndum, og búa til jólakort og jólaskraut, kökur og sælgæti. Idunn Steinsdóttir og Búi Kristj- ánsson eru höfundar bráð- skemmtilegrar barnabókar sem ber nafnið „Jólasveinarnir". Hún segir f rá ferðalagi jólasveinanna um land- ið þar sem ýmislegt sniðugt hendir þá. Bráðskemmtilegar teikningar Búa Kristjánssonar vekja enn frek- ari áhuga barnanna á að kynnast þessum kunningjum sínum nánar. í mörgum bókaverslunum er mælt með bókinni „Beta-heims- meistarinn" eftir Vigfús Björnsson. Sagan segir af Betu, fimm ára teipu sem veikist alvarlega af berklum og þarf að fara á hæli. Heimþráin gerir henni erfitt um vik svo hún grípur til sinna ráða. Þegar hún loks kemst heim veitir yfirlæknirinn henni sæmdarheitið „heimsmeistari í batá'. Ármann Kr. Einarsson skrifaði fyrir rúmum 20 árum bók sem nú kemur út endurunnin undir nafninu „Hvalveibimenn í bjarnarklóm" og á vel við á þessum tímum þegar um- ræða um hvalveiðar er sem mest. Þar segir frá Óla og Magga, kunnum köppum úr fyrri bókum Ármanns, sem í þessari bók gerast hvalveiði- menn í Norðurhöfum. Þeir komast í hann krappan með áhöfninni á einu hvalveiðiskipa Hvals h.f. og lendir skipið m.a. í hafís. Hörkuspennandi saga fyrir alla krakka, ekki bara strákana. Nýstofnaður verðlaunasjóður ís- ■lenskra barnabóka veitti fyrstu barnabókaverðlaunin í vor. Komu þau í hlut Gubmundar Ólafssonar, höfundar bókarinnar „Emil og Skundi". Þetta er falleg saga um Reykjavíkurstrák og hundinn hans og söguþráðurinn er spennandi. „Saman í hring" er nafnið á nýj- ustu bók Gubrúnar Helgadóttur og er hún sjálfstætt framhald bókarinn- ar „Sitji Guðs englar“ sem kom út fyrir tveimur árum. I þessari bók segir nánar af Lóu-Lóu, yngstu syst- urinni og er ekki að efa að lesendur Guðrúnar bíða spenntir eftir fram- haldinu. Þýddar bækur fyrir þau yngstu eru margar og má nefna bókina „Vib Andrés" sem sennilega verður kærkomin gjöf ef marka má vin-_ sældir þeirra félaga hér á landi. I bókinni eru nokkrir kaflar og fá börnin m.a. að kynnast tómstunda- störfum Andrésar og raunum Andr- ésínu auk annars. Tvær matreiðslubækur fyrir börn eru nýkomnar út. Þær heita „Veislu- matur“ og „Heitir réttir“. Þessar bækur eru sérstaklega samdar fyrir börn og skýr texti og f jörlegar teikn- ingar eru börnunum til leiðbeining- ar. Bækurnar eru þýddar og stað- færðar af Sigrúnu Davíbsdóttur. Enn ein óviðjafnanleg bók eftir höf- undinn Astrid Lindgren er komin út og heitir „Drekinn meb raubu aug- un". Hún segir frá grísamömmu sem eignast tíu grísi og einn dreka — og hvað gera börnin þá?! Þá er komin ný söngbók barnanna sem ber nafn- ið „Fljúga hvítu fibrildin" og inni- um stundum fyrir framan sjónvarp- ið er ljóst af sölu unglingabóka að þeir lesa — og ekki bara um jól, því ódýrari bækur í kiljuformi seljast jafnt og þétt allt árið til ungling- anna. Dýrari og vandaðri bækurnar fá þau heldur í gjafir og víst er að lít- ill vandi verður að velja fyrir þessi jól. Andrés Indribason sendir frá sér tvær bækur, „Meb stjörnur í aug- um“ og „Enga stœla". Fyrrnefnda tekin í strákaklíkuna eftir slagsmál, lendir í háska í búningsherbergi stelpnanna og heyr að lokum ein- vígi upp á líf og dauða — vegna stelpu! „Ein af strákunum" er bók um vináttu og fjandskap, gleði og sorg, og um það hvernig hlutverka- skipti geta orðið til þess að maður skilji lífið ögn betur. „Sumardansinn“ er saga af tveim- ur 16 ára strákum sem eru nánir vin- ir þótt óiíkir séu. Þeir hitta Lísu, heldur yfir hundrað vísur og kvæði, þekkt og lítt þekkt með nótum og gítargripum. Helga Gunnarsdóttir tónmenntakennari safnaði lögum og vísum og Ragnheibur Gestsdóttir teiknaði myndir. Svona bók hefur lengi vantað á barnaheimili og leik- skóla og er að sjálfsögðu kjörin á hvert heimili þar sem börn eru. Ný gerð smábarnabóka