Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 05.03.1987, Qupperneq 36

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Qupperneq 36
NAUÐUNGARUPPBOÐ^ segir Einar Jónsson sem missti hús sitt á nauðungaruppboði: Get sýnt fram á að ég eigi fyrir skuldum. Tapaði 3 milljónum á eignaupptöku Iögfræðinganna. Átti von á að fá frestun upp- boðs. Ekkert tekið tillit til mannlegra þátta. Við hjónin vorum berskjölduð. Einar Jónsson. Auðvitað eiga menn aö borga sínar skuldir en þaö á ekki að vera hægt að skilja mann eftir á nærbuxunum einum fata... „Þetta eru hreinar Gestapó-að- ferðir við eignaupptökuna á Suður- nesjurn," sagði Einar Jónsson sem varð fyrir þeirri ömurlegu lífs- reynslu á fimmtudaginn í sl. viku að húsið var selt ofan af honum og fjöl- skyldu hans á nauðungaruppboði, sem hann hafði átt von á að yrði af- lýst. Við báðum Einar að segja okk- ur frá þessu máli: „Forsaga þessa máls er sú, að við hjónin áttum annað einbýlishús við Kirkjuveg í Keflavík, sem við seld- um fyrir 2,2 milljónir króna í októ- ber 1985. Við fengum 200 þúsund krónur við undirritun samningsins en síðan ekki söguna meir. Við höf- um ekki fengið krónu í viðbót. Þetta hefur komið sér afar illa, þar sem við erum að sjálfsögðu háð greiðsl- um til að borga okkar eigið hús. Þess vegna hefur verið farið fram á riftun þessara kaupa og málið er nú fyrir dómstólum. — Sjálf keyptum við fokhelt ein- býlishús haustið 1985 fyrir 1,2 millj- ónir króna. Síðan höfum við bætt við og byggt upp húsið, m.a. bílskúr og innréttingar, þannig að í það eru komnar um 3 milljónir til viðbótar. Að brunabótamati sl. haust var þetta hús 4 milljónir króna, þó svo að ekki væri það þá fullgert." LENTU í ÞRENGINGUM „Þetta dæmi er eiginlega einfalt og þessi kaup okkar áttu að ganga auðveldlega upp. En eins og oft vill verða þá kom babb í bátinn í vetur.. Ég fékk krabbamein í ristil og hef þurft að gangast undir uppskurð og til lækninga síðan vegna þess. A sama tíma áttu greiðslurnar að koma fyrir gamla húsið okkar á Kirkjuvegi, en bárust ekki. Hús- næðisstofnun ríkisins tók af miklum skilningi á okkar málum og þar hef ég fengið lán og á um 1 milljón þar inni. Fyrir utan þessa milljón eigum við eftir að fá 1,5 milljónir fyrir gamla húsið, þannig að samtals eigum við útistandandi um 2,5 milljónir sem skila sér fyrr eða síðar. Skuldirnar á þessu nýja húsi okkar eru hins vegar um 2 milljónir. Ég lagði fram áætlun um greiðslur og bað um frest á upp- boði, þar sem augljóst var að ég væri borgunarmaður fyrir skuld- um.“ SYNJA FRESTUN „Nú var svo komið að búið var að auglýsa húsið mitt á nauðungarupp- boði, annað og síðasta uppboð. Lög- fræðingur minn fer fram á greiðslu- stöðvun og frest á uppboði af þeim sökum og áttum við ekki von á öðru en það gengi átakalaust fyrir sig. En svar barst ekki fyrr en sama dag og uppboðið var haldið. Jón Briem lög- maður kröfuhafa neitar frestun, og lætur það svar koma á síðasta degi. Þetta vissi ég ekki fyrr en um hádegi daginn sem uppboðið er haldið og lögmaður minn, sem brá sér til Keflavíkur, kom því ekki við að mæta á uppboðið. Þetta var svo tímahrakið, að ég gat ekki einu sinni fengið mann til að bjóða í eignina fyrir mig á móti þeim.