Tíminn - 01.12.1938, Síða 2
2
TÍMBVN, fimmtiidagiim 1. des. 1938
Fnllveldisdagsblag
Ntarf og bjartnýni
Varðveitíð sjálfstæðíð með starfi
úr hinni uppvaxandi kynslóð,
að hún teldi það ráð hyggileg-
ast, að spara við sig allar um-
bætur og setja markið ekki
hærra en það, að geta haldið
hinu ríkjandi ástandi nokkurn-
veginn óbreyttu. Hvaða afleið-
ingu þetta myndi hafa er nokk-
urn veginn hægt að gera sér
ljóst með því, að ímynda sér
að kynslóðin, sem mótað hefir
starf undanfarinna tuttugu ára,
hefði haft þetta sjónarmið.
Hún hefði vafalaust getað
sparað sér með því nokkurt
aukið erfiði í bili og ef til vill
losnað við eitthvað af sköttum.
En afkomendur hennar þyrftu
þá að verulegu leyti að stunda
sjósókn á árabátum, notast ein-
göngu við orf og ljá í gömlu
þúfnagjótunum, vera án bil-
samgangna, síma, útvarps o. s.
frv.
Þannig mætti lengi telja. En
hvaða dæmi, sem tekið væri,
myndi færa rök að því, að
kynslóð undanfarinna tuttugu
ára hafi lifaö á réttan hátt. Hún
hefir starfað mikið til að bæta
kjör sín og afkomendanna og
hún hefir mætt öllum erfið-
leikunum með bjartsýni og ör-
uggri trú á sjálfa sig og land-
ið, sem hún byggði.
Reynsla hennar sannar það
bezt, að æskan hefir enga á-
stæðu til að vera svartsýn, þó
nokkrar torfærur virðist nú á
veginum. Hún má einmitt vera
bjartsýn og trúuð á sigur sinn,
ef hún fylgir í sömu slóðina.
Það, sem henni ber að forðast,
er að láta vonleysishjalið og
örðugleikaskrafið leiða sig af
braut framfaranna eða láta
pólitiska trúða og misindis-
menn telja sér trú um að hún
geti öðlazt gull og græna skóga,
án verulegs starfs og fyrirhafn-
ar. Ef hún vinnur vel og mikið
og leitar sjálf eftir verkefnum
en bíður ekki eftir því að ein-
hver komi einhverntíma og vlsi
sér á þau, verður henni kleift
að varpa jafn glæstum ljóma á
fullveldi íslands og fyrirrenn-
ararnir hafa gert. Þess vegna er
sérstök ástæða fyrir æskuna að
minnast framfara fyrstu full-
veldisáranna í dag. Undirstaða
þeirra er starf og bjartsýni og
þessu tvennu má æskan aldrei
gleyma.
Þórarinn Þórarinsson.
Þessa dagana er, af eðlilegum
ástæðum, mikið talað um þjóð-
erni, frelsi og sjálfstæði á ís-
landi. Á tuttugu ára fullveldis-
afmælinu rifja menn upp bar-
áttuna, sem háð var lengi og
sleitulaust, fyrir kröfum og rétti
hinnar litlu þjóðar. Menn fagna
þeim tröllstígu framförum, er
átt hafa sér stað í landinu á
síðustu áratugunum tveim, þrátt
fyrir nokkurn mótblástur, og
miklast þó öllu meir hin ónumdu
starfssvið, hin óleystu verkefni.
Slíkt er gott ungum mönnum.
Annarsvegar er hið liðna með
harða og langvinna baráttu og
órækan sigur að lokum. í kjöl-
fal hennar fátíð framsókn þjóð-
arinnar. Hinsvegar öll þau verk-
efni, er bíða eftir vinnufúsum
höndum. Það er skírskotun
sjálfrar sögunnar til þess mann-
dóms, er með þjóðinni býr. Það
eru meginrökin fyrir þvi, að
þjóðinni ber að varðveita það
sjálfstæði, sem kostaði hana svo
langa baráttu að öðlast.
