Helgarpósturinn - 07.05.1987, Síða 16
— en þegar til átti aö taka vildu Thorsarar ekki selja. Flugleiðabrœðurnir Sigurður og
Gunnar Helgasynir buðu 74 milljónir í ána í fyrra.
Fyrir ári sídan voru uppi umrœd-
ur um eigendaskipti í Haffjaröará í
Hnappadal og kaupverð talið um
eða undir tveimur miUjónum doll-
ara. Eins og fram kom ísíðasta tölu-
blaði HP er á þessi í eigu afkomenda
Richard Thors sem jafnframt eiga
nœr allar jarðir sem að ánni liggja.
Ósamkomulag og málaþrcetur milli
bœnda og eigenda hafa verið með
allra mesta móti og jarðeigendur ýtt
mjög á að koma jörðum sínum, 10
að tölu, í eyði. Pegar fréttist að áin
vceri föl sýndu sveitarfélögin því
máli mikinn áhuga. / september
hafði þeim tekist að afla tilskilins
fjármagns en á sama tíma orðið
sinnaskipti í liði Thorsara. Tilboð-
inu var hafnað og stríðið heldur
áfram.
Þeir sem stóðu að baki fjármögn-
un kaupanna fyrir bændur voru ein-
staklingar á höfuðborgarsvæðinu
undir forystu þeirra bræðra Gunn-
ars lögfræðings hjá Flugleiðum og
Sigurðar fyrrverandi forstjóra,
Helgasona. Kauptilboðið hljóðaði
upp á 74 milljónir króna og skyldi
heimingur greiðast út við undirritun
en eftirstöðvar 1. júní á þessu ári.
Tilboðinu var hafnað og af hálfu
bænda þótti þá ljóst að áhugi eig-
enda á sölu væri ekki lengur fyrir
hendi. Milli bændanna annars vegar
og þeirra Flugleiðabræðra hins veg-
ar var gert ráð fyrir að þeir legðu
fram umræddar 74 milljónir og
fengju í staðinn veiðirétt árinnar
næstu 20 ár. Sveitarfélögin væru aft-
ur á móti hinir raunverulegu eig-
endur bæði jarðanna og árinnar.
ARÐURINN ALLT AÐ 6
MILLJÓNUM
Eins og fram kom fyrir tveimur
vikum í HP var hreinn arður af Haf-
fjarðará á síðasta ári milli 5 og 6
milljónir króna. Einhver skattur er
lagður á slíka upphæð og á næst-
unni er búist við að fasteignamat ár-
innar verði hækkað úr 32 milljón-
um króna í 60 milljónir. Líklegt er að
nýir eigendur myndu borga lögboð-
in gjöld í Fiskræktarsjóð eins og gert
er alls staðar þar sem veiðifélög eru
Veiðihús Thorsara skammt frá þjóðveginum sem liggur út Snæfellsnes. Miklar endur-
bætur eiga sér nú stað við húsið og viðbygging en líklegt er að Páll í Polaris taki nú
við húsforráðum og rekstri árinnar.
um ár. Núverandi eigendur hafa allt
frá því gjaldinu var komið á 1970
neitað að borga það en gjaldtakan
er 2%_ af hreinum veiðitekjum. Að
sögn Árna Jónassonar hjá Fiskrækt-
arsjóði er það mál nú hjá lögfræð-
ingi. En hvað sem öllum gjöldum
líður er talið fullvíst að ána megi
borga upp á u.þ.b. 20 árum.
Gunnar Helgason lögfræðingur
sagði í samtali við blaðið að ástæð-
an fyrir því að þeir bræður hefðu
komið inn í þetta væri m.a. kunnug-
leikar þeirra á svæðinu. Þeir væru
ættaðir af Mýrum og hefðu haft
áhuga á að koma veiðirétti árinnar
t hendur bænda. „Við höfðum þetta
svo að segja allt á borðinu og það
var hægt að fjármagna kaupin eftir
eðlilegum leiðum. Hugsjónin var að
veiðin kæmist undir jarðirnar en
það tókst því miður ekki,“ sagði
Gunnar Helgason í samtali við HP.
Eigendur árinnar hafa ekki viljað tjá
sig opinberlega um það hvers vegna
slitnaði upp úr söluviðræðunum en
HP hefur heimildir fyrir að aldrei
hafi verið eining um söluna meðal
þeirra sem hafa með ána að gera.
Eins og fram kom í síðasta HP
voru það 5 börn Richards Thors sem
áttu ána en Thor R., sem var elstur
þeirra systkina, er nú látinn. Tvö
þessara systkina dvelja erlendis og
sjá umboðsmenn þeirra hér heima
um þeirra þátt í eigninni. Bjarni
Bjarnason endurskoðandi fer með
hiut Richards og Óttar Yngvason
með hlut Jónu írisar. Auk þess hefur
Óttar Yngvason haft ána í rekstri og
séð um útleigu veiðileyfa frá því um
„Þessi skrif eru full af rangfœrsl-
um og skrifuð í leiðindatón," sagði
Ottar Yngvason fulltrái eigenda við
Haffjarðará í samtali við HP að-
spurður um skrif blaðsins í þar síð-
ustu viku um Thorsveldið vestra.
