Helgarpósturinn - 05.03.1987, Blaðsíða 31
JAZZ
eftir Vernharð Linnet
Rollingur, blúsbeljari
og andi
gamla greifans
Allstaðar má finna djassgeggjar-
ana og einn þeirra hörðustu hefur
aldeilis komið okkur á óvart með
flunkunýrri stórstórsveitarskífu.
Sá geggjari er trommari Rolling
Stones, gamla brýnið Charlie
Watts, og skífan nefnist The
Charlie Watts Orchestra live at
Fulham Town Hall (CBS/Steinar).
Stórstórsveit með sanni: tuttugu-
ogtveir blásarar auk níu rýþma og
hljómborðsmanna. Margir þeirra
eru gamalkunnir í breska djass-
heiminum ss. saxistarnir; Evan
Parker, Alan Skidmore og Peter
King, trompetleikarinn Harry
Beckett, básúnuleikarinn Paul
Ruthenford, píanistinn Stan Tracy
og víbrafónleikarinn Bill Lesage.
Svo blæs ungstirnið Courtney
Pine í tenórsaxafón, Jack Bruce
strýkur selló og Charlie Watts er
einn af þremur trommurum sveit-
arinnar, sem stjórnað er af útsetj-
ara hennar: Alan Cohen. En hvað
ætli rollingurinn hafi á efnis-
skránni: djassrokk, bíbopp eða
svalan djass í anda Chico Hamil-
tons sem kom honum á trommu-
bragðið með burstaleik sínum í
Walkin Shoes Mulligans kvartetts-
ins. Neinei — hér ^r sveiflan í há-
vegum höfð í Kansans City anda
gamla Count Basies. Rifjasteikin
er steikt af logandi blæstri geggj-
aranna og það vellur og kraumar
í Robins Nest, Stompin at The
Savoy og Lesters Leaps In, þartil
allt er orðið brjálað í djassgeggjun
meistara Hamptons: Flying Home.
Tenóristarnir fara á kostum: meir-
að segja Evan Parker, sem hélt há-
tíðlega tónleika í Norræna húsinu
og að Kjarvalsstöðum með hring-
öndun og austrænni íhugun tryllir
einsog múgæsingamaður á úti-
fundi. And fun was had by all,
nefndist síðasta skífan sem Thad
Jones hljóðritaði með Radioens
big band og það má segja um
þessa tónleika í Fullham Town
Hall. Mikið djöfulli njóta mennirn-
ir þess að blása lungum og lifur
gegnum lúðrana og það er ekki
hægt annað en að fagna því að
tuttugu ára draumur rollingsins
Charlies Watts hefur ræst: Eg er
ungur í annað sinn, segir hann
með glampa í augum og það verða
allir sem hlýða á skífuna.
Bandið hvílir í tveimur ópusum:
Moonglow sem víbrafónleikararn-
ir Lesage og Jim Lawless leika fal-
lega og Scrapple from The Apple
þarsem bassaleikararnir Ron
Matthewson og Dave Green ríkja
tveir í djarfri sveiflu og frjóum tví-
leik.
Andi gamla greifans svífur yfir
allri sveiflu og ekki síst þarsem
gamlir liðsmenn hans koma sam-
an. Að hlusta á Jimmy Rushing,
blúsbeljarann mikla og Dicky
Wells básúnublásarann óviðjafn-
anlega er mikið dúndur — ekki
síður en hákarl og brennivín.
Þeir voru samskipa í Basieband-
inu á árunum 1938 til 1950, en þá
varð Basie að hætta með stórsveit-
ina um tíma af fjárhagsástæðum
og stjórna áttaman na sveit. Jimmy
stofnaði þá eigin hljómsveit og lék
Dicky með honum til 1952 er sú
sveit hætti störfum. Þeir áttu þó
eftir að hljóðrita mikið saman eftir
það og á dögunum var að berast til
landsins tvöfalt albúm: Jimmy
Rushing — The Bluesway Sessions
(Charley/Skífan) er hefur að
geyma tvær skífur er upphaflega
komu út á ABC-Paramouth merk-
inu. Fyrri skífan var tekin upp
1967 og leikur þar undir söng
Jimmy Rushing stórsveit sem
Oliver Nelson stjórnar og er Dicky
Wells aðaleinleikari á gullnu
básúnuna sína. Af öðrum mektar-
mönnum er þar leika má nefna
Clark Terry á trompet, en hann
var um tíma í Basiebandinu og
Hank Jones á píanó og orgel. Það er
dálítið gaman að heyra þennan
frábæra píanista blúsa á orgelið.
