Helgarpósturinn - 11.12.1986, Page 23
Svartá Ftvítu
Spurning sú sem leitar á lesand-
ann er hvað verður um ungling-
inn, hvert á hann að leita, er nema
von að hann villist af leið???
Sagan er að hluta til skrifuð í
þriðju persónu — um Grímsa — og
að hluta í fyrstu persónu — hugleið-
ingar Grímsa. Þessi uppbygging gef-
ur lesanda fleiri en eitt sjónarhorn
og gefur sögunni víðara samhengi
og aukna spennu. Höfundur lætur
hvorn frásagnarstíl fyrir sig ráðast af
atburðum, t.d. er frásögn í þriðju
persónu notuð þar sem Grímsi situr
við að þýða texta David Bowie
Absolute Beginners, en færir síðan
Gagnrýnendur
bókablaðs HP
Dómana í bókablaði HP að
þessu sinni skrifuðu Gunnlaugur
Ástgeirsson (G.Ást), Heimir Páls-
son (HP), Helgi Skúli Kjartansson
(HSK), Ingunn Ásdísardóttir (IA)
og Sölvi Sveinsson (SS). Þetta er
áréttað þar eð einungis fanga-
mark höfundanna stendur undir
hverjum dómi.
BÓKMENNTIR
Hverjir eru byrjendur?
Algjörir byrjendur
e. Rúnar Ármann Arthúrsson
Útg. Svart á hvítu.
Svart á hvítu gefur út unglinga-
bókina Algjörir byrjendur eftir Rún-
ar Ármann Arthúrsson. Þetta er
fyrsta skáldsaga Rúnars en áður hef-
ur hann gefið út ljóðabók, svo og
viðtalsbók við Jónas Árnason.
Algjörir byrjendur segir frá
Grímsa og Palla sem eru fimmtán
ára vinir jem búa með fjölskyldum
sínum í Þingholtunum. Fjölskyldu-
lífið, fjárhagsáhyggjurnar, stelpu-
málin, skólinn, brennivínið — allt er
þetta til staðar í lífi unglingsins sem
er að verða kynþroska og verður að
reyna að rata inn í fullorðinsheim-
inn gegnum þann frumskóg sem
unglingsárin eru. Grímsi, sem er
aðalpersóna bókarinnar er milli
vita, hálftýndur milli þess að vera
ekki lengur barn og ekki heldur full-
orðinn og þetta er ekkert ofsalega
skemmtilegt ástand, — algerlega
öfugt við hina viðteknu mynd ungl-
ingasagna þar sem þetta tímabil er
skemmtilegt, rómantískt, allt í góðu
gamni, einfalt og auðskilið.
Raunveruleiki nútímaunglingsins
stígur hér fram nokkuð skýr í sam-
félagi sem gert er fyrir fullorðna, og
bara fullorðna sem meikaþað, sam-
félagi þar sem streitan og vandamál-
in ríða húsum og nærtækasta lausn-
in er brennivín og barsmíðar og
flótti í kvennaathvarf.
Með skáldsögunni Grámosinn glóir kemur Thor
Vllhjálmsson eflaust mörgum á óvart. Hann sækir nú
efnivið sinn til íslenskra sakamála á 19. öld og nýtir
sér að nokkru tækni spennusagna en spinnur í sömu
mund saman prjár ástarsögur.
Grámosinn glóir er pó umfram allt samfeildur óður
til fslands.
Thor VNrualmsson
Hlgjör
DÚNDURSACA FYRIR
■ ■ m. mÆthm hba ■ &■
UNUUNUA
EFTIR
RÚNAR ÁRMANN ARTHÚRSSON
SAGAN ALGJÖRIR BYRJENDUR gerlst
í Reykjavík nútímans. Þar seglr frá
unglingsstráknum Crímsa og fyrstu ástinni
hans, kunningjunum og fleira fólki
veturinn sem sprengjan sprakk. Ekki alveg
tíðindalaus vetur það! pessi fyrsta skáldsaga
Rúnars Armanns er bæðl skemmtileg og
spennandf afiestrar. Dúndursaga fyrir
ungllnga.
frásögnina yfir í fyrstu persónu þeg-
ar Grímsi fer, út frá þýðingu sinni á
textanum, að hugsa um stelpuna
sem hann var einu sinni skotinn í og
hvort hann eigi að segja Palla frá
henni.
Algjörir byrjendur er hressileg og
góð saga, en mér finnst alveg eins
mega kalla hana unglinga- og fullorð-
inssögu eins og bara unglingasögu.
Þetta er saga sem segir okkur ýmis-
legt en er jafnframt skemmtileg og
spennandi aflestrar. Það er ekki ver-
ið að predika neitt, hvorki fyrir
unglingum né fullorðnum, en það
er kastað fram ýmsum spurningum
sem vert er að velta fyrir sér og at-
huga með sjálfum sér hvort maður
finnur svar.
Áfram Rúnar Ármann. -I.Á.
HEFUR HLOTIÐ EINRÓMA LOF
'*«*♦ f <
' *'*»» « ,
*!**««» •
HELGARPÓSTURINN 23 B