Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.05.1987, Qupperneq 18

Helgarpósturinn - 07.05.1987, Qupperneq 18
eftir Jónínu Leósdóttur mynd Jim Smart Amy Engilberts er dóttir hins kunna listamanns, Jóns Engilberts, og hana lanqaði til þess að leggja fyrir sig listskreytingar. Það pótti eklci nógu kvenlegt ó þeim tíma og nú les Amy úr lófa fólks og spóir í stjörnurnar. Hún er í HP-viðtali. Fólk, sem veröur fyrir miklum ágangi annarra, grípur gjarnan til þess ráds aö fá leynisímanúmer. Meö þeim hœtti getur þaö betur haft stjórn á daglegu lífi sínu og veröur síöur fyrir truflunum í tíma og ótíma. Amy Engilberts er hins vegar ekki einu sinni meö síma. Hún er líka eflaust ámóta eftirsótt og umsetin og nokkrir helstu embœttismenn þjóöarinnar til samans. Hún býr yfir þekkingu, sem viö þráum öll aö komast yfir. Það er tæpast á neinn hallað, þó fullyrt sé að Amy Engilberts sé frægasta og vinsælasta „spá- kona“ okkar íslendinga. Hún veitir áhugasöm- um einstaklingum upplýsingar um eigin per- sónuleika og hvað framtíðin ber í skauti, jafn- framt því sem hún lætur getið um ýmislegt í for- tíðinni, sem viðkomandi hélt að enginn annar gæti hugsanlega vitað! En hvernig ætli hún fari að þessu? Er hún skyggn? Hefur hún lært ein- hver galdrafræði? Svör við þessum spurningum bjóst ég við að fá á frídegi verkalýðsins í síðustu viku. Hélt að ég gæti síðan rölt heim, sest við rit- vélina og miðiað þessum fróðleik til annarra með vel völdum orðum á um það bil tíu til tólf vélritunarblöðum. Svörin fékk ég vissulega, en — eins og póli- tíkusarnir segja — málið var ekki svona einfait! ENGIN MYND EFTIR JÓN ENGILBERTS Amy Engilberts býr við Safamýri og þangað lá leið mín í sói og snjó þann 1. maí, á meðan stétt- víst fólk gekk með kröfuspjöld og hlustaði á eld- heitar barátturæður í miðbænum. Hjá Amy var allt annar andi. Yfirmáta rólegt og afslappað andrúmsloft, sem ekki mætir manni víða. Svolít- ið eins og í helgidómi. Sjálf reyndist Amy afskaplega þægileg og hlý- leg persóna. Lágvaxin, svartklædd, með gul- brúnt liðað hár og þykk gleraugu. Mér fannst strax eins og hún hlyti að sjá nákvæmlega hvað ég væri að hugsa hverju sinni, þó svo það hafi eflaust ekki átt við nokkur rök að styðjast. En þegar hún spurði beint út hvernig mér liði, hvort ég væri kvíðin eða spennt, kom mér að minnsta kosti ekki til hugar annað en svara af fyllsta heiðarleika. Það var óhugsandi að vera með ein- hver látalæti við þessa konu. Á meðan Amy hitaði handa okkur te og bar fram mörghundruð freistandi hitaeiningar í formi heimagerðrar jarðarberjaköku, skoðaði ég myndirnar á veggjunum. Ekki ein einasta var eftir föður hennar, Jón Engilberts, listmálara. Það kom mér á óvart. Allar voru myndirnar mjög svo sérstakar — hver á sinn hátt. Mest áberandi var stór, handmáluð veggmynd frá Ind- landi. Hún dró að sér athyglina og var ólýsan- lega seiðandi. Við hlið hennar var lítil mynd eftir Jóhönnu Ingvadóttur, sem virtist eins og sprott- in úr öðrum heimi. Þar að auki voru þarna grafíkmyndir í ýmsum stærðum, bæði eftir inn- lenda og erlenda listamenn. Teið var brátt til reiðu og þegar Amy hafði frætt mig örlítið um myndirnar, fengum við okk- ur sæti við dúklagt borðstofuborð og hófum spjallið. Talið barst fyrst að því hvers vegna áhugi á dulrænum málefnum væri svo mismikill í hinum ýmsu þjóðlöndum. Amy sagði, að marg- ir samverkandi þættir ættu þar hlut að máli; þjóðfélagsgerð, trúarbrögð og fleira. Streitan og hraðinn í iðnvæddum