Helgarpósturinn - 05.03.1987, Qupperneq 23
íslenska handboltalandslidið:
KEPPIR VIÐ ÚRVAL
FRÁ EVRÓPU í VOR
— eða t.d. Svía á 30 ára afmæli HSÍ
íslenska landslidið í handknatt-
leik er að verða einn af vinsælustu
keppinautum annarra þjóða um
þessar mundir. Liðið hefur sýnt og
sannað, að það er í hópi albestu liða
í þessari grein í heiminum. Þannig
rignir inn á skrifstofur HSÍ boðum
um þátttöku íslenska landsliðsins í
hinum mótum og þessum og eiga
í mestu önnum og erfiðleikum þeir
Einar Magnússon og Jón Erlends-
son hjá HSl að vinna úr þessum til-
boðum.
Hér áður fyrr þurftum við fremur
að standa í hálfgerðum „sníkjum" til
að fá sterk landslið til keppni. Það er
liðin tíð. Þannig er ákveðið, að Is-
lendingar taki þátt í „Yugoslavian
Trophy" í sumar, en það mun vera
eitt af alsterkustu handknattleiks-
mótum, sem haldin eru í heimi hér.
Þá hafa Brasilíumenn boðið ís-
lenska landsliðinu til að keppa í Rio
de Janeiro og Sao Paolo í sumar,
Bandaríkjamenn hafa boðið liðinu
til Colorado í æfingabúðir í sumar
og leikja í nokkrum borgum í
Bandaríkjunum. Um yrði að ræða
eins konar sýningarleiki. Yfirgnæf-
andi líkur eru á því, að HSÍ þiggi
þetta boð.
Margir hafa velt því fyrir sér hvort
ekki verði fleiri leikir í vetur við aðr-
ar þjóðir eftir sætan sigur yfir Júgó-
slövum á dögunum. Hið eina, sem
er á dagskrá eru leikir í tengslum
við 30 ára afmæli HSÍ í vor. Stefnt
var að því að fá hingað heimsliðið í
handbolta, en IHF, alþjóðasamtök-
in, þurfa víst að samþykkja slíkt og
þeir virðast reglufastir menn, því
ekki fékkst samþykki þeirra heið-
ursmanna og er ástæðan sú, að um
þetta gildir einhver 50 ára afmælis-
regla!
Hvað um það. HSÍ hyggst aungvu
að síður reyna að safna liði bestu
handknattleiksmanna Evrópu, aust-
an og vestan, og er þá komið heims-
lið hvort sem er. Takist það ekki eru
menn spenntir fyrir því að að fá t.d.
Svía hingað og má víst telja, að svo
sé farið um fleiri. Varðandi heims-
liðið og jafnvel heimslið HSÍ hefur
verið rætt um að fá hinn fræga þjálf-
ara Austur-Þjóðverja, Tiedemanns,
til að stjórna því og hrista saman.
Semsagt allt á fullu „svingi" hjá
HSÍ og handboltahetjum íslands. Og
svo má ekki gleyma ungu mönnun-
um, en um páskana og í kringum
kosningar, dagana 24., 25. og 26.
apríl verður haldið hérlendis Norð-
urlandamót unglinga (18 ára og
yngri) með þátttöku Svía, Finna,
Norðmanna, Dana, fslendinga og
Færeyinga. Grænlendingar ætluðu
að vera með en hafa afboðað.
H.H.
Jón Erlendsson og Einar Magnússon starfsmenn HSÍ: Miklar annir, tilboðin streyma
inn.
