Helgarpósturinn - 07.05.1987, Blaðsíða 37

Helgarpósturinn - 07.05.1987, Blaðsíða 37
NÆRMYND stráka og stelpna. Samstúdent hans annar minnist þess ekki að hann hafi viðrað hug sinn til stjórnmála, hann hafi fremur leitt allt slíkt hjá sér og þau eru sam- mála um að hann hafi ekki verið mikill töffari eða sýnt neina til- burði í þá átt. Hann hafi fyrst og síðast verið ljúfur og almennilegur og sem slíkur sé hann eftirminni- legur en ekki vegna þess að hann hafi skorið sig úr í hinu daglega amstri. Stuðmenn, hljómsveit allra landsmanna til sjávar og sveita, sleit barnsskónum í MH og voru þeir Valgeir og Jakob helstu forvígismenn hennar og eru þeir einu sem hafa verið með frá blábyrjun. Þeir gerðu í því að vera púkó og voru fyrst og fremst gleðiband, enda segir einn af heimildarmönnum að það haf; ekki verið nein furða þar sem saman hafi farið skáti og fram- sóknarmaður. Valgeir tók þátt í fleiri hljóm- sveitum innan veggja skólans sem flestar áttu það sameiginlegt að vera stofnaðar til að koma einu sinni fram og deyja síðan drottni sínum. Fæstir þeir sem rætt var við sögðust þó hafa átt von á að Valgeir gerðist poppari að at- vinnu, þó margir haldi því líka fram að hann og hinir Stuðmenn- irnir hafi haft eitthvað sem gerði þá öðruvísi og væri líklegt til að verða þeim vegsauki þegar fram liðu stundir. Ágúst Atlason, sem var með Valgeiri í hljómsveitinni Complex í Réttarholtsskóla, sagði þó að ferill Valgeirs hefði ekki komið sér á óvart en ÞórdurÁrna- son, gítarleikari Stuðmanna og félagi Valgeirs frá barnæsku, sagði að hann hefði talið líklegra á menntaskólaárunum að Valgeir yrði lögfræðingur eða hagfræð- ingur, endaði jafnvel í einhverju ráðuneyti sem embættismaður. Spilverk þjóðanna, sem kall- að var guðsgjöf til íslensku þjóðarinnar þegar það kom fram, varð líka að einhverju leyti. til í MH, þó fæðingarhríðir þess og gerjunartími hafi verið miklu lengri en Stuðmanna. Spilverkið var reist á öðrum grunni en Stuð- menn og segja má að þar hafi komið fram hin hliðin á Valgeiri, ljúf og þægileg lög með snarpóli- tískum textum sem var andstæða galgopaháttar Stuðmanna. Hann hefur þannig óneitanlega sýnt á sér tvær hliðar sem tónlist- armaður, annarsvegar grínið og glensið í kringum Stuðmenn og hinsvegar alvöruna og ljóðræn- una í Spilverkinu. Hann hefur sýnt með Stuðmönnum að hann er húmoristi góður. Árni Vilhjálms- son, frændi hans og félagi til margra ára, segir reyndar að húm- orinn miðist fyrst og fremst við að gera grín að sjálfum sér og sínum líkum. Hann sé sjaldnast fyndinn á kostnað annarra. Valgeir hefur líka sýnt á sér aðra hlið, hlið sem mörgum finnst ein- lægari, þ.e. í Spilverkinu þar sem tekin var afstaða, oftast með því að varpa nýju ljósi á fyrirbærin sem fjallað var um, til margra mik- ilvægra mála og af þeim verkum hlýtur hann að dæmast sem mað- ur sem hefur lagt skerf til þjóð- félagsumræðunnar. Hann virðist oft vera fjarrænn en náinn ættingi bendir á að hann tali aldrei um sjálfan sig berum orðum. Það er hans stíll að tjá sig undir rós. Hann hefur ekki gert það á hefðbundinn hátt, frekar en annað sem hann gerir. Það er þó einkenni á öllu sem eftir hann liggur að á bak við liggur metnaður og mikil vinna og sjálfskrítík sem hefur að sögn ná- kunnugra alltaf fylgt honum. Valdahlutföllin í þessum tveim- ur hljómsveitum — Stuðmönnum og Spilverkinu — hafa