“ BLÓÐUG EIGNA- UPPTAKA — UPPBOÐIÐ LÖGLEYSA „Nú er skemmst frá því aö segja, að „Ég hef ritað bæjarfógeta og mót- mælt uppboðinu og tilkynnt að ég muni áfrýja til Hæstaréttar ef með þarf,“ sagði Skúli Sigurðsson lög- maður Einars Jónssonar, en hann varðist frekari fregna á þessu stigi málsins. Viðbrögð fógeta verða þau, að hæstbjóðandi verður að greiða en síðan liggur málið kyrrt meðan um það er fjallað í hæstarétti, sagði Jón Eysteinsson bæjarfógeti í Keflavík. „Það er til svokallað þriðja uppboð það er komið að uppboðinu. Við hjónin vorum ein heima, en 12 ára dóttir okkar var sem betur fer í skól- anum. Enginn lögmaður var fyrir okkur á staðnum þegar fógeti og lögmenn kröfuhafa héldu þetta upp- boð. Þeir hafa þetta eins og þeim sýnist og taka ekki tillit til fólks. Ég sem haldið er ef allir kröfuhafar fall- ast á það,“ sagði Jón. Ef Einar gæti lagt fram greiðsluáætlun sem lög- menn féllust á, þá gæti komið til slíkrar lausnar. Jón Eysteinsson kvað óvenju mörg uppboð hafa farið fram að undanförnu á Suðurnesjum. Hér væri oftast um gömul mál að ræða, en lögmenn væru að hans mati ekkert óeðlilega harðir í slíkurn málum. er þess fullviss að uppboðið hafi ver- ið lögleysa. Fyrst les fógeti upp hluta af uppboðsskilmálum og síðan er vaðið í að bjóða. — Auðvitað mótmælti ég harka- lega þessu uppboði og hélt að fógeti hefði fallist á að bóka það, en það er ekki að sjá á bókun að hann hafi gert það nema að hluta. Þá fór ég einnig fram á að uppboðinu yrði frestað í viku, þar til úrskurður lægi fyrir um greiðslustöðvun. Allir lög- fræðingarnir samþykktu frestun á uppboðinu, nema Jón Briem, en fógeti spurði hann hvort hann vildi fresta. Hann sagði nei. Það er athyglisvert með öðru, að fógeti setti hvorki né sleit uppboð- inu formlega. Það var bara byrjað að bjóða. Vilhjálmur Vilhjálmsson byrjaði boð, eina milljón króna, en þá spurði annar lögfræðingur fóg- eta hverjir væru uppboðsskilmál- ar. Þá sneri hann sér að lögfræðingn- um og sagði: einn fjórði út og restin á tveimur mánuðum. Annað var það ekki, — og aldrei fékk ég að vita rétt minn eða aðra uppboðsskil- mála. Um síðir var húsið slegið Jóni Briem fyrir 1500 þúsund. „Þið sjáið að þetta er stórt og fallegt hús, — ætlið þið ekki að bjóða?" spurði fóg- eti en enginn sagði neitt. Síðan sagði hann fyrsta og annað, fyrsta, annað og þriðja og þar með vorum við hjónin orðin eignalaus. Það tók ekki langan tíma fyrir lögfræðing- ana í Keflavík. — Eignin var slegin Jóni Briem, aðallögmanni kröfuhafa, fyrir 1,5 milljónir króna. Húsið er áreiðan- lega komið uppí um 5 milljónir króna að mati, þannig að þeir höfðu þarna af mér 3 milljónir króna. Þetta er ekkert annað en blóðug eignaupptaka. Hér á Suðurnesjum voru 5 fleiri nauðungaruppboð heldur en í allri Reykjavík á sl. ári. Hér eru starfandi 6 lögmenn og ganga um eins og eldur á akri. Auð- vitað eiga menn að borga sínar skuldir, en það á ekki að vera hægt að skilja fólk eftir á nærbuxunum einum fata, það verður að vera til eitthvað mannlegt í þessum aðför- um lögmannanna á Suðurnesjum. Auðvitað var þetta blóðugt og er í raun ólíðandi. Þarna stóðum við hjónin berskjölduð, enginn lögmað- ur fyrir okkur viðstaddur, meðan eignaupptakan fór fram. Með hörku fékk ég að hluta bókuð mótmæli og fór m.a. fram á að kvaddir yrðu til matsmenn til að meta verðmæti eignarinnar, en því var ekki sinnt. Það hafa margir orðið fyrir hlið- stæðu á Suðurnesjum og maður verður ekki beinlínis trúaður á dómskerfið eftir slíka reynslu. Hvaða kost á ég í þessari stöðu, ann- an en þann að fara með málið í blöð- in? Auðvitað reynum við allt áður en maður lætur bera sig