Helgarpósturinn - 07.05.1987, Side 7

Helgarpósturinn - 07.05.1987, Side 7
Skýrslu tœknideildar bandaríska sjóhersins um „gullskipiö“ á Skeiöarársandi var á sínum tíma haldið leyndri fyrir Alþingi. Þingið samþykkti að ríkið gengi í ábyrgð á erlendu láni að upphœð allt að 130 millj- ónum króna. Ef skýrslan hefði verið lögð fram má œtla að ósk um ríkisábyrgð hefði verið hafnað. ístað skýrslunnar fékk þingheimur viðarbút að þefa af. Fyrir rúmum fjórum árum samþykkti Alþingi Islendirtga að veita hlutafé- laginu Gullskipinu ríkisábyrgö á erlendu láni að upphæð allt að 50 milljón- um króna. Sú upphœð samsvarar tœplega 130 milljónum í dag. Trygging ríkisins í þessum viðskiptum var bundin í því er kynni að finnast af hol- lenska kaupfarinu Het Wapen van Amsterdam. Pessi kostulega ákvörðun var tekin í tímahraki síðustu daga þingsins 1983. Heimildin var afgreidd frá efri deild með eins atkvœðis meirihluta. Einn deildarmanna var fjarverandi atkvœðagreiðsluna, Ólafur Jóhannes- son, þáverandi utanríkisráðherra, sem hafði lýst sig mótfallinn frumvarp- inu í umrœðum. Þrátt fyrir kröfu Ólafs Þ. Þórðarsonar, þingmanns Vestfirðinga, lögðu flutningsmenn frumvarpsins ekki fram skýrslu er tæknideild bandaríska sjó- hersins hafði tekið saman um „gullskipið“áSkeiðarársandi. Súskýrsla kom heldur ekki fyrir augu nefndarmanna fjárhags- og viðskiptanefndar þings- ins, sem fjölluðu um frumvarpið. UPPLÝSINGUM HALDIÐ LEYNDUM FYRIR ALÞINGI Skýrsla tæknideildar bandaríska sjóhersins er sjálfsagt víðtækasta út- tekt sem gerð hefur verið um strand Het Wapen van Amsterdam og hugsanlega björgun flaksins. Hún var gerð að frumkvæði þeirra gull- skipsmanna, en hefur nánast verið leyniplagg á íslandi frá því að vinnu við hana var lokið. Niðurstöður skýrslu þessarar eru í öllum megin- atriðum í andstöðu við það sem björgunarmenn sjálfir hafa haldið fram varðandi „gullskipið". Ef skýrsla bandaríska sjóhersins hefði verið lögð fyrir þingið má telja fullvíst, að þingheimur hefði hafnað beiðninni og komið í veg fyrir að ríkissjóður ætti nú veð sitt týnt, ein- hvers staðar á Skeiðarársandi. í samtalsbók sinni við Arna John- sen, Kristinn í Björgun, segir Krist- inn Guðbrandsson, forvígismaður Gullskips, að þessi ríkisábyrgð hafi nánast verið neydd'upp á félagið. í samtölum Helgarpóstsins við nefndarmenn fjárhags- og við- skiptanefndar þingsins kom annað fram. Samkvæmt ummælum þeirra börðust gullskipsmenn „ýmist grát- andi eða hótandi" fyrir ríkisábyrgð- inni. Meðal gullskipsmanna var innan- búðarmaður í þihginu, Eyjólfur Konráö Jónsson, viðskiptafélagi Kristins og hluthafi í Gullskipinu h/f. Hann lagði þó ekki fram frum- varpið. Birgir ísleifur Gunnarsson var fyrsti flutningsmaður og flutn- ingsmenn með honum voru Þórar- inn Sigurjónsson, Sverrir Her- mannsson og Magnús H. Magnús- son. Við meðferð þingsins á fjárlög- um hafði áður komið fram sam- hljóða breytingartillaga við fjárlög við lok afgreiðslu á þeim. Hún fékkst ekki samþykkt, einkum vegna þess hversu seint hún kom fram. Flutningsmenn þeirrar tillögu voru auk Birgis og Sverris, þeir Pét- ur Sigurðsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Jón Helgason. VARAÐ VIÐ FJÁRSJÓÐS- LEITARMÖNNUM Það er kunnara en frá þurfi að segja, að þeir gullskipsmenn grófu ekki upp hollenska kaupfarið, Het Wapen van Amsterdam, þá um sum- arið. Skipið sem kom í ljós var þýsk- ur togari, Albert, er hafði strandað á söndunum árið 1904. Það urðu mörgum vonbrigði. En þegar skýrsla