Þarna eru bæði gömul verk og ný
og Blues in the dark kannski
þekktast. Nelson tekst oft frábær-
lega að sameina blúsbeljanda
Rushings nútímalegum Basie-
kenndum útsetningum.
Seinni skífan er sú næstsíðasta
er Rushing hljóðritaði, en hann
lést árið 1971. Upptökurnar voru
gerðar í New York 1968 og Dicky
Wells enn með svoog annar gam-
all Basiegaur, tenóristinn Buddy
Tate sem bæði hefur blásið í
Reykjavík með Benny Goodman
og Teddy Wilson. Dave Frishberg
stjórnar rýþmanum með kraft-
miklu píanóspili en félagar hans
standa miðja vegu milli rýþma-
blús og djass. — Jimmy Rushing
er einn af höfuðsöngvurum djass-
ins — og blúsins. Á þessum skífum
er hann frábær og Kansans City
blússveiflan sterk í gæðahljóðrit-
un.
Trymbillinn (bygginn á svip.
KVIKMYNDAHUSIN
AIISTURBtJARRiíl
BROSTINN STRENGUR
(Duet for One)
★★★
Afskaplega hreint hrífandi mynd.
Konchalovsky leikstýrir úrvalsleikurum.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
ÉG ER MESTUR
(Aladdin)
NÝ
Gamanmynd með Bud Spencer. Sýnd
kl. 5, 7, 9 og 11.
LÖGMÁL MURPHYS
(Murphys Law)
Með Charles Bronson. Endursýnd kl. 5,
7, 9 og 11.
■Mafiiai
JUMPIN JACK FLASH
NÝ
Gamanmynd með Whoopi Goldberg,
stjörnunni úr Color Purple. Sýnd kl. 3,
5, 7, 9 og 11.
GÓÐIR GÆJAR
(Tough Guys)
★★★
Tveir gamlir kallar uppgötva að timinn
stendur ekki kyrr. Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
FLUGAN
(The Fly)
★★
Jeff Goldblume breytist í flugu. Galdrar
og hrollur fyrir það sem þess er virði.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Sýnd kl. 9 og 11.
PENINGALITURINN
(The Color of Money)
★★★
Tekur við þar sem The Hustler hætti.
Nú er Newman kominn í hlutverk hins
ráðsetta og reynda.
Sýnd kl. 5 og 7.
KRÓKÓDlLA DUNDEE
(Crocodile Dundee)
★★★
Mick Dundee, Ástralíubúi kemur til
New York. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
LUCAS
★★
Enn ein unglingamyndin. Sýnd kl. 5, 7,
9 og 11.
Hundalff, öskubuska og Hefðar-
kettir á 3 sýningum um helgina.
BÍÓHÚSIÐ
SJÓRÆNINGJAR
(Pirates)
★★★
Stórmynd eftir þann fræga Roman
Fblanski með Walther Matthau í rullu
sjóræningjaforingja. Sýnd kl. 5, 7.05,
9.10 og 11.15.
fðUASKOUIIO
TRÚBOÐSSTÖÐIN
(Mission)
NÝ
Vönduð stórmynd eftir Roland Joffe.
LAUGARÁS
B I O
EFTIRLÝSTUR LlFS EÐA LIÐINN
(Wanted Dead or Alive)
NÝ
Spennumynd með Rutger Hauer og
Gene Simmona Bönnuð yngri en 16.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
EINVlGIÐ
(Race of Honour)
★
Ninja mynd með Sho Kosogi. Bönnuð
yngri en 16. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
E.T.
★★★
Frábær fjölskyldumynd. Sýnd kl. 5 og
7.
LAGAREFIR
(Legal Eagles)
★★★
Mjúkt lögfræðingadrama. Sýnd kl. 9
og 11.
IREGNBOGHNN
SKYTTURNAR
★★★
Ný íslensk mynd eftir Friðrik Þór. Fer
hægt af stað en sterkur endir. Sýnd kl.
3, 5, 7, 9 og 11.15.
HEPPINN HRAKFALLABÁLKUR
(Fóreign Body)
Gamanmynd með Victor Benerjee. Inn-
flytjandi frá Indlandi gerist læknir á
fölskum forsendum. Sýnd kl. 5,7,9 og
11-
FERRIS BUELLER
★★
Gamanmynd um skróp og Ferrari bfl.
Sýnd kl. 3.05, 5.05,7.05,9.05 og 11.05.
