Morgunblaðið - 02.06.1960, Blaðsíða 10
10
MORCVTS BL AÐIÐ
Fimmtudagur 2. iúní 1960
Treysta verður
kostinn, sem
farsœld og
því, að
tryggir
velgengni
þjóðin
henni
Koma verður i veg fyrir, að áróðursöflunum
takist oð hindra viðrei nina
Rœða Ingólfs Jónssonar, landhúnaðar-
ráðherra, í eldhúsdagsumrœðunum
HERRA forseti, -'góðir hlustend-
ur! — 'j
Við umræðurnar í gsérkvöídí
töluðu stjórnaraiidstæðingar um
að gefin hefðu verið fögur kosn-
ingaloforð af núverandi stjórn-
arflokkum á sl.' ári. Við Sjálf-
stæðismqnn sögðum fyrir kosn-
ingarnar að gera þyrfti róttsgkar
aðgerðir í efnahágs- og fjátmál-
um þjóðarinnar strax þegar sam-
stæður þingmeirihluti væri fyrir
hendi til þess að gera slíkar og
nauðsynlegar aðgerðir. Það sem
núverandi stjórnarflokkar hafa
að unnið er því í fullu samræmi
við það, sem sagt var fyrir kosn-
ingarnar. Stjórnarandstæðingar
halda því fram, að lítilla að-
gerða hafi verið þörf. Hermann
Jónasson fullyrti í gærkvöldi að
ekki væri um það að ræða að
nauðsyn hafi borið til róttækra
aðgerða. Hermann Jónasson full-
yrti, eins og hann orðaði það, að
aðeins hefði þurft að draga nokk-
uð úr framkvæmdum og afla
hefði mátt tekna með innfliítn-
ingi á hátollavöíum og hækkun
yfirfærslugjalds, eftir því sem
nauðsyn krefði. Þetta var það,
sem hann vildi gera, — gamla
vinstri stjórnar 'leiðin.
Ekki tekinn alvarlega
Þegar Hermann Jónasson og
stjórnarandstaðan gera lítið úr
því nú, að ríkisstjórnin hafi átt
við erfið verkefni að glíma,
verður ekki hjá því komizt að
minna á, hvernig komið var í
desember 1958, þegar vinstri
stjórnin fór frá völdum. Ástæðu-
laust er að rifja þá sögu upp í
löngu máli. Þjóðin þekkir þá
sögu. Þjóðin veit að núverandi
stjórnarandstaða vildi vera við
völd áfram, en hún gafst upp.
Forystan var úrræðalaus, von-
«laus og vanmegnug að leysa þau
vandamál, sem við var að stríða.
Þjóðin man ummæli Hermanns
Jónassonar og lýsingu hans á
ástandinu, þegar hann kvaddi
stjórnarráðið. Þjóðin man um-
sögn efnahagsmálasérfræðings
stjórnarinnar um það, hvemig
málum þjóðarinnar var komið.
Landsmenn allir þreifuðu átak-
anlega á því hvernig vinstri-
stefnan leiddi vandræði yfir
þjóðina.
Þegar stjórnarandstaðan held-
ur því fram að enginn vandi hafi
verið fyrir hendi, þegar núver-
andi stjórn tók við, þá mun eng-
inn hugsandi maður, sem fylgist
með í þjóðmálunum, taka þau
ummæli alvarlega.
Öngþveiti var forðað
Til þess að forða því hruni,
sem við blasti í desember 1958
myndaði Alþýðuflokkurinn
minnihlutastjórn með stuðningi
Sjálfstæðisflokksins. Gerðar voru
bráðabirgðaráðstafanir, sem ork-
uðu það að koma í veg fyrir
fullkomið öngþveiti, sem við
blasti. Sannanlegt var að vísi-
talan hefði komizt í 270 stig í
októbermánuði sl., ef vinstri
stjórnar stefnan hefði ekki verið
stöðvuð í ársbyrjun 1959. Þarf
ekki að lýsa því hvaða afleið-
ingar slík dýrtíðarhækkun hefði
haft á atvinnuvegina. Augljóst
er að það hefði leitt til algjörrar
stöðvunar, atvinnuleysis og
vandræða.
