Morgunblaðið - 02.06.1960, Síða 2
2
MORCUl\niAÐ1Ð
Fimmfudagur 2. júní 1960
Sveitarfélag
klofnar
iregna óeiningar um félagsheimilisbyggingu
KJALNESBÆNDUR, austan svo
nefndra Kleifa, hafa farið þess á
leit að austur hluti Kjalnes-
hrepps verði gerður að sjálfstæðu
sveitafélagi eða öðru hreppsfé-
lagi. Hefur þetta mál verið þrjú
ár á döfinni, en það sem veldur
þessum klofningi Kjalnesbúa, er
fyrirhugað félagsheimili hrepps-
ins.
Árið 1957 skaut hugmynd um
byggingu félagsheimilis Kjalar-
nesþrepps upp kollinum þar í
sveitinni, og á almennum hrepps
fundi um málið í maímánuði
1957, var samþykkt ályktun varð
andi félagsheimilisbyggingu fyr
ir sveitina. Jafnframt félagsheim
ilisbyggingunni skyldi lögð
áherzla á að þar yrðu skilyrði
til íþróttaiðkana og gera þar
leikvang.
Næst gerðist það, að 1958 var
aftur haldinn fundur um málið.
I>á var gerð grein fyrir því, að
hjónin í Kollafirði hefðu ákveð-
ið að gefa allstóra spildu í Kolla
fjarðarlandi undir félagsheimili
og leikvang. Jafnframt var til-
kynnt að Reginn hf., gæfi hreppn
um kost á jarðhita, til heimilis-
ins.
Á þessum fundi voru menn
skiptir varðandi afstöðuna til-
staðarvals fyrir félagsheimilið,
þrátt fyrir þá möguleika, sem
skapaðir voru félagsheimilinu og
leikvangi þess, m. a. með tilboð-
inu um jarðhitann. Var gengið til
atkvæða á fundinum um staðar-
val, en um það voru fundarmenn
eigi á eitt sáttir. Hinn staðurinn
sem haldið var fram var Klé-
berg, þar sem barnaskólinn
stendur. I>ar er enginn jarðhiti.
Meiri hluti fundarmanna studdu
Klébergshugmyndina.
En málið var ekki úr sögunni
með þessari fundarsamþykkt. —
Fenginn var verkfræðingur til
að athuga staðarval fyrir félags-
heimilið. Hann mun hafa talið
hagkvæmara að reisa félagsheim
ilið í landi Kollafjarðar, vegna
jarðhitans, en á Klébergi. Trún
aðarmaður ríkisins í málefnum
félagsheimila, vildi ekki styðja
Kollafjarðarlandið, þrátt fyrir
jarðhitann. Lagði hann til með
meirihluta byggingarnefndar
heimilisins að það yrði reist á
Klébergi.
Þgar hér var komið, skrifuðu
Kjalnesingar austan Kleifa bréf
jyndið 200 metrana
Dolindu Tanner
DOLINDA Tanner, ung svissnesk
listakona, sýnir um þessar mund-
ir veggteppi úr iopa í „Mokka“
á Skólavörðustíg. Hún hefur
Dagskrá Alþingis
DAGSKRÁ á fundum Alþingis í
dag kl. 13:30 er sem hér segir:
Efri deíld: — 1 Efnahagsmál,
írv. — 3. umr. — 2. Útsvör, frv.
— 2. umr — 3. Háskóli íslands,
frv. — 2. umr. Ef leyft verður.
Neðri deild: — 1. Ríkisreikn-
ingurinn 1957, frv. — 2. umr. —
2. Verðlagsmál, frv. — Ein umr.
Ef leyft verður. — 3. Búnaðar-
banki íslands, frv. — 2. umr.
til hreppsnefndarinnar og var
varað við því að hefja félags-
heimilisbygginguna að Klébergi,
vegna hins alvarlega ágreinings.
Slíkt gæti haft meiri afleiðingar
fyrir sveitarfélagið í heild.