aldrei verið ljós en þáttur Valgeirs er stór og sjálfstraust hans mikið, svo mikið að hann sést oft ekki fyrir í að koma sínum hugmyndum á fram- færi, sagði einn viðmælandi og annar bætir við að hann komi sín- um hugmyndum alltaf í gegn, bara á sinn mjúka hátt. Hann hefur samið mikið af þeirra lögum og textum og um það segir viðmæl- andi: Hann hefur samið eitt og eitt gott lag en þau eru ekki mjög frumleg öll. Hann er alltaf að, en það er spurning hversu djúpar hugmyndirnar eru. Valgeir lauk stúdentsprófi 1972, eins og lög gerðu ráð fyrir og næstu ár hans fóru mestanpart í músíkina, fyrst í Stuðmenn og um miðjan áttunda áratuginn og fram eftir í Spilverk- ið. Báðar þessar sveitir nutu gríð- arlegra vinsælda en þrátt fyrir þá velgengni var hart að Valgeiri lagt að leggja á menntabrautina. Guð- rún Þorvarðardóttir minnist þess að innan Hánefsstaðaslektisins, eins og þau kalla sig sjálf, hafi ver- ið deildar meiningar um þessar músíktilraunir drengsins og flestir hafi raunar bara beðið eftir því að þetta eltist af honum, hann myndi hætta þessu og fara í nám og verða mætur borgari. Popparar nutu enda ekki mikillar virðingar á þessum árum þó að tilkoma Spil- verksins og Megasar hafi breytt í nokkru þessu áliti manna. Valgeir reyndi fyrir sér á ýmsum sviðum í Háskólanum á þessum ár- um en varð lítt ágengt. Hann byrj- aði á viðskiptafræðinni en vék þaðan eftir fáa daga og mun föður hans hafa sárnað það verulega en móðirin hinsvegar staðið fast að baki honum, eins og hún reyndar hefur gert í hverju sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. Það var fleira sem faðir hans var ekki ánægður með á þessum ár- um, því Guðjón var mikið íhald og gat illa þolað að Valgeir skyldi verða vinstri sinnaður og fara að setja fram skoðanir í þá átt. Var reyndar ekki annars að vænta því þegar Valgeir var barn var hann mjög ákafur sjálfstæðismaður og í fjölskylduboðum reifst hann við hina krakkana úr þessari miklu framsóknarætt um pólitík og gaf sig hvergi þrátt fyrir liðsmuninn. Leiðin lá svo í jarðfræði, ásamt Siguröi Bjólu, en þeir félagar sáu einnig fljótlega að það var ekki fag við þeirra hæfi. Valgeir var síðan einn vetur í ensku, þó hann lyki ekki prófum um vorið. Þegar hann var í hópi félaga sinna í enskunni átti hann til að hlaupa út í bíl og ná í gítarinn og setjast síðan út í horn og slá einhverja hljóma með djöf- ullegt glott á vör, eftir því sem Sig- rún Hardardóttir man, en hún var samtíða honum í enskudeildinni. Hún minnist hans einnig fyrir sér- staka góðmennsku, velvild og hjálp sem hann veitti gjarna óbeð- Iámsferli Valgeirs var þó ekki lokið því 1978 tók hann sig upp ásamt fjöl- skyldu sinni sem hann var þá bú- inn að stofna með Ástu K. Ragn- arsdóttur, og fór til Noregs og nam Þetta er Ijúflingur fyrst ocj fremst, elskulegur, ærslafengmn og hrekklaus. Laus við alla flærð og undirhyggju. Hann var barnið sem sagt var um: mikið er hún heppin með drenginn. Hann hefur mikið og gott sjúlfs- traust oa það eru engar nagandi efasemdir sem geta truflað sköp- unargleðina. Hann er ofsalega góður i fótbolta. Eldfljótur, ókveðinn, markheppinn og mikill keppnismaður. Hann er samt drencjlyndur og heiðarlegur. Þetta gildir líka um allt annað i hans lífi. Hann hefur samið eitt og eitt gott laa en þau eru ekki mjög frumleg ölfl Hann er alltaf að, en það er spurning hversu