út úr húsinu sínu,“ sagði Einar Jónsson að lok- um. Uppboðið til hæstaréttar Skúli Sigurðsson lögmaður uppboðsþola: Mótmœli uppboðinu og mun áfrýja ef þarf. Jón Eysteinsson bœjarfógeti: Gœti komið til þriðja uppboðs. Lögmenn ekki óeðlilega harðir á Suðurnesjum. eftir Óskar Guðmundsson mynd: Jim Smart „Einar vélaði húseignina út úr umbjóð- anda mínum/# Jón G. Briem lögmaður kröfu- hafa — slegin eignin á uppboð- inu: Hann hefur ekki notað fyrri fresti. Einar afbakar málið ger- samlega. Hann hefur ekki borg- að krónu í húseigninni. Ég hef kært hann til rannsóknarlög- reglunnar. „Ég sá ekki að hann hefði notað fyrri fresti til þess að afla fjár til að greiða skuldirnar," sagði Jón G. Briem lögmaður, sem slegin var húseignin á Kópabraut þegar HP spurði hvers vegna hann hefði neit- að beiðni um frestun uppboðsins. En nú voru aörir lögmenn á upp- bodsstad reiðubúnir að leyfa frestun og Einar var með beiðni um greiðslustöðvun í gangi. . .? „Það vissi ég reyndar ekkert um, ég var ekkert látinn vita af því. Reyndar varðaði það mig ósköp lít- ið, það er skiptaráðandi sem tekur afstöðu til þess,“ sagði Jón Briem. Jón Briem er lögmaður helsta kröfuhafa í húsið. „Kröfuhafinn er sá sem seldi honum húsið, eða öliu heldur sem hann sveik húsið út úr, því Einar hefur ekki borgað honum eina einustu krónu í húsinu, ég er að innheimta allt kaupverðið." Einar kveður þetta alrangt og hefur undir höndum máli sínu til sönnunar kvittun um fimm hundr- uð þúsund króna útborgun með undirritun Páls Jónssonar. Hann bendir á að greiðslur hafi ekki farið í vanskil fyrr en í haust, er veikindi komu til sögunnar. Eins og komið hefur fram var hús- ið að brunabótamati 4 milljónir, en Einar telur að það sé komið upp í fimm milljónir. Markaðsverð á hús- um er hins vegar lágt á Suðurnesj- um og Jón G. Briem kveðst hafa lát- ið meta húsið tvisvar eða þrisvar og það hafi hæst komist uppí 2,9 millj- ónir að mati. Einar fór fram á að fógeti léti meta húsið áður en til uppboðs kæmi, en Jón Briem telur að það sé ekki í verkahring fógeta að gera slíkt. Jón Eysteinsson fógeti telur að beiðnin um mat hafi verið of seint fram komin, slíkt mat geti aldrei verið meira en leiðbeinandi — en ekkert slíkt mat hafi farið fram í þessu tilfelli. „Einar afbakar málið gersamlega, minn umbjóðandi hefur misst húsið sitt til hans án þess að fá eina ein- ustu krónu. Og það er verið að snúa málinu við. Minn umbjóðandi á að vera þrjóturinn en sá sem svíkur út úr honum húsið á að vera góði mað- urinn. Ég kærði hann til rannsókn- arlögreglunnar fyrir ólöglega veð- setningu á fasteigninni, fyrir að véla fasteignina út úr honum með ólög- mætum hætti, því hann er búinn að fá þinglýsta eignarheimild án þess að hafa borgað eina krónu. Hann var búinn að setja veðskuld á fyrsta veðrétt. Ég kærði hann út af því en veitti honum þriggja mánaða frest á uppboði gegn því að hann aflétti þessari veðskuld og hann fékk frest- inn til þriggja mánaða," segir Jón Briem. Fógeti hefur 14 daga frest til að ákveða hvort hann taki boði eða hafni því. í þessu tilfelli nýtti hann sér ekki allan frestinn og tilkynnti Jóni Briem að hann hefði tekið boðinu. En á Einar ennþá möguleika til að leysa málin? „Hann á alltaf þann möguleika. Ef hann borgar sína skuld þá er málið leyst, en hann hefur ekki borgað eina einustu krónu enn sem komið er,“ segir Jón Briem. 36 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.