Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.05.1987, Qupperneq 26

Helgarpósturinn - 07.05.1987, Qupperneq 26
LEIKLIST Tveir einþáttungar að vestan Lilli leikklúbburinn fsaíirði: Hinn eini sanni Seppi og Svart og silfrað eflir Tom Stoppard og Michal Frayn. Þýöing og leik- stjórn: Gudjón Olafsson. Leikendur: Bjarni Guömarsson, Páll Ásgeir Asgeirsson, Dagmar Gunnarsdóttir, Rúnar Már Jónatansson, Vigdís Jakobsdóttir, Marta Eiríksdóttir, Gísli B. Gunnarsson, Jakob Falur Garöarsson, Geröur Eövarös- dóttir, Sigrún Lilja Guöbjörns- dóttir. Um helgina kom Litli leikklúbb- urinn frá Isafirði og sýndi tvo ein- þáttunga í Skemmunni í Félags- heimili Kópavogs. í þessum hópi eru flestir tiltölulega ungir að ár- um og hafa ekki sérlega margar sýningar að baki. Þetta kemur auðvitað fram í sýningunni svo sem eðlilegt er um áhugamanna- sýningu, birtist einkum í skorti á nákvæmni í látbragði og hreyfing- um. A hinn bóginn var framsögn yfirleitt skýr og ákveðinn einfald- ur ferskleiki yfir sýningunni. Fyrri einþáttungurinn, Hinn eini sanni Seppi eftir Stoppard, var býsna skemmtilega saman settur þáttur. Gengur útá að skopsetja leikhúsgagnrýnendur sem eru að horfa á sýningu á sakamálaleik- riti. Þeir ræða um sjálfa sig og sýn- inguna en fyrr en þá varir eru þeir orðnir þátttakendur í leikritinu og allt endar eiginlega í tómri vit- leysu. Það er auðvitað eðlilegt að leikhúsfólk hafi gaman af að skop- færa gagnrýnendur og tekst það að mörgu leyti í þessu verki. Hins- vegar finnst mér að þýðandinn hefði gjarnan mátt reyna að stað- færa orðafar þeirra betur og nota meira klisjur og frasa sem notaðir eru af íslenskum gagnrýnendum því þar er af nógu að taka held ég. Seinni einþáttungurinn og sá styttri lýsir ungum hjónum sem eru að reyna að endurtaka brúð- kaupsferð til Feneyja, en nú mun- ar því að þau eru með kornabarn með sér en það setur vissulega vænt strik í reikninginn. í stað þess að vera brímafullir elskendur eru þau eins og hverjir aðrir ung- barnsforeldrar sem þurfa að vakna til barnsins á fárra stunda fresti. í þessum þætti áttu þau Bjarni Guðmarsson og Gerður Eðvarðsdóttir ágætan samieik og skiluðu því vandræðaástandi sem uppi var hjá þeim hjónakornum. Fyrri einþáttungurinn er miklu eftir Gunnlaug Ástgeirsson flóknari að allri gerð. Bjarni Guð- marsson og Páll Asgeir Asgeirsson léku gagnrýnendurna og tókst þeim nokkuð vel í þeirri skop- færslu. Einnig fóru leikendur í sakamálaleikritinu ágætlega með sín hlutverk, meðan það leikrit gekk fyrir sig í friði, en hinsvegar fannst mér samleikur nokkuð fara úr böndum þegar farið var að rugla saman hinum tveimur svið- um verksins. Þessi sýning Litla leikklúbbsins var hin notalegasta skemmtun miðað við gefnar forsendur. Starf- semi áhugaleikfélaga er mikil- vægur þáttur í menningarlífi landsmanna og á hver hópur mik- ið hrós skilið sem starfar að þeirri listsköpun sem þar fer fram. G.