Helgarpósturinn - 05.03.1987, Side 26

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Side 26
ENSKUNÁM Á JAMAICA 14. júlí—25. ágúst AFS á Jamaica býður Evrópubúum á aldr- inum 20—30 ára að koma í sumar til Karabíska hafsins og læra ensku við Vest- ur-lndía háskólann í Kingston, Jamaica. Auk enskunámsins býður AFS upp á dvöl á heimilum og fjölbreytta kynningu á landi og þjóð, tónlist og menningu. Umsóknarfrestur er til 21. mars. Skrifstofan er opin kl. 14—17 virka daga. á íslandi — alþjóðleg fræðsla og samskipti - Hverfisgötu 39, PO Box 753 — 121 Reyjavík, sími 91-25450. Dagbókin hennar Dúllu Bolludagur 1987. Kæra dagbók! Það lá við að ég yrði skilnaðar- barn um helgina. Allt út af helv. . . rjómabollum, sem fást í þúsundatali í búðunum í dag, en mamma vildi endilega baka sjálf þó pabbi segði að hann héldi þetta ekki út eitt árið enn. Uppskriftin í Mogganum var víst með prentvillu, allt lenti úti í tunnu og pabbi svaf á sófanum á laugardaginn. Sem sagt: algjör bömmer! En þegar mamma fékk grátkast í gærkvöldi, fór pabbi að hugga hana og þau komu ekkert fram í stofu aftur. Við fengum bakarísbollur og ég held að þetta hafi reddast. Stebba systir er alveg tryllt útaf einhverju verkfalli hjá kennurum. Ég vona að ég verði ekki svona öm- urleg þegar ég er orðin nítján. Manneskjan hefur virkilega áhyggjur af því að komast ekki í próf í vor. . . Ég meina það. Það er eins og hún muni ekki eftir því hvernig hún hugsaði þegar hún var ung! Ég vona bara að mínir kennar- ar fari lika í verkfall — sem lengst. Þá getum við Bella byrjað sumar- vinnuna strax. Ég hringdi í skúringakonufélag, sem heitir Sókn, og kellingin sagði mér hvað á að borga fyrir svona húshjálp. Rétt rúmlega hundraðkall á tímann. Ég meina það! Við Bella ætlum að taka minnsta kosti 250 — hvor. Það gerir Stebba og við skúr- um örugglega ekkert verr en hún. „Ester í einbýlishúsinu“ er eiginlega búin að ráða mig og hún á fullt af vinkonum, sem eru alveg vitlausar í að fá svona heimilishjálp. Þá geta þær verið á fundum og hangið í sím- anum öll kvöld og talað um hvað allt er óréttlátt fyrir konur. Hvernig er hægt að vera svona vitlaus þó mað- ur sé orðinn eldgamall eins og þær? Ekki ætla ég að minnsta kosti að kvarta og kveina þegar ég er orðin stór. Ég ætla að ná mér í ríkan kall — tannlækni eða kannski ráðherra — og láta mér ekki detta í hug að vinna! Alveg eins og amma á Eini- melnum, sem hefur aldrei gert neitt á ævi sinni. Hún kann líka að baka almennilegar heimabollur, sem pabbi stríðir stundum mömmu með. Góða nótt, dagbók mín. Dúlla. PS Ég er að hugsa um að hringja í Stöð 2 eða Bylgjuna á morgun og spyrja hvort Jón Gústafsson sé gift- ur. Helst af öllu vildi ég að Bella gerði það fyrir mig, en ég vil bara ekki láta hana vita að ég sé skotin í honum í alvöru. Best að sofa á þessu, eins og afi segir. PPS Datt eitt æðislegt í hug! Ég ætla að bíða fyrir utan Bylgjuna næst þegar hann er með þátt. Æði, æði, æði. . . Tökum hunda ígœslu til lengri eöa skemmri dvalar Hundagæsluheimili Hundavinafélags íslands og Hundaræktarfélags íslands Arnarstöðum, Hraungerðishreppi 801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030 Opið laugardag í öllum deildum frá kl. 9—16 Verslið þar sem úrvalið er mest og kjörin best. V/SA JIE p KORT EUROCARO ET| ■■■§ i uoocAiin wlS 'A A A A A A % * □ cc z □ Ouina'. ^ >- uenuuuttuui »«iii7 Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.