samfélögum nútímans ynni gegn dulrænum áhuga og hæfileikum. Þar væri svo erfitt að fá frið og ró til þess að rækta hinar andlegu hliðar tilverunnar. VAKNING I VÆNDUM Hún horfði út um gluggann, svolítið fjarræn á svip, og útskýrði síðan mál sitt nánar. „Næmnin er til staðar í flestu fólki. Það hafa allir þetta inn- sæi í sér... En kringumstæðurnar spilla oft fyrir. Þær hafa áhrif á meðfædda næmni okkar. Þú sérð líka hvað fólk verður að gera, ef það vill stunda hugleiðslu og innri íhugun. Það verð- ur að draga sig í hlé — draga sig út úr skarkala heimsins. Þjóðfélagsgerð nútímans er að eyði- leggja næmni okkar með streitu og efnishyggju. Veistu, þegar ég hitti fólk á förnum vegi, spyr það fyrr að því hvort ég eigi íbúð en hvernig mér líði! Efnishyggjan er svo neikvæð fyrir manneskj- una. Sem betur fer held ég þó að hún sé komin um það bil í hámark núna. Eg trúi því, að það verði bráðlega vakning í heiminum, aiheims- vakning. Fólk fer að breyta um lífsstíl. Þetta er þegar byrjað. Maðurinn er orðinn hræddur við sköpun sína. Hræddur við nútímaþjóðfélagið. Eg efast samt um að ég lifi þessa vakningu. Það verður þín kynslóð, eða kynslóð barnsins þíns, sem fær að sjá hana." Amy stóð upp og fór í te-leiðangur fram í eld- hús. Þaðan kallaði hún til mín fram í stofu, eins og til frekari áherslu: „Ég er nú alls ekki pólitísk manneskja, en sjáðu hvað kvennalistakonurnar eru að gera! Þær eru boðberar þessarar vakn- ingar. Og smám saman er skilningur fólks á því sem þær berjast fyrir að aukast." Sjálf hefur Amy lagt rækt við þessa næmni, sem hún segir að við búum öll yfir áður en þjóð- félagið tekur að fara um okkur höndum. Hún segist ekki vera skyggn, en „mjög næm“. Það hjálpar henni mikið við að lesa úr lófum fólks og skrift. Tæpast myndi skortur á viðskiptavinum standa í vegi fyrir því að Amy Engilberts gæti unnið í fullu starfi við það, sem í daglegu tali kall- ast „spádómar". Hún er raunar ekki hrifin af því að tala um ,,að spá“. Kýs fremur að segja „lesa úr“. En Amy hefur aldrei auglýst þessa þjónustu sína. Fólk verður að skrifa bréf til þess að kom- ast í samband við hana. Samt sem áður getur hún ekki sinnt eftirspurninni. Segist einungis gera þetta svona tvisvar, þrisvar í viku. „Það er óskaplega þreytandi að stunda þetta á hverjum degi. Það dregur úr mér mikla orku í hvert sinn. Eg drekk í mig útstreymi frá per- sónunum sem til mín leita, finn fyrir streitu og spennu frá fólkinu. Eins og í öllum mannlegum samskiptum, þá getur það verið erfitt. Auðvitað eru þó ekki á þessu tómar neikvæðar hliðar, ep krafturinn sem fer í þetta er mikill." PABBI GEKK MEÐ MIG UM GÓLF En hvernig er þessi óvanalegi hæfileiki til kominn — er þetta meðfætt? Amy svaraði um hæl: „Ég hef lært, en svo hef ég þetta líka í mér. Það er nauðsynlegt að hafa næmnina til þess að komast í samband við fólkið. Skyggn? Nei. Ekki á þann hátt að ég sjái fram- liðna. Eg finn hins vegar mjög greinilega áhrif frá fólki, eins og ég sagði áðan. Og mig dreymir fyrir daglátum. Það er sífellt að ágerast. En ég er ekki skyggn. Kannski var ég það þó fyrir 10 ára aldur." „Kannski?" hváði blaðamaður, um leið og hann bar sig eftir björginni í te-pottinum. „Já, ég held ég hafi ef til vill verið skyggn, þeg- ar ég var barn. Núna man ég þetta einungis á þann hátt, að stundum varð ég mjög hrædd. Svo hrædd, að pabbi varð að ganga um með mig í langan tíma — lengi, lengi — til þess að róa mig niður." Sífellt meira berdreymin með árunum, sagði