Helgarpósturinn - 05.03.1987, Side 5

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Side 5
INNLEND YFIRSYN eftir Óskar Guðmundsson ✓ Atveislan mikla Ekki búist við átökum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Talið er að einhverjir fái útrás fyrir óánægju við varaformannskjör. Ungu markaðsriddararnir af malbikinu með nýjar áherslur í pólitíkinni: „byggðastefna unga fólksins". Framboð formanns SUS í sveitinni setur friðsælan svip á ungliðana. „Nei, ég býst ekki við átökum á þessum landsfundi," sagði Þorsteinn Pálsson formað- ur Sjálfstæðisfiokksins á biaðamannafundi sem hann hélt á mánudaginn til að skýra frá landsfundi flokksins sem settur er í dag, fimmtudag og stendur fram á helgi. Lands- fundurinn er talinn verða ein allsherjar halelújasamkoma, enda stutt í kosningarnar og fundurinn eins og liður í kosningabaráttu, „pepp fyrir liðið" eins og einn heimildar- maður okkar komst að orði. Pannig verður hápunktur þessarar „pólitísku" samkundu sameiginlegur kvöldverður landsfundarfull- trúa, allt að 1200 manns, í Laugardalshöll. „Þar verður etið og drukkið og ofið í eining- arband." AFRAM VEGINN. . . Sjálfstæðisflokkurinn er að sjálfsögðu í kosningaham, og á landsfundinum má hvergi sjá misfellur. Gallarnir við að halda „glansfund" af þessum toga eru einkum þeir, að ekki skapast spenna eða sérstakur áhugi í kringum fundinn. En á hinn bóginn mun tækifærið verða notað til að sýna hversu stór flokkurinn er og sterkur, og til að minna á að það sé eiginlega Sjálfstæðisflokknum að þakka hversu mikill þorskur hefur veiðst úr sjónum og hversu hátt verð hefur fengist fyr- ir þá skepnu. Góðærið verður notað til hins ýtrasta og sagt i þessum dúr: lífskjörin hafa aldrei verið betri, verðbólgan aldrei minni, hvaða ástæða er til að breyta — viljið þið breytingu hér á? Þorsteinn Pálsson talaði mjög í þessa veru á fyrrnefndum blaðamannafundi og lýsti ánægju sinni með árangurinn á stjórnar- tímabilinu, með samstarfið við Framsóknar- flokkinn og verkalýðshreyfinguna — og áfram veginn í vagninum ek ég. Hins vegar gaf hann Alþýðuflokknum einnig undir fót- inn léttilega. Slíkt daður hlýtur að teljast eðli- legt, þó ekki væri nema vegna þess að Fram- sóknarflokkurinn hefur komið illa út úr skoðanakönnunum — og ef fylgi þess flokks yrði ekki meira í næstu kosningum, er úti- lokað að núverandi stjórnarflokkar geti starfað saman í næstu ríkisstjórn. Skiptir þá engu hvort vilji standi til áframhaldandi hjónabands eður ei. Dragi til skilnaðar, verð- ur hins vegar haldið áfram á sömu braut með krötunum, að því er forystumenn Sjálfstæð- isflokksins segja. Sjálfstæðisflokkurinn vill áreiðanlega ekki að pólitísk barátta næstu vikna fari mikið út fyrir ramma góðærisins og þjóðarsáttar, sem flokkurinn þakkar sér, „stétt með stétt". ÞORSTEINN STERKI Ástandið í flokknum einkennist mjög af því, að Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra og flokksformaður hefur mjög verið að styrkja stöðu sína út á við. Þetta kemur glöggt fram í skoðanakönnunum um þess háttar hluti (sjá t.d. skoðanakönnun í HP í dag). Morgunblaðið hefur fylgt formanni sín- um vel eftir siðustu vikurnar á fundaherferð hans um landið og fundirnir hafa verið fjöl- sóttir og þótt vel heppnaðir fyrir formann- inn. Hér er auðvitað um meðvitaða pólitík að ræða; flokknum þykir það heillavænlegast í kosningabaráttunni að auglýsa sem mest upp Þorstein formann og þannig freista þess að „gömlu jálkarnir" gleymist og þó sérstak- lega að Albert Guömundsson falli í skugg- ann, það eigi að kjósa um Þorstein Pálsson umfram annað. Þetta hefur hins vegar í för með sér, að stjarna annarra á himni Sjálfstæðisflokksins dofnar eilítið amk. um tíma, svo sem Davíds Oddssonar og Fridriks Sophussonar. En þó Þorsteinn hafi ómótmælanlega styrkt stöðu sína að undanförnu er fjarri því víst að hann verði sterkur formaður til langframa, hann er enn í hlutverki „blaðafulltrúa", sem Styrm- ir Gunnarsson Morgunblaðsritstjóri úthlut- aði honum fyrir