Hr^ppsnefndin tók þetta tilskrif
ekki alvarlega. Haustið 1959, til-
kynntu bændur austan Kleifa
hreppsnefndinni að þeir óskuðu
að segja sig úr sveitarfélaginu
við hreppsbúa vestan Kleifa.
Það mun vera sjónarmið bænd
anna austan Kleifa að byggja eigi
félagsheimili þar sem jarðhiti er,
á þem stað sé hægt að skapa bezt
skilyrði til hvers konar íþrótta-
iðkana fyrir æskufólkið í hreppn
um. Þeir benda á, að jarðhitinn i
í landi Kollafjarðar sé það, sem
ráði úrslitum í þessu máli.
Ronn stjórnlnus
niðnr Hveriis-
götu
i KLUKKAN tæplega átta í
gærkvöldi rann svört Vaux-
hall-bifreið, sem bílstjórinn
hafði brugðið sér frá, stjórn-
laus niður Hverfisgötuna. í
bifreiðinni voru kona og tvö
börn, en henni tókst ekki að
komast undir stýrið.
Er bifreiðin kom neðst í
brekkuna, gat konan náð í
stýrið og sveigt bílinn til
vinstri inn á Lækjartorgið
meðfram garðinum við Stjórn
arráðshúsið, en hann hélt á-
fram að beygja, rann upp á
gangstétt og rakst á annan
hliðarstólpann, sem brast. Bif
reiðin skemmdist mikið að
framan, en engin slys munu
hafa orðið á fólki.
sýnir veggleppi
stundað nám við menntaskóla í
Arau og við m. ndlistarskólana í
Ziirich og Genf. Var hún ein af
fjórum iistamönnum, sem stóðu
að fyrirtækinu Laugarnesleir.
'Síðan árið 1952 hefur hún rek-
ið eigin keramikgerð í Lugano
í Sviss.
Þegar hún dvaldist hér á landi
í fyrravetur kynntist hún vegg-
teppagerð hjá Barböru Árnason
og þegar hún kom heim til Lu-
gano um vorið 1959 byrjaði hún
að gera veggteppi úr islenzkum
lopa, sem hún telur betra hrá-
efni en aðra ull, sem völ er á.
Flest verk hennar, sem nú eru til
sýnis, eru eingöngu unnin í ís-
lenzkum sauðalitum.
Peter Kidson
Saltfiskframleiðslan
23,000 t. 1. maí
AÐALFUNDUR Sölusambands
íslenzkra fiskframléiðenda var
haldinn í Reykjavík 30. þ. m.
Formaður félagsstjórnar, Ric-
hard Thors, skýrði frá aflabrögð-
um, sölu og útflutningi saltfisks
frá áramótum og til fundardags.
Gat hann þess, að saltfiskfram-
leiðsla landsmanna hefði numið
um 23.000 tonnum þann 1. maí,
og var mestallur sá fiskur þegar
seldur, og ætti afskipunum á
honum að vera lokið í júnímán-
uði, að undanskildum þeim fiski,
sem haldið væri eftir til verk-
unar í landinu. Þá gat formaður
þess einnig, að mikið vantaði á,
að nægur saltfiskur væri fyrir
<®----------------------------------
hendi, til þess að unnt værí að
fullnægja eftirspurn frá mark-
aðslöndunum.
Andmælir árásum
Eftirfarandi tillaga Jóhanns
Þ. Jósefssonar, fyrrv. alþingism.,
hlaut einróma samþykki fundar-
manna: —
Aðalfundur S. í. F., haldinn i
Reykjavík, 30. maí 1960, and-
mælir eindregið og átelur ómak-
legar árásir nokkurra blaða á
starfsemi Sölusambandsins og
telur, að þeir, sem að slíkum
söguburði og árásum standa,
vinni óþarft verk og skaðlegt öll-
um þeim er að saltfiskframleiðsl-
unni standa.“
Peter Kidson á förum
EINN þeirra, sem mun standa
við borðstokkinn á Gullfossi og
veifs hatti sínum, þegar skipið
leggur næst úr höfn á leið til
Bretlands og Danmerkur, verð-
ur Peter Kidson, annar ritari
brezka sendiráðsins hér. Það er
að vísu engin nýlunda, að er-
lendur sendimaður haldi heim-
leiðis héðan, því þeir eru sjaldn
ast um kyrrt á hverjum stað
lengur en 2—4 ár í senn.