djúpar hugmynd- irnar eru. Hann talar aldrei um sjálfan si berum orðum. Það er hans still a tjá sig undir rós. þar félagsráðgjöf. Guðrún Frí- mannsdóttir, félagsráðgjafi á Ak- ureyri, var þar samtíða honum og segir að hann hafi verið duglegur í náminu, þó annar sem þar var á sama tíma segi reyndar að Valgeir hafi tekið það svona hæfilega alvarlega. Þau eru sammála um það, Guðrún og Þorsteinn Már Balduinsson framkvæmdastjóri Samherja á Akureyri, en hann var í Þrándheimi á sama tíma, að Val- geir hafi verið þægilegur í um- gengni og skemmtilegur á allan hátt. A samkomum Islendinga- félagsins var hann hrókur alls fagnaðar og reyndar í skólanum líka, en þar kom hann gjarna fram með gítarinn og söng Ríðum, ríð- um við ýmis tækifæri. Hinsvegar lét hann Norðmennina aldrei vita að hann væri einn af fremstu poppurum íslands og barst aldrei neitt á af þeim sökum eftir því sem samlandar hans og félagar þar ytra sögðu. Til þess var þó tekið af öðrum íslendingum á þessum tíma að Valgeir þótti ekki vera sérlega lag- inn við Saab-bifreið sem þau hjónaleysin áttu og mundu menn að hann hefði sennilegast eytt í að lesa viðgerðaleiðbeiningabók sem honum fylgdi, meiri tíma en nokkra aðra bók. Hann þótti ekki mjög tæknilega sinnaður og kunn- ingjar þeirra bentu á að ef þyrfti að bjarga einhvefju með skrúfjárni á heimilinu, þá sæi Ásta sambýlis- kona hans um það. Þegar náminu lauk vann Valgeir um sinn í Noregi en eitthvað mun honum hafa líkað sú vinna illa og kom heim og gerðist forstöðumaður Ársels, félagsmiðstöðvar ungl- inga. Þar var hann afar vel liðinn og Ómar Einarsson hjá Æskulýðs- ráði sagði að þeir hefðu verið mjög vonsviknir að missa hann þegar hann ákvað að hætta til að endurvekja Stuðmenn. Hann átti auðvelt með að umgangast ungl- ingana og var mjög vinsæll í þeirra hópi og ekki síður í hópi samstarfsmanna sinna eftir því sem Ómar sagði. Sigríður Gudjónsdóttir, systir Valgeirs sem m.a. vann með hon- um um tíma í Árseli, segir að sá tími sem Valgeir vann í Arseli hafi verið undarlegur fyrir hann því að hann hafi ekki sinnt músíkinni og þessvegna ekki fundið sig. Þegar Valgeir snýr síðan frá fag- inu og aftur í faðm Stuðmanna og poppsins er löngu tímabili upp- reisnar lokið. Hann hefur gert upp við sig endanlega að hann ætli að vera músíkant og ekkert annað. Guðrún Þorvarðardóttir, frænka hans, segir að fjölskyldan sé alveg búin að sætta sig við að hann sé poppari að atvinnu. Hann sé elsk- aður og dáður innan Hánefsstaða- slektisins en verði auðvitað að standa fyrir sínu sem poppari og gera góða hluti eins og aðrir. Ferill Valgeirs, bæði opinber- lega og í einkalífinu, er því svo sannarlega ekki þyrnum stráður, hann er afburða vinsæll innan fjölskyldu sinnar, sem popp- ari og ekki síður á öðrum stöðum þar sem hann hefur unnið við ým- is verkefni á síðastliðnum árum. Hann hefur komið sér vel við alla sem hann hefur fyrirhitt á lífsleið- inni og virðist eiga erindi til allra aldurshópa, stétta og sviða mann- lífsins. Gunnar Steinn Pálsson, sem unnið hefur með Valgeiri að auglýsingagerð á undangengnum misserum segir um hann að hann sé afburða snjall, eldfljótur að vinna og snöggur að upphugsa melódíur sem hitta í mark. Það sé nánast hægt að ganga að því vísu að ef Valgeir er fenginn til að semja músík við auglýsingu þá hitti hún í mark og hann heldur áfram: Hann er ofsalega