Morgunblaðið - 04.12.1951, Qupperneq 16
Veðurúflif í dsg:
Hæg breyíileg átt, sí3ar
N-A kaldi, skýjað.
Frá 80 ára
afmæli Stádeiitafélagsias.
Sjá grein á Waðsíðu 8.
Sparnaðartiilögur álþýðu-
Mifelar uairæðar um fjárlögin
í GÆR var haldið.áfram annarri umræðu um fjáriaffafrv. Hófust
fundir kl. ^1,30 og stóðu enn yfir cr blaðið fór í prentun. Var það
ætlunin að ljúka annarri umræðu um nóttina.
HERFILEG ÚTREIÐ (
HANNIBALS VALDIMARS-
SONAR
Hófst umræðan með því, að
Hannibal Vaidimarsson gerði
grein fyrir minnihlutaáliti sinu
um fjarlagafrv.
Talaði hann af miklum ofsa
eins og endranær og fór sem fyrr
að þingmcnn. gátu ekki varist
hlátri öðru hvoru er ofsi hans
gekk úr hófi fram. Talaði þing-
maðurinn með miklum hita um
það, hvað hann vildi spara mikið
í rekstri ríkisins. Var hann þá
spurður um það af ráðherra hvar
þeir liðir væru í fjárlagafrv. sem
ætti að spara. Fór ráðherrann í
gegnum allt frv. og krafði Hanni-
bal Vaidimarsson um svör.
Það eina, sem Hannibal gat
bent á til sparnaðar í ríkisrekstr-
inum var að segja upp 3 mönnum
í stjórnarráðinu, sem vinna þó að-
eins hálfan daginn hver.
Þá sagði þingmaðurinn að sér
blöskraði hvað mikið fé væri lagt
til sauðfjárveikivarna, en gat þó
á engan hátt rökstutt það að öðru
leyti að um of mikið fé væri að
ræða. Þá fannst þingmanninum
alveg fásinna að veita fé til.til-
raunastarfsemi fyrir landbúnað-
inn. Slík starfsemi væri algjör
óþarfi. Þrátt fyrir hverja fyrir-
spurnina á fætur annarri um
hvernig sparnaðartillögur Alþýðu
flokksins væru gat þingmaðurinn
ekki bent á neina.
Fékk Hanr.ibal þannig hina
herfiiegustu útreið, svo að fáir
hafa fengið aðra eins á Alþingi.
Meðal þeirra mörgu sem tóku
til máls í umræðunni voru: Sig-
urðúr O. Ólafsson, Sigurður
Ejarnason, Gunnar Thoroddsen,
Magnús Jónsson, Jón I’álmason,
Sigurður Ágústsson og Lárus Jó-
hannesson.
Jélasfarlsemi Mæ'Sra
sfyrfcsneindar a§
hefjasf
MÆÐRASTYRKSNEFNDIN er
nú að hefja jólastarfsemi sína.
Eins og að undanförnu sendir
nefndin flestum fyrirtækjum
bæjarins söfnuriarlista, sem hún
vonar að tekið verði vel á móti
og greitt fyrir eftir beztu getu.
Undanfarið hafa Réykvíkingar
sýnt starfi Mæðrastvrksnefndar
ríkan skilning, velvilja og sér-
stakt örlæti, og vonar nefndin að
slikt verði einnig nú.
I fyrra, fyrir jólin, safnaðist
nál. 80 þús. kr. í peningum, sem
úthlutað var á 400—500 heimili
hér í bænum.
Jafnvel þó að ekki sé um stór-
ar upphæðir að ræða á hvern
stað, mun þetta þó margan hafa
glatt og stuðlað að aukinni jóla-
gleði. Vafalaust mun þörfin ekki
vera minni nú en þá.
í fyrra gafst nefndinni eínnig
mikið af fatnaði, bæði nýjum og
notuðum. Slíkar gjafir kom sér
mjög vel, eftir fötum er mikið
spurt, einkum á börn, en góðum
gefendum skal á það bent, að gott
er að slíkar giafir komi ekki
mjög seint. — Ollum giöfum er
veitt móttaka í skrifstofu jiefnd-
arinr.ar í Þingholtsstraéti 18, sem
er opin alla virka daga frá kl.
3—5. Síminn er 4349.
KviknaSi ó! irá sfrok-
iárni 00 rafraagai-
ofni
FULLTRÚARÁÐSFUNDUR
Sjálfstæðisfélaganna í Rvík
verður annað kvöld (miðviku-
dag 5. öes.) í Sjálfstæðishús-
inu og liefst kl. 8,39. Frum-
mælandi á fundinum verður
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri. Talar hann um bæjar-
mál, undirbúning íjárhags-
áætlana og fíeira.