Þess er ekki að dyljast, að
nokkuð hefir mætt á móti, eink_
um síðustu árin. Örðugleikar
hafa steðjað að. Aflabrestur hef-
ir skert hlut sjómannsins, skæð
sýki valdið tjóni á búfénaði og
sölutregða hamlað eðlilegum
viðskiptum við útlönd.
Því hefir margur um skeið
orðið að snlða sér þrengri stakk
en ella. Víst hefði að sumu leyti
verið á betra kosið um árferði.
En myrkasti skugginn, sem yfir
hefir borið, er ef til vill, að
hjá sumum skortir á um skiln-
ing á eðlilegu sambandi milli
starfs og árangurs. Ofmargir
hafa reynt að bylta af sér byrð-
um,er þeim bar tvímælalaust að
bera. Of margir hafa viljað skor-
ast undan skyldunum og draga
til sín auðfenginn afla á annarra
kostnað. Hugir margra þjóðfé-
lagsþegna hafa hneigzt til þeirr-
ar áttar að gera látlausar kröfur
á hendur öðrum, samþegnum
sínum, atvinnuveitendum, sveit
og þjóðfélagsheildinni. Mörg
dæmi eru þess, að fólk flytji burt
frá dágóðum kjörum við fram-
leiðslustörfin til þess að lifa á
náðarbrauði úr annarra hendi.
Verkföll, sem misjafnlega rétt-
látlega er til stofnað og stundum
beint gegn atvinnurekstri, sem
stendur höllum fæti, hafa verið
tíð og er þess skemmzt að minn-
ast á síðastliðnum vetri linnti
Daníel Ágástínusson:
Fullveldið og áfengísmálín
Ungum Framsóknarmönnum
hefir þótt hlýða, að staldra lítið
eitt við á þessum tímamótum
og virða fyrir sér þann árang-
ur, sem náðst hefir á fyrstu
tuttugu árum fullveldisins.
Þótt yfirliti því, sem hér fer á
eftir sé að mörgu leyti ábóta-
vant, sýnir það glögglega, að
vinna og starfsárangur þjóðar-
innar á þessu tímabili hefir
verið meiri en nokkuru sinni
áður. Þess sjást allsstaðar
merki. Með ræktun landsins,
byggingunum, skipastólnum,
orkuverunum, verksmiðjunum
og menntastofnunum hefir
kynslóðin, sem mótað hefir
þjóðlífið á þessum árum, reist
sér minnismerki, er lengi munu
geymast og vera heilbrigðri
æsku hvatning til sóknar og
dáða.
í dag er það skylda hinna
ungu manna og kvenna að
minnast þessa mikla starfs með
þakklæti og hlýjum huga. —
Flestar þær framkvæmdir, sem
gerðar hafa verið á undanförn-
um árum, ganga sem arfur til
afkomendanna og gerir þeim
lífið þægilegra og erfiðisminna.
Bóndinn, sem hefir brotið og
ræktað landið, sjómaðurinn,
sem hefir sótt aflið til fram-
kvæmdanna í djúp hafsins, og
verkamaðurinn, sem hefir reist
hin miklu mannvirki, hafa unn-
ið að því að gera arf æskunnar
sem mestan. Og ekki aðeins
þeir, heldur allar þær þúsundir
manna og kvenna, sem lagt
hafa krafta slna fram til að
frjóvga og bæta landið, hafa í
flestum tilfellum unnið meira í
þágu niðjanna en sjálfra sin.
Kynslóðin, sem skilar þessum
mikla arfi, hefði ekki náð slík-
um árangri, ef hún hefði ekki
verið áhugasöm og starfsfús.
Hún hefði vel getað verið svo
lítilþæg að láta sér nægja það,
sem áður var, og komizt þannig
hjá mörgum erfiðleikum braut-
ryðjendanna. En hún hefir ekki
verið þannig gerð. Hún hefir
viljað bæta kjör sín, viljað
skapa betra land, nota hentugri
skip, búa í betri húsakynnum.