Amy. En ekki vegna neinnar þjálfunar, svo sem einbeitingar. Hún segist ekki vilja leggja út í að þjálfa þetta. Slíkt gæti orðið hættulegt. Persónur taki næmninni misjafnlega og hún viiji frekar vera „spontant" en þjálfuð. „Það á betur við minn persónuleika." Þjálfun hefur hún þó auðvitað fengið í áranna rás. Þegar Amy var 22 ára, hélt hún til náms í París. Þar nam hún m.a. hina fræðilegu hlið lófa- lesturs og rithandargreiningar, ásamt hinum sál- fræðilegu þáttum. Fræðin geta flestir lært, burt- séð frá því hvort þeir hafa títtnefnda næmni til að bera eður ei. „Svo þjálfast maður með tíman- um, eins og í hverri annarri atvinnugrein," bætti Amy við í yfirveguðum tón. Hún hefði getað verið að tala um saumaskap eða skúringar. ALLTAF VERIÐ HRÆDD VIÐ S-A ASÍUBUA Dyrabjallan rauf hina sérkennilegu stemmn- ingu, sem hafði myndast í litlu, sólríku stofunni. Hversdagsleikinn skall á okkur og áður en ég vissi, var Amy horfin niður stigann til þess að svara kallinu. Þegar hún kom aftur, spurði ég hvort þessi áhugi hennar á dularfullum og dul- rænum fræðum hefði alitaf verið til staðar. Hún settist, horfði brosandi fram fyrir sig og sagðist hafa haft þennan áhuga strax á barnsaldri. „Að einhverju leyti var það fyrir áhrif frá föður rnínum. Hann hafði forvitnina... og áhuga á öllu trúarlegu og dulrænu. Mér finnst það koma mik- ið fram í málverkunum. Sálarlíf listamanna hlýt- ur alltaf að koma í gegn í listsköpuninni. Það sama á raunar við um alla. Okkar innri maður kemur fram í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur. Síðan er til svo næmt fólk, að það getur meira að segja túlkað sálarlíf og tilfinningar dáinna listamanna. Hefurðu ekki heyrt um það? Það eru til einstaklingar, sem geta samið tónverk eða málað málverk, sem sérfræðingar telja ná- kvæmlega í anda einhverra látinna meistara." Að þessum orðum sögðum rauk Amy á fætur og tók að leita að dönsku blaði, Familie Journal, sem hún hafði keypt um daginn. Hún sagðist stundum kaupa dönsku blöðin, af því að þau væru svo ágæt afslöppun frá stressinu í þjóðfé- laginu. Þessari yfirlýsingu fylgdi prakkaralegt brps. í leit sinni að grein um ítalann Gustavo Rol, sem getur m.a. málað eins og Goya, Picasso og fleiri, rakst Amy á heilmikinn bálk um Tíbet í frönsku tímariti. Hún sagði, að áhugi manna í Tíbet á dulrænum fyrirbærum væri jafnmikill og raun bæri vitni, vegna hinnar miklu einangr- unar þar í landi. „Þess vegna erum við íslend- ingar líka svona áhugasamir um þessi fræði. Það er svo stutt síðan við bjuggum í slíkri einangrun; innan við tveir mannsaldrar." Amy reyndist afskaplega spennt fyrir Tíbet og við stöldruðum við greinina í franska blaðinu. „Ég gæti samt ekki hugsað mér að fara þangað," sagði hún eftir örlitla umhugsun. „Það er of fjar- lægt, of ólíkt... Svo hef ég alltaf verið hrædd við suð-austur Asíubúa, hvernig sem á því stendur. En ég er forvitin um Tíbet. Sjáðu t.d. hvað þeir segja hérna um lækningar. Þeir skera aldrei upp í Tíbet. Nota bara náttúru- legar aðferðir og náttúrumeðul. Um leið og búið er að skera á vefi líkamans, er búið að raska ákveðinni heild og hringrás. Þetta er rökrétt hjá þeim, finnst þér ekki? Og þegar prófessor í lyf- lækningum er spurður um það í greininni hvort þeir stundi þá ekki hreinlega galdra, svarar hann: „Eru ekki allar lækningar töfrar?" Skil- urðu!