En fáir erlendir sendimenn
hafa lært íslenzkuna betur og
kynnzt landinu jafnvel og Kid-
son, sem hér hefur starfað und-
anfarin fjögur ár.
Að vísu er þetta ekki fyrsta
íslandsferð Kidsons. Hann var
hér á styrjaldarárunum með
brezka hernuu, árin 1940—43, og
lærði íslenzkuna þá allvel.
I hettiusótt á Raufarhöfn
— Frá fyrri fslandsdvöl minni
er mér minnistæðust dvölin á
Raufarhöfn, sagði Kidson, er
fréttamaður Mbl. hafði tal af
honum á dögunum. Þá lá ég í
hettusótt, um hávetur, í kaldr-
analegum bragga, þarna fyrir
norðan. Mér leið ekki vel, mér
fannst einmannalegt á Raufar-
höfn. Við vorum fáir Bretarnir
— og svo var eins og fólkið á
Raufarhöfn leggðist í híði í svart
asta skammdeginu. Það sást
varla lifandi sála utan dyra,
enda fannst mér þá sem ég væri
kominn langleiðina norður að
heimskauti.
— En þetta breyttist, þegar
ég kynntist landinu og fólkinu
betur og ég kunni lífinu vel hér.
Saknar Sundlauganna mest
— í stríðslokin og eftir stríðið
fór ég víða, fyrst í hernum, síð-
ar starfsmaður utanríkisþjónust-
unnar. Ég hef dvalizt í allflest-
um löndum Evrópu, m. a. Rúss-
landi, síðar í HongKong og Jap-
an. Og mér þótti skemmtilegt
að koma hingað öðru sinni, sum
arið 1956. Ég hef eignazt hér
marga góða kunningja og það er
margs að sakna, þegar ég fer.
— En það, sem ég sakna þó
einna mest, eru Sundlaugarnar.
Þær hef ég sótt nær daglega og
mér fer að líða illa, ef ég kem
því ekki við að fara í Laugarnar
í 2—3 daga. Það hefur góð áhrif
bæði á sál og líkama að fara
AUiance
Francaise
ALLIANCE Francaise heldur
skemmtifund í kvöld, fimmtu-
dag, kl. 20.30 í Þjóðleikhúskjall-
aranum.
Er vandað til skemmtiatriða.
Ungfrú Madelenie Gagnaire,
sendikennari við Háskólann leik-
ur „La Vie humaine“ eftir Jean
Cocteau.' Einnig mun Pólyfónkór
inn syngja nokkur frönsk og
ítölsk lög undir stjórn Ingólfs
Guðbrandssonar.
inneftir og busla í vatninu, seg-
ir Kidson,
Hann talar íslenzkuna vel,
svipað og gamall Vestur-íslend-
ingur. En auk íslenzkunnar
talar hann rússnesku, þýzku,
sænsku, ítölsku og frönsku, því
hann hefur víða farið.
Hefur „sigrað“ marga tinda
— Ég fer með góðar minning-
ar frá íslandi, heldur hann
áfram, enda þótt deilurnar síð-
ustu árin hafi verið leiðinlegar.
Það *er aldrei gaman að standa
í deilum, en ég hef aldrei orðið
fyrir neinum persónulegum
óþægindum vegna þeirra.
— Sjálfur er ég ekki veiði-
maður, en ég hef ánægju af að
klífa fjöll og hér hef ég „sigr-
að“ márga tinda, klifið Tinda-
fjallajökul, Langjökul, Kerl-
ingafjöll, Öskju, mörg há fjöll
á Vestfjörðum, í Öræfasveit og
víðar — og svo hef ég þrisvar
farið með strandferðaskipum
umhverfis landið.
