Tíminn - 10.06.1964, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Franikvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (úb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indri'öi
G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómals Karlsson. Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánssori. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson
Ritstjórnarskrifstofur í Eddu-húsinu, símar 18300—18305 Skrif-
stofur Bankastr 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523 Aðrar
skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 90,00 á mán. innan-
lands. — 1 lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h,f.
Horft fram
ÞaS koin glöggt í ljós á nýloknum aðalfundi Sambands
ísl. samvinnufélaga, að sú stjórnarstefna, sem nú ríkir í
landinu, þrengir á margan hátt að starfsemi samvinnu-
félaganna. Þau eiga því í höggi við ýmsa erfiðleika, en
það er hins vegar ekki nýtt í sögu samvinnusamtakanna.
Fram að þessu hafa samvinnufélögin sigrað slíka erfið-
leika með samheldni og skilningi félagsmannanna og
framsýni og festu forustumannanna. Svo mun vissulega
enn verða.
Fyrir þá, sem sátu seinasta aðalfund SlS, mun það
verða minnisstæðast síðar, að þótt margt væri rætt um
áðurnefnda erfiðleika, setti erindi, sem Erlendur Ein-
arsson forstjóri flutti um „byltingu í samvinnumálum
Danmerkur11, einna mestan svip á fundinn. I framhaldi
af því samþykkti fundurinn einróma að kjósa fimm
manna nefnd, ,,er hafi það hlutverk að gera tillögur um
framtíðarstarfsemi samvinnuhreyfingarinnar með það
fyrir augum, að hún geti sem bezt gegnt hlutverki sínu
við síbreytta aðstöðu í þjóðfélaginu".
Eins og kom fram í erindi Erlends Einarssonar er
að gerast bylting í samvinnumálum Danmerkur á þann
hátt, að kaupfélögin eru að hefja miklu nánara samstarf
en áður til þess að geta skipulagt verzlunina sem bezt og
fullkomnað þjónustustörf hennar. Að ýmsu leyti hafa
Svíar gengið hér á undan og fyrirmyndir Dana verið
sóttar þangað. Hinir breyttu og bættu starfshættir sam-
vinnufélaganna í þessum löndum hafa stutt mjög að
eflingu þeirra á síðari áruin. Neytendasamvinnan hefur
sennilega hvergi eflzt meira á síðari árum en þar.
Að sjálfsögðu eru aðstæður á ýmsan hátt öðruvísi hér
en í Danmörku og Svíþjóð, en jafn nauðsynlegt er það
eigi að síður, að samvinnufélögin fylgist vel með erlendri
þróun og hagnýti sér hana eftir föngum. Þetta hafa þau
raunar gert og má t. d. benda á, að þau ruddu kjörbúð-
arfyrirkomulaginu braut. Kaupfélag Hafnarfjarðar hefur
að undanförnu gert tilraun með kjörbúðarbíl, sem hef-
ur gefið mjög góða raun. Margt fleira mætti nefna.
En íslenzk samvinnuhreyfing ætlar ekki að láta sér
nægja að hafa rutt brautina á undanförnum áratugum og
árum. Hún ætlar sér að halda því áfram. Markmið henn-
ar er að tryggja viðskiptamönnum sínum síbatnandi þjón-
ustu. Þess vegna voru það ekki stundarerfiðlf'ikarnir. sem
settu mestan svip á aðalfund S.I.S.. heldur hitt. að þeir
voru ekki látnir hindra það að áfram væ’-i horft fram á
leið, þótt eitthvað kunni qð þurfa að draga úr skriðnum í
bili. Því starfi verður eigi að síður haldið áfram að leit-
ast við að veita viðskiptafólkinu batnandi þjónustu í sam-
ræmi við breyttar aðstæður og aukna tækni
Merkasti atburðurinn
Morgunblaðið fer í gær þeim orðum um nýgert sam-
komulag ríkisstjórnarinnar og verklýðssamtakanna, að
það sé „vafalaust einn merkasti atburðurinn í tuttugu
ára lýðveldissögu íslands“.
Morgunblaðið getur þess að sjálfsögðu ekki, að ríkis
stjórnin ætlaði sér upphaflega að fara allt aðra leið. lög-
kúgunarleiðina, en var knúin til þess af stjórnarandstöð
unni og verkalýðssamtökunum að gefast upp við hana
Ef ríkisstjórnin hefði fengið að ráða. befði þessi oinr
merkasÞ atburður“ lýðveldissögunnar aldrei gerzt..
Þannig getur einbeitt og jákvæð stjórnarandstaða >'
komið góðu til vegar og hindrað óþnrftarverk afturhaldi
samrar og neikvæðrar ríkisstjórnar.
