Helgarpósturinn - 05.03.1987, Síða 3
FYRST OG FREMST
mmk W*&m, <&T ^<r\\r //Zm iíJLM xi//z/ v£rþ í&Yi
VERKTAKA bransinn er
skemmtilegur. Og spinnast oft
gamansögur af viðskiptum verk-
taka og verkkaupa. Ein slík er
sögð af viðskiptum Davíðs Odds-
sonar borgarstjóra og þriggja
verktaka.
Borgarstjóri þurfti að fá unnið
ákveðið verk fyrir borgina og
ákvað að fram skyldi fara útboð.
Þegar útboðsfrestur rann út kom í
ljós að þrjú verktilboð bárust. Eitt
frá Akureyri, annað frá Reykjavík
og það þriðja úr Hafnarfirði.
Akureyrarverktakinn vildi taka
þrjár milljónir fyrir verkið, Reyk-
víkingurinn sex og Hafnfirð-
ingurinn níu milljónir. Þótti
borgarstjóra verkið misdýrt og
ákvað að kalla verktakana þrjá
fyrir sig og leita eftir skýringum.
Kallaði hann fyrst fyrir sig
Akureyring, og spurði hvernig
hann vildi sundurliða tilboðið, og
ekki stóð á svarinu: „Milljón í efni,
milljón í laun og milljón í hagnað,"
svaraði Akureyringurinn. Gott og
vel hugsaði borgarstjóri og beindi
sömu spurningu til Reykvíkingsins,
og hann svaraði að bragði: „Tvær
milljónir í efni, tvær milljónir í
laun og tvær milljónir í hagnað,"
sagði Reykvíkingurinn án þess að
blikna. Og borgarstjóri hugsaði
með sér, að hér væri ekkert gefið
við dyrnar. Eftir þessi svör gerðist
borgarstjóri eftirvæntingarfullur
og vildi ræða við Hafnfirðinginn
strax. Lagði hann sömu spurningu
fyrir hann, og ekki stóð á svarinu:
„Jú, sérðu til. Ég tek þrjár milljón-
ir. Þú færð þrjár milljónir sjálfur —
og svo látum við Akureyringinn
vinna verkið fyrir þrjár millj-
ónir...“
VIÐ HÖFUM stundum birt
perlur úr því ágæta blaði, Lögbirt-
ingablaðinu, og þá einkum til-
kynningar um stofnun fyrirtækja
með kostuleg nöfn. Forsvarsmenn
fyrirtækisins Pakkning h/f, sem er
systurfyrirtæki Plastprents h/f,
komu okkur til hjálpar í nýlegum
Lögbirtingi. Þar tilkynntu þeir að
hið gagnsæja heiti fyrirtækisins
væri hér með lagt niður. I stað
þess væri tekið upp annað, mun
sveigjanlegri merkingar: Pakk h/f.
Ekki er ljóst hvað forráðamenn
fyrirtækisins meina með þessu, en
við skulum vona að hér sé ekki
um samheiti á starfsfólkinu að
ræða.
ALLTAF heyrir maður eitthvað
nýtt. Nú hafa vísindamenn gert þá
uppgötvun úti í heimi, að sykur-
laust te geti haft gífurlega góð
áhrif á tennur fólks. í teinu eru
nefnilega tannínsýrur, sem sagðar
eru næstum jafnáhrifamiklar gegn
tannskemmdum og flúor. Japanir
eru þegar farnir að framleiða
tannkrem með tanníni og von er á
munnskoli með þessu efni þar í
landi. Rannsóknir hafa verið
gerðar á áhrifum tanníns við há-
skóla í Bandaríkjunum og segir
tannlæknaprófessor þar í landi að
þarna sé líkast til komin skýringin
á því hvers vegna margir te-
drykkjumenn hafa svona góðar
tennur.
ENN um tennur .. . og það er
ekki ofsögum sagt af því hvað býr
í kýrhausnum. Reyndar í manna-
hausum líka, eftir því sem þeir
segja í tannlæknadeildinni við
Kaliforníuháskóla. Þeir eru að
kanna hvort hægt er að hjálpa
heyrnarlausu fólki til þess að fá
einhverja heyrn með því að setja
móttökutæki í holu eftir fjarlægða
tönn. Það er meira að segja búið
að finna upp nafn á þessa fræði-
grein, „audiodontics", en hún
byggist á því hve tennur okkar
endurvarpa vel hávaða. Þetta gæti
vakið miklar vonir hjá heyrnar-
daufum, en teiknari bresks dag-
blaðs gerði hins vegar bara grín
að öllu saman.
r b
ÞAÐ er víða verið að berjast við
fordómana í tengslum við eyðni.
Herferðir á borð við þá sem land-
lœknisembœltid hér á landi
stendur fyrir, eru í gangi í flestum
þjóðlöndum og er megináherslan
lögð á að kynna fóiki smitleiðirnar
og hvernig hægt er að verjast
þeim. Díana prinsessa, eiginkona
Karls Filippussonar, mun opna
sjúkrahús fyrir eyðnisjúklinga
næstkomandi mánudag og hefur
hún fengið fyrirmæli frá heil-
brigðisyfirvöldum landsins um að
taka í höndina á a.m.k. einum
sjúklinganna. Vonast er til þess að
myndir af þessum viðburði verði
birtar í blöðum og sjónvarpi og til-
gangurinn er sá að sýna fólki fram
á að veiran berist ekki á milli
manna við snertingu.
SMARTSKOT
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
Rápherra „Nú skyldi enginn láta nafnið glepja sig og
1 Sovétríkjunum hímir fólk í helsi halda ad hér sé,,hœttulegur“ sósíalisti á ferð.“
og harla fátt til eftirbreytni lokkar.