— Þegar ég kem heim ætla ég
að taka mér stutt frí og til til-
breytingar að fara suður að Mið
jarðarhafi, busla í sjónum og
borða mikið af grænmeti og
ávöxtum.
— Enda þótt hugurinn girnist
imargt suður í löndum finnst
mér alltaf að ég missi eitthvað
af sjálfum mér, þegar ég tek mig
upp og kveð það umhverfi, sem
ég hef vanizt og fellt mig við.
Og á kveðjustundu vil ég óska
íslandi alls góðs í framtíðinni.
Fulltrúanefnd
í fulltrúanefnd saltfisksölu-
mála — en sú nefnd starfaði
einnig sl. ár — voru kosnir eftir-
taldir menn fyrir næsta starfs-
tímabil:
Arsæll Sveinsson, Vestmanna-
eyjum, Víglundur Jónsson, Ólafs
vík, Margeir Jónsson, Keflaöík,
Vilhjálmur Árnason, Reykjavík,
Egill Júlíusson, Dalavík, Þor-
steinn Arnalds, Reykjavik, Guð-
finnur Einarsson, Grindavík,
Kristján Einarsson og Helgi Þór-
arinsson, framkvæmdastjórar
’Sölusambandsins.
Fer íjórar hvíta-
smmuferðir
FERÐASKRIFSTOFA Úlfars
Jacobsens hefur birt sumaráætl-
un sina, Um næstu helgi, hvíta-
sunnuhelgina, mun hann efna til
fjögurra 2y2 dags ferða. Er þar
fyrst að nefna ferð í Kerlingar-
fjöll um Hveravelli. Þá verður
Snæfellsnessferð, gist á Búðum
og getur ferðafólkið fengið
keypt þar kaffi og mat. Þá verð-
ur efnt til ferðar í Breiðafjarð-
areyjar, fyrst ekið í Stykkishólm
og gist þar og eyjamar síðan
skoðaðar undir leiðsögn þaul-
kunnugs manns. Á heimleiðinni
verða hellarnir í Gullborgar-
hrauni skoðaðir. Að lokum er
svo að geta ferðar í Þórsmök.
Lagt verður af stað í allar
hvítasunnuferðirnar kl. 2 e. h.
á laugardag 4. júní frá skrifstof-
unni í Austurstræti 9.
S NA /5 hnúiar »/ SV 50 hnútar Snjófcomo > 06 i \7 Skúrir K Þrumur W’%, Kutdaskit Hitaskit
H H»t
L Latgi
LÆGÐIN yfir Grænlandshafi
er enn nærri kyrrstæð. í gær
var indælt veður um mestan
hluta lands, þurrt og hlýtt
nyðra, en skúrir og bjart á.
milli suðvestan lands. Á Suð-
austurlandi rigndi allmikið og
mældust 14 mm á Fagurhóls-
mýri " gærmorgun.
Ný smálægð er á ferðinni
suður í hafi og hreyfist NA.
Veðurhorfur kl. 22 í gær-
kvöldi: — SV-land til Breiða-
fjarðar og suðvesturmið til
Breiðafjarðarmiða: Hægviðri
í nótt en austan eða NA kaldi
á morgun, skýjað. — Vesfcfirð-
ir til Norð-Austurlands. Hæg-
viðri og skýjað í nótt, senni-
lega NA-kaldi og rigning eða
sly á morgun. — Vestfj,-
mið til Norðausturmiða: Aust-
an kaldi, hvass á dýpstu mið-
um, skýjað í nótt, en hvass
NA og slydda á morgun. —
Austfirðir, SA-land, Austfj.-
mið og Suðausturmið: Hæg-
viðri og úrkomulaust að
mestu í nótt en NA eða aust-
an stinnigskaldi og rigning á
morgun.