Ást. TONLIST Kvennatonlist eftir Atla Heimi Sveinsson og Sigurð Þór Guðjónsson Á sunnudaginn var hélt hópur danskra kvenna tónleika í Norræna húsinu og var eingöngu leikin samtímatónlist eftir konur á Norðurlöndum. Con anima-hóp- urinn, en svo nefna þær sig, leikur þessa efnisskrá í höfuðborgum allra Norðurlandanna. Þær eru allar bráðflínkir hljóð- færaleikarar, enda þekktar á Kaupmannahafnarsvæðinu í list sinni. Tækni þeirra allra er örugg, samleikur markviss og meitlaður af innblásinni nákvæmni. Og hljóðfærasamsetningin, flauta, fiðla, víóla, selló, harpa og píanó, býður upp á fjölbreytta samsetn- ingu efnisskrár. Þetta var samtímatónlist eins og hún gengur og gerist á okkar breiddargráðum, hvorki verri né betri. Og hún er ekkert frábrugðin þeirri tónlist sem karlar setja sam- an hér og i löndunum í kringum okkur. Og ekki gat ég merkt að túlkaður væri hinn margumtalaði reynsluheimur kvenna á þessum tónleikum. Raunar eru þessar at- hugasemdir mínar út í hött: hverj- um dettur í hug að tala um reynsluheim karla þegar Amadeus-kvartettinn flytur Mozart? En rétt er, að karlar eru miklu fyrirferðarmeiri á efnis- skrám þar sem samtímatónlist er flutt, og það er umhugsunarefni. Hér á íslandi hafa þrjár konur vakið verðuga athygli og aðdáun fyrir tónsmíðar sínar: Jórunn Viðar, Karólína Eiriksdóttir og Mist Þorkelsdóttir (Sigurbjörns- sonar). Þær skrifa mjög ólík verk enda eru þær sín af hverri kyn- slóð. Con anima-hópurinn flutti gamalt verk eftir Karólínu, Fjögur Iög fyrir flautu, fiðlu og selló frá árinu 1977. Þessi lög eru eins og mörg önnur verk Karólinu gegn- Frelsi og hljóðmengun Þjóðin er nú í sjöunda himni yfir fjölmiðlabyltingunni. Það er hægt að hafa popp allan sólarhringinn. (Ég biðst afsökunar á að vera svo þjóðlegur og úreltur að segja ekki „24 stundir á sólarhring.") Áuðvit- að er ekkert við þetta að athuga ef fólk hlustar heima hjá sér og tekur tillit til nágranna sinna. En það fylgir smá böggull skammrifi. Nú er hvergi hægt að koma án þess að vera neyddur til að heyra popp úr útvarpi eða hljómflutn- ingstækjum. Þessi ósköp drynja á flestum vinnustöðum. Það er ekki komandi inn í margar verslanir fyrir gauragangi. Strætisvagna- ferðir eru meiriháttar sálarraun fyrir farþega sem ekki eru heyrn- arlausir. Ekki er lengur hægt að eta mat sinn með lyst né drekka kaffi eins og siðaðar manneskjur á veitingahúsum fyrir glymjanda. Sumar verslanir eru svo ósvífnar að setja upp gjallarhorn úti við sem æra vegfarendur er leið eiga framhjá. Alls staðar popp, popp, popp. Bylgjan yfir og allt um kring. Og enginn er spurður hvort hann kæri sig um hana. Eins og hvert annað líffæri þolir eyrað ekki alltof mikið álag. Það skemmir heyrnina að hafa sífelld- an hljóðgang í eyrunum. Og það eyðileggur líka sálina. Músik sem uppfylling fyrir tómleika og and- leysi er verri en nokkur fíknilyf. Það er búið að sanna það með vís- indalegum mælingum úti í lönd- um. Fólk verður sljótt, heimskt og hundleiðinlegt að hvíla aldrei hug- ann og vera aldrei með sjálfu sér. Það verður grunnt og yfirborðs- legt, og þreytt og svo óhamingju- samt að það fer að kjósa Borgara- flokkinn. Varla þarf svo að taka það fram, að þessi beljandi gerir að engu hæfni manna til greina á