Hún hefir jafnan haft þá
trú, að hér væru næg nátt_
úrugæði og nægilega tápmikil
þjóð til þess, að hægt væri að
njóta þeirra umbóta, sem eru
almennar meðal menningar-
þjóða. Hún hefir ekki látið úr-
tölur um erfiðleika við að koma
fram umbótum draga úr sér
kjark. Hún hefir stöðugt sótt
fram og aldrei sagt, þegar ein-
hverju ákveðnu marki var náð:
Nú er nóg komið, nú er óhætt
að setjast um kyrrt, njóta þess,
sem unnizt hefir og hætta ekki
neinu í baráttu fyrir nýjum
umbótum.
Hún hefir heldur ekki gleymt
því, að það var nauðsynlegt að
sinna fleiri umbótum en þeim,
sem snertu öflun lífsviðurvær-
isins. Henni hefir verið ljóst, að
maðurinn lifir ekki á einu sam-
an brauði. Hún hefir ráðizt í
miklar framkvæmdir til að
auka menntun sína og þó öllu
heldur menntun afkomend-
anna. Hún hefir verið þess full-
komlega vitandi, að dýrmæt-
asti arfur þjóðarinnar verður
alltaf hin sjálfstæða menning
hennar og að ómenntuð þjóð er
til einskis líklegri en að van-
meta frelsi sitt og verða fráhverf
þeirri umbótabaráttu, sem er
nauðsynleg hverju vaxandi þjóð-
félagi.
Það er vissulega holt fyrir
unga menn að kynna sér lífs-
viðhorf slíkrar kynslóðar. Ef til
vill getur það verið dýrmætasti
hluti arfsins. Og það er ekki að-
eins holt heldur nauðsynlegt á
þeim tímum, þegar svartsýni og
barlómur grípur jafn geigvæn-
lega um sig og nú virðist eiga
sér stað.
Það er um fátt meira rætt nú
en fjárhagslega erfiðleika og
kreppu og það er ekki ósenni-
legt að einna algengustu spurn-
ingarnar í dag verði eitthvað á
þessa leið: Höfum við nokkurt
bolmagn gegn erfiðleikunum?
Endar þetta ekki með hruni og
fjárhagslegu ófrelsi? Og um
þessar mundir ganga hundruð
manna atvinnulausir og segja:
Ég vil gjarnan vinna, ef ein-
hver vill láta mig fá vinnu.
Hvernig hefði farið fyrir
kynslóðinni, sem gert hefir hin-
ar miklu umbætur í landinu á
síðastliðnum tuttugu árum, ef
hún hefði yfirleitt hugsað á
þenna hátt? Hvernig hefði far-
ið fyrir bændunum, þegar salt-
kjötsmarkaðurinn brást, ef þeir
hefðu hugsað eitthvað á þá
leið,að þeir hefðu ekki bolmagn
til að byggja frystihús og gera
framleiðslu sína verðmeiri á
þann hátt? Hvar væri íslenzkur
landbúnaður nú staddur, ef
vantrú bændanna á sjálfum
sér og oftrúin á erfiðleikun-
um hefðu unnið sameiginlegan
sigur? Hvernig væri nú um-
horfs við sjávarsíðuna, ef sú
sú skoðun hefði orðið almenn,
að það væri of erfitt og dýrt að
byggja síldarverksmiðjur og
þess vegna væri rétt að láta
reka á reiðanum og standa og
falla með þorskveiðunum? Og
hvaða framfarir hefðu yfirleitt
orðið í landinu, ef allir hefðu
hugsað á þennan hátt: Ég vil
gjarnan vinna, ef einhver vill
útvega mér vinnu?