T t M I N N, miðvikudagur 10. júní 1964. ~
Þetta þurfa íslenzkir bændur að keppa við: -
Ríkisstyrkir nema 2/3 af
nettdtekjum brezkra bænda
úr skýrslu Framlelðsluráðs um úMlufniug landbúnaðarafuröa
Á aðalfundi StéttarsaœbariJs
bænda var lögð fram skýrsla
Franileiðsluiráðs iandbúnaðar'ins
fyrir 17. starfsár þess. í þessairi
skýrs.lu er að finna merkilegar
upplýsingar um útflutning land
búnaðarafurða, og verður kafli
úr þeim þætti hennar birtur hér
á eftir. í þeim hluta þessa þáttar.
sem ekki er birtur hér, kemur
það fram, að fyrir diikakjöt, sem
hefuir >erið flutt út á þessu ári,
m hefur fengiz 54% af heildsölu
verði innanlands (73% af salt
kjöti), en fyrir mjólkurafurðir,
sem hafa verið fluttar út, mun
minna frá 26% til 47%. Fyoir
dyrum stendur að flytja út all-
miki.ð af smjöri vegina mikillar
nýmjólkurframleiðslu í vetur.
Hefst svo kafli sá, sem birtur
veirður úr skýrslu Fram'leiðslu-
ráðs:
Nú Lipp' á síðkastið hefur verið
rætt mikið um útflutningsáætlun
fyrir landbúnaðarvörur fyrir yfir
standaudi verðlagsár. Umræður
þessar 'nafa faiið fram hjá sölu
samtökum landbúnaðarins og
framleiðsluráði Nokkrar líkur
eru til þess að til útflutnings-
bóta purfi að ætla um 170 mill-
íónir króna Er þá miðað við það
að minnka sm.iörbirgðirnar í
landirr allve>'"lpga Hins vegar
er verðmætaáætlun landbúnaðar
afurða um 1600 milljónir króna.
svo útflutningsbætur samkvæmt
gildandi lagaákvæðum geta naum
ast orðið meiri en 160 milljónir
Það er því sýnilegt að draga verð
ur eitthvað úr útflutningi þessa
árs og færa hann til yfir á næsta
verðlagsár, ef önnur úrræði verða
ekki fundin |
S HagstæSara aS flytja út
sauðf járafurðir
Samkvæmt þessari áætlun er
• gert ráð fyrir því að útflutnings
ábvrgð.n fyrir sauðfjárafurðir
verði oni 70 millj. en um 100
fyrir njólkurafurðir Nú ber á
það að lita að engar uppbætur
hefur purft að greiða á ullar- og
gærusölu Útflutningsverðmæti
ullarinnar er naumast undir 35
milliónum króna og útflutnings-
verðmæti gæranna er um 100
milljónir króna Fob — verðmæti
kirda' iötsins sem út er flutt er
um 75 milljónir. Alls er því út-
flutningsverðmæti sauðfjáraf
urðanna um 210 milljónir króna
70 milljóna uppþótagreiðsla á
það gerir um 33%. Til viðbótar
þessu verðmæti kemur svo verð
mæti jarna og annarra innyfla
sem eKki liggui fyrir hve mikið
er Ekki er þvf ósennilegt að ú>
flutningsbætu' á sauðfjárafurð
ir séu aðeins um 30% af útflutr
ingsverðmætinu þegar öll kur’
koma til grafar.
Það er því ekkert samþæri
’egt hve útflutníngur sauðfjáraf
'irða er hagstæðari ,en útflutnini
ir mjólkurvara Þó ber að benda
á þá staðreynd að mjög er það
nismunandi hvc háa upphæð hir
j i>- einstök’ mjólkurafurðir gefa
í tekjur eins og þær eru verð
lagðar á innlendum markaði. Að
jafnaði er það svo að þær vöru
tegundir sem þurfa hlutfallslega
mestar uppbætur úr ríkissjóði
við útflutning gefa bóndanun
einnig hæst verð
Ef útfkitningsbæturnar eru
mældai á mælikvarða innlends
verðmætis, þ e verðmæti fram-
leiðsbinnar. eins og hún er
greidd bændum. deilt í áætlað-
ar útflutningsbætur. kemur eftir
farandi í ljós
Verðmæti nautgripaafurðanna
þar með talið nautgripakjöt og
húðir, er áætlað að sé á yfirstand
andi verðlagsári um 800 milljón
ir króna. Útflulningsuppbæturn-
ar. satnkvæmt því sem áður er
sagt, eru 100 milljónir. Útflutn-
ingsuppbætur af heildarverðmæti
eru þvi 12,5. hvað nautgripaaf-
urðirnar snertir.
Heilcarverðmæti sauðfjárfram
leiðslunnar er á sama hátt talið
vera um 550 milljónir króna. 70
milljómr útflutningsbætur á það
gerir 12,7% eða svipað hlutfall
og það sem er varðandi nautgripa
afurðirnar.
Öfgafullar umræður
Á siðast liðnum vetri urðu
miklar umræður um landbúnað-
armál og framtíð atvinnuvegar
ins. Þessar umræður fóru fram
bæði .nnan veggja Alþingis, á
sérstökum fundum sem boðaðir
voru i þessu skyni og síðast en
ekki sizt, í dagblöðunum.