nokkrum árum. Heimildarmenn okkar í Sjálfstæðisflokkn- um segja, að ekki séu minnstu líkur á öðru en Þorsteinn fái einhliða stuðning og hvatn- ingu frá landsfundarfulltrúum, bæði um mál sem hann ber fram sem og persónu sína þeg- ar kemur til formannskjörs. „Landsfundur- inn verður landsfundur Þorsteins Pálssonar" sagði heimildarmaður í flokknum. En hver ákveður hvaða áherslur þessi flokkur leggur í kosningabaráttu, t.d. um að keyra á auglýsingu um formanninn? Mið- stjórn Sjálfstæðisflokksins kýs framkvæmda- stjórn, sem ber mikia ábyrgð, m.a. á slíkum hlutum. í henni sitja Birgir ísleifur Gunnars- son, Ólafur G. Einarsson, Kjartan Gunnars- son, Jón Hákon Magnússon, Ingimundur Sigfússon, Esther Gudmundsdóttir — og fundi hennar mun einnig sitja Friðrik Sophusson, varaformaður flokksins. Þessi nefnd sér um áróðursmál í stórum dráttum og starfar með kosningastjórn, sem kemur sjaldan saman. í henni eru forystumenn flokksins og efstu menn á framboðslistum flokksins í öllum kjördæmum. Auk þessa eru kosningastjórnir í hverju kjördæmi. í Reykja- vík eru m.a. í henni Sveinn Skúlason, for- maður fulltrúaráðsins, og þrír efstu menn listans. Samkvæmt heimildum blaðsins hef- ur sú kosningastjórn enn ekki komið saman — og Albert sem einnig er í henni hefur ekki unnið að flokksstarfi að ráði í mörg ár, utan prófkjörsbaráttu. Reykjavík verður því látin falla undir verndarvæng formannsins eins og önnur kjördæmi þegar ímynd flokksins verður kynnt kjósendum. VARAFORMAÐURINN Á LAUMUFUNDUM Á blaðamannafundi flokksins á dögunum kom fram, að Fridrik Sophusson, varafor- maður, hefði einnig haldið fjölda funda út um allt land að undanförnu. Með honum í för hefðu verið fleiri forystumenn eins og Ólafur G. Einarsson og Birgir ísleifur. Þessir fundir hafa ekki farið hátt í frásögnum, t.d. í Morg- unblaðinu. „Það er ekki nema von, því yfir- leitt hefur verið um trúnaðarfundi að ræða, þar sem menn hafa farið yfir ástandið, sem er mjög gott um allt land í okkar flokki," segir Friðrik Sophusson í viðtali við HP. Innan flokksins í Reykjavík hefur gætt gagnrýni á Friðrik fyrir að eyða timanum í flokksstarf á landsbyggðinni, — „hann er eins og þingmaður Trékyllisvíkur," sagði einn heimildarmaður HP í flokknum í Reykjavík. Margir telja, að flokksmenn geti ekki feng- ið útrás fyrir óánægju sína með flokkinn í kosningu um Þorstein formann að þessu sinni og muni frekar leyfa sér að bregða á leik í kosningum um varaformannsembætt- ið. Orðrómur er á kreiki um að einhverjir stuðningsmenn Eyjólfs Konráds Jónssonar fyrrverandi „þingmanns Heimdallar" muni setja hans nafn á blað. Þá hefur einnig heyrst nafn Sverris Hermannssonar ráðherra fræðslumála í þessu sambandi. Það nafn var einnig nefnt i sama samhengi fyrir síðasta landsfund. „Með slíkum orðrómi er oftast nær einungis verið að styrkja viðkomandi persónur innan flokksins," sagði einn heim- ildarmaðurinn um þessa hugsanlegu fram- bjóðendur. Og alveg eins og fyrir síðasta landsfund flokksins 1985 hefur nafn Davíðs Oddssonar verið nefnt í sambandi við kjör á forystu. En heimildarmenn okkar telja slíkan samblást- ur nú afar ólíklegan: „Davíð verður aldrei neitt „vara" í okkar flokki, hann vill ráða, stjórna, baða sig í valdi, án þess að þurfa að taka tillit til hinna." Engu að síður er ævin- lega horft til hans, þegar rætt er um þörf á Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæöisfiokksins „Landsfundurinn verður landsfundur Þorsteins Páls- sonar". Smartmynd. „sterkari foringja" innan Sjálfstæðisflokks- ins. Það má ekki gleyma JósefStalín sem hef- ur fengið tilnefningu í forystukjöri á lands- fundi í Sjálfstæðisflokknum eins og reyndar fleiri sterkir, þegar fulltrúar hafa brugðið á leik til að hindra „rússneska kosningu" for- ystumanna sinna. ÞJÓÐARSÁTTIN ÁFRAM — KUNNINGJAÞJÓÐFÉLAGIÐ Allt sem gerist á landsfundinum tekur mið af ytri aðstæðum. Auðvitað óttast flokkurinn hugsanlegt fylgistap; í Reykjavík vegna Alberts og samkeppni við Alþýðuflokkinn, — úti