En þannig hugsaði kynslóðin
á fyrstu tuttugu árum fullveld-
isins ekki. Hún var bjartsýn og
trúði á sigur sinn, þó erfiðleik-
arnir væru miklir. Hún lét böl-
sýnina og vonleysið ekki villa
sér sýn og stöðva rás framfar-
anna. Hún átti nógu marga
dugmikla og áhugasama ein-
staklinga, sem hugsuðu á þá
leið, að þeir ættu sjálfir að
skapa sér atvinnu og verkefni,
en ættu ekki að láta aðra gera
það.
Þess vegna hefir hún leyst
meira starf af hendi en nokkur
önnur kynslóð, sem verið hefir
í landinu.
Fyrstu tuttugu ár fullveldis-
ins hafa fyrir atbeina hennar
orðið tími mikilla sigra. En
hvernig verða næstu tuttugu
árin? Hvernig ávaxtar æskan,
sem þessi kynslóð ól upp, þann
arf, sem henni er úthlutað-
ur? Verður hún bjartsýn, þorir
hún að eiga fangbrögð við mikla
erfiðleika, hefir hún vilja til að
halda áfram á þeirri braut, sem
byrjuð var af fyrstu kynslóð
fullveldisáranna? Eða verður
hún svartsýn, lætur hún erfið-
leikana lama kjark sinn, ætlar
hún að láta sér það nægja, sem
nú er, og reyna að lifa á arf-
inum, meðan hann er einhver
eftir? Þessar spurningar eiga
að vera umhugsunarefni ís-
lenzkra æskumanna i dag og
þeir eiga og verða að gera sér
ljóst, hvorn kostinn þeir ætla að
taka.
Hin fyrrl leið er vissulega að
mörgu leyti erfiðari í fyrstu en
hin síðari. Það kostar meira
starf að ljá framförunum en
kyrrstöðunni lið sitt. Þeir, sem
vilja skapa sér og öðrum bætt
lífskjör og meiri menningu,
verða að vera við því búnir að
það kostar oft langan vinnudag
og að kaupið er iðulega ekki
greitt eftir háum taxta. Vinnu-
tími frumbýlingsins, sem er að
leggja grundvöll að framtíðar-
starfi, er lengri en vinnutími
atvinnubótamannsins á mölinni
og taxtinn er líka venjulegast
mun lægri. En hitt er óvíst
hvort iðjuleysisstundir atvinnu-
bótamannsins eru honum neitt
hollari eða ánægjulegri en erf-
iðisvinnan er bóndanum. En þó
svo væri mun hinn endanlegi
árangur ríða baggamuninn og
vel það. Og svipuð verður
reynslan, þó dæmin séu tekin
af öðrum sviðum þjóðlífsins.
Það má hugsa sér þann mögu-
leika, að hin uppvaxandi kyn-
slóð reyni eingöngu að lifa á arfi
feðra sinna og mæðra og hafi
sem allra styztan vinnudag.
Hún gæti sótt dansskemmtan-
ir, farið í kvikmyndahús og
reynt að nota sér margvíslegar
dægrastyttingar í stað vinn-
unnar. En fljótt myndi það
sannast, að Adam yrði ekki lengi
í Paradís. Landið, sem feðurnir
ræktuðu, myndi komast i ó-
rækt, skipin, sem þeir notuðu
til fiskveiða og flutninga,
myndu ganga úr sér og ónýtast,
verksmiðjumar og orkuverin,
sem þeir byggðu, myndu einnig
verða tímans tönn að bráð. Og
hvar væri það fólk þá statt,
sem notaði tímann til skemmt-
ana og iðjuleysis, meðan verk
feðranna voru að hrynja í rústir?
Annar möguleiki er lika fyriT
hendi. Þessir síumtöluðu erfið-
leikar og fjárhagslegu vand-
ræði drægju svo dug og áræði
Baráttan gegn áfengisnautn-
inni er veigamikill þáttur í
þeirri sjálfstæðisbaráttu, sem
margar fullvalda þjóðir verða
að heyja inn á við. Barátta,
sem miðar að því að tryggja og
efla frelsið, með því að gera
einstaklingana alfrjálsa menn.
