Helgarpósturinn - 05.03.1987, Síða 27
LISTAP
Höfundur mynda á borð vid Marmaramanninn
og Járnmanninn
ÍNN
Andrzej Wajda
íhugartökur
á íslandi
Frá Agli Helgasyni, fréttamanni
HP í París.
Samkvœmt traustum heimildum
hér í París eru uppi áform um ad
pólski kvikmyndaleikstjórinn
Andrzej Wajda, verdi viö kvik-
myndatökur á fslandi einhverntíma
á nœsta ári. Enn hefur ekkert veriö
fastákveöiö í þessu efni, en aö sögn
Michel Lisorski, nánasta aöstoöar-
manns Wajda, hefur leikstjórinn í
hyggju aö leita til Vigdísar Finn-
bogadóttur forseta íslands um aö
hún hafi milligöngu í þessu máli.
Eftir því sem næst verður komist
er það hin fræga ópera Boris Gódu-
noff eftir rússneska tónskáldið
Modest Mussorgsky sem Wajda
áformar að kvikmynda að einhverj-
um hluta á íslandi. Ráðgert er að
hljómsveitarstjórinn og sellóleikar-
inn Mstislav Rostropowitsj hafi með
höndum tónlistarstjórn í myndinni,
en aðalhlutverkið, sjálfan Boris
Gódunoff syngur ítalski bassasöngv-
arinn Ruggiro Raimondi, sem með-
al annars hefur leikið stórhlutverk í
óperukvikmyndum ítalans Franco
Zeffirellis (sem síðast gerði Ótelló,
nú sýnd í Regnboganum). Væntan-
lega mun þessi mynd Wajda verða
fjármögnuð af Pólverjum og Frökk-
um í sameiningu.
Andrzej Wajda er flestum íslensk-
um kvikmyndaunnendum að góðu
kunnur. Hann stendur nú á sextugu
og er óvefengjanlega helsti kvik-
myndahöfundur Pólverja. Síðan
fyrsta kvikmynd hans Kanal hlaut
silfurverðlaun á Cannes 1957 hefur
hann verið ein skærasta stjarna á
himinhvolfi kvikmyndanna. Fjöl-
margar kvikmynda hans hafa verið
sýndar á kvikmyndahátíðum í
Reykjavík, en þeirra frægastar eru
líkast til Marmaramaöurinn frá
1977 sem fjallar um uppreisn verka-
manna í skipasmíðastöðinni í
Gdansk ári áður og Járnmaöurinn
frá 1980 sem var samtíðarvitnis-
burður um tímabil Samstööu,
frjálsu verkalýðssamtakanna í Pól-
landi. Báðar eru þessar myndir
margverðlaunaðar og lofaðar, en
illu heilli ekki til sýningar í heima-
landi listamannsins — ekki enn.
Eftir að herlög voru sett á í Pól-
landi í desember árið 1981 flúði
Wajda land um hríð og settist að í
Frakklandi. Þar gerði hann kvik-
mynd um ævi byltingarmannsins
Dantons með Gérald Depardieu í
aðalhlutverki, en þvínæst hélt hann
til Þýskalands og gerði myndina Ást-
arsaga frá Þýskalandi. Wajda ráð-
gerði hinsvegar aldrei að vera land-
flótta Pólverji til langframa. Hann
sneri aftur til Póllands og þar hefur
hann nýlokið við myndina Krónika
um ástir, sem fjallar á tregablandinn
hátt um horfnar bernskustöðvar rit-
höfundarins Tadeuz Konwicki í
grennd við borgina Vilnius í Lithá-
en. Sú mynd var nýlega frumsýnd
hér í París að Wajda viðstöddum.
Um þessar mundir er Wajda í Pól-
landi þar sem hann fæst við nýja
mynd sem er byggð á einni sögu
Dostojevskís, þeirri sem á íslensku
er ýmist kölluð Djöflarnir ellegar
Hinir afhöldnu. Að þeirri mynd lok-
inni, mun þessi afkastamikli leik-
stjóri hefjast handa við tökur á Boris
Gódunoff og hvort það verður að
einhverju leyti á íslandi; um það er
enn of snemmt að segja. En Adrzej
Wajda yrði okkur sannarlega
aufúsugestur. . SER.
MYNDLIST
eftir Guðberg Bergsson
Ljósbrotiö er í linsunni
Það góða við sýningu fram-
haldsskólanemá í Ásmundarsal er
að myndirnar á henni eru ekki all-
ar af hinum „myndarlegu" ís-
lensku fjöllum. Eg þakka Ijós-
myndagyðjunni fyrir það. En
næstum allar ljósmyndasýningar
hérlendis hafa verið og eru af
„bráðmyndarlegum" fjöllum.
