Helgarpósturinn - 05.03.1987, Side 33

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Side 33
Þýski kvikmyndaleikstjórinn Margarethe von Trotta er komin í fremstu röð kvikmyndagerð- armanna í heiminum. í einkaviðtali við Mann- líf segir hún frá ást sinni á kvikmyndum, körl- um, konum — og íslandi. Fátt hefur vakið jafn mikla athygli í íslenskum stjórnmálum í vetur en þeir atburðir sem leiddu til þess að Stefán Benediktsson, alþingis- maður ákvað að hætta við þátttöku í prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjavík og draga sig í hlé frá stjórnmálum. í viðtali við Mannlíf, sem án efa á eftir að verða mikið umtalað gerir Stefán Benediktsson upp stjórnmálaferil sinn og Bandalags jafnaðarmanna, hreyfingarinnar sem Vilmundur Gylfason stofnaði og leystist smám saman upp á einu kjörtímabili. Hann fjallar um brottför sína úr stjórnmálunum sem telja verður pólitíska aftöku sem á sér engin for- dæmi á íslandi. Meðal fjölmargs annars efnis: Forvitnileg grein um vanda íslenska dómskerfisins og Hæstarétt íslands, sem undanfarið hefur æ meir ver- ið kallaður til að skipa „dómnefndir" í pólitískum hitamálum og um- deilt hefur orðið, sagt er frá vinsælustu leiksýningunni í London, Les Liaisones Dangereuses og aðalleikarinn, Alan Rickman, sem sjón- varpsáhorfendur þekkja úr þáttunum um The Barchester Chronicles, segir Mannlífi frá lífi sínu og list, grein er um nýlegan landvinning kvenna á vinnumarkaðnum, þar sem eru kvenleigubílstjórar og fjallað um þróunina í hasarblaðasögum og rætt við Alan Moore, höfund vin- sælla hasarblaðasagna. MANNLÍF áskriftarsími: 687474 „Góðæri" er hugtak sem hent hefur verið á lofti í stjórnmálaumræðu vetr- arins og verður án efa áberandi í þeirri kosningabaráttu sem nú fer í hönd. i fróðlegri grein, sem nefnist Draumar faraós fjallar Sigurður Snævarr, hag- fræðingur á Þjóðhagsstofnun um þetta hugtak og spáir í það hvort unnt sé og æskilegt að hafa stjórn á „góð- æri" til frambúðar. Erótík er stundum ruglað saman við klám. Nakinn líkama er unnt að túlka í mynd á fjölmargan hátt. Á Ijós- myndasíðum glímir annar af Ijós- myndurum Mannlífs, Gunnar Gunn- arsson við það viðkvæma Ijósmynda- form sem erótískar myndir eru og við birtum myndir hans af fyrirsætunum Dröfn Jónsdóttur, Nanette, Hrafni Friðbjörnssyni og Vilborgu Halldórs- dóttur, ásamt Ijóðum sem eitt af yngri Ijóðskáldunum, Bragi Ólafsson orti við þær. Allir kannast við hljómsveitirnar Spil- verk þjóðanna og Stuðmenn, sem báðar eru mikilvægar stærðir í ís- lensku popptónlistarlífi. Sigurður Bjóla var lykilmaður í báðum þess- um sveitum á sínum tíma, einkum þeirri fyrrnefndu, en fyrir allmörgum árum dró hann sig út úr sviðsljósinu. í skemmtilegu viðtali rifjar Sigurður Bjóla upp gamla tíma og rýnir í nýja. Metsölutímaritíð MarrnMf er komíð út „Ég var valinn" nefnist einstakt viðtal Mann- lífs við Einar Jónsson á Einarsstöðum, fræg- asta læknamiðil íslendinga sem á þrjátíu ára ferli hjálpaði tugþúsundum manna um allan heim. Viðtal þetta er hið síðasta sem tekið var við Einar á Einarsstöðum. Það fór fram rúmum mánuði fyrir andlát hans í síðustu viku, en birt- ist nú með samþykki aðstandenda. Jafnframt ræðir Mannlíf við tvo aðra læknamiðla, þau Guðmund Mýrdal og Unni Guðjónsdóttur, sem nú halda áfram því starfi að vera tengiliður framliðinna lækna og lifandi sjúklinga. Sýning sænska þjóðleikhússins á Atómstöð- inni eftir Halldór Laxness í söngleiksgerð Hans Alfredson hefur vakið mikla forvitni hérlendis. í viðtölum við Mannlíf segja höfundur leik- gerðarinnar Hans Alfredson og aðalleikonan Lena IMyman, sem flestir þekkja fyrir leik sinn í hinum „djörfu" myndum Ég er forvitin gul og blá, frá verkinu og sjálfum sér. HELGARPÖSTURINN 33

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.