sem eru að koma á markað á meginlandi Evrópu þessar vikurnar kallast „leikbækur" og eru tvær bækur í þeim flokki væntanlegar fyrir jólin. Þetta eru bækur ætlaður þeim al- yngstu og inni í þeim eru plastþynn- ur með augum, munnum, nefjum og fleiru sem börnin setja á andlitin í bókunum. Þær bækur sem koma fyrir jólin heita „Furbufés" og „Furbulúbar". Þá eru væntanlegir fjórir bókatitlar fyrir litla bóka- orma, harðspjaldabækurnar ,,Leik- föngin mírí', „í dýragarbinum", „Fötin mírí' og „Dýrin mín smá“. Einnig koma ævintýrabækurnar „Segbu mér sögu“ og ,yEvintýri og sígildar sögur" með vinsælum þekktum ævintýrum eins og Mjall- hvít og dvergarnir sjö, Rauðhetta og Hans og Gréta. Ást, ást, ást snemma að morgni... Það sem helst einkennir þær unglingabækur sem koma á markað eru ástamálin sem nú eins og alltaf eru jafn ómissandi í sögu um unglinga. Við gefum sem betur fer ekki bara þeim yngstu og þeim elstu bækur í jólagjafir því ungling- arnir lesa líka. Þrátt fyrir að oft sé sagt að unglingar nútímans eyði öll- bókin segir frá Sif, sautján ára stúlku í fjórða bekk Menntaskólans sem fellur fyrir sætasta stráknum í fimmta bekk. Skemmtileg og vel skrifuð saga, átakamikil og sönn úr lífi ungs fólks í Reykjavík. „Enga stœlal" er sjálfstætt framhald af bókinni „Bara stœlar'' sem kom út fyrir jólin í fyrra. Þetta er æsispenn- andi og gráthlægileg unglingasaga sem fjallar um tvo unglinga sem eru í unglingavinnu sumarið eftir átt- unda bekk. Þau verða vitni að myrkraverkum í skólanum sínum um miðjan dag og það þýðir ekkert að vera með stæla þegar maður er allt í einu kominn í hlutverk leyni- löggu! „Efþú bara vissir'' nefnist ný bók Helgu Ágústsdóttur sem skrifaði metsölubókina „Ekki kjafta frá". Söguhetjan í „Ef þú bara vissir" heldur að það auðveldi tilveruna að fara í vinnu til Mallorka og stígur aft- ur á föðurlandið reynslunni ríkari eftir viðburðaríkt sumar við Mið- jarðarhafið... „Algjörir byrjendur" heitir ný bók Rúnars Ármanns Arthúrssonar og segir frá félögunum Grímsa og Palla, uppátækjum þeirra og mismunandi fjölskyldulífi. Spennandi saga fyrir unglinga — og að sjálfsögðu kemur stelpa inn í málið! Þýddar unglingabækur eru marg- ar á markaði nú. Meðal þeirra má nefna „Ein afstrákunum". Þar segir frá stúlkunni Simone sem líkist strák í útliti og þegar hún kemur í nýjan skóla hafa orðið mistök. Simone er álitin vera strákurinn Símon og er sæta stelpu frá vel stæðu heimili og verða báðir hrifnir af henni. í úti- legu sem þau fara þrjú saman í ger- ast óhugnanlegir hlutir þegar mót- orhjólaklíkan Englarnir mætir á svæðið. . . Þá er þess vert að geta að saga;n af Hófí árið sem hún var alheims- drottning hefur verið tekin saman af Jóni Gústafssyni, sjónvarpsmannin- um góðkunna. Sagan er byggð á dagbókum Hófíar og er prýdd fjöl- mörgum myndum. Viðfelldinn lest- ur og lærdómsríkur, um það hvað það er í raun að vera „Ungfrú heim- ur“. „Kœri Sáli" er bók sem Sigtryggur Jónsson sálfrœbingur hefur tekið saman. Þar eru birt bréf frá ungu fólki og þau mál sem unglingum liggja á hjarta eru rædd. Þessi bréf voru upphaflega lesin í útvarpsþætt- inum Frístund sem naut mikilla vin- sælda á Rás II. Unglingar geta sótt í bókina fróðleik, hvatningu og góð ráð og er ekki síður gagnlegt for- eldrum sem vilja öðlast betri skiln- ing á lífi og tilfinningum barna sinna á því stórkostlega æviskeiði sem unglingsárin eru. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru varðandi þær bækur sem á markað koma fyrir jólin fyrir börn og unglinga. Margar bókanna voru ekki komnar út þegar þessi grein var unnin en við vonum að þessar upplýsingar verði einhverjum að gagni. Þá er bara að fara í næstu bókaverslun og hefja jólagjafakaup- in! 22 B HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.