Ljósmyndarar okkar hafa gert sér
far um að þéra þau með vélum sín-
um, eins og skáldin gerðu — forð-
um daga — í rímuðum ljóðum.
En sem sagt, Ljósmyndafélag
framhaldsskólanema er ekkert að
taka ofan hattinn af linsunni til að
hampa fjalli á mynd. Næstum allar
myndirnar eru af fólki, eða því
sem fólk kemur nálægt. Myndirn-
ar eru ekki af fjallgöngufólki. Því
það væri allt of mikill íslenskur
brandari að hætta að ljósmynda
fjöll en mynda þess í stað fjall-
göngufólk á klossum, í ullarsokk-
um og með skyrtuna niður um sig
og peysuna flaksandi um mittið.
Og nokkrir æðahnútar sjást á kálf-
unum.
Svo er líka annar kostur við sýn-
inguna, sá að ekki er leitast við
það að ná „listrænum" myndum.
Hér örlar ekki á „lífi í frosti", sól-
setursglóð eða sól í skammdeginu
yfir „freraðri tjörn".
Ljósmyndarar eru að uppgötva
íbúa þessa lands, þótt hægt fari.
Fólkið á myndunum er yfir höfuð
sætt fólk. Annað fólk er dónaskap-
ur. Og svo er líka engin leið að
taka mynd af ljótum íslendingum,
vegna þess að þannig menn eru
ekki til „í alvörunni". Ef á sýningu
þessari er eitthvert ófrítt fólk, þá
er það útlent og í afskaplega „ljós-
myndalegu" umhverfi: Ótal aðrar
verur speglast í rúðum, einkum
búðargluggum. Allt er þetta sam-
kvæmt gamalli ljósmyndahefð.
Sem félögum í Ljósmyndafélaginu
dettur auðvitað ekki í hug að rjúfa.
Annars væru þeir ekki íslenskir.
Hér sýnir ekki félagið „Brotnar
linsur".
Það er þess vegna ekki hægt að
segja að ljósmyndavélar félag-
anna séu rauðar og róttækar, held-
ur svartar og japanskar, og þeim
stjórnar íslenskur andi sem leitar
að mótífum, en lætur þau ekki
berast sér. Á sýningunni örlar
varla á hreinni ljósmyndaðri tilvilj-
un.
Ég get ekki betur séð en sumir
ljósmyndarar haldi sér hér við
japanskan lit, Fuji-litinn, sem er
„mildur" og nálgast stundum það
sem ég leyfi mér að kalla mósku-
kennda væmni. Fuji-filman er
vandasöm.
Svart-hvítu myndirnar eru dálít-
ið oflýstar, að mínu viti. En
kannski er oflýstur grámi viss ljós-
stefna hjá félaginu. Þetta gengur
svo langt að myndir í lit eru jafnvel
gráar í anda. Slíkt olli mér tals-
verðum heilabrotum, eins og
reyndar sýningin öll. En þó eink-
um mynd Jóns Sveinssonar: í
þyngdarleysinu. Það er kannski
vegna þess að myndin er ekki í
þyngdarleysi, eða efni hennar,
heldur lætur þyngdarlögmálið
bununa lúta lögmáli sínu, þótt hún
snúi upp.
Ég segi ekki hvers vegna það
sést á bununni, en læt áhorfendur
um að „spá í veruleika" myndar-
innar, bununa úr flöskunni, svo
þeir spyrji sig þessarar spurningar:
Hlykkjast buna sem stendur upp
í strók á sama hátt og buna sem
streymir niður?
Spurningin gæti vel verið spurn-
ing í „Samræmdu prófunum".
Svona eru félagar í Ljósmynda-
félagi framhaldsskólanema mikið
fyrir að gera áhorfendur verka
sinna vísindalega þenkjandi. Ég
held það þurfi góðan „vatnseðlis-
fræðing" til að sjá í gegnum um-
rædda mynd.
Þótt sýningin sé skemmtileg, þá
skortir hana þá óvæntu og mér
liggur við að segja fólsku sveiflu,
sem er í ljósmyndagerð snilling-
anna. Hún sést hjá þeim, jafnvel
þótt þeir taki á atar „hæga" filmu.
Og með sveiflunni afhjúpa „séní-
in“ innra borð hlutanna og sveifla
því rakleitt upp á yfirborð film-
unnar, þannig að yfirborð og und-
irdjúp viðfangsefnisins sitja sam-
síðis á hinni framkölluðu mynd,
sem er oftast í hvítu og svörtu, það
er að segja: í misjafnlega gráum
gráma. Aldrei í einlitum gráma.
Allt á eftir að lagast hjá fram-
haldsskólanemunum, þegar leikn-
in næst. Þá fara synir að ljós-
mynda feður sína í ákafa.
