Helgarpósturinn - 07.05.1987, Side 32

Helgarpósturinn - 07.05.1987, Side 32
INNLEND YFIRSYN Fyrsta vinnuplaggið í efnahags- málum frá Þjóðhagsstofnun: Meiri viðskiptahalli en gert var ráð fyrir. Meiri halli á ríkissjóði. 600 milljón- króna aukahagnaður af brennivíni lappaði uppá hallatölur Þorsteins. Kaupmáttaraukning á árinu. Hag- vöxtur mikill. Góðar afkomuhorfur í sjávarútvegi. Margir lausir endar I gær kom út eins konar ágrip af efnahags- búskapnum frá Þjóðhagsstofnun. Ágrip þetta er ætlað stjórnmálaleiðtogum í yfir- standandi stjórnarmyndunarviðræðum. Helstu niðurstöður ágripsins eru þær, að Þjóðhagsstofnun staðfestir kenningar stjórn- arandstöðunnar fyrir kosningar um hættu- merki í þjóðarbúskapnum. Þó þykir stjórnar- sinnum það nokkur huggun að úttekt Þjóð- hagsstofnunar gefur ekki tilefni til jafn mik- illar bölsýni og þeir svartsýnustu höfðu hald- ið fram fyrir kosningar. Um einstök atriði út- tektarinnar er þó deilt meðal sérfræðinga og stjórnmálamanna. Mörgum stjórnmálamanninum, en þeir fengu þessa skýrslu afhenta sem trúnaðar- mál í gær, þykir þessi skýrsla þunn í roðinu. Þessi áfellisdómur á m.a. við um stöðu ríkis- fjármálanna. Þjóðhagsstofnun teiur að hall- inn á ríkissjóði verði um 3,4 milljarðar króna, en flestir telja að hann sé of lágt reikn- aður. Leiðtogar Alþýðuflokksins hafa beðið svars frá fjármálaráðherra um stöðu ríkis- sjóðs og frávik frá fjárlögum, en sú skýrsla hefur enn ekki borist. Óttast margir, að inni í þeim tölum, sem fjármálaráðuneytið gefur upp og Þjóðhags- stofnun notar, séu ýmsar tölur ekki reiknað- ar inn í dæmið, t.d. Hafskipsskatturinn í Út- vegsbankann og ekki er vitað hvernig breyt- ingin sem ákveðin var á niðurgreiðslunum í mars er reiknuð inn í dæmið, né heldur hvernig viðbótarframlög til Egilsstaðaflug- vallar, sjúkrahúsbyggingar á ísafirði og fleira kemur inn í þetta yfirlit. Bíða menn nú eftir nánari skýringum á þessum halla sem talinn er að verði ekki undir 3,5 milljörðum króna. Meiri en Þor- steinn Pálsson fjármálaráðherra vildi vera láta fyrir kosningar. Mörgum þykir sem fjár- málaráðuneytið sé að veita nýjar upplýsing- ar helsti seint. Það vekur sérstaka athygli, að inn í dæmið um 3,4 milljarða króna halla er tekið tillit til 600 milljón króna umframhagn- aðar af sölu ÁTVR á þessu ári. Það þýðir að ef sá „skattur" væri ekki inni í dæminu, væri hallinn viðurkenndur 4 milljarðar króna. Skýrsla Þjóðhagsstofnunar staðfestir að tekjubreytingar milli ára í peningum verði meiri en áður var reiknað með, meiri verð- hækkun en í fyrri spám og viðskiptahalli verði á bilinu milli 2 og 2,5 milljarðar króna. Til samanburðar var reiknað með viðskipta- halla upp á um 1 milljarð króna í síðustu spá Þjóðhagsstofnunar. Aukinn viðskiptahalli leiðir óhjákvæmilega til meiri lántöku er- lendis en áður var reiknað með. Margir telja að verðbólguspá Þjóðhags- stofnunar sé mikil bjartsýnisspá. Þjóðhags- stofnun gerir þannig ráð fyrir að gengið haldi, og að þann veg verði verðbólgan 13% til 15% frá upphafi til loka árs samanborið við 11% til 12% í febrúarspá. Meðalhækkun verði því 15% til 16% miðað við 14% í fyrri spám. Þetta þykir mörgum vægt reiknað, því gert er ráð fyrir að tiltölulega litlar launa- breytingar verði á vinnumarkaðinum sem eftir er ársins, þ.e. umfram það sem þegar hefur verið samið um. Og ekki er heldur gert ráð fyrir að erlendar verðbreytingar og gengi hafi truflandi áhrif á verðbólguþróun- ina — á pappírum Þjóðhagsstofnunar. Fróðir menn telja að fleiri óvissuþættir þurfi að reiknast