ELDRAUNIN
(Firewalker)
★★
Chuck brosir. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 11.15.
NAFN RÓSARINNAR
(The Name of the Rose)
★★★
Sterk mynd. Var Kristur kátur? Bönnuð
yngri en 14. Sýnd kl. 3.10, 6.10 og 9.10
TIL HAMINGJU MEÐ ÁSTINA
NÝ
Frönsk mánudagsmynd. Sýnd kl. 7.15
og 9.15.
STATTU MEÐ MÉR
(Stand by Me)
NÝ
Jnglingar sem ákveða að finna lík sem
ekki finnst. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
BLÓÐSUGUR
(Vamp)
★
Mynd sem fer víst ekki alveg eftir beinu
línunni. Með söngkonunni Grace
Jones. Sýnd kl. 11.
ÖFGAR
(Extremities)
★★★
Farrah Fawcett kemur öllum á óvart.
Bönnuð yngri en 16. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Völundarhús og Kærleiksbirnir
sýndar kl. 3 um helgina.
VlTISBÚÐIR
(Hell Camp)
★
Um ameríska hermenn sem lenda í
ýmsu misjöfnu. Bönnuð yngri en 16.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ mjög góð
★ ★ miölungs
★ þolanleg
O mjög vond
ÁBENDING
Pirates eða Sjóræningjar eftir Roman
Fblanski er þess virði, Matthau fer á
kostum þó ekki væri annað. Þeir sem
hafa hraða og spennu í fyrirrúmi ættu
að sjá Eftirlýstur... ( Laugarásbíói. Hin-
um er bent á Lagarefi í sama bíói sem
nú hafa gengið mánuðum saman.
MYNDBAND
War and Peace (Stríd og friöur).
★★★
77/ útleigu hjá m.a. Myndbanda-
leigu kvikmyndahúsanna.
Bandarísk. Argerö 1956.
Leikstjórn: King Vidor.
Adalhlutverk: Audrey Hepburn,
Henry Fonda, Mel Ferrer, Vittorio
Gassman, Herbert Loom, Oscar
Homolka, Anita Ekberg o.fl. o.fl.
Það er alltaf jafn notalegt að
hnjóta öldungis óviðbúið um viðlíka
kvikmyndasöguleg gullkorn og hér
um ræðir á hillum mynd-
bandaleiganna.
Stríö og fridur meistara Tolstoys er
líkast til það verk heimsbók-
menntanna, sem menn hafa hvað
mest rembst við að þýða yfir á
myndmál kvikmyndarinnar í tím-
ans rás. . . með misjöfnum árangri
VIKUNNAR
þó. Fyrsta markverða tilraunin var
gerð í Rússlandi þegar árið 1916, þ.e.
aðeins rétt rúmum 20 árum eftir að
miðillinn kom yfirleitt til sögunnar.
Þær frægustu komu hins vegar ekki
til fyrr en á sjötta og sjöunda
áratugnum: Þ.e. hið sjö tíma langa
meistaraverk Sergei Bondartchuks
frá 1964 og siðan hin öllu rislægri,
en þó vel frambærilega útgáfa King
Vidors frá 1956, er okkur gefst nú að
fá leigða hjá Myndbandaleigu kvik-
myndahúsanna.
Þessi kvikmyndun Vidors á
meistaraverki Tolstoys er á margan
hátt dæmigerð mastódonfram-
leiðsla frá síðara gullaldarskeiði
Hollywood. Það tók ein tíu ár að
undirbúa töku myndarinnar og
önnur tvö til viðbótar að skrá hana
á filmu. Tugmilljónum dollara var
sóað í hina vægast sagt stórbrotnu
umgjörð hennar, en líkt og
endranær þegar Holly-
wood-staðallinn er annars vegar
mistekst höfundinum hrapallega að
koma sjálfu grunnþema frum-
verksins sómasamlega til skila á
hvíta tjaldinu. Kvikmyndin er engu
að síður í eðli sínu býsna athyglis-
verð kvikmyndasöguleg heimild og
sem slík ágætlega ásjárverð: Þar
vinnur t.d. Audrey Hepburn elhn af
mikilsverðari leiksigrum ferils síns
og hinar vægast sagt stórkostlegu
orrustusenur myndarinnar eru
einhverjar þær bestu sinnar
tegundar 'í gjörvallri sögu
draúmaverksmiðjunnar við
Kyrrahafið.
Ó.A.
HELGARPÓSTURINN 31