Helgarpósturinn - 05.03.1987, Page 35
ÚRSLITAKEPPM ÍSLANDSMÓTSINS í KÖRFUKIMATTLEIK
SUDURNESJASLAGUR
í UPPSIGLINGU
KARFAN Á UIMDIR HÖGG AÐ SÆKJA GAGNVART HANDKNATTLEIKNUM LÍTIÐ
UM SNJALLA NÝJA LEIKMENN HEFUR BANDARÍSKI KÖRFUKNATTLEIKURINN
HUGSANLEGA ÖRVANDI ÁHRIF? SKORTUR Á STÓRUM LEIKMÖNNUM
Nú líöur senn aö því aö úrslita-
keppni íslandsmótsins í körfu-
knattleik fari aö hefjast. Eins og
áöur þá eru þaö fjögur lið sem
koma til meö aö berjast um
sœmdarheitið besta körfuknatt-
leiksliö íslands. Þegar þetta er
skrifaö hafa þrjú liö þegar tryggt
sér þátttökurétt í úrslitakeppninni,
þ.e. Njarövíkingar, Keflvíkingar og
Valsmenn. Slagurinn um fjóröa
sœtiö stendur síöan á milli KR-
inga og Hauka frá Hafnarfiröi.
Standa þeir fyrrnefndu heldur
betur að vígi. Njarövíkingar hafa
þegar tryggt sér sigur í deildar-
keppninni og þykir flestum sem
þeir séu einnig líklegastir Islands-
meistarar. Hér á eftir mun HP
rýna lauslega í þaö keppnis-
tímabil sem nú er aö líöa.
Það verður ekki annað sagt en
að körfuknattleikurinn á íslandi
hafi farið verulega halloka fyrir
gífurlegum framförum í hand-
knattleiknum. Þessar „stóru" inn-
anhússíþróttir keppa jafnan um
hylli áhorfenda yfir vetrartímann
og reyna alla jafna að bjóða uppá
skemmtilega leiki sem draga að
áhorfendur. Hjá körfuknattleikn-
um hefur lítið gengið á þessum
vetri. Áhorfendur hafa heldur
fylgst með ört vaxandi stjörnum í
handknattleiknum en ört „minnk-
andi“ körfuknattleiksmönnum.
Ástæður þessa eru nokkrar:
— Hjá körfuknattleiknum hefur
verið lítið um nýja og sérstaka
leikmenn í vetur. Á síðasta ári
voru Haukarnir sterkir vegna þess
að þeir höfðu í sínum röðum Ivar
Webster sem bar höfuð og herðar
yfir aðra leikmenn. Hann leikur
nú í 1. deild. Haukunum hefur því
ekki gengið sem skyldi í vetur og
í þeirra röðum hafa ekki blómstr-
að nýir menn sem gaman er að
horfa á. Njarövíkingar skarta
sama liði og síðastliðið ár og þar
er sama sagan. Liðið er jafnt og
sterkt þó vissulega megi taka Val
Ingimundarson útúr en það er þó
ekkert nýtt. Að vísu hefur Teitur
Örlygsson átt góða ieiki í vetur en
þar fer ungur og snjall leikmaður.
Valsmenn eru með sömu leik-
menn og enga stórstjörnu, en Kefl-
víkingar fengu til liðs við sig Gylfa
Þorkelsson og hefur hann reynst
þeim vel þó liðið sé að öðru leyti
jafnt. KR-ingar hafa Guðna
Guönason sem er frábær leik-
maður en það eru heldur engin ný
tíðindi. í stuttu máli þá vantar
nýja og spennandi leikmenn í
deildina og ekki hefur bætt úr
skák að allir leikir Frammara hafa
verið hreint formsatriði fyrir
andstæðingana.
