Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.05.1987, Qupperneq 29

Helgarpósturinn - 07.05.1987, Qupperneq 29
^^\^l^eðgöngutíma nýju varpsstöðvarinnar fer brátt að verða lokið og er almennt talið að hún líti dagsins ljós í byrjun júní. Fæðing gæti eitthvað dregist á lang- inn, en ekki þó úr hófi fram. Dag- skráin mun vera fulimótuð um þess- ar mundir og eftir því sem við vitum best er áætlað að vera með fasta fréttatíma. Að öðru leyti verður tónlist helsta byggingarefnið en dagskráin verður síðan krydduð með talmálsliðum. . . U ■ ■ ver verði útvarpsstjóri nýju útvarpsstöðvarinnar sem enn ber nafnið Hljóðvarp hf. er nokkuð sem menn hafa velt mjög fyrir sér upp á síðkastið. Ýmis þekkt nöfn hafa verið nefnd en illa gengið að fá staðfestingu á þeim. Núna fréttum við hins vegar að menn geti farið að slappa af, það verður sem sé enginn útvarpsstjóri á nýju stöðinni. Hins vegar hafa þar valist prýðismenn til að veita stöðinni forstöðu. Það eru þeir Hafsteinn Vilhelmsson sem var áður hjá Útflutningsráði sem verður framkvæmdastjóri stöðvar- innar og markaðsstjóri hefur ver- ið ráðinn Hallur Leopoldsson sem var áður hjá auglýsingaþjónustunni Miðlun. Þessir menn verða í for- svari en með þeim vinnur síðan dag- skrárstjórn sem í verða m.a. Jón Axel Ólafsson fyrrum starfsmaður Rásar 2 og síðar Bylgjunnar og Þorgeir Ástvaldsson fyrrum for- stöðumaður Rásar 2. .. u I ýja útvarpsstöðin Hljóð- varp hf. auglýsti eftir nafni á stöð- ina á dögunum undir kjörorðinu „Hvað á barnið að heita?“ Eins og við var að búast af íslendingum brugðu þeir skjótt við og tillögum rigndi inn á Hljóðvarp. Margir virð- ast vilja láta nafnið vera í kvenkyni eintölu eins og Bylgjan er og bárust nöfn eins og: Aldan, Báran, Gleð- in, Gróa, Innrás, Uglan, Lindin og Peran. Síðasttalda nafnið hljóm- ar kannski vel en hvernig litist hlust- endum á að heyra: „Gott kvöld, þetta er Jón á Perunni...!" Eða ef far- ið er út í nöfn eins og „Gleðin" eða „Gróa": „Nú er klukkan ellefu, við segjum Gróufréttir". Svo ekki sé minnst á: „Nú verða sagðar Gleði- fréttir. 200 manns fórust í jarð- skjálfta..."! Kvenmannsnöfn eiga upp á pallborðið hjá þeim sem senda inn tillögur og við heyrum að nafnið Edda hafi komið við sögu oftar en einu sinni sem og Saga... s ^^^vo eru þeir sem vilja fara út fyrir þá tegund nafngiftar sem flokkast undir kvennöfn, Suðandi býfluga var eitt nafnið sem stungið var upp á og nöfn eins og Plútó bár- ust einnig í samkeppnina. . . il-fll Íggfjf oet l@kiiSi|ur s|ómanna. Vió bjódum 15% afslátt af stökum jökkum, stökum buxum og jakkafötum. PADDINGTON TEIKNISAMKEPPNIN er enn í fullum gangí. Krakkar, flýtið ykkur að senda inn myndir, því nú fer hver að verða síðastur. Þrjár bestu myndirnar fá vegleg verðlaun. Einnig verða veitt tíu aukaverðlaun. Þetta er sýnishorn af Paddington sparibangsanum, sparibauk sem gaman er að eignast. HELGARPÓSTURINN 29

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.