Helgarpósturinn - 07.05.1987, Blaðsíða 22
SKAK
Langlokur
Hálfsmánaðarlega fá lesendur
skákþáttarins sinn skammt af
skákþrautum að glíma við. Undan-
farið hafa verið tvö dæmi í hvert
sinn, í því fyrra á hvítur að máta í
öðrum leik, í hinu síðara í þriðja
leik. Valið er við það miðað að
gera sem flestum til hæfis, tvíleiks-
dæmið á að vera sæmilega viðráð-
anlegt, hitt að jafnaði þyngra. Að
öðru leyti fer ég alveg að eigin
smekk um valið. Mér finnst sjálf-
um skemmtilegast að fást við
dæmi þar sem fáir menn eru á
borði. Skákdæmafræðingar eiga
sér nöfn á dæmum af þessu tagi:
séu sjö menn eða færri á borði,
eru þau kölluð míníatúr-dæmi,
séu 8—12 menn á borði er talað
um Meredith-dæmi, eftir enskum
skákdæmahöfundi er samdi fjölda
slíkra dæma.
Nú eru dæmi ekkert auðveldari
þótt fáir menn séu á borði, síður
en svo, nýir menn veita oft nýjar
vísbendingar um lausn. Þetta er
einfaldlega smekksatriði. Það
liggur við að ég hrökkvi frá ef ég
sé mikinn liðssafnað á borði, en
hins vegar finnst mér fallegt og oft
nærri ótrúlegt hvernig hægt er að
túlka hugmynd með fáum mönn-
um.
Þríleiksdæmi eru að jafnaði erf-
iðari en tvíleiksdæmi, eins og eðli-
legt er þar sem lausnarleiðin er
lengri. En skákdæmi þarf ekki að
vera örðugra þótt lausnarleiðin sé
meira en þrír leikir, hugmyndin að
baki dæmisins þarf ekki að vera
flóknari þótt það taki fleiri leiki að
tjá hana.
P. Rasch Nielsen
Skakbladet 1937
Hér sjáum við að ætti svartur
leik hlyti hann að leika 1 - Ke3 og
þá kæmi 2 De4 # (= mát).
Nú er galdurinn sá að tapa leik:
fá sömu stöðu aftur þannig að
svartur eigi leik: 1 De4+ Kg5
2De6 Kf4 Dd5
Nú er það komið: 3 - Ke3 4 De4.
Svartur gat líka leikið
2 - Kh5 3 h4 Kxh4 4 Dg4#
F. Anderson
Nya Dagligt Allehanda 1931
Hér kemur svo sjö leikja dæmi
því til sönnunar að lengri dæmi
þurfa ekki að vera þyngri en
skemmri.
Lausnin er hrein og bein: svarti
kóngurinn er hrakinn út plankann
eins og í gamalli sjóræningjasögu:
1 Rd6 Kd5 2 Re4 Ke5 3 Rf6 Kf5
4 Rg4 Kg5 5 Rh6 Kh5 6 Rf7 og
7 Hh6#
á fyrra helmingi þessarar aldar.
Milan Vidmar, sem einnig var
kunnur raffræðingur og varð síðar
rektor tækniháskólans í Ljubljana,
getur Bláthys á sjálfsævisögu
sinni, en hann kynntist honum og
starfaði fyrir hann í Búdapest.
Bláhty, 1930
Mát í 273. leik
(tvö hundruð sjötugasta og þriðja!)
Hér koma drög að lausninni
handa þeim sem forvitnir eru:
eftir Guðmund Arnlaugsson
2. Fyrsti áfangi
Kóngurinn leggur í langa ferð.
5 Ka5 Bb7 6 Ka4 Ba8 7 Ka3 Bb7
8 Ka2 Ba8 9 Kbl Bb7 10 Kc2
Ba8 11 Kd3 Bb7 12 Hbl Ba8 13
Hfl Bb7 14 Hdl Ba8 15 Kc2 Bb7
16 Kbl Ba8 17 Ka2 Bb7 18 Ka3
Ba8 19 Ka4 Bb7 20 Ka5 Ba8 21
Kb6
Nú er komin upp sama staða og
áður með þeim eina mun að nú á
svartur leik. Kóngurinn fór þessa
löngu leið til að leysa hrókinn af
hólmi við að halda biskupnum á
d4.
