Helgarpósturinn - 07.05.1987, Síða 39
FRÉTTAPÓSTUR
Stjómarmyndun — þreifingar
Forseti Islands hóf að kalla formenn og aðra fyrirsvars-
menn flokkanna á sinn fund í dag. Þá voru liðnir ellefu dag-
ar frá þvi kosningaúrslit lágu fyrir. Fyrstur fór Steingrimur
Hermannsson og síöan aðrir, koll af kolli. Forsetinn mun
ljúka yfirferðinni á Stefáni Valgeirssyni, seinnipartinn á
morgun.
Eftir kappsamar þreifingar strax eftir kosningar tók að
draga úr þeim er líða tók á vikuna. Jón Baldvin Hannibals-
son var enn sem fyrr kappsamastur. Jón reyndi enn fyrir
sér með myndun viðreisnarstjórnar með þátttöku Kvenna-
listans, en konurnar drógu hann á svarinu. Þá kom nýsköp-
unarstjórn upp og Jón tók að þreifa á Alþýðubandalaginu.
Þaer umræður hafa enn ekki borið sýnilegan árangur.
Aðrir stjórnmálaforingjar haf a ýmist látið lítið yfir sínum
þreifingum, eða hreinlega neitað því að vera i ríkisstjórnar-
hugleiðingum.
Eftir að Þjóðhagsstofnun birti nýjar upplýsingar um
efnahagsástandið og forsetinn hefur rætt við forsvarsmenn
flokkanna má hins vegar búast við að meiri alvara hlaupi í
umræðurnar.
Fóstrur draga aftur uppsagnir
Fóstrur á dagheimilum Eeykjavíkurborgar samþykktu á
fundi sl. sunnudag að gangast inn á kjarasamkomulag sem
Starfsmannafélag Reykjavíkur og borgarstjóri höfðu náð
saman um. Samkomulagið var samþykkt með 107 atkvæð-
um gegn 51 og felur í sér um 37.500 króna lágmarkslaun, en
fóstrur höfðu barist fyrir 40.000 króna lágmarki. Mestur
styr stóð um svokölluð sérmál fóstra, sem meðal annars
vildu fá samþykktar kröfur um deildarfóstruheiti og að
námskeið yrðu metin til launa. Formaður Starfsmannafé-
lagsins hefur heitið fóstrum þvi að deildarfóstrukrafan
verði komin í höfn um næstu áramót, en námskeiðakrafan
náðist ekki fram. Hins vegar var samþykkt krafa um fjölg-
un yfirfóstra, um fjölgun starfsmannafunda, vilyrði fyrir
launuðum námsleyfum auk launahækkunarinnar, sem er
tveimur launaflokkum betur en Starfsmannafélagið sam-
þykkti fyrir aðrar stéttir nýlega. Fóstrur samþykktu þetta
en voru óánægðar með vinnubrögð formanns Starfsmanna-
félagsins og borgarstjóra, sögðust hafa tapað orrustu fyrir
karlaveldinu í Reykjavík. Samkomulagið mátti ekki tæpara
standa, því mikill fjöldi barnaheimila hefði lokast mánu-
dagsmorguninn ef um S00 fóstrur í Reykjavík hefðu haldið
uppsögnum sínum til streitu.
Útvegsbanki íslands hf.
Útvegsbanki íslands hf. opnaði sem hlutafélagsbanki s.l.
mánudag. Fyrirhugaðar eru margvíslegar breytingar á
starfsemi bankans. Rætt hefur verið um að gera útibúin
sjálfstæðari, skipta bankanum í smærri rekstrareiningar
og stofna veðdeild við bankann. Nýr bankastjóri er tekinn
til starfa í bankanum, Guðmundur Hauksson, en hann
starfaði áður sem sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Hafnarfjarð-
ar. Nýtt bankaráð er tekið tll starfa í bankanum, en formað-
ur þess er Gísli Ólafsson. Bankastjórarnir Ólafur Helgason,
Lárus Jónsson og Halldór Guðbjarnason hafa allir látið af
störfum. Þær breytingar sem nú verður hrundið i fram-
kvæmd af nýju bankaráði og nýjum bankastjórum voru
undirbúnir af þeim aðilum sem nú hafa hætt störfum hjá
Útvegsbankanum. Hefur undirbúningur þeirra tekið eitt
ár.
