Helgarpósturinn - 07.05.1987, Síða 21
Fjórum af átta leikjum í Evrópukeppninni lokiö.
Afraksturinn tvö stig. Getum vid sigrað Norðmenn
og A-Þjóðverja á heimavelli? Stendur íslenska liðið
undir þeim vœntingum sem eru til þess?
mttspyrna
götum?
• óánægðir með að tapa fyrir sjálfum
og þjálfari liðsins talar um að þetta
íann vonaðist eftir. Sú spurning hlýt-
rið bestu úrslit sem við gátum vonast
skýjaborgir þegar við förum fram á
l stórveldum Evrópu á knattspyrnu-
MIKLAR BREYTINGAR OG
FRAMFARIR
Það er ljóst að framfarir í íslenskri knatt-
spyrnu hafa orðið miklar á undanförnum ár-
um og við höfum eignast hóp af harðsnúnum
leikmönnum sem geta staðið leikmönnum
sterkra þjóða snúning þegar vel árar. Það hafa
þeir sýnt á undangengnum árum, bæði í síðustu
HM-keppni og svo núna í Evrópukeppninni.
Við eigum all-marga atvinnumenn í íþróttinni,
suma góða en aðra ekki jafn góða þrátt fyrir að
þeir hafi lifibrauð sitt af því að sparka fótbolta.
Og það er auðvitað í þessum atvinnumönnum
sem styrkur okkar landsliðs liggur, þeir eru vel
sjóaðir i hinum harða heimi og það er af sem
... við höfum færst miklu nær sterkum knattspyrnu-
þjóðum, án þess þó að geta gert raunhæfar kröfur um
að vinna þær. Kannski næsta kynslóð íslenskra knatt-
spyrnumanna skili okkur alla leið?!
áður var, að við komum ekki við boltann heilu
leikina nema til að hreinsa frá marki, þó loka-
tölur leikjanna hafi ekki breyst svo ýkja mikið.
Með öðrum orðum þá töpum við enn 0—1 fyrir
þjóð eins og Skotum hér heima, þrátt fyrir að
vera síst lakari aðilinn í leiknum. Fyrir 10—12
árum töpuðum við líka með sama markahlut-
falli fyrir svipuðum þjóðum en áttum þá aldrei
möguleika í leikjunum.
Þannig hefur margt breyst, við höfum færst
miklu nær sterkum knattspyrnuþjóðum, án
þess þó að geta gert raunhæfar kröfur um að
vinna þær. Við leikum oft vel hér heima, eins
og gegn Skotum og Wales hér um árið, gegn
Frökkum og Sovétmönnum síðastliðið vor.
Eitthvað virðist þó greinilega skorta á að við
getum rékið smiðshöggið á það sem við höf-
um byrjað á, nefnilega unnið leikina, haidið
forskoti, nýtt tækifæri þegar þau gefast o.s.frv.
Við náum sem sagt oft góðum árangri, sem
felst í því að tapa naumt, en við sigrum sjaidnast
sem hlýtur þó að vera markmiðið.
DÖNSUM VIÐ SÖMBU?
Það má því kannski segja að varðandi þá
Evrópukeppni sem nú stendur yfir, standi ís-
lenska liðið og þarmeð íslensk knattspyrna á
krossgötum. Ef við náum veruiega góðum ár-
angri í þeim leikjum sem eftir eru má ef til vill
reikna með enn frekari stíganda, ef ekki, þá er
líklegt að allt lendi í sama farinu á nýjan leik.
Við fáum nú tækifæri sem okkur hefur ekki
gefist lengi, að spila hér heima við tvær þjóðir,
allmiklu siakari en þær sem við höfum áður
leikið við og þar með tækifæri á að sýna að við
getum gert meira en varist vel gegn stórþjóð-
um, við getum líka sótt og stjórnað leik gegn
þeim sem ekki eru jafn sterkar. Ef að það tekst
getum við talað um að okkur hafi greinilega
farið fram, að okkur hafi tekist að nýta þá
framför sem annars hefur augljóslega orðið.
Við höfum í fyrsta skipti tækifæri á að þoka
okkur veruiega upp stigatöfluna í móti sem
þessu, án tillits til þess hvort við eigum það í
raun og veru skilið en um leið getum við sýnt
fram á getu okkar svo ekki verði um villst og
að við eigum ekki heima í hópi þjóða sem
aldrei ná að vinna leik.
Miðað við fyrri hlutann sem iokið er ættum
við því að geta gert okkur góðar vonir um að
ná fimm stigum úr riðlinum, fjögur væri ekk-
ert óeðlilegt, en úr því sem komið er má teljast
hæpið að landinn sætti sig við minna. Og vafa-
iítið munu heyrast raddir sem krefjast þess að
við náum fimm stigum úr þeim ieikjum sem eft-
ir eru; en ef það gengur eftir getum við dansað
sömbu á götum úti í þrjá daga eins og brass-
arnir gerðu þegar þeir urðu heimsmeistarar.
mt
H igj 1 a'
; &] wá ? v... ; »
‘M m i Jl|
A. tiansen
Veitingahús
i hjarta
Hafnarfjardar
BORÐAPANTANIR í SÍMA 651130
DREGIÐ NÆSTKOMANDIMÁNUDAG11. MAÍ
Kristján Sigmundsson
landsliösmarkvörður:
Með þínum stuðningi
verðlaunasæti á
Ólympíuleikunum í Seoul
Verömæti vinninga
28 milljónir
Óvenjuhátt vinningshlutfall
ÁFRAM ÍSLAND
HELGARPÓSTURINN 21