Fullveldið byggist á frelsi ein-
staklinganna, starfshæfni og
orku þeirra. Allt, sem lamar
vilja og kjark, eða skapar ein-
staklingunum andlega og efna-
lega fjötra, er hinu stjórnar-
farslega sjálfstæði hættulegt.
Bindindismálið verður því
alltaf nátengt sjálfstæðishug-
sjóninni — raunverulegt sjálf-
stæðismál. Skal næst bent á
nokkrar algildar, hversdagsleg-
ar staðreyndir, sem rök fyrir
þvi að svo er:
I. Fjöldi starfhæfra manna
verður öðrum byrði vegna á-
fengisnautnar.
II. Mikill fjöldi af öllum af-
brotamönnum í þjóðfélaginu,
hefir beint eða óbeint lent út á
þeirri braut vegna áfengis-
nautnar.
III. Fjöldi heimila sundrast
og lenda í eymd og volæði af
völdum áfengis.
IV. Samkvæmis- og skemmt-
analífið er oft spillt af áfeng-
isnautn, svo almenn siðmenn-
ing verður að þoka.
V. Mörg slys, einkum þó um-
ferðaslys, verða af völdum á-
fengis.
VI. Áfengið kostar þjóðina ár-
lega óhemju fé.
VII. Almenn áfengisneyzla
skapar stórlega aukinn lög-
gæzlukostnað.
VIII. Margvíslegir sjúkdóm-
ar og veiklun kynstofnsins eru
þekktir fylgifiskar ofdrykkj-
unnar.
Þessar staðreyndir liggja
beint fyrir og kannast hvert
mannsbarn við þær. Röksemd-
um þessum má skipta í tvo
flokka. í fyrsta lagi þær, sem
eru siðferðislegs eðlis og í öðru
lagi hinar fj árhagslegu. í síð-
ara atriðið er oft vitnað, sem
ekki er með öllu óeðlilegt, þar
sem fjárhagslegt sjálfstæði
þjóðarinnar er valt, en sú upp-
hæð, sem íslendingar verja ár-
lega fyrir áfengi, er rösklega
fimmti hluti þeirrar upphæðar,
sem velta þjóðarbúsins gerir.
Vægast sagt er þarna verið á
mjög háskalegri braut og fjár-
hagslegt sjálfstæði þjóðarinnar
mjög veikt frá því sem það ann-
ars væri. En þó brennivins-
gróði ríkisins sé reikningslega
nokkur, mætti með mörgum
rökum sanna, að það eru með
öllu falskar tekjur. Nægir að
benda á vaxandi fátækrafram-
færi og rýrnandi tekjustofna
margra bæja, sem hið opinbera
verður svo að hafa afskipti af.
Ég held því ekki fram, að þetta
mál valdi því ástandi eitt sér,
heldur eigi meiri eða minni
þátt í því. Eru nægar heimildir
til, sem bera því skýrt vitni.
Fjnrra atriðið, það sem veit að
siðferðilegri og andlegri menn-
ingu þjóðarinnar, tel ég þó
miklu alvarlegra í þessum efn-
um, og frelsinu hættulegra.
Verðmætin er hægt að bæta
með tímanum, en einstakling-
arnir, sem lenda undir ánauða-
fjötrum vínguðsins verða
sjaldnast aftur heimtir og sízt
hinir sömu.
(Framhald á 15. síöu.)
varla vinnustöðvunum, sem efnt
var til í því skyni að neyða at-
vinnurekendurna til að íþyngja
enn fyrirtækjum sinum með
hækkandi kaupi. Þessarar veilu í
þjóðlífinu gætir víðar. Hinar
skefjalausu kröfur til annarra
eiga sér víðari vettvang, þótt
þessi tvö dæmi séu nefnd hér.