inn í verðbólgudæmið svosem við- skiptakjarahorfur og vaxtakostnaður erlend- is. Mönnum þykir sem efnahagsþróunin á al- þjóðavettvangi hafi orðið okkur óhagstæð- ari en var; happdrættisvinningsárið frá í fyrra geti ekki endurtekið sig. Gert er ráð fyrir aukningu kaupmáttar milli ára; 8,5% til 10% milli ára, mun meira en áður hafði verið talið. Einnig þetta telja vísir menn ekki vera fullreiknað, t.d. eigi eftir að gera skattadæmið upp. Ekki er gert ráð fyrir að einkaneyslan aukist að sama skapi, heldur haldist hún við 6% til 7% aukningu, sem margir telja bjartsýni t.d. miðað við þró- un innflutnings, og þróun innlána og útlána, sem ekki virðist benda til aukins sparnaðar. En það væri forsenda þess að neyslan ykist hægar en tekjurnar. í launakaflanum er tekið fram að mikið skorti á að fullnægjandi upplýsingar séu fyrir hendi um launaþróun á þessu ári, bæði vegna þess að ósamið er við ýmsa hópa og vegna iaunaskriðsins á markaðnum. Sjávarútvegurinn virðist standa með blóma. Botnfiskvinnslan í heild er rekin með hagnaði sem nemur 9% til 10% af tekjum. Þar af er hagnaður frystingar 6% og söltunar 17% til 18% þrátt fyrir að greiðslur af saltfiski í Verðjöfnunarsjóð nemi um 6% af tekjum. Hagnaður af botnfiskveiðum er ögn minni, en mikill samt eða 8% til 9%. „Eins og þessar áætlanir bera með sér, er afkoman nú góð í öllum þessum greinum og hefur batnað að mun frá árinu 1986, en þá var afkoma í sjáv- arútvegi betri en um langt árabil," segir í skýrslunni. Miðað við þessar góðu afkomu- horfur þykir gengisforsenda Þjóðhagsstofn- unar trúverðugri, en um horfurnar eru menn að sjálfsögðu ekki á eitt sáttir, og spá eftir Óskar Guðmundsson margir versnandi afkomu sjávarútvegs síðari hluta ársins. I plagginu er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði meiri en áður var talið. Landsfram- leiðslan gæti aukist um nálægt 4% á þessu ári og þjóðartekjur um 5,5%-6%. En ekki þyrfti mikið út af að bregða til að vöxtur þessi yrði minni, t.d. meiri eftirspurn innan lands og meiri innflutningur. En hvaða áhrif hafa þessar upplýsingar um stöðu efnahagsmálanna á myndun ríkis- ^stjórnar og ráðstafanir hennar? Fyrsta og mikilvægasta verkefni þykir flestum stjórn- málamönnum vera að koma lagi á ríkisbú- skapinn, draga úr halianum skipulega. Það þýðir að gripið verði til skattahækkana að öllum líkindum, svo sem margir úr stjórnar- andstöðunni héldu fram þegar fyrir kosn- ingar. Skýrsla Þjóðhagsstofnunar er staðfest- ing á réttmæti þeirra orða, sem fallið hafa um hættumerki í góðærinu. Ráðstafanir í efnahagsmálum virðast óhjákvæmilegar og verða auðvitað meðal helstu mála sem rædd eru í viðræðum stjórnmálaflokka um stjórn- armyndun. En af máli manna í gær mátti greina þá skoðun að upplýsingar þyrftu að verða gleggri en þær eru á þessu stigi, sér- staklega varðandi ríkisbúskapinn og raun- verulega stöðu ríkissjóðs. Enn eru margir lausir endar. í greinargerð Þjóðhagsstofn- unar er gefið til kynna að þessi skýrsla sé einungis fyrsta vinnuplagg í viðræðunum: „Þetta er ekki heildarendurskoðun þjóð- hagsspár þar sem efnahagsstefnan fyrir síð- ari hluta ársins eðli máísins samkvæmt hefur ekki enn verið mótuð. Áfram verður unnið að athugunum á ýmsum þáttum efnahags- mála og ber að líta á þessa greinargerð sem fyrsta vinnuskjal vegna stjórnarmyndunar- viðræðnanna. Henni er ætlað að sýna lík- lega þróun helstu þátta þjóðarbúskaparins á þessu ári án þess að gert sé ráð fyrir sér- stökum efnahagsráðstöfunum, sem gripið kann að verða til að lokinni myndun