— Þegar sjónvarpsáhorfendum
(jjeim sem hafa keypt sér lykil)
býðst að horfa á besta körfu-
knattleik í heimi einu sinni í viku
á Stöð tvö þar sem risar keppast
við að troða knettinum í körfuna
þá er viðbúið að mönnum finnist
lítið til þess koma að fylgjast með
„dvergunum" í íslenska körfu-
knattleiknum, sem ekki ná að
troða boltanum nema einu sinni á
keppnistímabilinu. Hér vantar til-
finnanlega eina hæð ofan á körfu-
knattleiksmennina og okkar bestu
menn eru yfirleitt þeir sem eru
bestar skyttur, s.s. Valur, Pálmar
og Guðni. Skortur á stórum leik-
mönnum kemur nokkuð jafnt
niður á liðunum, en fyrir áhorf-
endur vantar eitthvað spennandi
og sérstakt í körfuboltann.
— Því miður hefur deildin ekki
verið eins spennandi á toppi og
botni og efni stóðu til. Frammarar
hafa verið með lang slakasta liðið
í deildinni og hin liðin ekki þurft
að óttast þá bláklæddu á neinn
hátt. í toppbaráttunni var mikil
spenna framan af, en síðan stungu
Njarðvíkingar af og skildu hin
liðin eftir. Lengst af virtist öruggt,
að Haukar myndu sitja eftir í næst
neðsta sæti, en ágætir leikir þeirra
að undanförnu hafa komið þeim
upp undir KR-inga og nálægt
úrslitakeppninni.
— Keppnistímabil þetta hefur
einkennst mjög af lágu stigaskori í
leikjum. Lögð hefur verið meiri
áhersla á varnarleik en sóknar-
leik. Þetta gildir ekki um alla leiki,
en fjöldann allan af Ieikjum. Það
verður þó að segjast eins og er, að
áhrifin frá bandaríska körfuknatt-
leiknum virðast vera að koma í
ljós. Haukar og KR-ingar spiluðu
hörku körfuknattleik um daginn
og skoruðu þá bæði liðin grimmt
og spiluðu sóknarkörfuknattleik.
Það segir sig sjálft að þegar lítið
er skorað í leikjum þá vekur það
ekki löngun hjá áhorfendum að
koma og fylgjast með. Áhorfendur
vilja sjá sóknarkörfuknattleik
alveg eins og áhorfendur vilja sjá
sóknarknattspyrnu.
Það er ekki sanngjarnt að taka
bara veiku punktana á körfuknatt-
leiknum í vetur, þegar um hann er
fjallað. Auðvitað hefur íþróttin átt
sína góðu punkta líka. Það er
hinsvegar augljóst að leggja
verður meiri rækt við leikinn með
tilliti til áhorfenda ef karfan á að
ná verulegum vinsældum hér á
landi. Margir hafa haft það á orði,
að þær reglur sem spilað er eftir í
körfuknattleiknum séu of strangar
og bent á að varla megi tveir leik-
menn stökkva upp á eftir bolta án
þess að sé dæmd villa. Þá hefur
það kerfi bónusa sem notað er
gert suma leiki sem harðir eru að
eilífðar göngutúr á milli karfa til
að skjóta vítaskot. Þetta er ein-
faldlega leiðinlegt.
Þrátt fyrir að landsliðið íslenska
hafi á undanförnum árum náð sín-
um besta árangri í keppni við er-
lendar þjóðir og sitji nú í B-flokki
á Evrópumælikvarða, þá hefur
leikurinn í deildinni staðnað og
þörf er á nýjum leikmönnum og
spennandi.
Njarðvíkingar eru þegar orðnir
deildarmeistarar og þykja að
margra dómi líklegastir meistarar.
Þeir munu mæta annað hvort KR
eða Haukum í undanúrslitunum.
Mæti þeir KR verður við Guðna
Guðnason að glíma, en í vetur
hafa Njarðvíkingar fundið svar við
honum. Þá hafa Njarðvíkingar á
að skipa Val Ingimundarsyni sem
án efa veitir Guðna keppni í stiga-
skorun hvar sem hann er. Lið
Njarðvíkinga hefur á að skipa
mörgum jöfnum leikmönnum og
getur því hvílt sína aðalleikmenn
vel í hverjum leik. Þeir hafa ein-
faldlega góða breidd, eða „góðan
bekk“ eins og það er víst kallað.