talsverður hagnaður varð á rekstri
Flugleiða á síðasta ári. Forsvars-
menn fyrirtækisins eru tregir til að
gefa upp hver sá hagnaður varð;
Morgunblaðið sagði hann vera
400 milljónir, en Sigurður Helga-
son, forstjóri, gekkst ekki við nema
200 milljónum — í bili að minnsta
kosti. En ekkert fer á milli mála að
hagnaðurinn er umtalsverður. Því
vekur það athygli að Verðlags-
stofnun hefur tvívegis lagt blessun
sína yfir hækkanir á fargjöldum fé-
lagsins. Stuttu fyrir síðustu jól fengu
Flugleiðir að hækka um 7,5% og svo
aftur í lok síðasta mánaðar um önn-
ur 10%. Samgönguráðuneytið
skammtar sem kunnugt er flug-
rekstraraðilum flugleyfi á ákveðn-
um leiðum og sitja félögin ein að
þessum leiðum. Þau hafa því einok-
un, hvert á sinni leið. Verðlagseftir-
liti Verðlagsstofnunar er sjálfsagt
ætlað að vega upp á móti þessari
einokunaraðstöðu. En stofnunin
virðist hafa tekið þá ákvörðun að
láta farþega greiða fyrir frekari
gróða Flugleiða. Farþegar geta þó
séð sér leik á borði og keypt hluta-
bréf í Flugleiðum. Þessar hækkanir
ættu að tryggja góðan arð á þessu
ári. ..
Við erum með hagstœðu
verðin og úrvalið líka!
Gabriel
I HÓCGDtYfAH_
I MIKUJ
ÚRVALI
J
fTTAIT
t^Alfematorar
Startarar
Hýtf O0Ma VMtamU)uupp0MMi.
SpennustiHar
M
jo-it fl
miiii ! i
FiAT varahlutir
Kúplingsdiskar
og pressur .
I eHirtalda lólkiOila og jeppa:
Ameriska — Enska tgjpf
Franska — ftalska
Sænska — Þýzka
Eontremur kúpkngsdiska í ^
BEN2 - MAN - SCANIA - VOLVO
Bremsuklossar
í úrvali
( \ „Fijótandl gler" 1 11 ■ Varahlutlr i m kveikjukerfið 1 lA| Einnig úrval kvelkjuloka.
Bílabón í r^\ sérflokki Luiiidii iiun
Betri bíll Æ'M)
\ öCj\\ e Auðvelt í nolkun \guc^6\\ e Auðvelt að þrifa \ - \ e Margtðld ending \ Pl\ Bk U Bónoöo td. brettl og geföu \ samonbufö vtóoöfoc \ _ \\ böntegundir Þú tekuf engo \ HO" \\ óhconu Þ'1 \ \\ vlð endurgrelðum \ Jsóootoöof eftwpoövof ef bú ert ekkl tyUliega önœgð/ut meö B| ffSfa hamra ..Hlgh Energy '. 1 n hásponnukofla WB ■ og transistorkvelkjuhluta fNkn I amerfska m bHa. frá 1976 og yngrl.
tynr - KERTAÞRÆÐIR
lítinn pening u*et e «I«S i »mtm m h*
ófongurinn. KPpa æm ðevfk trunandl KMfVtgiut
% Glóöarkerti í úrvali fyrir m TOYOTA m ISUZU M DATSUN MERCEDES BENZ ^ O.FL. W Oliusiur P& Spíssadísur | Fœöidœlur Auk þess meðal annars: Stýrisendar Spindllkúlur Vatnsdœlur Mlðstöðvar og mótorar LJðs og perur
HÁBERG ” SKEIFUNNI 5A. SIMI 91-8 47 88 HÁBERG r SKEIFUNNI 5A SIMl 91 8 47 88 HÁBERG P SKEIFUNNI5A. SIMI 91-8 47 88
PIZZAHÚSIÐ
GRENSÁSVEGI 10 108 R.
Eina ekta pizzahúsið — ávallt í leiðinni.
Njótið þægilegra veitinga i þægilegu umhverii
Einnig skyndiþjónusta — takið með ykkur pizzu
heim eða pantið í síma 39933.
Ef málid
snýst um
EYÐNI
þá hringiröu í
91-62 22 80
H>
GEGN EYÐNI
sem samanstendur af;
Kransaköku, rjómatertu, Sachertertu,
Alltfyrirkonuna“, Mokkatertu, brauðtertu,
skúffuköku og snittum
erðhugmyndir
20 manna veisla
8.900.-
30 manna veisla
12.600.-
40 manna veisla
15.600.-
osnið við áhyggjur og fyrirhöfn
Heimsendingarþjónusta
ildarkjör
-
HELGARPÓSTURINN 23