Tíminn - 23.12.1940, Page 10
10
T í M I N N
an verði aldrei fullbúin. Söfnuðurinn verði
ár eftir ár að bæta við nýrri fegurð. Nokkr-
ir menn hafa nú þegar gefið fé til að fá
góðán myndhöggvara til að gera skírnar-
skál úr íslenzkúm steini.
Kórgluggarnir eru fimm. Innan skamms
kemur glermálverk í miðgluggann. Síðah
mún bætast við hver glugginn af öðrum,
unz hin norðlenzka dómkirkja getur í
þessu efni keppt við hinar fögru miðalda-
kirkjur, sem safnað hafa listaverkum og
skrauti um mörg hundruð ár. Jafnhliða
þessari listrænú aðhlynningu safnaðarins
kemur meira helgihald í sjálfa messu-
gjörðina. Á Akureyri er öll aðstaða til að
hafa söngflokk hvítklæddra kórdrengja,
sem auka helgíblæ guðsþjónustunnar með
hreinleik barnaraddanna.
Siðabótin taldi sér nauðsynlegt vegna
kjarna kristindómsins, að útiloka mikið af
fegúrð og draumlyndi miðaldakirkjunnar.
Það var að mörgu leyti óbætanlegur skaði
fyrir helgistarf kixkjunnar, þegar listin
var gerð útlæg að miklu leyti, en söfnuð-
inum boðnir guðfræðilegir fyrirlestrar í
þess stað. Á þessu þarf að verða breyting
hér á landi. Listin þarf aftur að halda
innreið sína í kirkju landsins. Á Akureyri
hefir hið fyrsta musteri hins nýja tíma
verið byggt. >ar getur orðið forusta í
sameiningarmáli kirkju og listar. Og það
tekst, ef þeir menn haldaj/öldum í kirkju-
málum Akureyrar, sem segja, að kirkju-
þróun þeirra sé enn á bernsku stigi.Kirkjan
sjálf verði fegruð meir og meir ár frá ári.
Hún verði staður, þar sem þreyttir veg-
farendur leiti að ró, hvíld og því lífsins
brauði, sem nærir anda mannsins.
VIII.
Nálega engin listaverk eru svo fullkom-
in, að ekki megi sjá á þeim einhver lýti.
Svo er og um kirkjumál Akureyrar. Fram-
kvæmd þess er öll hin lofsamlegasta, nema
áð einu leyti. Bæjarbúar eru ekki nógu
aimennt farnir að heimta, að þessi kirkja
sé kennd við sr. Matthías. Þessir menn
muna eftir gömium presti í bænum, sem
var í öllum venjum og háttum eins og
þeir, góðlyndur, bjartsýnn Akureyrarbúi,
sem andaðist þar í hárri elli og var graf-
inn upp í kirkjugarði. Þessum mönnum
finnst ekki nægilegt tilefni að helga hon-
um þessa kirkju, þó að hann væri þjóð-
skáld. Hann hafi þó aðeins verið mennsk-
ur maður eins og þeir. Þessi gagnrýni
samvistarmanna er engan veginn bundin
við Akureyri. Jafnvel Jesús Kristur gat
ekki gert kraftaverk'í ættborg sinni. Þar
mundi fólkið eftir því, að hann var sonur
Maríu og trésmiðsins.
Annars staðar á landinu er þessi sam-
tíðartilfinning horfin. Menn vita að vísu,
að Matthías var veikur reyr, undirorpinn
þjáningum og ófullkomleika hins mann-
iega lífs. En hann hafði undarlega gáfu.
Gegnum vitund hans streymdi trúarlegur
vísdómur í fullkomlega listrænu formi inn
í þjóðlíf íslendinga. Aðeins einu sinni á
þúsúnd árum hefir þjóðin eignazt annað
trúarskáld með því líka yfirburði. Yfir
þann mann er, eftir meir en tvær aldir,
verið að reisa minningarkirkju við Hval-
fjörð. Á Akureyri hefir kirkja Matthíasar
verið reist, rétt hjá heimili hans og dán-
arbeði. Söfnuður Matthíasar hefir reist
þessa kirkju. í henni mun um margar
aldir hljóma trúarljóð Matthíasar Joch-
umssonar. Enginn annar íslendingur mun
setja jáfn varanlega merki sitt á andleg-
Óskum öllum samvinnumönn-
um og öðrum viðskiptavinum
GLEÐILEGRA J Ó L A!
Samband ísl.
sam vinnuf élagf a
ar athafnir í þessari kirkju eins og sr.
Matthias.
Akureyringum ber mikill heiður fyrir
forustu sína í mörgum hinna stærstu þjóð-
mála. Þeir eiga lika skilið þökk. og aðdá-
un samborgara sinna fyrir glæsilega for-
ustu við að tengja saman kirkjulegar at-
hafnir og listrænan hugsunarhátt. Það er
mannlegt, að þeir sjá ekki enn sinn mesta
andans skörung í hæfilegri fjarlægð. En
hjól tímans snýst ótt. Eftir skamma stund
verða hin fornu sóknarbörn sálmaskáldsins
mikla komin í sömu aðstöðu og aðrir
landsmenn. Þá lifir ekkert nema minning-
in um skáldið, sem leggur krans ódauð-
legrar frægðar yfir turna og hvelfingu
fegurstu kirkjunnar, sem íslendingar hafa
byggt á undangengnum tíu öldum.
J. J.
GLEÐILEG JÓL!
Verksmi&jan Venus h.f.
Prentsmiðjan Edda h. f. 1940.
Gleðileg jól!
Raftækjaverksmiðjan h.f.
GLEÐILEG JÓL!
Reiðhjól averksm.
Fálhinn.
—~——i— -----——----— -------------------------——-—-7
GLEÐILEG JÓL!
GOTT FARSÆLT IVÝÁR!
óskum vér viðskiptavinum vorum, með
þökk fyrir hið liðna
Verksmiðjan Magni h.f.