Þessi breidd ásamt þeirri hefð sem
komin er á góðan körfuknattleik á
Suðurnesjum hefur reynst Njarð-
Valur Ingimundarson Njarðvlkingur
víkingum vel í vetur. Njarðvík-
ingar gætu hugsanlega mætt
Haukum í úrslitunum. Haukar
veittu þeim mjög harða keppni í
fyrra en þá höfðu Haukarnir
Webster og munaði um minna.
Tilfinning skrifara HP er sú að
ekkert lið nái að stöðva Njarðvík-
inga.
Keflvíkingar eru í öðru sæti
deildarinnar og mæta þeir Vals-
mönnum í undanúrslitunum. Gæti
þar orðið um hörkuviðureign að
ræða. Keflvíkingar hafa það senni-
lega fram yfir Valsmenn að
„bekkur" þeirra er heldur breið-
ari. Þá eru þeir nánast ósigrandi á
heimavelli. Keflvíkingar eru með
jafnt lið sem treystir ekki á einn
aðalskorara eins og nokkur hinna
liðanna gera. Þá má ekki gleyma
þjálfara Keflvíkinga, Gunnari
Þorvaröarsyni, en hann á eflaust
einhver þjóðráð í sínum vasa sem
duga gegn hvaða liði sem er. Kefl-
víkingar ættu að vinna Valsmenn
og mæta nágrönnum sínum Njarð-
víkingum í úrslitaleik. Þær viður-
eignir gætu orðið ansi fjörugar og
Keflvíkingar ættu að geta gert
meira en velgt Njarðvíkingum
undir uggum.
Valsmenn byggja sitt lið á reynd-
um leikmönnum svo sem Torfa
Magnússyni, Tómasi Holton og
Sturlu Örlygssyni. Bekkurinn hjá
þeim er þó í þrengsta lagi og það
hefur verið þeim til trafala. Viður-
eign þeirra og Keflvíkinga gæti
orðið góð svo framarlega sem
ekki reyni mjög á „bekki“ félag-
anna. Þar hafa Keflvíkingar vinn-
inginn. Reynsla lykilmanna Vals
gæti hinsvegar reynst dýrmæt,
þegar á hólminn er komið. Þó
hallast skrifari HP frekar á að
Suðurnesjaliðin mætist í úrslitum
en að Valsmönnum takist að slá
Keflvíkinga út af laginu.
KR-ingar urðu fyrir því áfalli að
missa bæði Pál Kolbeinsson og
Birgi Mikaelsson til Bandaríkjanna
þar sem þeir eru við nám og
körfuknattleik. Enginn vafi leikur
á því að KR-ingar hefðu getað
orðið mjög sterkir ef þeirra beggja
hefði notið við þetta árið. Nú
þurfa þeir að treysta um of á
Guðna Guðnason. Það er þó ekki
slæmt en dugar ekki. Gegn Njarð-
víkingum verður að koma til
meira en hæfni eins manns.
Haukar eiga möguleika á að
komast í úrslitakeppnina. Þeir
spiluðu til úrslita á síðasta vetri og
þá gegn Njarðvíkingum. Þeir
misstu hinsvegar fvar Webster
sem var nánast 50% í liðinu þar
sem hann hafði bæði hæð sem
nýttist honum til varnar- og sókn-
arhlutverks auk þess sem sú
athygli sem að honum beindist
opnaði fyrir aðra leikmenn.
Haukar hafa ekki sýnt að þeir séu
verðugir íslandsmeistarar og skrif-
ari HP er nokkuð viss um að þeir
liggja fyrir Njarðvíkingúm ef þeim
tekst að komast í úrslitakeppnina.
^ Niðurstaðan er nokkuð augljós.
Úrslitaleikirnir verða háðir á
Suðurnesjum þar sem hjarta
körfuknattleiksins slær hve örast
um þessar mundir. Njarðvíkingar
munu leggja erkifjendurna Kefl-
víkinga að velli í þremur leikjum
og halda þar með íslandsmeistara-
titlinum.
leftir Þórmund Bergsson mynd Árni Bjarna
HELGARPÓSTURINN 35