Ársfundur í góðæri
Ársfundur Seðlabanka íslands var haldinn í fyrradag. í
ræðu Jóhannesar Nordal, sem flutti skýrslu bankastjóra á
fundinum, kom fram að hagur íslendinga stæði með mikl-
um blóma um þessar mundir. Varð seðlabankastjóra tíðrætt
um hvernig viðhalda mætti góðærinu og með hvaða hætti
mætti byggja upp íslenskt efnahagslíf á þeim grundvelli sem
búinn hefði verið til síðustu misseri. Athygli vakti að Jó-
hannes Nordal lagði áherslu á þörfina fyrir vaxtahækkun
til að hafa stjórn á peningamálum.
Fréttapunktar
• Valgeir Guðjónsson og Halla Margrét Árnadóttir, fulltrú-
ar íslands í Evróvisjón-keppninni í Brússel fóru utan á
mánudag með lagið „Hægt og hljótt". Keppnin er á laugar-
dag.
• Leiðsögumenn eru ennþá í verkfalli og virðist lítt þokast
í samkomulagsátt. Fyrsti stóri ferðamannahópurinn kom
til landsins i vikunni. Segulbandsupptökur eru notaðar í
rútum.
• Um 7000 kjúklingar drápust á bænum Jórvík í Árnes-
sýslu síðastliðið föstudagskvöld í miklum bruna sem þar
varð í útihúsum. Mönnum varð ekki meint af.
• 1. maí hátíðarhöldin fóru vel fram um land allt að þessu
sinni, en það var þó óvenjulegt við daginn að víða snjóaði og
óð göngufólk sumstaðar litla skafla með kröfuspjöldin sín.
• Dan Hanson sigraði á Helgarskákmótinu sem að þessu
sinni fór fram á Akureyri.
• Sjómann tók út af bátnum Lýtingi á laugardagsmorgun og
drukknaði. Maðurinn hét Viðar Ólafsson og lætur eftir sig
eiginkonu og 2 börn.
• Pétur Ásbjarnarson dvaldi á þaki Laugardalshallar í 300
klukkustundir samhliða heimilissýningu í höllinni.
Krýsuvikursamtökin stóðu að þessu uppátæki og var búið
að heita tæplega milljón á Pétur þegar hann kom niður á
jörðina s.l. sunnudag.
• Sigildar sögur, sem margir kannast við, eru nú komnar út
að nýju, en þessi ágætu teiknimyndablöð opnuðu mörgu
barninu fyrstu innsýn í heimsbókmenntirnar á sínum
tíma.
• Hjartasjúklingur lét lífið í fangageymslum lögreglunnar
í Reykjavík á laugardag. Málið er í rannsókn hjá RLR.
• Þjóðhagsstofnun upplýsti í vikunni að fjárlagahallinn
væri meiri en ráð var fyrir gert, sjá frekar Innlenda yfirsýn.
• Miklar deilur hafa staðið á Súðavík um sölu á fyrirtækinu
Frosta sem er eina atvinnufyrirtæki staðarins, sjá bls. 8 og
9.
BILALEIGAN
Langholtsvegí 109
(í Fóstbræöraheimilinu)
Sækjum
og sendum
Greidslukorta
þjónusta
Sími 688177
Smokkur
Hann gœti
reddaö þér
h»
GEGN EYÐNI
Við kynnum Manica-kjötiðnaðarvélarnar í
verksmiðju okkar Krókhálsi 6
föstudag 8. maí frá kl. 15—17
og laugardag 9. maí frá kl. 10—16.
HELGARPÓSTURINN 39