tæknideildar bandaríska sjóhersins er lesin, kemur í ljós að ls- lendingar geta í raun prísað sig sæla fyrir að hollenska kaupfarið fannst ekki þá. Meginniðurstöður skýrslunnar eru þær að skrokkur flaksins sé að öllum líkindum það heillegur, að framkvæmanlegt sé að endur- byggja hann. Öll yfirbygging skips- ins sé hins vegar horfin. Mögulegt sé að finna flakið með ærnum til- kostnaði. Skýrsluhöfundar mæla með hljóðbylgjum eða „infrarauð- um" myndum, þar sem allur málm- ur sé að öllum líkindum horfinn úr skipinu. Ef skipið finnst hefur það einvörðungu fornleifalegt gildi. Það sé mjög ólíklegt að í skipinu sé enn farmur sem væri það verðmætur að söluverð hans gæti greitt niður kostnaðinn við leitina, jafnvel þó að ekkert yrði gert til að bjarga skrokk- inum. Sú aðgerð yrði hins vegar óheyrilega kostnaðarsöm og í raun vísindalegt happdrætti. Skýrsluhöf- undar líkja núverandi ástandi viðar- ins í skrokknum við „blautt kex“. Skýrsluhöfundar sjá ástæðu til þess að vara við að fjársjóðsleitar- mönnum verði hleypt í flakið. Slíkt hafi oft orðið til þess að mikilvægar fornmenjar hafi spillst og jafnvel glatast. Ef slíkt gerðist á Skeiðarár- sandi, yrði það mikið tjón fyrir sjó- ferðasöguna, þar sem Het Wapen van Amsterdam er eitt fárra þekktra flaka af sautjándu aldar skipi og eina vopnaða kaupfarið frá þeim tíma sem vitað er af. EKKERT GULL I GULLSKIPINU Niðurstöður skýrslunnar um farminn, sem hefur orðið efni þjóð- sagna á Islandi í þr jár aldir og virðist vera drifkrafturinn í Gullskipi h/f, eru skýrar. Samkvæmt farmskrá skipalestarinnar var farmur Het Wapen van Amsterdam að lang stærstum hluta krydd. Persónulegur farangur farþega og áhafnar mun hins vegar hafa innihaldið mikið magn verðmætra málma og steina. En sannað þykir að mjög litlar Iíkur séu fyrir að eitthvað af þessum verð- mætum séu enn í flakinu. Til eru heimildir um hollenskan björgunarleiðangur árið eftir strandið. Samkvæmt skjölum í hol- lenskum söfnum var mikið af farm- inum flutt aftur til Hollands. Þar með talinn kopar, en hann mun hafa verið neðst í lestum skipsins. Það er því ólíklegt annað en að tekist hafi að ná því sem lá ofar í skipinu. Auk þess segja skýrsluhöfundar að samkvæmt íslenskum heimild- um sé sannað að skipið var að mestu ofan jarðar í meira en 90 ár. Bændur í Öræfum hafi dregið ankeri upp að bæjum sínum og því sjálfsagt átt auðvelt með að flytja léttara góss heim í hlað. Auk þessa eru til heimildir um milliríkjadeilu Dana og Hollendinga vegna verð- mæta er Ottó Bjelke, amtmaður á Bessastöðum, hafði tekið úr flakinu og sölsað undir sig persónulega. Skýrsluhöfundar fara nokkrum góðlátlegum orðum um nafngift ís- lendinga á flakinu, „gullskipið á Skeiðarársandi". Þeir komast að því að rætur hennar megi rekja til ann- ála sem skrifaðir voru langt frá strandstað. Upphafið muni að öllum líkindum hafa verið, að farmur allr- ar skipalestarinnar var metinn á 43 tunnur gulls. Með tímanum varð þetta mat síðan að farmi Het Wapen van Amsterdam. íslendingar virðast enn þann dag í dag standa í þeirri trú að um borð í skipinu hafi verið 43 tunnur, fullar af gulli. Þessi skoð- un lifir, þrátt fyrir að henni sé hvergi um. íslenska ríkið virðist meira að segja hafa tryggt sér veð í þessum gulltunnum. LÁ VIÐ FORNLEIFA- HNEYKSLI í greinargerð með frumvarpinu er því haldið fram að söluverðmæti farmsins sé miklum mun verðmæt- ari en þær 130 milljónir sem ríkið tryggði sér veð í. Samkvæmt samn- ingi við gullleitarmennina á ríkið að fá 