Helgarpósturinn - 05.03.1987, Síða 17

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Síða 17
baráttu flokksins fyrir bættum aðbúnaði í ítölskum fangelsum. Dæmdir hryðjuverkamenn úr Rauðu herdeildunum hafa líka fengið inngöngu í flokkinn og það undir sama yfirskini og virðulegir lögspekingar. Róttækir hafa nefni- lega barist einarðlega fyrir umbótum á ítalska dómskerfinu og fyrir því að öll sérlög, sem voru sett á til að kveða niður hryðjuverkafárið á síðasta áratug, verði afnumin. Hinir nýju flokksmenn eru þó ekki allir af svo vafasömum toga. Róttækum þykir gott að geta stært sig af fjölda lista-, mennta- og gáfumanna sem gengu til liðs við flokkinn á síðasta ári, jafnt ítalir sem fólk af öðru þjóðerni. Með barnslegu stolti þylja þeir upp nöfn á borð við leikritaskáldið Eugene lonesco, sovéska andófs- manninn Leonid Pliusc, leikhús- frömuðinn Lindsay Kemp, kvik- myndahöfundinn Liliana Cavani, poppstjörnurnar Miguel Bosé og Angelo Branduardi og Nóbelsverð- launahafana George Wald, Vassili Leontjeff og Rita Levi Montalcini. Það er fullvissa róttækra að stjórn- mál nútímans lúti ekki landa- mærum og þarfnist engra vega- bréfa og því sjá þeir ekkert athugavert við það þótt útlendingar fylli flokk þeirra. Af ástæðum sem hér verða ekki raktar hafnaði undirritaður þó boði um að ganga í Róttæka flokk- inn ítalska. .. FORN FRÆGÐ Síðari hluti sjöunda áratugarins og fyrri hluti hins áttunda var tími frækilegrar baráttu fyrir Róttæka flokkinn. Þótt hann næði aldrei ýkja miklum hljómgrunni meðal vanafastra kjósenda náði flokkurinn að fylkja liði um ýmis baráttumál sem aðrir flokkar veigruðu sér við að snerta. Nú- orðið neita því fáir að á þeim árum voru róttækir óvefengjanlegt framfcna- og umbótaafl. Flokkurinn leiddi baráttuna fyrir hjóna- skilnuðum, fóstureyðingum, réttindum samkynhneigðra og réttinum til að neita að gegna her- skyldu af samviskuástæðum. Á sama tíma héldu aðrir flokkar að sér höndum af djúprættum ótta við að styggja hina voldugu kaþólsku kirkju, enda þótt þeir í orði kveðnu teldust vera vinstri- sinnaðir umbótaflokkar. fóstureyðingar. „Þrátt fyrir flokka- drætti eru menn sennilega hvergi jafnsammála um flest grundvallar- mál og á ftalíusegir John Wyles. En samt er öldungis ekki allur vindur úr róttækum. Á síðustu árum hafa þeir staðið fyrir þaul- skipulögðum og fjörlegum her- ferðum af ýmsu tagi: Fyrir auknum mannréttindum í austan- tjaldslöndum, gegn hungurvofum í þriðja heiminum, gegn umhverfis- mengun og kjarnorku, fyrir um- bótum á dómskerfinu og kosn- ingalöggjöfinni ítölsku, svo fátt eitt sé nefnt. Ungir róttæklingar neita hvort tveggja að gegna herskyldu og þeirri borgaralegu þjónustu- skyldu sem ungu fólki er gert að gegna neiti það herskyldu, og eiga yfir höfði sér fangelsisdóma fyrir vikið. Flokksmenn hafa mótmælt á götum úti í Moskvu, Varsjá, Búdapest, Ankara og Peking og á flestum þessum stöðum hafa þeir verið hnepptir í varðhald og gerðir landrækir fyrir vikið. „Með- limir í flokki róttækra eru yfirleitt annað og meira en nöfn á blaði einhvers staðar ofan í skúffu," segir Gaetano Dentamaro, ungur fréttamaður á Radio