Andstaðan gegn þessum veil-
um hefir þó ávallt verið til, þótt
hana hafi að nokkru skort sam-
sömun og form, ef svo mætti að
orði komast.
Á þessu tuttugasta fullveldis-
ári íslenzku þjóðarinnar skipu-
lögðu ungir Framsóknarmenn
samtök sín og treystu þau bet-
ur en áður hafði verið. — Stofn-
þing sambands ungra Fram-
sóknarmanna að Laugarvatni í
vor var hinn glæsilegasta æsku-
lýðssamkoma, er efnt hefir ver-
ið til á síðari árum. Á þessu
stofnþingi voru aðsteðjandi
vandamál tekin til athugunar
með óvenjulegri festu og mynd-
arskap. Sá andblær, er þar ríkti
markar að vissu leyti tímamót í
sögu íslendinga. Hinir ungu
Framsóknarmenn, rösklega 100
að tölu, fulltrúar 1700 ungra
manna og kvenna af öllu land-
inu, höfðu næman skilning á
þeirri hættu, sem þjóðinni stafar
af þeim spillta hugsunarhætti,
er fest hefir rætur með nokkrum
hluta landsmanna. Á þessu
æskulýðsþingi var kröfunum
fyrst beint inn á við, beint til
einstaklinganna sjálfra. Þar var
lögð ríkust áherzla á skyldur
borgaranna við samtíð sína og
þjóðfélag. í flestum þeim álykt-
unum, er gerðar voru, var skýr-
lega kveðið á um þessar skyldur
og Framsóknaræskunni lögð ríkt
á hjarta sú forganga, er henni
beri að hafa um hófsemd í lífs-
háttum og kröfum, manndóm
og efndir á borgaralegum skyld-
um. Á þetta var einnig lögð
megin áherzla í þeim ræðum,
sem þar voru fluttar.
Áhrifanna frá Laugarvatni
hefir þegar gætt glögglega á
margan hátt. Ég vil aðeins nefna
eitt dæmi, héraðs- og íþrótta-
mót ungmennafélaganna. Á
undanförnum árum hafa þessi
mót mjög borið óheillavænlegan
svip ölæðissamkvæma. En í sum-
ar hefir þeirri aðferð yfirleitt
verið beitt að banna drukknum
mönnum algerlega aðgang að
þeim. Hér hefir að sönnu verið
við ramman reip að draga og
hin nýju öfl orðið að lúta í lægra
haldi á stöku stað. En víðast
hefir fullur árangur náðst og
samkomur verið friðaðar fyrir
brennivíninu og hafnar upp til
fyrri virðingar.
Þessi einurð og festa, þessi
hófstilling á lífsháttum og fram-
ferði, er í fullu samræmi við
andbæinn frá Laugarvatni og
hefir sótt þangað þrótt til fram-
kvæmda. Þar var einmitt gerð
ályktun, sem fjallaði beinlínis
um þessi mál.
í dag er talað um sjálfstæði og
frelsi. Á þau hugtök má aldrei
skuggi falla. En þess er þó bezt
að minnast, frelsinu verður ekki
viðhaldið né verndað með orðum
einum. Það eru gerðirnar og
þrekið til starfa, er mestu máli
skipta. Hinir hóglífu iðjuleys-
ingjar gera kröfur til annara um
veglegt lífsuppihald. Þeir eru
sníkjudýr á þjóðfélagslíkaman-
um. Kjarni þjóðstofnsins, þeir
sem raunverulega skapa og við-
halda sjálfstæði og frelsi, er
starfsins fólk. Þeir, sem ryðja
land til ræktunar og halda fé
til beitar, róa til fiskjar eða
vinna önnur hagnýt verk, eru
hinar sönnu sjálfstæðishetjur
þjóðarinnar. Þeir skapa þann
grundvöll, er efnaleg afkoma
þjóðarinnar hvílir á og á því
ríður um velferð hennar, að nógu
margir einstaklingar sinni
þessum skapandi framleiðslu-
störfum. Því meiri hagsæld verð-
ur í landinu, sem fleiri þegnar
stunda slíka vinnu af kappi og
forsjá. Því meiri möguleikar til
þess að hrinda fram umbótum
og halda áfram viðreisninni.
