Helgarpósturinn - 05.03.1987, Síða 16

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Síða 16
Marco Panella, foringi róttækra, i umræðum í sjónvarpssal — buncf- inn og keflaður. eftir Egil Helgason NEKTARDANSMEYJA Fyrir rúmu ári lók flokkur rót- tœkra á Ítalíu (Partito Radicale) harla glœfralega ákvöröun. A þingi flokksins í árslok 1985 var þaö heit strengt að flokkurinn yrdi leystur upp og hœtti öllum stjórn- málaafskiptum ef ekki tœkist að auka og margfalda tölu flokks- manna. Markmiðinu yrði ekki hnikað: Skráðir flokksmenn skyldu vera tíu þúsund í lok árs 1986. Á þeim tíma gat flokkurinn ekki státað af nema rúmlega þrjú þúsund meðlimum. Með linnu- litlum fundahöldum, bírœfnum uppátœkjum og þrotlausum hlaupum þeirra flokksmanna sem fyrir voru rœttist þessi draumur um síðir, t trássi við spár. Samt þóttust róttœkir ekki áncegðir með sinn hlut. I lok 1986 settu þeir sér annað markmið, hálfu fráleitara aö því er virtist. Við, sögðu rót- tœkir, leggjum flokkinn niður ef okkur tekst ekki að safna fimm þúsund nýjum meðlimum í janúar 1987. Það munaði ekki nema hárs- breidd, en þegar þetta er skrifað undir miðbik febrúarmánaðar hefur Róttæka flokknum ítalska enn ekki orðið hált á fífl- dirfskunni. Ekki verður betur séð en að enn um sinn muni hann bítast um hylli kjósenda á marg- klofinni miðju ítalskra stjórnmála — mitt á milli risaveldanna Kristi- legra demókrata og Kommúnista. EINIRÁ BÁTI Það liggur náttúrlega í augum uppi að fimmtán þúsund flokks- menn eru ekki nein býsn á ítalska vísu. Keppinautar róttækra, smá- flokkarnir á miðjunni og vinstri vængnum, geta velflestir hreykt sér af þeirri tölu margfaldri. Þegar til kosninga kemur hafa þó rót- tækir iðulega notið meiri stuðnings en tala flokksmanna segir til um — í þingkosningunum 1983 fékk flokkurinn rúm tvö prósent atkvæða og sjö þingmenn kjörna og í kosningum til Evrópu- þingsins 1985 vann flokkurinn ágætan sigur og fékk ríflega þrjú prósent atkvæða. Sem er hreint ekki svo afleitt á Italíu þar sem kjósendur þykja óhemju fast- heldnir og fylgi flokka stöðugt. Hingað til hefur Róttæki flokkurinn kosið að vera einn á báti, sérvitur smáflokkur sem fjandskapast jafnt út í Kristilega 16 Meöal meðlima í Róttœka * flokknum á Italíu eru þrír Nóbelsverðlaunahafar, heimsfrœgir rithöfundar og poppstjörnur — í ærið skrítnum félagsskap morðingja, hryðjuverka- manna og nektardans- meyja. Þetta er lítill skrít- inn flokkur sem fyrir skemmstu hét því að leggja upp laupana ef honum tœkist ekki að margfalda tölu flokks- manna... HELGARPÓSTURINN Róttæklingar mótmæla á Rynego Starego Miasta, Gamlamarkaðstorginu í Varsjá. demókrata og Kommúnista. Flokkurinn hefur aldrei tekið þátt í ríkisstjórn, ólíkt smáflokkum á borð við Repúblíkana, Frjálslynda og Sósíaldemókrata, sem einmitt nú eru litlir bræður í fimm flokka stjórn Bettino Craxi ásamt Sósíal- istum og Kristilegum demó- krötum. En þótt róttækir séu utan- garðs að vanda er talið að sósíal- istinn Craxi ætli flokknum ósmátt hlutverk í því bandalagi vinstri- og miðjuflokka sem hann dreymir um að koma á laggirnar undir sinni eigin forystu — afli sem loks gæti hnekkt þeim heljartökum sem Kristilegir demókratar og Kommúnistar hafa haft á ítölskum kjósendum síðustu áratugina. HÁSKASAMLEGA FRJÁLSLYNDIR Þrátt fyrir að Craxi finni rót- tækum stað í framtíðardraumum sínum, er jafnvíst að fjölmörgum löndum hans er ekki jafnhlýtt til flokksins. Hægrimenn sem