Helgarpósturinn - 07.05.1987, Side 34
MATKRAKAN
Þarmaflóran, hvad?!
Er það svo, að þú getir ekki farið út í búð
án þess að fylla alla vasa af súkkulaði eða
öðrum sætindum? Veistu kannski ekkert
betra en að úða í þig súkkulaði og lakkrís og
svolgra með nokkur glös af ískaldri mjólk?
Ferðu kannski margar ferðir út í sjoppu á
dag?
Þambarðu mikið af gosdrykkjum og kaffi?
Færðu oft óstjórnlega löngun í ákveðnar
drykkjar- og/eða fæðutegundir þótt þú sért
alls ekki svangur?
Ertu kannski ferlega stressaður og átt erfitt
með að einbeita þér?
Þjáistu ef til vill af kláða og/eða ofnæmi?
Vaknarðu þreyttari að morgni en þú dast
út af að kveldi?
Áttu erfitt með að hemja áfengisdrykkj-
una?
Flökrar stundum að þér að þú sért kominn
með forstigseinkenni eyðni af því að þér
finnst slenið, hausverkurinn, „stingirnir" og
þreytan sem hrjá þig „ekkert eðlileg"?
Reyndirðu kannski hvítvínskúrinn, sem
mælt var með í síðasta pistli til að hressa þig
við eftir fúkkalyfjameðferð, en hann dugði
ekki til?!
Hefurðu iðulega á tilfinningunni að eitt-
hvað sé „að“ þér, þú bara veist ekki hvað?
Ef þú svarar svo sem eins og þremur af
framangreindum spurningum játandi er ekki
ósennilegt að þarmaflóran sé í ólagi. Þarma-
flóran hvað?! heyri ég nú sjoppufríkin æpa
upp yfir sig svo að samlokan eða Freyju-
draumurinn stendur í þeim.
SVEPPASÝKING AF VÖLDUM
FUKKALYFJAATS
Jú, þannig er mál með vexti að óhófleg
notkun fúkkalyfja frá því í stríðslok hefur
valdið því að mótstöðuafl Vesturlandabúa
gegn hvers kyns kvillum fer þverrandi, eink-
um sökum þess að eftirmedferö hefur skort.
Vissulega hafa fúkkalyfin bjargað ófáum
mannslífum, t.d. þegar heilahimnubólga á í
hlut, en hérlendis sem víða erlendis hefur
verið alltof algengt að skrifa sjálfkrafa upp á
fúkkalyf um leið og fólk fær hnerra eða hósta
og þar með er dregið úr möguleikum líkam-
ans á því að vinna sjálfur á sjúkdómum, sem
er affarasælast.
fnntaka fúkkalyfja hefur nefnilega ýmsar
aukaverkanir í för með sér, þótt oftast séu
þær látnar liggja í þagnargildi. Hún veikir
t.d. starfsemi þarmaflórunnar umræddu sem
svo aftur veldur því að líkaminn vinnur ekki
úr fæðunni sem skyldi. Hér munar mestu um
að iifrin fær ekki rétta næringu og getur því
ekki myndað nægilega öflug mótefni gegn
sjúkdómum, þ.á m. Afríkuveirunni. 1 því
sambandi er rétt að undirstrika að smokka-
notkun er engin allsherjar vörn gegn eyðni,
heldur ber mönnum ekki síður styrkja
ónæmiskerfið: efla mótefnaframleiðslu lifr-
arinnar með góðri C- og E-vítamíninntöku,
og með því að koma blessaðri þarmaflór-
unni í lag. Til að koma henni í jafnvægi eftir
fúkkalyfjaát er sérstaklega mælt með inntöku
ákveðins dufts, Acidofilus Plus, sem er hrært
út í volgu vatni. Hér er um að ræða blöndu
úr þurrkuðum appelsínusafa, þrúgusykri og
ýmsum frostþurrkuðum gerlum, t.d. hinum
fræga Lactobacillus bulgaricus. (Fæst t.d. í
Heilsuhúsinu við Skófavörðustíg og Heilsu-
markadnum Hafnarstræti.