milli hljóða og skilja muninn á góðri og vondri tónlist. Allt verður sami kliðurinn. Afleiðingin verður sú hættulega skoðun að öll músik sé jafn góð og gild, svo argasta iðn- aðarafþreying sem listaverk snill- inganna. Slík jafnaðarstefna er mjög í tísku og þykir bera vott um frjálslyndi, en vitnar þó aðeins um getuleysi til að þekkja sannleika frá lygi í listrænum efnum. Og enginn græðir nema kapitalism- inn. Segja má að hverjum og einum sé frjálst að fara í hundana af popprugli. Það er alveg guðvel- komið ef menn endilega vilja. En það veitir þeim engan rétt til að steypa öðrum í sína eigin glötun. Nú skríða allir fyrir frelsinu. En hvar er frelsi vegfarenda til að vera í friði? Hvert er frelsi mitt þegar ég versla í hamslausum hljóðstormi? Ekkert. Hvert er frelsi mitt í strætó þegar allt ætlar um koll að keyra? Ekkert. Og hvert er mitt frelsi þegar ég verð að flýja sundlaugar til að halda sönsum? Alls ekkert. Og ef mig langar til að spóka mig í vorblíð- unni á Lækjartorgi, er ég neyddur til að þola hljóðpíslirnar frá Karna- bæ á daginn, en þegar kvölda fer tekur íkornaholan við með hrein- um sadisma sem hlýtur að vera lærður í Chile. Hvar endar frelsi þessara ólátaseggja og hvar byrjar frelsi mitt? Hvað myndi gerast ef ég setti upp stórkostlega lúðra í húsi mínu og blési út um þá Bruck- neri, Carli Nielsen, Leifi Þórarins- syni og öðrum vinum mínum? Ætli nágrannarnir kæmu ekki kærandi í ofboði? Og hvað myndi hinn músikalski forstjóri Karna- bæjar leggja til málanna um frels- ið, ef ég parkeraði fyrir utan heim- ili hans bilskrifli með einni stórri trekt á þaki hvaðan útþrumaðist andríki Niflungahringsins allan liðlangan daginn? Kunna þeir enga mannasiði í Austurstræti? Annars er ekki við miklu að búast af fyrirtæki sem notar gömlu eld- stóna í þessu sögulega húsi sem ruslahaug þrátt fyrir marg endur- teknar aðfinnslur Minjasafns Verk Karólfnu, gegnsæ, knöpp og næstum skrautlaus. sæ og næstum skrautlaus, gerð af vandvirkni og nostursemi, meitl- uð og knöpp í formi. Það er bless- unarlega lítið um tilfinningavellu hjá Karólínu. Tónlist hennar minn- ir mig oft á myndvefnað í þokka- 'fullri nákvæmni sinni. Og lögin fjögur voru karaktersterk og ólík hvert öðru. Af öðrum verkum sem mér fundust athyglisverð vil ég nefna í draumi eftir finnska tónskáldið Kaija Saariaho frá árinu 1980 fyrir selló og píano og Grata eftir norska tónskáldið Áse Hedström, sem samið er fyrir allan hópinn árið 1986. Þær eru í hópi helstu framúrstefnutónskálda í heima- löndum sínum, og hafa átt mikinn þátt í að lyfta tónlist landa sinna upp úr útnesjamennsku, sem lengi var viðloðandi í kjölfari stórsnill- inganna Griegs og Sibelíusar. Þetta voru nokkuð óvenjulegir og mjög skemmtilegir tónleikar og ber að þakka Con anima-kon- unum fyrir komuna. -AHS Reykjavíkur. Segiði svo að poppið göfgi ekki menningarástand dýrk- enda sinna. Frelsi hávaðalýðs er óskorað. Frelsi friðsamra manna ekkert. Fólk veigrar sér við að kvarta út af hljómflutningstækjum á almanna- færi. Það vill ekki vekja á sér at- hygli og fá á sig illt