aðhyllast heimsskoðun kaþólsku kirkjunnar hafa löngum álitið hug- myndir róttækra háskasamlega frjálslyndar, enda hefur mál- flutningur róttækra lengstum verið ærið andklerklegur. Kommúnistar hafa gamalgróna óbeit á „borgara- legri frjálslyndisstefnu" róttækra og fara yfirleitt um þá hinum háðuglegustu orðum. í skoðana- könnunum hefur Marco Panella, leiðtoga Róttæka flokksins, hlotnast sá vafasami heiður að vera útnefndur einn þeirra þriggja stjórnmálaforingja sem Italir hafa hvað mesta skömm á — þar er hann á hælunum á Giulio Andre- otti, leiðtoga Kristilegra demó- krata, og Alessandro Natta, leið- toga Kommúnistaflokksins. Þar er þess náttúrulega að gæta að Kristilegir demókratar og Kommúnistar hafa rúm þrjátíu prósent atkvæða hvor flokkur um sig, en róttæklingar aðeins lítil tvö-þrjú prósent. .. Afstaða róttækra í ýmsum málum hefur vissulega ekki verið til þess fallin að auka þeim vin- sældir. Samt má færa að því gild rök að það séu hvorki baráttumál þeirra eða hugmyndir sem valda því að flokkurinn er jafnumdeildur og raun ber vitni. Eftilvill er skýringanna fremur að leita í því hvernig þeir kjósa að koma hug- myndum sínum á framfæri, og þá kannski ekki síður í látæði og framkomu flokksforingjans, Marco Panella. Það er altént víst að Panella fer ekki troðnar slóðir í stjórnmálabaráttunni og í humátt fylgja flokksmenn og víla ekki fyrir sér að láta einsog skrípa- fígúrur og sirkustrúðar ef þeir halda að það geti orðið mál- staðnum til framdráttar. LEIKARI MEÐ PÓLITÍSKT NEF Fyrir síðustu jól klæddi Panella sig tildæmis í jólasveinabúning og gerði mikinn usla í jólaösinni á Navona-torgi í miðborg Rómar. Það mun hafa verið liður í herferð flokksins gegn hungri í heiminum. Þegar fóru fram hefðbundnar kosningaumræður í sjónvarpi fyrir nokkrum árum birtist Panella bundinn og keflaður á skerminum og streittist við að losa sig úr fjötrunum í þær fimm mínútur sem róttækum höfðu verið skammtaðar í útsendingunni. Með þessu vildi flokkurinn vekja athygli á því ólýðræðislega klíku- fyrirkomulagi sem róttækir telja að ráði ríkjum á ríkisútvarpinu, RAI. Fyrir tíu árum síðan, þegar róttækir börðust fyrir því að ítalska fíkniefnalöggjöfin yrði rýmkuð, gerði Panella sig vís- vitandi sekan um að reykja hass á almannafæri og mátti fyrir vikið dúsa þrjár vikur í tukthúsi. Og fyrir skemmstu þótti taka út yfir þjófabálk þegar Panella var myndaður í bak og fyrir þar sem hann stóð í faðmlögum við þekkta nektardansmær, sem þvínæst hlaut fyrir vikið flokksskírteini í flokki róttækra. Panella, sem situr hvort tveggja á ítalska þinginu og á Evrópu- þinginu, er óhemju líflegur ræðu- maður, uppfullur af prakkaraskap, gráglettni og látalátum. í ræðu- púlti baðar hann út höndum, strýkur höndum yfir úfið grátt hárið, fettir sig og brettir. „Þrátt fyrir það,“ segir John Wyles, frétta- ritari Financial Times í Róm, „er hann síður en svo sá bjáni sem ég hélt hann vera í fyrstu. í rauninni er Panella prýðilegur leikari — með gott pólitískt nef.“ GLÆPAMENN OG NÓBELSHAFAR Uppá síðkastið hafa óvenjulegar aðferðir róttækra við að laða til sín nýja flokksmenn einnig vakið hneykslan og stundum aðhlátur. Það heyrðist að vonum ramakvein í ítölsku pressunni þegar hópur af alræmdum glæpamönnum gekk til liðs við flokkinn — þar á meðal morðingjar, nauðgari og fyrr- verandi Mafíuforingi. En um leið vakti þessi uppákoma athygli á

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.