Helgarpósturinn - 05.03.1987, Blaðsíða 32

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Blaðsíða 32
s ^Vamkvæmt heimildarmönn- um okkar í Norðurlandi eystra munu framsóknarmenn vera laf- hræddir við framboð Stefáns Vál- geirssonar og almennt er talað um það, að Stefán nái þingsæti og Val- gerður á Lómatjörn sitji eftir á búi sínu við Eyjafjörð. Þannig myndi þingmönnum Framsóknar í kjör- dæminu fækka um 2, úr þremur í einn. Hins vegar er á það bent, að nýju kosningalögin hefðu hvort sem var valdið fækkun þingmanna Fram- sóknar um einn í Norðurlandi eystra. En það er þó huggun harmi gegn, að Stefán Valgeirsson lítur enn á sig sem framsóknarmann og Pétur Valdimarsson einnig, þannig að komist þeir báðir að, fær „Fram- sókn“ 3 þingmenn eftir allt saman í Norðurlandi eystra. . . Fyrr í vikunni heyrðist það haft eftir Pétri Valdimarssyni nýkjörn- um formanni nýja stjórnmálaflokks- ins, Þjóðarflokksins, að hann hygðist ekki segja sig úr Framsókn- arflokknum enda þótt hann væri á leið í framboð fyrir nýjan stjórn- málaflokk, sem Pétur lýsti sjálfur frati á í sjónvarpsviðtali um liðna helgi. Þetta þykir mönnum skrýtið. Annars er fordæmi fyrir þessu, sem er að sjálfsögðu frambjóðandinn Stefán Valgeirsson. Hann ætlar heldur ekki að segja sig úr Fram- sókn. Hvort þetta samræmist lögum ^sSSPllP 1 i u. %. ■ ■ ■ . Siysavamaféiags isiands Framsóknarflokksins er víst talið vafamál. . . Akureyri heyrast sögusagnir um að Hermann Sveinbjörnsson ritstjóri Dags til rösklega 7 ára sé á förum til Reykjavíkur. HP kannaði málið og er niðurstaða þeirrar at- hugunar sú, að Hermann hafi haft þetta á orði, en ákvörðun hafi hann hins vegar enga tekið. Það sem veld- ur því, að sagan fór á flot, eru orð, sem næm eyru hafa heyrt eftir Her- manni um að 10 ára starf í fjölmiðl- un séu orðin ærinn tími auk þess sem hann hafi jafnvel áhuga á því að fara að leggja stund á lögfræði, en hana hefur hann aldrei stundað frá því hann Iauk prófi frá lagadeild HÍ. Sumsé vangaveltur frá Akureyri. . . E^nda þótt félagar í HÍK hafi samþykkt að fara í verkfall um miðj- an mars er ekki allt sem sýnist. Þannig hefur HP góðar heimildir fyrir því, að flestir hafi viljað fella til- lögu stjórnar um verkfallsheimild vegna óheppilegrar tímasetningar. Hins vegar hafi niðurstaðan orðið sú, að greiða verkfallsheimildinni atkvæði, þar sem ósigur stjórnar yrði túlkaður sem gallhart vantraust á sömu stjórn og svo langt hefðu menn ekki viljað ganga. .. Hafðu smokk við hendina ? Hann gœti reddad þér GEGN EYÐNI 32 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.