3. Næstu áfangar
Nú verður svartur að leika (21 -
h4,) og þá er fyrsti áfangi endur-
tekinn, hringekjan snýst einn
snúning og það tekur 17 leiki. Þá
verður svartur aftur að leika
h-peðinu og enn snýst hringekjan
einn snúning. Svartur á samtals 15
leiki með h-peðum sínum, þetta
verðaþvi alls 15x17 eða255 leikir.
En til eru skákdæmi af allt öðru
tagi, gríðarlegar langlokur þar
sem lausnin tekur hundrað leiki
eða meir. Frægasti höfundur slíkra
dæma var Bláhty, ungverskur
skákmaður, verkfræðingur er stóð
mjög framarlega í hönnun rafvéla
1. Inngangur
1 Hdl+ Bd4 2 c4+ Kd6 3 Hxgl
Be5 4 Hdl + Bd4
Hvítur má ekki leyfa biskupnum
að brjóta gat á múrinn með Bxf4.
Ekki dugar nú 5 b4 blD 6 Hxbl
cb4+
4. Lokakaflinn
Nú eru h-peðin horfin:
265 - Bb7 266 Kxb7 blD 267
Hxbl Be5 268 Hdl+ Bd4 269
Hxd4+ cd4 270 Kb6 d3 271
a8D Hxb8+ 272 Dxb8 og 273
Dxd8 mát.
GÁTAN
Hvernig þreifar Kvennalistinn á
hinum flokkunum?
Svar:
—(e6a|euia|euj |0AU(eí 6o)
e6a|siQæjQÁ| 6o(uj 'e6a|>|nf|/\i
SPILAÞRAUT
S Á-7-3 S D-9-8-6-4
H Á-9-4 H 5
T Á-K-6 T D-G-9-5-4
L D-7-6-2 L 8-3
Vestur Norður Austur Suður
1 grand dobl 3 hjörtu3 spaðar
pass 4 spaðar pass pass
Vestur lætur laufaásinn. Frá
austri kemur tían. Vestur skiptir
um og lætur hjartakónginn, sem
tekinn er með ásnum og frá austur
kemur daman labbandi. Hvað ger-
um við nú?
ígrundanir.
Úr því að austur var slíkt „ljúf-
rnenni" að tilkynna að hann ætti
hjartadömuna, gosann og tíuna,
þá er auðséð að vestur á það sem
eftir er af háspilunum í hjarta, því
annars hefði hann ekki getað opn-
að á grandi. Fyrir utan hjarta-lit-
inn getur austur ekki átt málað
blað. Að eiga bæði gosa og kóng í
spaða á eftir sér, er ekki til þess að
státa af. Þess utan er hættan sú, að
tapa tveim tromp-slögum úr því að
kóngurinn og gosinn liggja á eftir
drottningunni. Við erum víst í
bannsettri klípu.
Lausn á bls. 10.
LAUSN Á MYNDGÁTU
Dregið hefur verið úr réttum
lausnum á myndgátunni sem birt-
ist á þessum stað fyrir tveimur vik-
um. Vinningshafinn er Herdís
Friðriksdóttir Norðurbraut 37
Hafnarfirði. Verðlaunin eru
spennubók Ólafs Hauks Símonar-
sonar, Líkið írauða bílnum, og fær
Herdís send þau til síns heima.
Lausn myndgátunnar var: Þú
manst að krossa við réttan bókstaf
á laugardag. Sjáumst.
Frestur til að skila inn lausn
verðlaunamyndgátunnar hér að
neðan er til annars mánudags frá
útkomu þessa tölublaðs. Merkið
lausnina myndgáta. Verðlaunin
sem nú eru í boði er bókin Nútíma-
fólk í einkalífi og starfi eftir sál-
fræðingana Álfheiði Steinþórs-
dóttir og Guðfinnu Eydal.
Góða skemmtun.
22 HELGARPÓSTURINN