Ottar tók það jafnframt fram að
skrifin í heild vœru sóðaleg og bœru
blaðamanninum einum vitni. Að-
spurður um einstök atriði benti
hann á að þegar fólk leigir út sína
eign þá flokkist það undir skítkast
að tala um að „góssið skili 6milljón
króna arði í vasa eigenda". Þá taldi
hann að í greininni vœri yfirgangur
einstakra manna túlkaður sem eðli-
leg mannleg samskipti. „Það er
sóðaskapur," sagði Óttar Yngvason
en vildi að öðru leyti ekki benda á
atriði í skrifum Helgarpóstsins þar
sem farið vœri rangt meö. Aðspurð-
ur um einstök efnisatriði varðandi
söluviðrceöur og breytingu á leigu-
fyrirkomulagi árinnar sagði Óttar
að þau mál kœmu hvorki Helgar-
1970. Bændur eru samdóma um að
málaþras og deilur hafi byrjað um
líkt leyti og Óttar tók við og megi
rekja upptök þeirra flestra til hans.
KAUPUMRÆÐUR
LOGNUÐUST ÚT AF
í maímánuði 1985 gerðu fulltrúar
eigenda sér ferð vestur í Hnappadal
og ræddu við oddvita hreppanna
póstinum né blaðamanni við heldur
vcéru þetta „prívatmál".
Öttar Yngvason umboösmaður Thors-
systkina, bæði við útleigu árinnar og (
málaþrasi við bændur. Frá þv( hann tók
við „léninu" um 1970 hefur allt logað (ill-
deilum vestra og Thorsarajarðirnar bæði
drabbast niður og hrunið úr byggð.
tveggja sem land eiga að ánni. Er-
indið var að athuga afstöðu sveitar-
félaganna til þess að nýir aðilar
tækju yfir eignir Thorssystkina. HP
hefur ekki neinar staðfestar heim-
ildir um það hvaða aðilar voru þar á
ferðinni og það var aldrei gefið upp
í viðræðum eigenda við oddvitana.
Eins og kunnugt er hafa sveitarfélög
forkaupsrétt á öllum landareignum
sem seldar eru og því var nauðsyn-
legt að hreppsnefndirnar sam-
þykktu kaupin. Umræður um þessi
kaup gengu nokkra hríð en lognuð-
ust endanlega út af í ágústmánuði
1985. I októbermánuði leituðu
sveitarfélögin eftir því við eigendur
að fá að ganga inn í þau kaup sem
höfðu staðið til. Eigendur gáfu þau
svör að öllum væri frjálst að gera til-
boð og tóku málinu ekki illa. Sam-
kvæmt heimildum HP var Bjarni
Bjarnason hlynntur sölu og sömu-
leiðis Thor R. og síðar ekkja hans,
en Thor dó á síðasta ári. Afstaða
hinna systkinanna er ekki eins ljós
en talið er að Þórður Thors hafi þeg-
ar selt einhvern hluta sinna eigna
systkinum sínum. Hreppunum gekk
brösuglega að ná saman fjármagni
til kaupanna og höfðu lengi með sér
aðila sem sér um rekstur annarrar
laxveiðiár í landinu. Sá var fulltrúi
fleiri fjármagnseigenda en tókst þó
ekki að fá dæmið til að ganga upp.
Ein ástæða þess er talin sú að jarð-
irnar voru metnar sérstaklega og
áin sérstaklega sem ein fasteign.
Ána áttu systkinin saman en jarð-
irnar hvert fyrir sig. Þau hafa því
viljað hafa verð hverrar jarðar sem
hæst. Þannig var Stóra Hraun boðið
á 4,2 milljónir, Syðri Rauðamelur á
5,7, Kolviðarnes á 2,3, Gerðuberg á
3,6 og Höfði á 3,7, en ailar þessar
jarðir mega teljast illa hýstar nema
Kolviðarnes þar sem ábúandi á hús-
in.
FLUGLEIÐABRÆÐURNIR
OG PÁLL í POLARIS
Að hausti 1986 komu þeir Flug-
leiðabræður, Gunnar og Sigurður, til
skjalanna og þá var lagt fram um-
rætt tilboð um 74 milljónir fyrir allt
góssið. Heimildir HP herma að þeg-
ar hér var komið sögu hafi skoðun
Óttars Yngvasonar orðið ofaná og
að hann hafi alls ekki viljað selja. Á
liðnum vetri gerði Óttar ásamt öðr-
um eigendum samning við Pál Jóns-
son sem kenndur er við fyrirtæki
sitt Polaris um að hann tæki við
rekstri árinnar. Páll hefur væntan-
lega tekið ána á leigu. HP hefur ekki
tekist að afla upplýsinga um það
hvernig samningi Páls og Óttars sé
háttað en þeir hafa báðir sagt heim-
ildarmanni blaðsins að hann sé ein-
ungis til reynslu í eitt ár.
Þegar viðræður um kaup á Haf-
fjarðarárgóssinu hófust síðla árs
1985 stöðvuðu hrepparnir fram-
gang flestra málaferla í réttarkerf-
inu. Á liðnum vetri voru þau svo sett
af stað að nýju en af þessari þriggja
missera töf hafa eigendur haft aug-
ljósan hag, — ,,en bændurnir teymd-
ir á asnaeyrum allan tímann," eins
og einn heimildarmanna HP orðaði
það.
Ekki góss heldur eign
— segir Ottar Yngvason fulltrúi eigenda Haffjaröarár
16 HELGARPÓSTURINN