En þar með er ekki öll sagan sögð. Hið
gegndarlausa fúkkalyfjaát hefur hrundið af
stað nýjum faraldri, sveppasýkingu, sem nú
er mjög til umræðu á Vesturlöndum, einkum
í Bandaríkjunum og á Bretlandi. Bretar telja
að a.m.k. fimmti hver maður þar í landi sé
með sveppasýkingu af fúkkalyfjaáti. Hún
lýsir sér svo að neikvæður sveppagerill,
Candida albicans, öðru nafni tásveppur eða
þruskusveppur, nær yfirhöndinni í smá-
þörmunum og veldur þar sýkingu. Einkenn-
in eru svo eitthvað í líkingu við það sem að
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur
framan greinir: mikil þörf fyrir orkuríka
fæðu og mikil matarþörf yfirleitt sem m.a.
kristallast í stöðugri sókn i kolvetni, mjólkur-
og gosdrykkjaþamb. Sé sýkingin á alvarlegu
stigi getur hún haft í för með sér kláða í húð,
bólumyndanir, jafnvel exemissár og ofnæmi
fyrir öllu milli himins og jarðar. Þá hefur
þessi tegund sveppasýkingar undantekning-
arlaust í för með sér að blóðsykurinn minnk-
ar, en það veldur svo aftur streitu og lélegri
einbeitingu (og helst í hendur við kolvetnis-
sóknina miklu). Hin alvarlegri stig sýkingar-
innar fela nefnilega í sér að sveppurinn sáir
sér út í blóðið í formi sveppaspora og dregur
enn frekar mátt úr fólki.
BLÓÐHREINSUNARKÚR
Helsti heimildarmaður minn í þessum efn-
um, Olafur Sveinsson hrossabóndi og hómó-
pati, telur að allt að annar hver íslendingur
þjáist af framangreindri sveppasýkingu í ein-
hverjum mæli. (Það er heldur ekki einleikið
að þessi þjóð skuli eiga heimsmet í sykur- og
sætindaáti!) Að mati Ólafs er besta ráðið til
að hreinsa sveppasporana úr blóðinu að efla
mjög mótefnaframleiðslu lifrarinnar eins og
að framan greinir. Til þess eru fjallagrös
einkar vel fallin, segir hann. En þau þarf að
taka inn á sérstakan máta ef þau eiga að
koma að gagni í þessu tilliti. Hér á eftir fer
uppskrift Ólafs að fjallagrasakúr til blóö-
hreinsunar:
Sjóðið 10 g af fjallagrösum í 8 dl. af vatni
í 6 mínútur. Síið soðið frá og geymið. Takið
svo inn á fastandi maga 1 dropa af soði í 20
ml. af vatni í 7 daga. Hættið þá inntökum í 7
daga, en takið svo inn 1 dropa af soði í 30 ml.
af vatni í aðra 7 daga.
Ef einungis er um að ræða sveppasýkingu
í þörmum telur Ólafur ráðlegast að drekka 1
dl. af fjallagrasasoði daglega í eina viku.
Og þá er ekki eftir neinu að bíða með að
hreinsa sig af þessum óþverra, bæði til að
auka almenna vellíðan, svo og framleiðni í
landinu. Ekki veitir nú af!
FJALLAGRÖS GEGN EYÐNI
íslensk fjallagrös eru enda viðurkennd
sem einstaklega holl og vítamínauðug fæða.
Þar ber nútíma læknavísindum saman við
margra alda reynslu fólksins í landinu, þá
reynslu sem sumir hafa þó viljað kalla „kerl-
ingabækur". Lækningamætti fjallagrasanna
er lýst svo í bók Björns L. Jónssonar, íslensk-
ar lœkninga- og drykkjarjurtir:
„Styrkjandi, barkandi, hægðamýkjandi,
blóðhreinsandi, ormdrepandi. Góð við
hægðatregðu, uppþembu, lystarleysi, kraft-
leysi, blóðsótt; einnig við niðurgangi. Seyðið
er gott við kvefi og hósta, blandað hunangi.