Fuiltrúarnir eru beðnir að
athuga, zð fundurinn er ekki
í kvöid, cins og misritaðist í
- sunnudagsblaðinu, heldur á
morgun (miðvikudag).
Reyfejðfðss lagður
aí s!að heiei
HIÐ nýja skip Eimskipafélags-
flotans, Reykjafoss, lagði í gær
upp í heimför sína, en hann mun
allviða hafa viðkomu. Hann kem-
ur m. a. við í Ósló og þar tekur
hann jólatré það, er Ósló hefur
gefið vinabæ sínum, Reykjavík.
Frá Hamborg fór Reykjafoss
til Gdynia, þaðan til Gautaborg-
ar, Sarpsborgar og loks Óslóar.
Þaðan verður siglt beint til
Reykjavíkur. Mun Reykjafoss
koma kringum 16.—17. þessa
jtuánaðar.
UM miðnætti í fyrrakvöld kom
upp eldur í litla bænum, Traðar-
kot, við Traðarkotssund. Þar var
enginn heima, er eldurinn kom
upp. Vatnsskemmdir urðu nokkr-
ar, en litlar af eldinum.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang, en vegfarandi hafði brotið
brunaboða, var húsið litla læst og
ailt fullt af reyk. -— Brutu slökkvi
liðsmenn gluggann og höfðu á
skömmum tíma ráöið niðurlögum
eldsins. ICviknað hafði í út frá
rafmagnsofni og strokjámi, en
hvorttvegg.ja hafði gleymzt í sam-
bandi. — I Traðakoti býr Ottó
Matthíasson.
HRAÐSKÁKMÓT Taflfélags
Reykjavíkur fór fram sl. föstudag
Friðrik Ólafsson bar þar sigur
úr býtum með 16% vinning af
17 mögulegum.
Annar varð Lárus Johnsen með
14% vinning, 3. Sveinn Kristins-
son með 14 v., 4. Þórir Ólafsson
með 13% v., og 5. Ingi Jóhanns-
son 12% vinning.
Æfingafundir Taflfélags Reykja
víkur verða í vetur í Grófin 1
á þriðjudags- og föstudagskvöld-
um.
Innflytjer.dur íil Kanada
OTTAVA: — Níu fyrstu mánuði
þessa árs fiultust 120 þús. inn-
ilytjendur íil Kanada.
Frá 1. des. háfíð Heimdallar
Frú Jórunn Viðar við hljóðfærið á fullveldishátíð Heimdallar 1. des.
á böfnlsiiil
sekkur
i Neskaupsfað
BjöigaDartiiraanir pröar o! seini
í GÆRMORGUN sökk í höfninni í Neskaupstað vélbáturinn
Sleipnir, þar sem hann lá mannlaus við legufærin. — Ókunnugt
er hvað olli hinum skyndilega leka er að bátnum hefur komið og
engin tilraun var gcrð til að bjarga honum fyrr en um seinan.
mörfe auðvelda gréð
ursehiinganiarfiö
NÚ í haust hefir verið unnið að
vegagerð í Heiðmörk. Hefur ver-
ið lagður nýr vegur af Silunga-
poilsvegi yfir Suðurá, um Hólms
hraun, neðan við Hólmsborg, en
þaðan um efsta hluta Teyginga á
veginn sem lagður var 1949. Er
þessi vegur um 2.8 km, að lengd
og liggur um fallegt og sérkenni-
legt land. Gamli vegurinn upp í
Heiðmörk hefir og verið Jengdur
um 900 metra. Þessir vegir báð-
ir auðvelda mjög gróðursetningar
starfið í Heíðmörk, þar sem fjöldi
af úthlutuðum spildum liggur að
þeim. Auk þess var byrjað á nýj-
um vegi sem á að liggja suðvest-
ur um Heiðmörk, neðanvert við
Strípshraun, en þaðan austan við
Hjallana. Lokið var við um 900
m. kafla af þessum vegi og kem-
ur hann á gamla veginn rétt neð-
an við Bröttubrekku. Vegir þess-
ir eru allir upphleyptir nema þar
sem farið er um hraun. Þeir voru
gerðir með stórri jarðýtu og eru
samtals 4.6 km. Ekkert hefir enn-
þá verið borið ofan í þá en á því
verður byrjað bráðlega. Suðurá
er enn óbrúuð.
^ Fréttaritari Mbl. í Neskaupstað
símaði blaðinu þetta í gær og
sagðist honum svo frá:
MANNLAUS
Um klukkan níu í morgun,
veittu menn því hér eftirtekt, að
vélbáturinn Sleipnir NK 54, var
að því kominn að sökkva. Hefur
báturinn legið við festar, mann-
laus, hér í höfninni um all-langt
skeið.