ríkis- stjórnar." ERLEND YFIRSYN Harri Holkeri gekk greitt að mynda sam- stjórn hægri manna og sósíaldemókrata. Atvinnubyltingu þarf til að tryggja góðan hag Finna Við nýafstaðna stjórnarmyndun í Finn- landi hefur Mauno Koivisto forseti sýnt, að hann er jafn leikinn fyrirrennurum sínum, að beita valdinu sem finnska forsetaembætt- inu fylgir til að hafa áhrif á framvindu stjórn- mála. Fyrst eftir að kosningaúrslit urðu kunn, lét Kalevi Sorsa, foringi sósíaldemó- krata og fráfarandi forsætisráðherra, í veðri vaka að flokki sínum bæri að fara í stjórnar- andstöðu eftir nokkurt tap við kjörborðið. Kvaðst Sorsa telja réttast, að samstjórn hægri- og miðflokka tæki við stjórnar- taumum. Nú er Sorsa orðinn utanríkisráðherra í stjórn undir forsæti Harri Holkeri úr Samein- ingarflokknum, sigurvegara kosninganna. Holkeri fékk umboð Koivisto forseta til að mynda stjórn hægri flokks síns og sósíal- demókrata. Því lauk hann á skömmum tíma, og tók að auki með í stjórnarsamstarfið Sænska þjóðarflokkinn og Landsbyggðar- flokkinn. Áð stjórninni stendur því 131 þing- maður af 200, sem skipa þing Finnlands. Þar í landi er naumur þingmeirihluti lélegur grundvöllur fyrir ríkisstjórn, af því meirihátt- ar laganýmæli þurfa að hljóta afgreiðslu með tveim þriðju atkvæða á þingi til að öðlast gildi. Lítið skortir á að nýja stjórnin geti stát- að af slíkum meirihluta. Harri Holkeri hefur verið bankastjóri við Finnlandsbanka og var væntanlegur fram- bjóðandi fyrir Sameiningarflokkinn í næstu forsetakosningum, sem verða að ári. Með því að velja hann til að mynda stjórn sló Koivisto tvær flugur í einu höggi. Hann greiddi götu sjálfs sín að endurkjöri og tryggði að tveir öflugustu stjórnmálaflokkar Finnlands, ann- ar frá vinstri og hinn frá hægri, tækju saman höndum um landsstjórn, þegar vandasöm verkefni blasa við. Holkeri hefur hins vegar fengið ákjósanlegt tækifæri til að auka orðs- tír sinn og stjórnmálareynslu, og búa þannig í haginn fyrir forsetaframboð sitt að næsta kjörtímabili afstöðnu. Sameiningarflokkurinn hefur verið utan stjórnar í Finnlandi áratugum saman. Utan Finnlands lá það orð á, að hægri mönnum væri haldið utan stjórnar til að þóknast sov- étmönnum, jafnvel að sovétstjórnin hefði haft í hótunum, fengi flokkurinn stjórnar- aðild. Fyrir þessu orðspori var, að sögn Finna sem gerst mega vita, aldrei neinn fótur. Það sem gerðist á aldarfjórðungs forsetaskeiði Urho Kekkonens, var að hann notaði forseta- vald sitt markvisst til að halda Sameiningar- flokknum afsíðis. Með þessu vann Kekkonen sér aukið svigrúm til að ná tveim markmið- um. Miðflokkur hans sjálfs hélt nær stöðugri stjórnaraðstöðu, og Lýðræðisbandalagið, með kommúnista innanborðs, var hamið við stjórnarábyrgð. Nú eru kommúnistar í Finnlandi klofnir, og sá hópur þeirra, sem setur sovéthollustu öllu ofar, stórtapaði í þingkosningunum, fór úr tíu þingsætum niður í fjögur. Evrópukommún- istarnir náðu betri árangri, fengu 17 þing- sæti. Fylgi kommúnista í heild hefur hrapað um fullan helming frá því sem var á sjötta tug aldarinnar, þegar Lýðræðisbandalagið hafði nálægt fjórðung kjörfylgis og þingsæta. Öll er þessi þróun til marks um hve ómak- legt og fjarri öllum sanni var blaðuryrðið „finnlandísering", sem ætlað var að gefa til kynna, að Finnar væru í raun ofurseldir valdi og geðþótta sovétstjórnarinnar, að á stöðu þeirra og þjóða Varsjárbandalagsins væri í rauninni stigmunur en ekki eðlismunur. Glósu þessari var líka einkum komið á kreik, þegar Franz-Josef Strauss og skoðanabræð- ur hans í