orð. Því það telst ekki kurteisi að kvarta yfir ónæði, en hins vegar þykir það engin ókurteisi að valda öðrum ónæði. Þessu viðhorfi þarf að breyta. Fólk á að mótmæla hástöf- um. Það á að heimta rétt sinn til að fá að vera í friði fyrir annarra manna músik. Útilúðra ætti skil- yrðislaust að banna og refsa harð- lega ef út af er brugðið, t.d. með því að leika yfir hinum brotlegu öll tónverk Wagners viðstöðulaust í einni lotu. Það ætti að kenna þeim tillitssemi. Þá mætti vekja athygli strætisvagnastjóra, sem yfirleitt eru greiðviknin og háttvísin upp- máluð, á því að þeir séu ekki einu mennirnir í vagninum með eyru. Að ekki sé minnst á starfsfólk verslana og veitingahúsa og yfir- leitt allra staða þar sem fólk kem- ur saman. Frelsi fjölmiðla má ekki leiða til þess að vilja sumra sé þröngvað upp á alla. Frelsið er ekki fólgið í því að kúga aðra. Það er brot á mannréttindum. -SÞG NEMENDA/e/Músfð frumsýndi sem kunnugt er finnska sakamála- leikritið Rúnar og Kyllikki hinum megin mánaðamótanna, og hefur uppfærslan yfirleitt fengið góða dóma. Það er Stefán Baldursson sem leikstýrði þessu verki Jussi Kylátasku, sem frumflutt var í heimalandi höfundar 1973, en í dag er stykkið það finnska nútímaverk sem hvað oftast er fært upp utan Finnlands. Rúnar og Kyllikki segir frá samnefndum unglingum á ára- bilinu 1955 til 1960 og samskiptum þeirra við fullorðna, frá lífsbaráttu fólksins, þar sem lögmálið um hinn sterka er í hávegum haft, eins og við sögðum frá á þessum slóðum í síð- asta HP. Það sem vekur einkum at- hygli leikhúsgesta á þessari sýningu er afburða snjallt leiksvið Grétars Reynissonar sem hann hefur sér- hannað fyrir rýmið í Lindarbæ og á margan hátt ögrandi leikstjórn Stef- áns, sem síðast leikstýrði fjórða árs nemum Leiklistarskólans fyrir réttu ári, lokaverkefninu Hvenœr kem- uröu aftur rauöhœröi riddari? eftir Mark Medoff, sem L.A. færði síðar upp — og notið hefur feikivinsælda hérlendis. Næstu sýningar á finnsku sökunum eru núna á föstudagskvöld, þriðjudagskvöld og fimmtudags- kvöld. Níu útskriftarnemendur stíga fram á sviðið á slaginu átta ásamt fjórum atvinnuleikurum sér til halds og traust. ÖRLYGUR Hálfdánarson er metnaðarfullur bókaútgefandi — og hefur sýnt að hann þorir að taka stórar áhættur í viðleitni sinni að miðla Islendingum almennilegri kúnst. í þessu efni er skemmst að minnast Islandsmynda Mayers, sem bókaforlag hans, Örn <£ Örlygur, sendi frá sér skömmu fyrir síðustu jól. Bókin geymir myndir Auguste Mayers og fleiri sem þeir gerðu í leiðangri Paul Gaimards um ísland fyrir hálfri annarri öld, en forlagið hefur áður gert grein fyrir þætti Páls á bókfelii. í bókinni eru tæplega 200 myndir sem flestar eru prentaðar í fyrsta sinn í lit — og eru þannig ein- hver nákvæmasti, skemmtilegasti og ugglaust fallegasti vitnisburður um landslag okkar og lifnaðarhætti fyrir 150 árum, þegar Jón forseti fagnaði 25 ára afmælinu sínu! Það er upplifun hverjum manni sem flettir í þessum kjörgrip, sem er fá- anlegur í fagurri öskju... 26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.