góður í fótbolta. Eldfljótur, ákveðinn, markheppinn og mikill keppnis- maður. Hann er samt drenglyndur og heiðarlegur. Þetta gildir líka um allt í hans lífi. Og Fridrik Hall- dórsson skrifstofustjóri hjá Iðn- tæknistofnun, en fyrir þá stofnun vann Valgeir kynningarverkefni fyrir grunnskóla, sagði að sam- vinnan við hann hefði verið mjög góð, reyndar svo góð að þeir hefðu beðið hann að taka annað verk- efni. Hann hefði unnið verkið óað- finnanlega og væri mjög hug- myndaríkur og það sem hann var að gera hefði fallið í mjög góðan jarðveg hjá krökkunum. Þorgeir Ibsen fyrrum skólastjóri Lækjar- skóla, en þar kenndi Valgeir með háskólanáminu, sagði að hann hefði verið ágætur kennari, hefði reyndar getað lagt það fyrir sig með miklum ágætum. Hann hafi verið ljúfur í umgengni, samstarfs- lipur en um leið frískur og fjör- ugur. Skólabróðir hans einn hafði þetta að segja um persónuleika Valgeirs: Þetta er ljúflingur fyrst og fremst, elskulegur, ærslafeng- inn og hrekklaus. Laus við alla flærð og undirhyggju. Valgeir hefur vakið athygli fyrir jákvæðni og bjart- sýni og hann á auðvelt með að sjá spaugilegu hliðina á til- verunni og þá ekki á þann veg sem flestum er tamast, heldur ein- mitt svolítið á skjön við alla aðra. Einn sagði að hann væri ólíkur öðrum poppurum, stælalaus og þægilegur og að hann hefði óvenjulega hæfileika til að gera annars alvarlegt efni aðgengilegt á skemmtilegan hátt, án þess að það tapaði gildi sínu. Hann kynni að spila á línunni milli alvöru, láta- láta og háðs sem sýndi að hann væri enginn væminn asni. Allir sem rætt var við voru sammála um að hann hefði alls ekkert breyst síðan hann var lítill strákur, hann væri ennþá sami yfirlætis- lausi, hægláti pilturinn sem öllum líkaði vel við, jafnt ungum og öldn- um, frægðin og framinn hefðu engin áhrif haft á prúðmennskuna og kurteisina. Hann hefur haft lag á að varðveita barnið í sér að margra áliti og eins og einn heim- ildarmaður orðaði það, þá er hann stundum allt að því bernskur í háttum í jákvæðri og góðri merk- ingu þess orðs. I seinni tíð hefur honum aukist sjarmi að margra mati og hann laðar að sér konur á öllum aldri, hann sjarmerar gamlar kerlingar og ekki síður yngri konur sem, eins og einn orðaði það, laðast allt að því ósæmilega að honum. Fyrir skemmstu skemmti hann gamla fólkinu í Nes- kirkju og þar fékk hann alla til að slá teskeiðunum í bollana í takt við músíkina og þegar hann skemmti yngstu kynslóðinni á Andrésar Ándar leikunum á Akur- eyri í vetur, hafði hann 450 börn, á aldrinum 3—12 ára, í vasanum og lét þau öll syngja með sér. Þessi fjöldi er þó ekki mikill, miðað við það þegar hann hefur stjórnað sjö þúsund manns á útihátíðum í Atla- vík og fengið allan þann fjölda til að gera ýmsar hundakúnstir. Hann er stemmningarmaður, öðr- um betri í að finna og nýta þá stemmningu sem ríkir hverju sinni. I Atlavík ’85 höfðu móts- haldarar áhyggjur af því að fólk myndi ef til vill drepast úr kulda, ef það dæi brennivínsdauða á víða- vangi og fundu engar leiðir til að benda ölvuðum æskulýðnum á þessa hættu. Valgeir leysti málið í snarhasti, hann sagði bara við krakkana að það væri skylda að minnst tveir færu í hvern svefn- poka um nóttina. Engin predikun, heldur talað til fólksins á tæpi- tungulausu máli sem það skildi. HELGARPÓSTURINN 37

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.