GERT AÐVART
Þeim er hlut áttu að máli þessu,
var strax gert aðvart um að bát-
urinn væri að því kominn að
sökkva, en engar ráðstafanir
voru þó gerðar til þess að bjarga
bátnum að landi, fyrr en svo seint
að ekki tókst að losa legufærin.
Er þetta gerðist var blíðskapar
veður, en stormur hefur verið
undanfarna daga.
ÁTTI AÐ FARA Á UPPBOÐ
Klukkan 11 í morgun sökk bát-
urinn. Sleipnír var 72 rúmlesta
skip, byggður árið 1926. Selja
átti bátinn á uppboði þann 8.
janúar, samkvæmt auglýsingu í
Lögbirtingablaðinu.
Eigendur bátsins eru Herbert
Þórðarson og fleiri.
Á AÐALFUNDI Verzlunarmanna
félags Reykjavíkur er haldinn
var í gærkvöldi, var Guðjón Ein-
arsson endurkjörinn formaður
félagsins í sjöunda sinn. — Með-
stjórnendur hans er ganga áttu
úr stjórn voru og endurkjörnir,
en þeir eru: Einar Elíasson, Ólaf-
ur Stefánsson og Þórir Hall. —
Þeir er ganga áttu úr varastjórn,
voru endurkosnir: Hafliði And-
résson, Daníel Gíslason og Pétur
Sæmundssen. Endurskoðendurn-
ir Þorsteinn Bjarnason og Einar
Björnsson voru endurkosnii'.
Jénsfan Halivarðsscn
FORSETI ISLANDS hefur sæmt
Jónatan Hallvarðsson, hæstárétt-
ardómara, stórriddarakrossi
fálkaorðunnar.
@1
segsr sig
I GÆRKVOLDI barst sú fregn
til bæjarins, norðan frá Ól-
afsfirði, að einn helzti fyrir-
svarsmaður kommúnista þar,
Kristinn Sigurðsson, hefði
sagt sig úr kommúnistaflokkn-
um.
Hann hefur gegnt þar ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir
kommúnistaflokkinn og átt
þar sæti í bæjarstjórn í mörg
ár og síðan þar fóru fram síð-
ustu kosningar, var hann eini
fulltrúi kommúnista í bæjar-
stjóiiiinni.
FJ,B. kýs nefnd iil i
að ræða um flslmpp-
skipanaifyrir- 1
komuiagið
í GÆRDAG ræddi Félag ísl. bota
vörpuskipaeigenda á fundi síri-
um tilboð Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsaima, um verðið á tog-
arafiskinum, sem hraðfrystihús-
in telja sig geta gefið fyrir haim.
Þar eð msettir voru aðeins eig-
endur 28 togara af 40, var ekki
tekin ákvörSun í málinu, heldur
boðaður fraTnhaldsfundur á mið-
vikudaginn. Innan þess tíma,
mun F.LB. feafa kynnt sér vilja;
allia félagsmanna sinna.
Á þessum fundi var kjöriji
nefnd rnaima til viðræðna við
Dagsbrún nm vinnutilhögun við
uppskipun ú:r togurunum. — Muis
verða leitað hófanna um sam-
komulag ran að vinna hefjist kl,
6 árdegis, eða tveim tímum áður
en vinnan hefst í hraðfrýstihús-
unum, þvi mrið siíku fyrirkomu-
lagi gæti vinna við fiskinn hafizt
tafarlaust í hraðfrystihúsunum
kl. 8, í stað þess að ella þarf
starfsfólkið þar að bíða verkefn-
anna i tvaer klukkustundir, eða
fram til kl. 10 á morgnana.
ÚS. fli :i
lánaijóðs slúdeDÍa
ÞEIR Magnús Jónsson og Jónas
Rafnar liafa borið fram breyting-
artillögu í neðri aeild við frv.
um lánasjóð stúdenta. Er í tillög-
unni lagt til að árlegt framlag
ríkissjóðs til sjóðsins verði 500
þús. kr. í stað 300 þús. eins og
ster.dur í frv. og verði það greitt
í 20 ár í stað 25 ár.
Ef þetta yrði samþykkt, myndi
það hafa í for með sér að sjóð-
urinn þyrfti ekki að taka það 2.6
millj. kr. lán, sem gert er ráð
fyrir í frv. heldur aðeins 500 þús.
kr, smám saman og verði lánið
veitt til 18 ára. Þessi hækkum
ríkisframlagsins í 500 þús. kí.
myndi gera sjóðnum kleift að
taka til starfa, þegar er lögin
hafa verið sa.uþykkt, þar sem
mjög lítið lán þyrfti að taka.
Uandnám.
RÓM — sínndrað þúsund fjöl-
skyldum raun fyrir árslok 1955
verða úthlutaS 1.500.000 hekt.
lands, saxnkvæmt hinum nýju
landnámsáætlun í Ítalíu.