“ PABBI SAGÐI AÐ ÉG YRÐI PÁ AÐ RAKA MIG SJÖ SINNUM Á DAG Það er greinilega ýmislegt, sem vekur áhuga Amy Engilberts. En hvað skyldi hana hafa lang- að að „verða" þegar hún var unglingur? Hún varð alvarleg á svip við þessa spurningu. „Mig langaði í listskreytingar," var svarið. „Faðir minn var hins vegar á móti því. Hann taldi það ekki mögulegt fyrir konu. Þetta var einfaldlega tíðarandinn í þá daga, þó svo það séu kannski ekkert óskaplega margir áratugir síðan. Ég man, að hann sagði eitt sinn við mig að ef ég ætlaði að leggja út á listabrautina, yrði ég að raka mig sjö sinnum á dag! Það var allt annar hugsunarháttur á þessum tíma. Hinir kvenlegu eiginleikar voru þá álitnir standa í vegi fyrir því að maður gæti orðið góður á listasviðinu." í stað þess að leggja fyrir sig listsköpun, fór Amy Engilberts til Frakklands þegar hún var 22 ára gömul og lærði að lesa í lófa og segja til um persónuleika fólks út frá skrift þess. Úti í Evrópu eru þessi fræði meðal annars brúkuð við mannaráðningar í fyrirtækjum. Amy taldi ís- lenskt þjóðfélag hins vegar ekki nægilega stórt til þess að því mætti koma við hérna. Dáleiðsla finnst henni líka heillandi. „En ég hef ekkert fengist við hana sjálf," bætti hún við til útskýringar. „Þetta getur verið hættulegt og ætti helst að vera einungis í læknishöndum. En það er hægt að hjálpa fólki mikið með dáleiðsju, t.d. að hætta að reykja, fá aukið sjálfstraust og byggja upp úthald. Ég hef lesið töluvert um dá- leiðslu og verið viðstödd þegar hún hefur verið framkvæmd. Erlendis er dáleiðslu oft beitt sem deyfingu, þegar fólk fer til tannlæknis, við fæð- ingar og aðrar kvalafullar aðstæður. Þetta er þó ekkert yfirnáttúrulegt. Dáleiðarinn kemst ein- faldlega inn í persdnuna." Hún horfði beint fram- an í mig og mér fannst allt í einu ekkert eðlilegra en að einhver færi inn í persónu annars aðila. GEF FÓLKI EKKI UPP DÁNARALDUR Við höfðum nær ekkert komið inn á aðalat- vinnu Amyar, lestur í lófa, sem hún er löngu orð- in þjóðþekkt fyrir. Skyldu línurnar í höndum okkar breytast með árunum, eða ætli þær séu eins frá vöggu til grafar? „Nei, þær geta breyst," sagði hún og notaði lóf- ann á mér sem sönnunargagn. „Sérðu þessar litlu þverlínur? Þær eru að vísu ekki mjög áberandi hjá þér, en það örlar þó á þeim. Þetta eru streitu- línur og þær eru tiltölulega nýtt fyrirbrigði. Af- leiðing nútímaþjóðfélagsins — eins konar 21. aldar hendur! Fólk var ekki með slíkar línur hér áður fyrr. Línurnar geta líka breyst svolítið á um það bil sjö ára fresti, eins og reyndar öll líkamsstarf- semi. Það eru ákveðnar kenningar til um slíkar líkamsbreytingar og þær geta Iíka átt við um lín- urnar í lófunum. Þessar línur breytast líka gjarnan á stríðstím- um.“ Þar sem umræðurnar höfðu borist að styrjöld- um og lófalestri, kom næsta spurning svo sem eins og af sjálfu sér. Hvað ef maður með langa líflínu er sendur í stríð? Er þá ólíklegt að hann særist eða deyi? „Nei, maður með sterka líflínu getur dáið til- tölulega ungur í styrjöld. Hann er þá líklegur til langlífis frá náttúrunnar hendi, en utanaðkom- andi öfl breyta þessum líkum." Hvað þá með slys? „Þau sjást." Forvitnin gaus nú upp í blaðamanninum, sem ekki gat haldið aftur af spurningunum. Amy svaraði, án þess þó að fara út í miklar málaleng- ingar. Hún sagðist ekki segja fólki hvenær það myndi deyja og ekki alltaf frá miklum veikind- um, nema greinilegt væri að það næði sér sæmi- lega aftur. „Það þolir enginn að vita hvenær hann fer, Jónína. Manneskju á tvítugsaldri þætti kannski ekkert erfitt að heyra að hún myndi

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.