Radicale, útvarpsstöð róttækra, sem sjálfur á yfir höfði sér refsingu fyrir að hunsa bæði herskyldu og þjón- ustuskyldu. Og, bætir hann við: „Stjórnmálin eru stórt leikhús og við eigum ekki annarra kosta völ en að leika betur og meira heldur en hinir." KÆRLEIKAR CRAXIS OG RÓTTÆKRA Kommúnistaflokkurinn, stóri- bróðir róttækra í stjórnarand- stöðunni, heldur því fram að nú- orðið sé Róttæki flokkurinn ekki annað en angi af fylkingu sósíal- ista, dulbúnir nótar Craxis; hverju sem fram vindi greiði þeir nær alltaf atkvæði einsog Sósíalista- flokkurinn býður. Og því verður ekki neitað að Craxi og róttækl- ingar hafa verið að skjóta sér saman síðustu árin. Kannski eru þeir ekki alltaf yfirmáta hrifnir af því hvernig forsætisráðherrann heldur á málum, heldur er hann í þeirra augum sá eini sem er þess umkominn að umturna hinu stein- runna ítalska flokkakerfi. Craxi er kannski sá sem lengi hefur verið beðið; leiðtogi sem gæti skapað þriðja stórveldið í ítölskum stjórn- málum, langþráð bandalag miðju- Nýir meölimir f Róttæka flokkinum — absúrdleikritaskáldið aldna, Eugene lonesco, og sovéski andófsmaðurinn og eðlisfræðingurinn Leonid Pliusc. Það má eftilvill segja að síðan þá hafi ýmsir orðið til þess að stela glæpnum frá róttækum. Hreyfingu hómósexúalista, kvennahreyfingunni og hreyf- ingum umhverfisverndarmanna óx fiskur um hrygg á kostnað rót- tækra, auk þess sem ýmis baráttu- mál þeirra náðu smátt og smátt að síast inn í stefnuskrár annarra stjórnmálaflokka. Andstæðingar þeirra á vinstri kantinum halda því fram að Róttæki flokkurinn hafi í raun lokið hlutverki sínu, sá tími þegar hann stóð í hita orrustunnar sé liðinn — núorðið lifi flokkurinn aðeins á fornri frægð. EKKI NÖFN í SKÚFFU Og líkast til er það rétt að sá tími sé fyrir bí þegar ítalska þjóðin var þverklofin í afstöðunni til stór- mála á borð við hjónaskilnaði og og vinstrimanna, sem ekki þyrfti alltaf að vera upp á náð Kristi- legra demókrata eða Kommúnista komið. Slíkt bandalag lítur þó tæpast dagsins ljós fyrr en eftir næstu þingkosningar, sem verða annað hvort á þessu ári eða því næsta. Þangað til þurfa róttækir að leita annarra leiða til að réttlæta tilveru sína. Og þótt flokkurinn sé smár er ábyggilegt að hans yrði saknað ef hann hyrfi af sjónarsviðinu. Hann endurspeglar öðrum flokkum betur viss einkenni sem ítölum eru eðlislæg og hjartfólgin — gáska, sundurgerð og ást á dramatískum tilþrifum. Þeir sem kunna að meta glannaskap og ögn af hugmyndaflugi í stjórnmálum geta altént huggað sig við það að Róttæki flokkurinn ítalski þurfti ekki að standa við gefin fyrirheit og leggja upp laupana ... ER OPIN VIRKA DAGA KL. 10-02 OG UM HELGAR KL. 10-05 V/SA VANTIÞIG A BUDARVERÐI sælgæti snakkvörur - ídýfur samlokur - pizzur gos - ávaxtasafa ýmsar vörur kex - ýmislegt pylsur - niöursuöuvörur súpur ís - G-vörur hreinlætisvörur tóbak mjólk - brauð og viljir þú spara tíma og búðaróp er símanúmerið 74477 Heimsendingargjald kr. 150.- Ath. sérstakt afsláttargjald á heimsendingarkostnaði fyrir elli- og örorkulífeyrisþega kr. 70- HELGARPÓSTURINN 17

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.