Af teinu drekkist 1 bolli tvisvar á dag. Fjalla-
grösin eru efnarík og nærandi; í þeim eru
40—70% kolvetni, eða álíka og í kornmat;
auk þess slímefni, sem verka vel á magann
og meltinguna."
Og þar sem fjallagrösin efla mjög mótefna-
framleiðslu lifrarinnar sem svo aftur styrkir
ónæmiskerfi líkamans, ætti HP að vera
óhætt að auglýsa ekki bara smokkinn gegn
eyðni, heldur jafnframt: Fjallagrös. Þau
gœtu reddaö þér! HP gegn eyöni.
Og látúm nú þúsund þarmaflórur blómstra
með vorinu....!
HVAB ÆTLAR Þð AD GERA UM HELGINA?
HAUKUR SIGHVATSSON
prentari
Ég geri fastlega ráö fyrir þvíaö horft veröi
á söngvakeppni Evrópu í sjónvarpinu á laug-
ardagskvöldiö. Auövitaö vonar maöur aö
íslenska lagiö spja ri sig, en ég er satt aö segja
ekkert bjartsýnn og spái því aö þaö lendi um
þaö bil í miöjunni. Nú spá einhverjir ómark-
tœkir veöbankar laginu fimmta sœti en lagiö
er bara ekki þaö golt, þaö er má segja sœmi-
lega gott en ekkert sérstakt. Nú, auk þess aö
vera prentari þá spila ég á trommur í hljóm-
sveitinni Ármenn og viö spilum á balli á
Hótel Örk í Hverageröi um helgina. Og efvel
viörar þá fer ég örugglega í golf. Ég kalla mig
mjög áhugasaman, en ef konan mín vœri
spurö myndi hún örugglega kalla mig for-
fallinn golfsjúkling!
STJÖRNUSPÁ
HELGINA 8.-10. MAÍ
nmmnnmammtmt
Föstudaginn skaltu nota til þess að reyna að bæta
fjárhaginn. Þú færð nefnilega tækifæri til að sýna öðr-
um hvað í þér býr. Löng ferðalög eða samskipti yfir lang-
ar vegalengdir geta verið jákvæð fyrir rómantíkina á
laugardag. Þú verður þá jafnvel enn meira aðlaðandi en
venjulega og gætir lent í nýjum ástarsamböndum. Þú
skalt slðan varast alla ákvarðanatöku á sunnudag.
Þú skalt ekki halda að einhver sé að gefast upp fyrir
þér, því þú hefur sjaldan verið ímeiri vanda. Sannleikur-
inn er hins vegar einnig sá, að frelsið bíður þín innan
nokkurra vikna. Það er óborganlegt. Þú ert núna með
hugann við hluti, sem þú veltir yfirleitt ekki mikið fyrir
þér. Heilbrigð skynsemi hlýtur hins vegar að segja þér
að leysa ákveðin praktlsk vandamál áður en langtfma-
áætlanir verða að veruleika.
TVIBURARNIR (22/5-21/61
Þú hefur lært af reynslunni, þó svo það hafi ekki verið
tekið út með sældinni, og nú er tími til kominn að fá
hlutina á hreint I eitt skipti fyrir öll. Notaðu bremsurnar
og sýndu hvað þú getur verið fastur fyrir. Þú hefur látið
aðra ganga of langt I einkalífi og fjármálum og ef þú ger-
ir ekki eitthvað I málinu núna, verða vandamálin enn
verri síðar á árinu.
Föstudaginn skaltu nota til hvers kyns félagslífs.
Hittu fólk og brjóttu hefðir og venjur. Forðastu samt allt
leynimakk og ekki fara illa með þig, ef þú ert kvefaður.
Hvers kyns listsköpun mun ganga vel á laugardag og
hann er einnig mjög heppilegur á rómantíska sviðinu.
Notaðu daginn þann einnig til þess að tala alvarlega við
ástvin umframtíðina.Á sunnudaginngætirðuhinsveg-
ar lent I alvarlegum fjölskylduerjum.