Við gætum þó lært að skerða ferðafrelsi WÐING ALWÐUBLAÐSINS I VIKUNNI A GREIN
forsætisráðherrans okkar. NORSKA BLM. SVEN ARNE KORSHAMN UM ÍSLENSKA ALWÐUFLOKKINN OG VIÐTAL VIÐ
Niðri FORMANN HANS.
Ertu hræddur við
Hljóðvarp?
Einar Sigurðsson, útvarpsstjóri
á Bylgjunni
„Nei."
— En er Hljóðvarp h/f ekki Ifklegt til að veita ykkur
mun harðari samkeppni en Rás 2 gerði í byrjun?
„Það er ómögulegt að segja. Það er margt ágætt fólk þarna
um borð. En hversu hröð samkeppnin verður kemur í Ijós með
dagskrárplönum og útvarpshlustun."
— Stofnendur Hljóðvarps eru dagskrárgerðarmenn,
bæöi af Rásinni og Bylgjunni. Ertu hræddur við að
missa fleira starfsfólk á nýju stöðina?
„Á þessum byltingartímum er mikil hreyfing á starfsfólki.
Við tókum mikið af fólki frá Ríkisútvarpinu á sínum tfma. Ég
kom þaðan, Hallgrímur Thorsteinsson og Páll Þorsteinsson
komu þaðan líka og fleiri og fleiri. Jón Axel, einn af stofnendum
Hljóðvarps, kom frá Ríkisútvarpinu til okkar og er nú farinn á
enn nýtt útvarp. Það er engin leið að spá fyrir um þetta.
— Fleiri hafa farið en Jón Axel. Um daginn misstuð
þið einn af fréttamönnunum, Árna Snævarr, í öfuga átt
— til Rfkisútvarpsins?
„Ég held að þetta séu tiltölulega fáar uppsagnir, miðað við
að hér vinnur á fjórða tug starfsmanna.
— Það stendur fyrir dyrum andlitslyfting hjá Rás 2,
ný stöð á leiðinni og þið haldið áfram. Allar þessar
stöðvar munu útvarpa allan sóiarhringinn dagskrám
sem eru svipaðrar gerðar. Munuð þið ekki drepa hvern
annan f samkeppninni?
„Það er engin leið að spá fyrir um hvað þessi markaður getur
borið mikið. Hvort hann muni stækka — hvort hann tekur eitt-
hvað af prentmiðlunum. Ef við lítum á næturútvarpið, þá höfum
við einir rekið næturútvarp hingað til alla daga vikunnar. Það
eru tiltölulega fáir hlustendur á nóttinni. Okkur fannst hins veg-
ar að þessir fáu hlustendur ættu skilið einhverja þjónustu. Úr
því Ríkisútvarpið hafði ekki, á 56 ára ferli sínum, tekið þetta
upp, ákváðum við að slá til. Menn verða síðan að gera það upp
við sig hvort þeim þykir taka þvf að keppa um eyru þessa fólks.
En við munum halda áfram. Það er ekki nokkur vafi á því."
— Fréttadeildin ykkar hefur stundum fengið ákúrur,
en nú stendur til að stokka þar eitthvað upp.
„Hallgrímur Thorsteinsson er að taka við starfi fréttastjóra og
við erum að setja vissar breytingar í gang. Þegar við fórum af
stað var margt nýtt í starfseminni. Fréttamennirnir þurftu að
vinna mikla tæknivinnu. Þessu fylgdu náttúrulega byrjunar-
örðugleikar. Við höfðum ekki 56 ára reynslu að byggja á. Við
urðum að vinna þetta upp á 56 dögum og það hefur orðið gjör-
breyting á því sem fréttadeildin hefur verið að gera. Við tökum
þátt í fréttamennsku af engu minni metnaði og látum en Ríkis-
útvarpið. Við reynum að vera með í því sem við mögulega get-
um. Ég held t.d. að fréttaflutningur okkar frá Moskvu hafi skilað
meiru en það sem Ríkisútvarpið gerði."
— En hvaða breytingar fylgja Hallgrími?
„Það verða ýmsar breytingar. En tíminn verður að leiða það
í Ijós."
— En Elli-Bylgjan. Er hún ekkert á leiðinni?
„Það er allt í burðarliðnum. Það er verið að vinna undirbún-
ingsvinnu i kringum hana. En við höfum ekki viljað binda okkur
við neinn fastákveðinn dag ennþá."
— Nýjar og breyttar stöðvar hafa ekki dregið kjarkinn
úr ykkur í sambandi við nýja rás?
„Nei, en við tökum að sjálfsögðu mið af breyttum aðstæð-
um. (sambandi við nýju rásina erum við að hugsa um allt ann-
an hlustendahóp. En ég hef aldrei gert ráð fyrir því að þetta yrði
einhver leikur. Ég hef alltaf gert ráð fyrir því að þessi slagur
mundi harðna. Við höfum búið okkur undir þetta og höfum
ákveðna hluti í pokahorninu."
— Hver eru leynivopnin?
„Það eru leynivopnin."
Fyrir skömmu var stofnað hlutafélag, Hljóðvarp h/f, og er ætlun að-
standenda þess að hefja starfsrækslu nýrrar útvarpsstöðvar. Dagskrá
hinnar nýju útvarpsstöðvar mun verða (Kkingu við dagskrá Rásar 2 og
Bylgjunnar. Á hálfsárs llftfma sfnum hefur Bylgjunni tekist að ná ótvf-
ræðum yfirburðum á þessum markaði. Nú standa fyrir dyrum gagn-
gerar breytingar á Rás 2 og ný útvarpsstöð er í fæðingu. Samkeppnin
mun þvf harðna. Við tókum Einar útvarpsstjóra Sigurðsson tali Itilefni
af þvl.
HELGARPÓSTURINN 3