Helgarpósturinn - 05.03.1987, Síða 44

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Síða 44
M _ . gremju gætir nú á tónlistardeild Ríkisútvarpsins við Skúlagötu vegna afskipta Markúsar Arnar Antonssonar útvarpsstjóra af mál- efnum Léttsveitar stofnunarinnar, sem nýlega var hleypt af stokkun- um. Fyrir síðustu helgi hafði tals- maður Alþýðuflokksins samband við Markús og óskaði eftir því að Léttsveitin fengi að spila á stórfundi frambjóðenda krata í Stapa í Reykjaneskjördæmi, en hann fór fram nú um heigina. Magnús mun hafa neitað bóninni á þeirri for- ser.du að Léttsveitinni væri ekki ætlað að koma nálægt pólitík. Dag- inn eftir hringdi Jón Hákon Magn- ússon sjónvarpsmaður og forsvars- maður fyrirtækisins Kynning og markaður í útvarpsstjóra vegna landsfundar Sjálfstæðisflokks- ins, sem fram fer nú í vikunni, en Jón Hákon annaðist meðal annarra manna undirbúning hans. Jón Hákon ku hafa borið fram sömu ósk og kratinn, hvað Léttsveitina snerti, sem sé að hún spilaði fyrir sjálf- stæðismenn. Heimildir HP neðan af Skúlagötu herma að tíu mínútum eftir samtal Markúsar Arnar og Jóns Hákons hafi svo framkvæmda- stjóra Léttsveitarinnar, Ólafi Þórð- arsyni, verið tilkynnt að hafa allt tilbúið fyrir landsfundinn í Laugar- dalshöll. . . L t ð hefur heyrst af fræðslu- stjóramálinu svokallaða. Það þýðir hins vegar ekki, að málið sé í bið- stöðu. Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra skipaði fyrr- verandi starfsmenn Byggðastofnun- ar, þá Helga Óiafsson og Kristján 44 HELGARPÓSTURINN Kolbeins, til að gera úttekt á fræðsluembættunum í landinu og er gert ráð fyrir að embættin skipi tvo menn á móti sendimönnum menntamálaráðherra. í Norður- landskjördæmi eystra voru skipaðir þeir Trausti Þorsteinsson, skóla- stjóri á Dalvík, og Sverrir Thor- steinsson, fræðslustjóri til bráða- birgða. Hitta þeir sendimenn Sverr- is í dag, fimmtudag. . . Þ að hefur vakið nokkra at- hygli að lögmaður Sturlu Kristj- ánssonar, Jónatan Sveinsson, hefur ekkert heyrt frá fjármálaráð- herra og menntamálaráðherra vegna fræðslustjóramálsins. Sátta- umleitanir hafa engar orðið og hef- ur enda lögmaður Sturlu lagt fram stefnu gegn Þorsteini Pálssyni, f.h. ríkissjóðs, í málinu. Stefnu lög- mannsins fylgir löng og ítarleg greinargerð þar sem hann leggur fram lista yfir málskjöl. Af þeim lista má ljóst vera að lögmaður ætl- ar sér að draga fram ýmsar þær upplýsingar, sem enn hafa ekki komið fram í fjölmiðlum og geta varpað nýju ljósi á fræðslustjóramál- ið. Jafnframt hefur lögmaður sett fram þá kröfu að toppurinn í menntamálaráðuneytinu, þ.e. ráð- herra, Sverrir Hermannsson, ráðuneytisstjóri, Knútur Hallsson, skrifstofustjórarnir, Sólrún Jens- dóttir og Örlygur Geirsson, verði öll kölluð til vitnis í málinu. Herma heimildir HP að fræðslustjóramálið sé allt hið óþægilegasta innan ráðu- neytisins. . . Er þér annt umlífþitt jjj* og limi £ STÆRSTA TIMARIT LANDSINS í hvert hús kjördæmisins næstu daga Grindavík, Garð, Sandgerði, Keflavík, Njarðvík, Voga, Hafnir, Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog, Seltjarnarnes, Mosfellssveit, Kjalarnes, Kjós Viðtöl - Mannlíf - Stefna - Heimsóknir ? X c 2 3 3‘ 2i *+■ CL OJ cu X" UD 5 rt) 3 “t •2* o« 3? x- sr ~a

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.