Helgarpósturinn - 05.03.1987, Side 40

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Side 40
ÞEGAR FRAMHALDSNÁMIÐ STANGAST Á VIÐ STARFIÐ HP RÆÐIR VIÐ ÞRJÁ AF ÞEIM FJÖLMÖRGU EINSTAKLINGUM SEM VINNA VIÐ ALLT ANNAÐ EN ÞEIR MENNTUÐU SIG TIL INGVAR J. KARLSSON, LÆKNIR OG FORSTJÓRI HEILD- VERSLUNAR KARLS KARLSSONAR: MARGIR HÉLDU AÐ ÉG HEFÐI MISST RÉTTINDIN SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR, MEINATÆKNIR OG FRÉTTA- MAÐUR HJÁ RÍKISÚTVARPINU:__________ HEPPILEGT AÐ FJÖLMIÐLA- FÓLK KOMI ÚR MISMUNANDI ÁTTUM Ingvar J. Karlsson rekur Heildverslun Karls Karlssonar í Reykjavík. Það þætti svo sem ekki sérstaklega í frásögur færandi, nema fyrir þá sök að hann er menntaður læknir og starfaði sem slíkur um skeið. Sjálfum finnst Ingvari þetta ákaflega lítið mál og um fátt áhugavert. Benti blaðamanni t.d. á þá staðreynd að lög- iærðir menn ynnu iðulega við hálfgerð sendla- og innheimtustörf, án þess að það þætti saga til næsta bæjar. „Ég Iærði læknisfræði í Newcastle í Bret- landi — valdi raunar staðinn með tilliti til þess að þar voru engir íslendingar við nám, enda á ég mikið af erlendum vinum frá þessum tíma. Ég starfaði í um 6 ár eftir námið, bæði í norð- austur hluta Englands og Kanada, en þar að auki vann ég um tíma við sjúkrahús hér á ís- landi. Þegar maður er vanur stífri vinnu og miklu fleiri tilfellum, kemur það sér illa að hafa hlotið sitt læknisfræðilega uppeldi alfarið á eriendri grund. Þetta hefur ekkert með aðstöðuna að gera eða slíkt, það er bara fólksfjöldinn. íslendingar lifa lengur en nokkur önnur þjóð og heilsufar- ið er sjálfsagt betra hér en víðast hvar annars staðar. Ég vann mest í töluvert fátækum iðn- aðarhéruðum í Bretlandi og þar var þess vegna mikið um sjúkdóma og veikindi ýmiss konar. Það er einfaldlega ekki jafnáhugavert að starfa hérna og á Englandi, finnst mér. Mér finnst alls ekkert svekkjandi að hafa far- ið í þetta nám, þó ég vinni ekki við það. Ég er heldur ekki alveg dottinn úr tengslum við læknisfræðina, því það leita til mín sjúklingar í hverri viku, bæði kunningjar og fyrrverandi sjúklingar mínir. Þeir hafa engar áhyggjur af því að hringja í heildsölu til þess að komast í samband við lækni. Viðbrögð innan fjölskyldunnar við þessum umskiptum voru af ýmsum toga; mjög jákvæð, mjög neikvæð og allt þar á milli. Það er dálítið gamaldags viðhorf til lækna hér á landi, eins og menn vita. En læknanámið er bara eins og hvert annað nám og kemur manni vel, hvað sem maður starfar við. Það er kannski sjald- gæft að læknar skipti svona alveg um, eins og ég hef gert. Samt er mikið um að læknar vinni skrifstofuvinnu, þó svo þeir geti enn notað tit- ilinn þar. Þannig að þetta er ekkert einsdæmi. Læknar, sem starfa á rannsóknarstofum, fara inn á óskapiega þröngt svið og nýta þess vegna sína almennu þekkingu ekki nema að litlu leyti. Það er kannski erfitt fyrir ieikmenn 40 HELGARPÓSTURINN Ingvar J. Karlsson: „Fólk hefur engar áhyggjur af þvf að hringja I heildsölu til þess að komast I samband við lækni." að sjá það, en læknanámið nýtist mjög misjafn- lega. Eg hef verið heimsóttur af þremur af gömlu kennurunum mínum, sem komið hafa til þess að athuga hvern fjárann ég sé að gera. Þeir hafa viljað fá mig út í vinnu, en það vegur hreinlega þyngra að maður vill búa hér á ís- landi. Ef ég væri skyndilega orðinn tvítugur aftur, myndi ég alveg örugglega fara nákvæmlega sömu leiðina. Eg myndi alla vega ekki fara að læra einhvern „bisness". Námið er nokkurs konar lúxus sem maður á að njóta, en síðan er lífið bara vinna. Það skiptir þá ekki höfuðmáli hvort maður er læknir, lögfræðingur eða eitt- hvað annað. Erlendis er töluvert um að læknar séu í viðskiptum, en hérna heima hefur þetta kannski vakið meiri undrun. Sumir fyrrver- andi sjúklingar mínir hafa orðið mjög hissa og rétt eftir að ég tók við heildsölunni gengu auð- vitað sögusagnir um að ég hefði fallið á próf- unum eða misst læknaréttindin. Það er svona eins og gengur... Það fer alltaf eitthvað þannig af stað. Læknanám er mjög góð undirstaða fyr- ir hvað sem er og nýútskrifaðir læknar ættu ekki að hræðast það að fara út í hvað sem er.