Helgarpósturinn - 07.05.1987, Page 12
eftir Jónínu Leósdóttur mynd Jim Smart
(
Ásdís Jenna í skólanum. Hún er
þarna í lyftu, sem gerir fötluðu
börnunum í Hlíðaskóla kleift að
komast á milli hæða engu síður en
þeim heilbrigðu.
Ásdís Jenna Ástráðsdóttir, 17 ára fötluð stúlka, er ein þeirra sem nýtur góðs af tækniundrum nútímans
„Mg langar í lítinn apa“
Ásdís Jenna Ástráösdóttir er 17 ára og
yrkir Ijóð. Hán var að Ijáka samrœmdu
prófunum í íslensku og dönsku og fór í bíó
með frœnkum sínum til þess að halda upp á
að það. Ásdís á hins vegar við erfiðari
vandamál að etja en flestir unglingar. Hún
er alvarlega spastísk og án háþróaðrar
tœkni nútímans er hœtt við að framtíöar-
horfur hennar vœru ekki glœstar.
Ásdís Jenna býr á Seltjarnarnesi með
foreldrum stnum og tveimur brœðrum. Hún
gengur í Hlíðaskóla og eins og fyrr segir
hefur hún nýlokið samrœmdu prófunum í
dönsku og íslensku. Blaðamaður HP heim-
sótti Ásdísi í byrjun vikunnar, m.a. í tilefni
þess að nú um helgina verður sýning á
hjálpartœkjum og gögnum fyrir fatlaða í
anddyri Borgarleikhússins. Það eru einmitt
slík tœki, sem gera Ásdísi kleift að tjá sig og
létta henni lífið á margan hátt.
Samtal okkar átti sér stað með þeim hætti
að Asdís fékk skriflegar spurningar, sem hún
síðan svaraði á tölvuna sína. Tölvunni
stjórnar hún með því að gefa frá sér hljóð
(smellir tungu i góm) í hljóðnema. Þannig
getur hún valið alla þá stafi, sem aðrir
myndu velja frá lyklaborði tölvunnar.
— Hvernig fannst þér nú samrœmdu
prófin — erfiðari eða auðveldari en þú bjóst
við?
„Danskan var léttari, en íslenskan erfiðari
en ég bjóst við.“
— Hvort fagið finnst þér skemmtilegra?
„Mér finnst íslenskan skemmtilegri.1
— Varstu búin að kvíða mikið fyrir?
„Ég var búin að kvíða mikið fyrir
prófunum, en þegar ég var komin í þau, leið
mér vel."
— Gerðir þú þér einhvern dagamun,
12 HELGARPÓSTURINN
þegar þetta var yfirstaðið?
„Já, ég fór í bíó með tveimur frænkum
mínum."
— Eru til einhver hjálpartœki, sem þú
veist af og langar í?
„Rafmagnshjólastóll er efstur á blaði hjá
mér, en hann er í pöntun.
Umhverfisstjórnunartæki, sem ég gæti notað
t.d. til að kveikja og slökkva á útvarpi og
sjónvarpi. Textasími, eins og heyrnarlausir
nota. Tölva, sem ég gæti stjórnað með
augunum. Lítill api, eins og sýndur var í
sjónvarpinu, sem gæti náð í hluti fyrir mig,
t.d. bækur, og hjálpað mér við að borða og
drekka."
— í hverju mun aðal breytingin felast fyrir
þig, þegar þú fœrð nýja hjólastólinn?
„Þegar ég fæ rafmagnshjólastól, get ég
(vonandi) loksins hreyft mig úr stað sjálf,
fengið meira frelsi. Kannski get ég farið út í
búð fyrir mömmu.
Ég hlakka mikið til, en er líka svolítið
hrædd um að ég geti ekki stjórnað honum
og keyri á!“
— Eg veit að þú lest mjög mikið, Ásdís.
Hvað finnst þér skemmtilegast að lesa þessa
dagana?
,,Skáldsögur.
Ég kemst yfir mikið lesefni, því ég hef
oftast ekkert annað að gera en lesa eða
horfa á sjónvarp, þegar ég er ekki í
skólanum."
— Hlustarðu líka á útvarp og fylgist með
vinsceldalistunum?
„Ég hlusta nú ekki mikið á útvarp, því ég
heyri illa. Hlusta þó dálítið á tónlist, en
fylgist ekki með vinsældalista."
— Áttu uppáhaldslag?
„Hægt og hljótt.‘“
— Ætlaröu að fylgjast meö Eurovision-
keppninni á laugardaginn?
„Já, ég ætla ekki að missa af henni."
— Finnst þér tölvurnar, heima og í
skólanum, fullnœgja þínum þörfum, Ásdís?
„Því miður er ég mjög sein að skrifa á
tölvurnar, en mér fer fram. Þar sem ég nota
hljóðnema við að skrifa, verður að vera
hljótt í kringum mig, en það er það ekki
nærri alltaf."
— Hvernig notarðu þœr helst — til að
skrifa?
„Ég nota tölvuna fyrst og fremst til að
skrifa og tjá mig. Ég geri skrifleg verkefni
með henni."
— Ertu með eitthvað af gögnum inni í
tölvunni í stað bóka?
„Ég er með nokkur kennsluforrit, t.d. til
að æfa ensku, en það eru ekki til mörg
forrit, sem henta mér."
— Hefurðu lengi fengist við að yrkja?
„Ég man, að ég orti fyrstu vísuna mína 12
ára.“
— Lestu mikið af Ijóðum?
„Ég elska ljóð og les dálítið af þeim.“
— Megum við birta Ijóð eftir þig í Helgar-
póstinum?
„Já, þið megið birta ljóð eftir mig.“
— Ertu báin að ákveöa hvað þú gerir,
þegar þú lýkur samrœmdu prófunum og 9.
bekk á nœsta ári?
„Mig langar að fara í menntaskóla og
síðan í háskóla. Kannski í íslensk fræði."
— Langar þig að vinna við eitthvað
sérstakt í framtíðinni?
„Mig langar að skrifa sögur og ljóð. Það
er eitt af því, sem ég ætti að geta gert. Ég
held ég hafi gott ímyndunarafl."
— Attu þér framtíðardraum?
„Þetta er framtíðardraumurinn, að skrifa.
En líka það að ferðast um allan heiminn."
Ég hugsa
eins og þið
Ég hugsa eins og þiö
En þid vitid þaö ekki
Ég get ekki sagt ykkur það
Þið skiljið mig ekki
Ég reyni að tala við ykkur
En þið horfið bara á mig
og farið
EFTIR ÁSDÍSI JENNU ÁSTRÁOSDOTTUR,
17ÁRA. ORT6.2. 1987