Helgarpósturinn - 07.05.1987, Side 27

Helgarpósturinn - 07.05.1987, Side 27
KVIKMYNDAHUSIN KVIKMYNDIR eftir Ólaf Angantýsson eftir Sigmund Erni Rúnarsson Margslungid Bíóhúsiö: Kiss of The Spider- woman (Koss köngulóar- konunnar) ★★★★ Bandarísk/brasilísk. Árgerd 1985. Framleidandi: Dauid Weisman. Leikstjórn: Hector Babenco. Handrit: Leonard Schrader eftir skáldsögu Manuel Puigs. Kvikmyndun: Rodolfo Sanchez. Aðalhlutverk: William Hurt, Raul Julia, Sonia Braga, José Legoy, Milton Gonvales o.fl. Það hlaut að kpma að því að þessi fjórfalt Óskarstilnefnda mynd Hectors Babencos, sem jafn- framt hreppti drjúgan skerf af Gullpálmaúthlutunum á Cannes- hátíðinni ’86 hlyti náð fyrir augum hérlendra kvikmyndahúsaeig- enda, eftir að hún hvarf svo ófor- varendis af myndbandaleigunum í kjölfar margfrægrar lögreglu- rassíu hér á dögunum. Myndin byggir á samnefndri skáldsögu Argentínumannsins Manuel Puigs og greinir frá lífi og raunum tveggja klefafélaga í argentínsku stjórnarfangelsi á öndverðum áttunda áratugnum. Stúdentinn Valentín hefur setið inni undanfarin 3 ár án dóms og laga fyrir þátttöku í ólöglegum mótmælaaðgerðum. Hann hefur jafnframt þurft að sæta pyntingum af hálfu fangavarða sinna, sem kerfisbundið og af ótrúlegri hörku og útsjónarsemi leitast viö að fá hann til að ljóstra upp um nöfn „samsektarmanna" sinna. Molina afplánar átta ára fangelsisdóm fyrir sakir kynhverfra hneigða sinna. Honum hefur jafnframt ver- ið heitið náðun að því tilskyldu að honum takist að afhjúpa leyndar- mál klefafélaga síns. Valentín er á hinn bóginn þegar frá upphafi gjörsamlega ómóttækilegur fyrir viðleitni Molina til að stofna til vináttutengsla þeirra á milli, og lætur hann í því tilliti óspart í ljós hina vægast sagt forkastanlegu, en þó á margan hátt ómeðvituðu hleypidóma sína gagnvart kyn- villu hans. Molina tekst þó um síð- ir og sökum eðlislægrar ljúf- mennsku sinnar að brjóta niður varnarmúra þessa forherta klefa- félaga síns og fer svo um síðir að hann verður að gera upp við sig «;' hvort honum er í raun mikilsverð- ara: Vináttutengsl hans við Valen- tín, sem hann er reyndar orðinn ástfanginn af undir lok myndar- innar, eða hið skilorðsbundna frelsi utan fangelsismúranna. Kiss of the Spiderwoman er í mörgu tilliti með afbrigðum vönd- uð og fagmannlega unnin kvik- mynd og þá ekki síst fyrir tilstilli leiktilþrifa Williams Hurt í hlut- verki Molina. Þessi margverðlaun- aða túlkun hans á hlutverkinu er jafnframt einhver sú magnaðasta sem um getur í vesturlenskri kvik- myndagerð um margra ára skeið. Ó.A. Grœskufullt gaman Tónabíó, Fyrsti apríl (April Fool’s Day): ★★ Bandarísk, árgerð 1985. Framleiðandi: Frank Mancuso. Leikstjórn: Fred Walton. Handrit: Danilo Bach. Tónlist: Charles Bernstein. Aðalleikarar: Ken Olandt, Amy Steel, Deborah Foreman, Griffith O'Neal og fleiri. Af einhverjum ástæðum er flest fólk þannig innbyggt að því finnst gaman að leika aðra grátt — og aftur er það af einhverjum ástæð- um sem gráleikurinn er helst bundinn við fyrsta apríl. Kvik- myndin Fyrsti apríl er hrekkja- lómamynd um almennilega hrekki á þessum hræðilega degi í lífi grandalausra. Og maður hrekkur svo sem við henni. Sagan er svona: Atta háskóla- nemum er boðið að dvelja eina helgi heima hjá skólasystur þeirra, Muffy. Hún á heima á lítilli eyju og eina leiðin