“ Sigrídur Árnadóttir, fréttamaður hjá Ríkisút- varpinu, hefur ekki eingöngu leitað góðra fréttamála eftir að hún lauk stúdentsprófi. Hún hefur einnig leitað uppi bakteríur og dregið úr þeim blóð, sem hún hefur síðan sett undir smá- sjá. Sigríður Árnadóttir er nefnilega meina- tæknir að mennt, þó svo hún hafi einungis starfað sem slíkur í tvo mánuði. „Ég útskrifaðist sem meinatæknir á föstu- degi, haustið 1982, og á mánudeginum á eftir hóf ég störf við morgunútvarpið með Stefáni Jóni Hafslein. Það var svo ekki fyrr en sumar- ið eftir þetta að ég vann í tvo mánuði sem meinatæknir. Eitt ár af náminu var raunar verklegt, þannig að ég hef smá nasasjón af því að vinna við meinatækni. Þegar ég var 15 ára, byrjaði ég hins vegar að vinna hjá útvarpinu. Þar gengur bráðsmitandi baktería, sem margir smitast af og eiga erfitt með að losna við. Eg smitaðist, eins og margir aðrir. Og blaða- og fréttamennskubakterían er lífseig! Samt sem áður er maður alltaf að reyna að berjast við hana. Þó égfæri í meinatækni, nám sem ég hafði virkilegan áhuga á, dugði það ekki til að yfirvinna hana. Vissi reyndar ekki þá að ég væri smituð. Mér finnst það tvímælalaust kostur að hafa tekið þetta hliðarspor yfir í meinatækni, því ég hef hvergi annars staðar unnið en á útvarpinu — fyrir utan það að passa börn í eitt eða tvö sumur. Það var gott að komast aöeins útfyrir stofnunina. Annars væri maður eflaust enn að hugsa um hvernig það væri að vinna við eitt- hvað annað. Ég veit það þó núna. Ég finn ekki til neinnar knýjandi löngunar til þess að fara í fjölmiðlanám og sé síður en svo eftir að hafa ekki sérmenntað mig á því sviði. ‘Það er mín trú, að allt nám komi manni til góða í fjölmiðlun; næstum því sama hvað væri. Ég hef ekkert meiri trú á fjölmiðlanám- inu en hverju öðru hvað þetta varðar. Á hinn bóginn finnst mér nauðsynlegt að fólk hafi eitthvað lært. Það getur einfaldlega ekki verið heppilegt að allt fjölmiðlafólk hafi farið í gegn- um sama „prógrammið" Betra að það komi úr mismunandi áttum... Jafnvel þó svo laun meinatækna yrðu bætt til mikilla muna, held ég að ég sneri ekki aftur. Útvarpið er alveg búið að gleypa mig núna! Það yrði erfitt að stíga svo stórt skref til baka héðan af. Launamálin höfðu samt ekkert með þessa ákvörðun mína að gera á sínum tíma. Ég Sigrlður Árnadóttir: „Ég vissi að meinatæknin hlypi ekki frá mér." fékk þetta tækifæri upp í hendurnar, að starfa við morgunútvarpið, og vissi að meinatæknin færi ekki langt, en hitt myndi ekki bíða eftir mér. Ætlunin hafði verið að fara í framhaldsnám og ég fór m.a.s. til Frakklands í eitt misseri til læra frönsku. Ég var búin að sækja um og fá inni í líffræði í frönskum háskóla, en kom heim eftir inntökuprófin þar sem skólinn byrjaði ekki strax. Þá var laus staða fréttamanns við útvarpið vegna forfalla, ég gekk inn í hana og þar með var ég komin í hringrásina. Hef ekki hætt síðan. Ég lét skólavistina lönd og leið og hef ekki séð eftir því ennþá. Kannski tárast ég yfir því á elliheimilinu!"

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.