Þótt ég sé alls ekki fyrir það að
vera neitt með ráðleggingar — og
því síður ráðningu — þá langar
mig að benda á tvö fögur fordæmi,
um ljósmyndir af rithöfundum.
Vert er að skoða, fyrir væntanleg-
an Ijósmyndara, mynd Herberts
List af Somerset Maugham, þá
sem hann kallaði: I am certainly
not asnob* Og svo er önnur ágæt
mynd til af Alexandre Dumas eftir
Nadar.
Síðan enda ég þetta hjal í „fag-
mannsdúr": „Ég þakka fyrir
ágæta sýningu. Til hamingju!"
*P.S. Til að sanna það að ég er
„lærður listfræðingur" og mikill
fræðimaður á því sviði, þá gríp ég
til neðanmálsgreinarinnar með
pínulítilli stjörnu. Sem merkir: ís-
lenska myndin af hinum íslenska
Maugham gæti heitið: „Ég er ekki
neitt andskotans séní“. Þetta er
tekið fram hér, til að benda á hlið-
stæður. Þó kann að vera að ég
fylgi of sjálfrátt í pistli mínum
fleygum orðum bókmenntagagn-
rýnenda, þegar þeir segja: Efni
þessa texta hefur „tilvísanir í ýms-
ar áttir". Ef svo er bið ég enska
snobbið, íslenska séníiö og afkom-
andann innilegrar afsökunar. Ætl-
un mín var bara að lýsa því sem
„linsa augna minna sá“ á sýning-
unni.
ANDLIT heitir sýning á skúlpt-
úrverkum sem Sverrir Ólafsson
opnar í Gallerí Grjót nk. föstudag.
Eins og suma rekur eflaust minni til
varð Sverrir nýlega illa úti þegar
hitaveiturör sprakk í geymslu á
Korpúlfsstööum, þar sem hann
geymdi ásamt fleiri listamönnum
verk sín. Flest verka Sverris sem þar
voru eru ónýt og hefur borgin neit-
að að bæta honum skaðann á nokk-
urn máta og eftir því sem fregnir
herma ekki látið þar við sitja,
heldur sagt honum upp húsnæðinu.
Sverrir lætur hins vegar ekki deig-
an síga og um leið og hann opnar
sýningu sína í Grjótinu gerist hann
samstarfsaðili að rekstri gallerísins,
sem þrátt fyrir ungan aldur, fjögur
ár, er orðið elsta gallerí í Reykjavík.
Jafnhliða sýningu Sverris munu
aðrir eigendur gallerísins sýna verk
sín í baksal. Sýningin stendur til 22.
mars og eru öll verkin til sölu en þau
hefur listamaðurinn unnið á síðasta
ári og þessu og ekki að efa að marg-
ir hugsa sér gott til glóðarinnar að
líta hin mörgu andlit Sverris Ólafs-
sonar myndhöggvara.
ANNA Björns leikkona í Kali-
forníu er nú komin á fullan skrið í
undirbúningi fyrir sína aðra heim-
ildarmynd, en hún gerði sem kunn-
ugt er verk um afkomendur íslands-
faranna til Brasilíu ásamt Jakobi
Magnússyni fyrir nokkrum misser-
um. Nýja heimildarmyndin, sem
fjallar um íslenskar konur sem gift-
ust bandarískum hermönnum og
hafa búið síðan vestra, hefur þegar
hlotið styrk úr Kvikmyndasjóöi.
Verkið vinnur Anna í samvinnu við
Ingu Dóru Björnsdóttur, sem hefur
einmitt lagt stund á rannsóknir á
högum þessara íslensku kvenna á
undanförnum árum við háskóla í
Arizona.
HELGI Þorgils Friöjónsson gerir
víðreist um þessar mundir. Um þess-
ar mundir tekur hann þátt í samsýn-
ingu á vegum Kunsthallen/Brandts
Klœdefabrik í Óðinsvéum í Dan-
mörku ásamt sex öðrum listamönn-
um, þar á meðal Magnúsi Pálssyni.
Sýningin ber nafnið LitteARTure og
er sú fyrsta sinnar tegundar á veg-
um gallerísins. Það eru listamenn-
irnir sjálfir sem setja saman sýning-
una og að þessu sinni var það Svíinn
Bengt Adler sem valdi þátttakend-
urna og þema hennar sem er sam-
runi myndar og orðs.
Áðurnefnt gallerí hefur og í sam-
vinnu við þýska galleríið Nemo, gef-
ið út bók með verkum Helga sem
heitir Aörír dagar. í þeirri bók eru
birtar teikningar og stuttir prósar
eftir Helga og er hún gefin út í 200
tölusettum og árituðum eintökum,
samfara sýningu hans meðal
þýskra.
HELGARPÓSTURINN 27