til að komast þangað er að taka ferju. Á leiðinni út í eyjuna fara óvæntir atburðir að gerast — og verða síst geðslegri eftir því sem dagarnir (og næturnar) líða á sjálfri eyjunni. Gestgjafinn virkar eitthvað svo skrítinn — og um- hverfið glottir háðslega. Það er gamall og nýr leikur að hræða úr mönnum líftóruna með skipulögðum og keðjuverkandi hrekkjum sem enda í meira en vandræðalegu brosi, stundum gnístan. Bókfellið hefur óspart miðlað þvíumlíku plotti, svo og nokkrar kvikmyndir, oftlega unn- ar upp úr sviðsverkum. April Fool’s Day er græskufullt gaman, sem nær, þrátt fyrir vankanta í leikstjórn (svo sem ofmat á leikur- um) og skrykkjótta framvindu, sem verður aðallega að skrifast á handritið, sæmilegu og einstaka sinnum ágætu taki á manni. Ósköp samt saklaus hrollur bor- ið saman við stemmningu fyrri tíma verka í þessum dúr, enda (enn ein) unglingamynd (sem telst nú skammaryrði) öðrum þræði. -SER AHSTURBÆJARRin LOKAÐ VEGNA BREYTINGA VITNIN (Bedroom Window) NÝ Evrópufrumsýning á föstudag á þessari spennumynd „f anda Hitchcock". Maður nokkur heldur við konu forstjóra síns og á fundi þeirra eitt sinn verður konan vitni að líkamsárás. En hún á erfitt um vik með að bera vitni. Aðalhlutverk ( höndum Steve Gutenberg og Isabella Hubbert. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. LITLA HRYLLINGSBÚÐIN ★★★ (Little Shop of Horrors) Þetta er Islendingum að góðu kunnugt eftir að Hitt leikhúsið setti upp sam- nefnt leikrit, en myndin er ekki síður vel heppnuð. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. PARADlSARKLÚ BBURINN (Club Paradise) ★★ Grínmynd um sumarleyfi og sól, leik- stjóri Harold Ramis sem gerði m.a. Ghostbusters. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. LIÐÞJÁLFINN (Heartbreak Ridge) ★ Clint Eastwood leikur liðþjálfa sem þjálfar sérsveitir ( bandaríska hernum. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. NJÓSNARINN (Jumpin Jack Flash) ★★ Gamanmynd með stjörnunni úr Color Purple, Whoopi Goldberg. Sýnd kl. 5, 7 og 11. KRÓKÓDlLA DUNDEE (Crocodile Dundee) ★★★ Léttgrín. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. ABENDING Athygli hlýtur að vera vakin á grinmynd Landis með þeim Chevy Chase, Steve Martin og Short í aðalhlutverkum. Von- andi að handritið sé jafn sterkt og mannavalið. Aprílgabbsmyndin nýja í Tónabfói lofar góðu og sama er að segja um The golden child með hinum geðþekka Eddie Murphy. Ráðagóði róbótinn, Hundalíf, Öskubuska og Hefðarkettir sýndar kl. 3 um helgina. BÍÓHÚSIÐ KOSS KÖNGULÓARKONUNNAR (Kiss of the Spider Woman) ★★★★ Afar umtöluð og athyglisverð mynd. William Hurt hlaut óskarinn fyrir leik sinn í henni. Ath. hættir um helgina. GULLBARNIÐ (The Golden Child) NÝ Frumsýning föstudagskvöld á þessari spennu-grínmynd með Eddie Murphy, hinum geðþekka og sólbrúna dáðadreng. LAUGARÁS BIO LITAÐUR LAGANEMI (Soul Man) ★★ Bandarísk gamanmynd um hvítan nema sem litar sig svartan til að fá styrk! Aðalhlutverk: C. Thomas Howell, Rae Dawn Chong. Leikstjóri Steve Miner. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. EINKARANNSÓKNIN (Private Investigations) Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. TVlFARINN ★ Bandarísk spennumynd um ungan pilt sem flyst til smábæjar og þá fer ýmis- legt yfirnáttúrulegt að gerast. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. IRE0NBOGRNN ÞRlR VINIR (Three Amigos) NÝ Dúndur-álitleg grínmynd með brosvipr- unum Steve Martin, Chevy Chase og Martin Short undir leikstjórn John Landis. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. HERBERGI MEÐ ÚTSÝNI (Room With a View) ★★★★ Frábær mynd. Ekta bresk í klassa fyrir sig. Sýnd kl. 3, 5.30, 9 og 11.15. GUÐ GAF MÉR EYRA (Children of a Lesser God) ★★★ Marlee Matlin hlaut óskarinn fyrir leik sinn í þessari mynd i hennar fyrsta hlut- verki. i hófi væmin ástarsaga. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BLÁ BORG (Blue City) ★★ Með Judd Nelson og Ally Sheedy. Sýnd kl. 3.10, og 11.15. TRÚBOÐSSTÖÐIN (Mission) ★★★ Ein sú besta í bænum, frábær kvik- myndataka og stórgóður leikur. Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30. ÞEIR BESTU (Top Gun) ★★★ Þjóðernisrembingur ( algleymingi og pínu ást með. Sýnd kl. 3. FALLEGA ÞVOTTAHÚSIÐ MITT (My Beautiful Laundrette) Ljómandi góð mánudagsmynd. Sýnd kl. 7.10 og 9.10. SKYTTURNAR ★★★ Metnaðarfull mynd og bara vel heppn- uð að mörgu leyti. Sýnd kl. 3.15, 5.15 og 11.15. ENGIN MISKUNN (No Mercy) ★★★ Bandarísk lögreglumynd með Richard Gere og Kim Basinger. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. PEGGY SUE GIFTI SIG (Peggy Sue Got Married) ★★★ Kathleen Turner fær aðsvif og hverfur aftur í tímann, endurtekur lífið sig?. Sýnd kl. 5 og 9 STATTU MEÐ MÉR (Stand by Me) ★★ Fjórir strákar að leita að líki. Sýnd kl. 7 og 11. FYRSTI APRÍL (Apiils Fool's Day) ★★ Spennutryllir. 8 háskólanemar fara saman og dvelja á eyju. Þeim fækkar eitthvað á dularfullan hátt... Sýnd kl. 5, 7 og 9. ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ mjög góð ★ ★ miðlungs ★ þolanleg O mjög vond MYNDBAND VIKUNNAR The Man Who Knew To Much ★★★ 777 átleigu hjá m.a. Myndbanda- le/gu kvikmyndahúsanna. Bandarísk. Árgerð 1955. Framleiðandi/leikstjórn: Alfred Hitchcock. Aðalhlutverk: James Stewart, Doris Day o.fl. Úr myndaflokknum The Essential Hitchcock sem CIC- Video hefur góðu heilli séð ástæðu tii að búa í form mynd- snældunnar gefst okkur um þess- ar mundir að líta þessa margfrægu raunasögu spennumeistarans af manninum sem vissi um of viti sínu. Myndin greinir frá Dr. Ben MacKenna (Stewart) sem fer ásamt eiginkonu sinni (Doris Day) og tíu ára gömlum syni þeirra hjóna í sumarleyfisferð til Mar- okkó, hvar nefndur MacKenna hafði þjónað föðurlandinu sem hermaður í síðari heimsstyrjöld- inni. Fyrir slysni dragast þau al- saklaus með í hringiðu atburða er tengjast starfsemi einkar harð- svíraðra alþjóðlegra njósna- og hryðjuverkasamtaka, sem lyktar með því að syni þeirra er rænt. í örvæntingarfullri leit þeirra hjóna að syninum berst leikurinn um síðir til Lundúnaborgar, hvar ósköpunum að endingu linnir með margfrægri og meistaralega vel útfærðri morðsenu á almenn- um tónleikum í sjálfum Royal Al- bert Hall. í myndinni koma fyrir flest þau mótíf og meginþemu, sem löngum hafa þótt helstu aðalsmerki sér- stæðra stílbragða hins aldna meistara, og burtséð frá því að hér er um einstaklega spennandi og skemmtilega kvikmynd að ræða, væri það eitt og sér ærin ástæða fyrir unnendur góðrar kvik- myndagerðarlistar að endurnýja gömul kynni sín af þessari ágætu perlu meistara Hitchcocks. Ó.A. HELGARPÓSTURINN 27

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.