í dag er gerð ítarleg grein fyrir
því hér í blaðinu hvilíkar fram-
farir hafa átt sér stað í landinu
hin síðustu tuttugu ár, á full-
veldistímabilinu. Þær eru gífur-
lega stórstígar, jafnvel hvaða
mælikvarði sem á þær er lagður.
Hinu er þó ekki að leyna, að
jafnvel enn meiru hefði mátt
afkasta, ef ávallt hefði verið
gætt hófsemdar, og enginn heil-
brigður og fulltíða þjóðfélags-
þegn hefði skorazt undan að
skapa verðmæti sér til lífsuppi-
halds.
Framsóknarmenn hafa ávallt
varað við þeirri hættu, sem af
því stafar að fólkið flýi frá fram-
leiðslunni, og spornað við slíku
eftir mætti. Þeim hefir aldrei
dulizt hver er undirstaðan, né
hvaðan verðmætin eru runnin.
Við þetta hefir stefna og starf
þeirra verið miðað. Svo mun og
verða í framtíðinni.
Ungir Framsóknarmenn hafa
gefið þjóð sinni dýrmæta gjöf á
hinu tuttugasta fullveldisári
hennar. Þeir hafa á tvennan
hátt lagt grundvöll að vexti og
viðgangi þjóðlífsins i framtíð-
inni. Þeir hafa skipulagt samtök
sín og gert þau öflug, traust og
líkleg til afreka á komandi tíð.
Og þeir hafa líka ýtt undir það,
að heilbrigður hugsunarháttur
megi þróast með þjóðinni og það,
sem þar fer aflaga verði kalkað í
gröf sinni. Þeir vilja ekki ala
snákinn við brjóst sér, án þess
að freista þess að hafast eitthvað
að. —
Hinir ungu Framsóknarmenn
munu að sönnu fagna því, að
dýrmætt sjálfstæði íslendinga
sé varið og hyllt með fögrum
orðum, en þeim er það ljóst, að
bezt verður það varðveitt með
nytsömum athöfnum, — at-
orkusömu starfi til lands og
sjávar. Jón Helgason.
Forsíðnmyndiraar:
Talið frá vinstri til hægri að
ofan: Herfing, vélbátar frá
Keflavík að leggja frá landi,
Geysir, Skógafoss, heyvinna og
síldarvinna á Siglufirði. — Vig-
fús Sigurgeirsson hefir tekið
fimm myndanna.en Loftur Guð-
mundsson myndina af vélbát-
unum.
FAGNASARLJÓ8
Á FULLVELDISDAGINN
Fagnaðu, þjóð, á fögrum minnisdegi
Fullveldið þér til sœmdar verða megi.
Enn er að sönnu villugjarnt á vegí,
vandar og kreppur skyggja á allan heim.
Vittu það samt, að efni skortir eigi
íslendings börn, ef kunna tök á þeim.
Gott á sú þjóð, sem fékk með hraustum höndum
hamingjumiðin fyrir öllum ströndum,
viðlenda jörð, með fögrum, frjóum löndum,
fossa og hveri, sem hún treystir á.
Hennar er það, að brjóta líf úr böndum,
bera til sigurs fólksins vaxtarþrá. I
Gott áttu, þjóð, ef orka þín og andi 1
eru þér holl á túni, strœti og sandi,
rísi þitt vit mót öllum geig og grandi,
gangirðu i trú á samtakanna verk
athafnabrautir, bœði á sjó og landi,
bindíndissöm og glöð og djörf og sterk.
GUÐMUNDUR INGI.
MMMMMMMMMMMMMIMMMMMMMMMMMMMIIMMMMMMMMMIMIMMMMMMIMIMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMinMMMMIIMMI