Helgarpósturinn - 05.03.1987, Page 21

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Page 21
Steingrlmur. Afar vinsæll áfram, en hefur eignast keppinaut á toppnum. ISKOÐANAKÖNNUN HELGARPOSTSINS Þorsteinn. Nálgast Steingrlm. Afrakstur auglýsingaherferðar? Halldór. Sagnafár og traustur með stækk- andi fylgjendakvóta. Jón Baldvin. Vinsæll en verður að mega betur ef hann ætlar að verða forsætisráð- herra. Sverrir. Vaxandi vinsældir með umdeild- um ráðstöfunum? ÞORSTEINN NÁLGAST STEINGRÍM Sverrir Hermannsson blandar sér í toppbaráttuna. Halldór Ásgrímsson enn í þridja sœti, Jón Baldvin í fjórða. Albert líka upp á við. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf- stæðisflokksins hefur styrkt stöðu sína á vinsældalista stjórnmála- manna, samkvæmt skoðanakönn- un HP sem gerð var fyrir 10 dögum. Steingrímur Hermannsson er enn efstur með 183 tilnefningar, Þor- steinn með 158 og þar nokkru neð- ar kemur Halldór Ásgrímsson með 98 stig, Jón Baldvin er í fjórða sæti með 87 stig, — og loks skýst Sverrir Hermannsson uppá stjörnuhimin- inn og lendir í fimmta sæti með 56 stig. I hliðstæðum könnunum síð- ustu mánuði hefur Sverrir lent fyrir utan raðir efstu manna, en skýst nú fram fyrir Svavar Gestsson sem áð- ur var í fimmta sæti en lendir nú í sjötta með 49 stig. Að þessu sinni var spurt: Viltu nefna þrjá íslenska stjórnmálamenn sem þú telur mikilhæfa? Athyglis- vert er, að 33% aðspurðra töldu sig Af þeim sem tóku afstöðu telja 62,9% að skipan Alberts Guð- mundssonar í fyrsta sæti framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík veiki listann, en 37,1% telja að það styrki listann. í skoðanakönnuninni var spurt þannig: „í Reykjavík skipar Albert Guðmundsson fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Telur þú að það veiki eða styrki listann?" 41,1% tóku ekki afstöðu til þess hvort framboðið veikti eða styrkti listann. Svo virtist sem kjósendur í Reykjavík væru almennt neikvæð- ari gagnvart Albert, en þó kom fram að Albert ætti fleiri fylgjendur með- al sjálfstæðismanna en annarra. Helgarpósturinn hefur áður innt ekki geta svarað spurningunni og enn fleiri treystu sér ekki til að til- nefna nema einn eða tvo stjórn- málamenn. Engu að síður er dreif- ingin mun meiri en áður í hliðstæð- um könnunum og hlutu alls 40 þrjú stig eða fleiri í þessari könnun. Frá síðustu vinsældakönnun hafa orðið lítilsháttar tilfærslur meðal efstu manna fyrir utan „upprisu" Sverris Hermannssonar. Þannig hafa t.d. Albert Guðmundsson (43) og Jóhanrta Siguröardóttir (30), færst upp fyrir Davíð Oddsson (27) og Guðrún Helgadóttir (26) upp fyr- ir Ólaf Ragnar Grímsson (22), en þessi eru í 6. sæti til 11. sætis. I 12. og 13. sæti eru svo Kristín Halldórs- dóttir (15) og Sigríður Dúna (14), í 14. PállPétursson (12) og í 15. til 17. sæti eru þeir Friðrik Sophusson, Jón Sig- urðsson og Kjartan Jóhannsson með 10 stig. kjósendur eftir afstöðu til Alberts Guðmundssonar. í desember 1985 var spurt hvort fólk teldi að Albert ætti að segja af sér vegna Haf- skips/Útvegsbankamálsins, og töldu þá 64% þeirra sem afstöðu tóku, að hann ætti ekki að segja af sér, en 36% aðspurðra töldu að hann ætti að segja af sér. Hálfu ári síðar — í júlí 1986 var afstaða manna orðin gjörbreytt; 73% þeirra sem afstöðu tóku töldu að hann ætti að segja af sér annað hvort tíma- bundið meðan rannsókn málsins færi fram, ellegar fyrir fullt og allt, en aðeins 27% töldu að hann ætti ekki að segja af sér. Ef tekið er mið af þessari afstöðu í júlí á sl. ári mætti segja að Albert UMTAL OG AUGLÝSING Þær breytingar sem orðið hafa á listanum gætu átt sér margvíslegar skýringar. Þannig gæti til dæmis sterkari staða Þorsteins Pálssonar einfaldlega verið afrakstur auglýs- ingaherferðar sem Sjálfstæðisflokk- urinn hefur verið með í gangi og bakkað upp með frásögnum af fund- um í Morgunblaðinu. Ljóst er að Þorsteinn hefur verið að styrkja sig í sessi frá því um áramót og það kemur fram margvíslega í könnun- um af þessu tagi. Margir telja að auk auglýsinga sé umtalið um persónurnar ævinlega til styrktar meðal kjósenda. Það gæti skýrt sterkari stöðu Sverris Hermannssonar, sem hefur verið mjög í sviðsljósinu, m.a. vegna fræðslustjóramálsins. Þá segja margir að það sé jafnvel ekki verra hefði styrkt stöðu sína lítillega frá þeim tíma, en engu að síður hlýtur að teljast alvarlegt áhyggjuefni fyrir stærsta stjórnmálaflokk þjóðarinn- ar ef tæplega 63% kjósenda telja að skipan í fyrsta sæti listans í höfuð- borginni veiki listann. Nú hefur ekki farið mikið fyrir Albert í kosninga- baráttunni og flokkurinn siglt upp á við í skoðanakönnunum. Ekki er hægt að gera ráð fyrir að Sjálfstæð- isflokknum takist að halda honum lengi enn frá kosningabaráttunni og verður spennandi að sjá hvaða áhrif það hefur á gengi flokksins í könn- unum — og ekki síður kosningum. í þessu sambandi ber á það að líta, að Albert skorar enn hátt í vin- sældakönnunum og ef flokkurinn ■■eftir Oskar Guðmundssonai að umtalið sé illt, „betra er illt umtal en ekkert". Þetta er þó síður en svo algilt, svo sem ráða má af því að staða Davíðs Oddssonar og Ólafs Ragnars hefur ekki styrkst, þrátt fyrir að þeir hafi verið mikið í fjöl- miðlum síðustu vikurnar. Um þann fyrrnefnda má ef til vill segja að hann hafi fallið í skuggann af Þor- steini, en þann síðarnefnda að eng- inn sé spámaður í sínu föðurlandi. Þeir Davíð og Ólafur Ragnar eru hins vegar þeir einu á toppnum, sem ekki sitja á þingi. SNORRI LÍKA Allir sem koma á eftir þeim sem þegar hafa verið nefndir og hlutu meira en 3 stig eru þingmenn. Þau sem fengu meira en þrjú stig voru auk áðurnefndra: Guðrún Agnars- dóttir, Matthías Bjarnason, Matthías heldur fylgi í borginni, þá getur flokksforystan ,,unga“ ekki staðið í vegi fyrir því að Albert, oddviti list- ans í höfuðborginni, skipi ráðherra- embætti í næstu ríkisstjórn, ef Sjálf- stæðisflokkurinn tekur þátt í mynd- un hennar. Þessi skoðanakönnun var gerð helgina 21,—22. febrúar. Hringt var í 800 einstaklinga skv. tölvuskrá yfir símanúmer fyrir allt landið. Spurn- ingunum var beint til þeirra sem svöruðu og voru 18 ára eða eldri og var miðað við jafnt hlutfall kynja. Úrtakið skiptist í þrjú svæði: Reykjavík (306 símanúmer), Reykja- nes (182 símanúmer) og lands- Matthiesen, Ragnar Arnalds, Eyjólf- ur Konráð, Guðmundur Bjarnason, Ragnhildur Helgadóttir, Hjörleifur Guttormsson, Helgi Seljan, Þorvald- ur Garðar, Birgir Isleifur, Steingrím- urSigfússon, Halldór Blöndal, Ólaf- ur G. Einarsson, Magnús H. Magn- ússon, Alexander Stefánsson, Kar- vel Pálmason, Stefán Valgeirsson, Stefán Benediktsson, Guðmundur Einarsson, Eiður Guðnason, Jón Helgason og Haraldur Ólafsson. Meðal þeirra Iifandi og fyrrver- andi stjórnmálamanna, sem hlutu tilnefningar voru Hannibal Valdi- marsson, Benedikt Gröndal og Geir Hallgrímsson. Það segir sína sögu að nokkrir nefndu látna stjórnmálamenn, þó lægi í orðum spurningarinnar að spurt væri um lifandi virka menn í pólitíkinni. Meðal þeirra sem nefnd- ir voru má nefna menn eins og Ólaf Thors og Snorra Sturluson. Kjós- endur eru þjóðlegir nú sem fyrr! EKKI MEÐAL ÞEIRRA 40 Ef til vill er ekki síður athyglisvert að sjá hverjir eru ekki meðal þeirra sem fá þrjár eða fleiri tilnefningar. Má þar nefna frambjóðendur í Reykjavík, Guðmund G. Þórarins- son, Asmund Stefánsson, Geir Haarde eða Finn Ingólfsson. Þarna eru heldur ekki á blaði menn eins og Karl Steinar Guðnason, Geir Gunnarsson, Gunnar Schram, Arni Johnsen, Eggert Haukdal, Egill Jónsson, Friðjón Þórðarson, Pálmi Jónsson, Garðar Sigurðsson, Guð- mundur J. Guðmundsson, Birgir Dýrfjörð eða Vilhjálmur Egilsson. Þó gætu þessir flestir mælt við kjós- endur sína í vor það sama og Snorri Sturluson forðum: Eigi skal höggva. . . byggðin, þ.e. kjördæmi önnur en Reykjavík og Reykjanes (312 síma- númer). Spurt var m.a.: Viltu nefna þrjá íslenska stjórn- málamenn, sem þú telur mikilhæfa. í Reykjavík skipar Albert Guð- mundsson fyrsta sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins. Telur þú að það veiki eða styrki listann? Tþeplega 63% telja Albert veikja listann í borginni Albert samt ennþá vinsœll. Ef flokkurinn heldur fylgi í kosningunum má gera ráö fyrir að Albert verði áfram ráðherra IGREINARGERÐ SKAISl HELGARPÓSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.