vesturþýskum stjórnmálum reyndu allt hvað af tók að fæla landa sína frá austur- stefnu sósíaldemókrata og frjálsra demó- krata í Bonn. Þá var ,,finnlandísering“ máluð eins og skratti á vegginn, því til sanninda- merkis að öll Vestur-Evrópa kynni að verða ofurseld, ef Willy Brandt og Walter Scheel tækist sú ætlun sín, að koma sambúð Vestur- Þýskalands við Sovétríkin og fylgiríki þeirra í eðlilegt horf. Ekki er nema maklegt, að Strauss verður nú að láta sér lynda að styðja ríkisstjórn í Bonn, sem framfylgir austur- stefnu fyrirrennara sinna óbreyttri. Max Jakobson, margreyndur lykilmaður í finnskri utanríkisþjónustu, segir í nýlegri grein, að Ijóst sé að núverandi valdhafar í Moskvu telji sambúðina við Finnland eitt af því fáa sem vel hafi tekist í sovéskri utanríkis- stefnu í Evrópu eftir heimsstyrjöldina síðari. Hún byggist á því, að stórveldið virðir sjálf- stæði og þjóðskipulag Finna. Öðru máli gegnir, segir Jakobson, sunnan Eystrasalts. „Stalín leitaði öryggis og valds með yfirgrips- miklum aðferðum — með því að þenja út veldið og undiroka nágrannaþjóðir. En nú er svo komið, að landvinningar auðvelda ekki lengur varnir. Að halda undirokuðum þjóðum niðri að heimsveldishætti, veldur vaxandi álagi á valdmiðstöðina. Öryggisbeltið, sem myndað var í Mið- og Austur-Evrópu, er orð- ið veikleikabelti." Jakobson lætur í ljós þá skoðun, að Sovétmenn geri sér ljóst að nú sé eftir Mognús Torfa Ólafsson sambúðin við Finnland langtum betri og traustari en við nokkurt annað nágranna- ríki. Helsti vandinn í samskiptum Finnlands og Sovétríkjanna felst nú í verslunarviðskipt- um. Lækkun olíuverðs varð til þess, að Sov- étmenn drógu úr vörukaupum frá Finnlandi, sem tekjutapi þeirra nam. Fimmtungur af út- flutningi Finna hefur á síðustu árum farið til Sovétríkjanna, og í verulegu atvinnuleysi kemur samdráttur á þessum markaði sér illa. Frá því Finnum tókst að hemja verðbólgu og treysta gengi finnska marksins með af- námi vísitölubindingar og náinni samvinnu aðila vinnumarkaðarins og ríkisvalds um kjarastefnu, hefur atvinnulífi og kjörum fólks í Finnlandi fleygt fram. Þjóðarframleiðslan á mann er komin fram úr því sem gerist í Bret- landi og Frakklandi og nálgast önnur Norð- urlönd. Lánstraust Finna á alþjóðlegum fjár- magnsmarkaði er hið besta sem gerist. En nú reynir á nýju rikisstjórnina, að laga finnskt atvinnulíf að nýjum aðstæðum. Ekki nægir lengur til velmegunar og hagvaxtar staða í fremstu röð í einstökum, afmörkuð- um greinum. Þar ber hæst skipasmíðar, eink- um smíði ísbrjóta og skemmtiferðaskipa, og sum svið rafeindatækni. Atvinnutæki og framleiðsluhættir í margs- konar léttiðnaði eru langt á eftir tímanum. Landbúnaður er víða enn verr á vegi stadd- ur. Hugmyndin með því að drífa saman í rík- isstjórn tvo stærstu flokkana, hægri menn og sósíaldemókrata, er að hún eigi styrk til að koma Finnlandi yfir örðugan aðlögunar- tíma, sem verður að vera undanfari, ef það á að hasla sér völl með varanlegum hætti meðal hátæknivæddra landa. Til að koma á stjórnarsamstarfinu við sós- íaldemókrata, gaf Holkeri forsætisráðherra fyrirheit um að koma á, með lagasetningu ef þörf krefði, ýmsum fríðindum fyrir laun- þega. Samtök atvinnurekenda hafa tekið þessi atriði stjórnarsáttmálans óstinnt upp, og mótmæla því að gripið sé með lögum á viðfangsefnum, sem að réttu lagi eigi heima á samningsborðinu milli aðila vinnumarkað- arins. Nýja stjórnin á eftir að lenda í mörgum slíkum útistöðum, ef að líkum lætur. 32 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.