12% af andvirði farmsins, að frá- dregnum flutningskostnaði frá strandstað í hús. Auk þess spá flutn- ingsmenn rikinu miklum skatttekj- um vegna fundarins. Þessar getgát- ur fiutningsmanna verða hjákátleg- ar í ljósi skýrslu tæknideildar banda- ríska sjóhersins. En alvarlegasti gallinn við frum- varpið, og þar með ákvörðun Al- þingis, er að með því stefndi í að ís- lendingar yrðu ábyrgir fyrir forn- leifafræðilegu hneyksli. Samkvæmt skýrslu bandaríska sjóhersins er óheyrilega kostnaðarsamt að forða flakinu frá endanlegri eyðileggingu, eftir að það hefur verið grafið upp. I því sambandi benda þeir á reynslu Svía í tilraunum við að varðveita herskipið Vasa, sem þeir björguðu af hafsbotni fyrir um tuttugu árum. Þegar tekist hafði að ná Vasa upp, kom í ljós að viðurinn var líkastur „blautu kexi“, og segja skýrsluhöf- undar að óábyrgt sé að reiícna með öðru en að viðurinn í skrokki Het Wapen van Amsterdam sé í svipuðu ásigkomulagi. Þór Magnússon, þjóðminjavörð- ur, sagðist í samtali við Helgarpóst- inn varla kunna að skrifa þær upp- hæðir sem tilraunir Svía hefðu kost- að. Auk þess væri ekki enn fyrirséð hvort yfir höfuð tækist að „endur- lífga“ viðinn svo, að hann þyldi snertingu við andrúmsloft. fSLENSKT „HUGVIT" OFAR SÉRFRÆÐIÁLITI Samkvæmt skýrslunni hefði þurft að sjóða hvern viðarbút úr Het Wapen van Amsterdam í vaxi í mörg ár til að verja viðinn frekari skemmdum. Auk þess hefði þurft að koma fyrir risavöxnu úðunartæki á vettvangi til að halda flakinu röku, meðan það væri hlutað sundur og flutt í vaxbaðið. Engar slíkar ráðstaf- anir voru fyrirhugaðar í fram- kvæmd gullskipsmanna á Skeiðar- ársandi, árið 1983. Gullskipsmenn lögðu þessa skýrslu ekki fyrir þingið. Þeir komu hins vegar með eigin niðurstöður og viðarbút úr togaranum Albert, sem þeir leyfðu þingheimi að þefa af. Margir þingmenn fundu sterka aust- urlenska kryddlykt af viðnum og með það flaug ríkisábyrgðin í gegn. En hvers vegna var skýrsla tækni- deildar bandaríska sjóhersins ekki lögð fram í þinginu? Þegar Helgar- pósturinn innti Kristin Guðbrands- son að því sagði hann að þessi skýrsla væri ekki góð. „Þessir menn þekkja ekki sand- inn. Ég man eftir að hafa þurft að hjálpa þessum mönnum yfir hann, þegar þeir voru með sínar athugan- ir. Þeir segja að skrokkurinn hafi verið áratugi að sökkva. Ég hef hins vegar séð sandinn gleypa skip á ör- fáum árum.“ Samskonar viðhorf kom fram hjá Birgi ísleifi Gunnarssyni þegar Ólaf- ur Þ. Þórðarson innti hann eftir skýrslunni. Birgir sagði að þeir sem best þekktu segðu skýrsluna að mestu byggða á líkum og þar væri lítið um raunhæft mat. Skýrslan var því hunsuð og treyst á mat íslenskra hugvitsmanna. Mat þeirra byggði ekki á líkum, þrátt fyr- ir að þrjár aldir væru liðnar frá strandinu. hægt að finna stoð í raunveruleikan- Valdsmenn í veiðiferð. Á myndinni eru Eyjólfur Konráð Jónsson, þingmaður og varaformaður stjórnar Gullskips (Krist- inn segir f bók sinni að Eykon sé kraftaverkamaður (fjármögnun), Helgi Bergs, bankastjóri Landsbankans, sem er viðskipta- banki Björgunar h/f og sá banki er tók erlenda lánið fyrir Gullskip h/f, Helgi Eyjólfsson, húsasmíöameistari og stjórnarmaður ( Björgun, Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, Kristinn Guðbrandsson í Björgun, helsti forvígismaður gullleitarinnar og Svanbjörn Frimannsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans og Seðlabankans. eftir Gunnar Smára Egilsson HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.