á landsbyggðinni vegna óánægju þar með ríkisstjórnina og ekki óeðlilegt að kæmi til fylgistaps svo sem hjá hinum ríkisstjórnar- fiokknum. Þess vegna gæti Sjálfstæðisflokk- urinn tapað til Kvennalista og Þjóðarflokks- ins eins og hinir gömlu flokkarnir. M.a. þess vegna verður hvatt til varfærni og síður sleg- ið á reykvíska neytendastrengi og hamrað á niðurskurði félagslegrar þjónustu eins og stundum áður. Þó mörgum verði tíðrætt um ábyrgð stjórnmálamanna og siðferði í að- draganda kosninganna, þá mun Sjálfstæðis- flokkurinn ef að líkum lætur ekki leggja ofuráherslu á slík mál. Hins vegar mun Sjálfstæðisflokkurinn halda áfram með þjóðarsáttina við verka- lýðsforystuna, eins og Þorsteinn Pálsson staðfesti á blaðamannafundinum. Vilhjálm- ur Egilsson segir að þjóðarsátt á vinnumark- aði geti haldið áfram um nokkra hríð. Hins vegar byggist hún á kunningjaþjóðfélaginu — hún sé tilkomin vegna þess að menn í hagsmunasamtökunum hafi kynnst og við- urkennt hver annan. Hins vegar eigi kunn- ingjaþjóðfélagið eftir að springa þó síðar verði. En það sé ekkert við það að springa núna eða á næstu árum. „Það reynir ekki verulega á þetta fyrr en við lendum í næsta erfiðleikatímabili," segir Vilhjálmur í samtali við HP. „SVEITAMANNAFLOKKUR" í SÓKN Á blaðamannafundinum voru kynntar til- lögur svo tugum skiptir, sem lagðar verða fyrir fulltrúa á landsfundi. Hins vegar kvað formaðurinn að stjórnmálaályktunin myndi verða eins konar kosningaplagg, þar sem svo skammt væri til kosninga, en drögin að henni voru ekki tilbúin í vikubyrjun. Hún er undirbúin af nefnd undir forsæti Geirs Haarde. Þorsteinn lýsti sig ánægðan með árangur í skattamálum, húsnæðismálum, landbúnað- armálum o.s.frv., þannig að ekki er ástæða til að gera ráð fyrir ályktunum sem ganga þvert á þegar markaða stefnu flokksins í ríkis- stjórn. Hins vegar gætu komið til atkvæða ályktanir um frjálsan innflutning á landbún- aðarafurðum, frjálst olíuverð eða eitthvað svipað. Það breytti hins vegar engu hvort slíkar ályktanir yrðu samþykktar eða ekki, miðað við slíkar samþykktir áður. Hjá öllum stjórnmálaflokkunum fyrnist mjög fljótt yfir slíka hluti. Á hinn bóginn segja heimildarmenn innan Sjálfstæðisflokksins að sú staðreynd, að for- maður flokksins sé þingmaður fyrir lands- byggðarkjördæmi — að ekki sé talað um þegar formaður SUS er í framboði úti á landi — setji mjög svip sinn á landsfundinn og kosningabaráttuna. Allt í einu eru hinir gömlu markaðsriddar- ar höfuðborgarinnar eins og Þorsteinn Páls- son og Vilhjálmur Egilsson komnir í slægj- una í túninu syðra og nyrðra og sveifla lján- um ógnvekjandi yfir hálmstráum frjáls markaðar á höfuðborgarsvæðinu. Stefnir, tímarit ungra sjálfstæðismanna var að koma út tileinkað „splunkunýju" hugtaki (að vísu fengið að láni frá gamla fólkinu úr gömlu flokkunum) nefnilega „byggdastefnu". Hag- fræðingur Vinnuveitendasambandsins í Reykjavík kvartar þar í grein sáran undan „eyðslu", sem leitt hefur til ,,uppgangs í ýmsum greinum verslunar, framkvœmda og þjónustu á höfudborgarsvœdinu" og greini- legt að Vilhjálmur er korninn til framboðs í sveitinni. Ungir sjálfstæðismenn eru því komnir með gamla stefnu flokka eins og Framsókn- ar og Alþýðubandalags eða hvað? „Nei, þetta er allt önnur nálgun að viðfangsefn- inu," segir Vilhjálmur í spjalli við HP. Að þessu sinni mun unga fólkið á landsfundi halda fram „byggðastefnu unga fólksins" að mati Vilhjálms Egilssonar, og allir heimildar- menn okkar voru sannfærðir um að þessi fundur yrði með mikilli spekt og ekki blásið til leiftursóknar í bili. „Aðstæðurnar leyfa það ekki, við viljum allir leggja okkar af mörkum í þágu sameiningarinnar," sagði einn fulltrúa á landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins. Sá sagðist ekki láta sig vanta í matarveisl- una á laugardagskvöldið, — átveisluna miklu þar sem 1200 dyggustu trúnaðarmenn Sjálf- stæðisflokksins munu njóta samvistanna. HELGARPÓSTURINN 5

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.