Þú ert að upplifa minnisstætt og gefandi tlmabil,
bæði tilfinningalega og I vinnunni, en stjörnurnar eiga
eftir að koma þér á óvart enn einu sinni. Og það sem
þú kemst að núna, eftir ýmsum krókaleiðum, gefur
vissulega tilefni til þess að halda upp á heppnina. Þetta
er góður tími til að ræða langtímaáætlanir og þú hefur
þann kjark, sem nauðsynlegur er til að takast á við erfið
mál. Reyndu að deila ábyrgð I vinnunni til tilbreytingar.
Mundu að fæst orð hafa minnsta ábyrgð, jafnvel þó
svo þér finnist einhver komast létt frá hlutunum. Innan
skamms verður þú laus við það, sem Iþyngir þér núna.
Þú munt eiga auðvelt með að takast á við vandamálið,
'hvers eðlis sem það er. Um 13. maí geta orðið miklar
breytingar I einkallfinu og það eru fáar Meyjur, sem ekki
hafa einhvers konar flutninga eða ferðalög á prjónun-
i..i n i n miii—
Áhyggjur þínar aukast á föstudag, en þú ættir ekki að
setja neitt leyndarmál á blað. Laugardagurinn gæti hins
vegar orðið afdrifaríkur í ástarmálunum og skyndibind-
ingar leitt til endingargóðra hjónabanda. Þér gengur þá
líka öll samvinna vel. Á sunnudag gætu svo ýmis Ijón
verið I veginum, t.d. andstaða maka við áform þln. Þú
skalt ekki treysta á að fá mikla aðstoð.
SPORÐDREKINN (23/10-22/11
Þú kannt að þurfa að reiða fram fé vegna vina þinna
eða vandmála þeirra á föstudag. Dagurinn er annars
heppilegur til hvers kyns samneytis við vini og félaga,
ef peningamál blandast þar ekki inn I. Á laugardag ættir
þú hins vegar að leggja rækt við ástarsamband. Það
verður notalegur dagur, þó ef til vill ekkert krassandi.
Varastu að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við á
sunnudag.
BOGMAÐURINN (23/11-21/12;
Þú þarf kannski að endurmeta gamalt samband, en
reyndu þó ekki að þvinga neitt upp á yfirborðið áður en
rétti tíminn er runninn upp. Ákveðið samband, sem hef-
ur verið vægast sagt kuldalegt upp á slðkastið, verður
örlítið hlýlegra um skeið. Njóttu þessog notaðu tlmann
til þess að ræða um breytingar I framtíðinni. Tryggð
ákveðins aðila ætti að sanna fyrir þér hve þú ert hepp-
inn og tilfinningalega öruggur.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Notaðu föstudaginn til að skipuleggja sumarfríið, þvl
uppástungur þlnar fá góðar undirtektir. Þú þarft hins
vegar að sinna núverandi verkefni [ vinnunni af meiri ná-
kvæmni og þolinmæði. Laugardagurinn er heppilegur
I ástarmálum, þar sem annar aðilinn er töluvert yngri en
hinn. Fjölskyldumeðlimir standa (vegi fyrir einhverjum
áætlunum þlnum á sunnudag og þú kannt að þurfa að
taka afdrifaríka ákvörðun.
VATNSBERINN (22/1-19/2
Ef einhver yfirboðari þinn virðist llklegur til að ræða
langtímasamninga á föstudag, skaltu losa þig undan
öllum öðrum skuldbindingum. Þú ert nú I þeirri að-
stöðu að geta létt af þér töluverðum áhyggjum. Láttu
ekki aðra halda aftur af þér, heldur takstu á við eitthvað
spennandi. Notaðu lika fyrri reynslu, jafnvel vonbrigði,
þér til framdráttar og láttu ekki glepjast af fögrum lof-
orðum, sem þú hefur heyrt áður.
Núna snýst allt um tilfinningasambönd og á næstu
dögum hefurðu lítinn tíma fyrir annað en það, sem
snertir hamingju þína og öryggi i framtiðinni. Notaðu
laugardaginn til að slaka á og mundu að yfirstandandi
erfiðleikar eru yfirstiganlegir. Ekki ganga endanlega frá
mikilvægri ferðaáætlun nema þú vitir að ástvinur þurfi
ekki áaðstoð þinni að halda.
34 HELGARPÓSTURINN