í þessum umræðum hafa kom
ið fram mörg og margvísleg
sjónarmið, sem ekki er unnt að
rekja hér. Margar þær hugmynd
ir, sem þar hafa komið fram eru
úr hóf. öfgakenndar, svo að þær
verða uaumast teknar alvarlega
Þar endurtekur sig gamla sagan
að þegar menn hafa leiðzt út í
deilur um einhver málefni. eru
öfgar ■< næsta leiti
Ekk: er nokkur vafi á því að
greiðsla útflutmngsbóta af opin
beru ffc hefur verið meðverkandi
orsök að því að slíkar umræðui
sem oessar hafa komizt af stað
Það er nú einu sinni þannig, bæði
með einstaklinga og hópa, að
meðan þeir standa einir sér og
óstuddir telur enginn ástæðu til
að gagnrýna þa En eru greiðslur
útflutnmgsbóta úr ríkissjóði
næg Astæða til gagnrýni? Geta
þær orðið mælikvarði á fram
leiðni landbúnaðarins?
Áðu: en þessu verður svarað
er nauðsynlegt að gera sér ljóst
eðli þess markaðar, sem venju-
lega er nefndur heimsmarkaður
og sem íslenzkir bændur þurfa
að selja á um það bil Vi af kinda
kjötsframleiðslu sinni.
Þessi markaður er brezki mark
aðurinn.
Styrkii sem brezkur land-
búnaður fær
í þessum mánuði er nýlega
lokið verðlagsumræðum brezku
bændasamtakanna og ríkisstjórn
arinnai Þessir samningar fara
fram cinu sinni á ári og lýkur
ávallt það snemma að brezkir
bændn geti hagað framleiðslu
sinni samkvæmt þeim. f þetta
skipti ci talið að brezkir bændur
hafi fengið 7% hækkun Verð-
lagskeifið í Bretlandi er annars
nokkuð flókið, en aðaleinkenni
þess er að innlend framleiðsla á
að seijast í samkeppni við inn-
fluttar landbúnaðarvörur. Brezk
ir bændur hafa samt tryggt visst
ábyrgðarverð Það sem á vantar
að ma-kaðsverðið gefi ábyrgðar
verðið greiðir ríkissjóður. Til
þess að létta undir með greiðsl
um ríkissjóðs í þessu skyni hafa
verið ,agðir misjafnlega háir
tollar a innflutt matvæli og sumt
af intiutningnum, eins og t.d.
smjör er háð beinum innflutn-
ingstakmörkunum. Eftir nýaf-
staðna verðlagssaníninga í Bret
landi er áætlað að ofannefndar
greiðsiur til landbúnaðarins verði
um 320 milljónir sterlingspund
á framleiðsluárinu 1964-1965
Þessi fiárhæð samsvarar 38 millj
örðum ísl. króna. Tölurnar ein-
ar segja ekki svo mikið í þessu
sambandi, en þegar það er haft
í huga að þessi fjárhæð samsvar
ar % af nettotekjum brezkra
bænda sjá allir hversu gífurlegar
fjárhæðir eru þarna á ferðinni.
Einnig sýna þessar tölur hve
langt oi frá því að brezkir bænd
ur geii framleitt landbúnaðar-
vörur tyrir það söluverð sem
gildir , þeirra eigin landi
En sýnir þetta ekki þá hve
brezkui landbúnaður er langt á
eftir iandbúnaði þeirra þjóða
sem flytja vörur til Bretlands?
Nei, alls ekki Engar þjóðir,
nema þá ef til vill Nýja-Sjáland
og Ástralía, flytja landbúnaðar-
vörur á brezkan markað, án
þess að kom: til aðstoð af al-
mannafé, i einu eða öðru formi.
Jafnve' Danir hafa sett hærra
verðlag á nokkurn hluta land-
búnaðarvaranna á heimamarkaði
eij þeir fá fyrir sömu vörur við
útflutning og auk þess nýtur
danskui landbúnaður beinna
styrkja sem eru að upphæð ein-
hvers staðar milli 1 og 2 millj-
a-ða danskra króna. Þó cr það
viðurkennt að danskur landbún
aður siendui á mjög háu stigi.
Sannleikurinn um heims-
markaðinn
Sann.eikurinn um hinn svo-
kallaða heimsmarkað er nefni-
lega sa að hann er fyrst og
fremst samsafn umframfram-
leiðslu sem flestar þjóðir nota
til þess að koma því í eitthvert
verð sem þeir þurfa ekki að
nota neimafyrir Hann ei það
sem erlendar þjóðir kalla
,,dumping-markað“ og menn hér
heima nefna ciðurboðsmarkað.
Verðlag á slíkum markaði getur
aldrei orðið mælikvarði á fram-
leiðni eins atvinnuvegar Flest
ar þjóðir hafa á síðari árum,
stefnt að því að þeir sem land
Framhald é 13. sfðu
z