Helgarpósturinn - 07.05.1987, Síða 13
Dagbókin hennar Dúllu
Elsku, besta, kæra dagbók!
Ég er í svo rosa góðu skapi, vegna
þess að Þ. {þú veist, í mínum bekk...)
bauð mér upp á diskótekinu í skól-
anum um helgina. Mér hefur nú allt-
af fundist hann frekar hallærislegur
og ekkert pælt mikið í honum, en ég
held bara að hann sé kannski ekki
sem verstur. Hvað ætli það sé svo
sem asnalegt að vera með rautt hár?
Og hvað með það þó hann gangi
svolítið furðulega? Hann er örugg-
lega ferlega klár og veit til dæmis
alveg helling um pólitík. Það er bara
verst að hann er í Heimdalli. Ég
hugsa að pabba og mömmu þætti
það ekkert sniðugt. En hann er svo
sem ekkert farinn að bjóða mér
neitt út, eða svoleiðis...
Hann sagdist sam t ætia að hringja
í mig, þegar við vorum að dansa síð-
asta vangadansinn. Og líka þegar
hann kvaddi mig við hliðina á bíl-
skúrnum heima. Það væri í fyrsta
sinn sem ég fengi svona „alvöru"
símtal frá strák.
Pabbi og mamma ætla til Akur-
eyrar um næstu helgi. Stebba systir
sagði, að pabbi væri að bæta fyrir
það þegar hann þurrkaði óvart
hluta af bókinni sem mamma er að
þýða út úr tölvunni á kosninganótt-
ina. Mér finnst það nú fáránleg að-
ferð. Ekki birtast týndu kaflarnir í
tölvunni þó þau fari norður að sjá
eitthvað leikrit og gista á hóteli.
Hann hefði þá frekar átt að hjálpa
henni að þýða þetta upp á nýtt.
Annars gæti verið að þau færu
ekkert. Mamma var nefnilega að
uppgötva það áðan, að amma á
Einimelnum er líka að fara á þetta
leikrit. Gamii kailinn er víst að
bjóða henni. Þessi, sem er alltaf „úti
að aka" með hana (eins og mamma
segir). Og mamma sagðist ekki fara
í sinn „sekkond hönnímún" (eða
eitthvað svoleiðis) með tengdó. Það
hafi verið nóg að taka Hönnu
frænku með í brúðkaupsferðina í
fornöid. Það er naumast að þetta
blessað leikrit á Akureyri er vinsælt,
þó það hafi verið sýnt í Reykjavík
fyrir mörgum árum og sé til á öllum
vídeóleigum, þar sem enginn tekur
það... Ég meina það! Líklega er það
rétt hjá Stebbu að þetta sé bara af-
sökun hjá fullorðna fólkinu fyrir því
að detta í það og hafa það gott. Það
þarf alitaf að gera alla hluti svo
KJARVALSSTAÐIR VORU BYGGÐIR ÁRÐ1968
GLÆSILEG BYGGING
ÚR GÓÐRI STEYPU
Það er okkur mikil ánægja að hafa framleitt steypuna í þessa glæsilegu
miðstöð lista og menningar. Frá því að Steypustöðin hóf starfsemi sína
hefur það veriö aðal markmiðið að vinna að rannsóknum og þróun á
steinsteypu til hagsbóta fyrir steypukaupendur. Við vitum hversu mikil-
vægt það er að geta tryggt viðskiptavinum okkar aðeins þá bestu steypu
sem til er. Rétt efni og öflugt eftirlit tryggja gæðin.
STEYPUSTÖÐIN
hf
flókna. Ég myndi nú frekar leigja
mér nokkrar góðar spólur, kaupa
kjúklingabita og franskar og græða
helling á sparnaðinum, eða þann-
ig... (Ég veit ekki betur en það sé
líka til nóg af brennivíni hér fyrir
sunnan!)
Bless — læt þig vita ef Þ. hringir.
Dúlla
PS Engum segja, en Þ. hefur ör-
ugglega aldrei kysst stelpu fyrr!
Hann vissi nákvæmlega ekkert
hvað hann átti að gera og var líka
alveg feriega æstur. Og hvað held-
urðu? Ég var fjóiublá á efrivörinni
þegar ég vaknaði um morguninn!
Ég varð að nota dökka varalitinn
minn frá í fyrra, þó allar stelpurnar
séu núna með ljósa. Þær héldu að
ég væri biluð...
(0
<
co
O
HELGARPÖSTURINN 13