Reiknað hefur verið út að
gengi ísl. krónu hefði þurft að
vera kr. 60.00 í stað kr. 38.00
miðað við dollar, ef vinstri
stj.örnár stefnan hefði verið ráð-
andi fram eftir ári 1959.
Bráðabirgðaráðstafanirnar, sem
gerðar voru á árinu 1959, leiddu
til þess að afstýrt var vandræð-
um og hruni.
Brást á örlagastundu
Ekki var' unnt að gera varan-
legar ráðstafanir í efnahagsmal-
um fyrr en eftir síðustu kosn-
ingar, að samstæður þingmeiri-
hluti var fyrir hendi. Ríkis-
stjórnin tók að sér að leysa þann
hnút, sem Hermann Jónasson og
stjórn hans gafst upp við að
leysa. Það þarf þrekmann lil
þess að tala eins og Hermann
Jónasson gerði í gærkvöldi, þar
sem hann hlýtur að skilja að
þjóðin öll man þegar hann sem
skipstjórnarmaður þjóðarskút-
unnar stökk frá borði til þess að
reyna að forða sér og sínum
flokki og skildi þjóðarfleyið eftir
stjórnlaust í brimrótinu.
Þjóðin getur gagnrýnt stjórn-
gyflpkkapa og aðgerðir . ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálum.
Hún getur efast um að nauðsyn
hafi borið til þess að taka svo
stórt spor sem gert var. Þjóðin
getur efast um réttmæti aðgerð-
anna á meðan reynslan hefur
ekki sannað að þær eru réttar
og nauðsynlegar. En allir hljóta
að hafa sannfæringu og vissu
fyrir því, að sú forysta, sem
brást á örlagastundu og gafst
upp þegar mest á reyndi —
verðskuldar ekki traust og get-
ur ekki vænzt þess að verða trú-
að fyrir forystuhlutverki að
nýju.
Neita fyrri yfirlýsingum
Stjórnarandstæðingar neita
fyrri yfirlýsingum sínum um
erfiðleikana og vandann, sem
þjóðin var komin í. Þeir þyrla
upp blekkingum um að verið sé
að leggja byrðar á þjóðina að
óþörfu. Stjórnarandstæðingar
eru svo kaldrifjaðir að þeir
segja að ríkisstjórnin hafi fellt
krónuna að óþörfu. Þeir viður-
kenna ekki, að krónan var fallin
og aðeins staðreyndirnar bafa
verið viðurkenndar. — Þegar
stjórnarandstæðingar tala við
bændur, er fullyrt, að farið sé
verst með bændastéttina — þeg-
ar þeir ræða við verkamenn er
fullyrt, að sérstaklega sé níðst á
þeim — þegar þeir ræða við út-
gerðarmenn og sjómenn, er talið
að stjórnin hafi alls ekki seð
þeirra hag borgið og aðstaða út-
gerðarinnar sé nú mun verri en
áður. Þegar þeir ræða við kaup-
menn, er fullyrt, að álagning sé
alltof lág og nú sé engin aðstaða
til þess að reka verzlun. Þegar
þeir tala við iðnaðarmenn er tal-
ið að aðgerðirnar grafi undan
iðnaði í landinu. Þannig reyna
stjórnarandstæðingar að magna
upp óánægju og reyna að vinna
gegn því að sú nauðsynlega við-
reisn, sem stjórnarflokkarnir
berjast fyrir, heppnist. Sem bet-
ur fer er fólkið í landinu farið
Ingólfur Jónsson
að skilja að hin neikvæða bar-
átta stjórnarandstöðunnar vinn-
ur gegn þjóðarhag.
Oft heyrist það hjá ýmsum
kjósendum Fraiösóknarflokksins,
þegar rætt er við þá, að þeir
telja að núverandi efnahagsmála-
löggjöf hafi verið það eina, sem
hægt var að gera og það hefði
ekki mátt dragast lengur. Efna-
hagsmálalöggjöfinni er ætlað að
ná því marki, að þjóðin leggi
grundvöll að efnahagslega
heilbrigðu atvinnulífi. Með efna-
hagslöggjöfinni er gjaldmiðill
þjóðarinnar skráður á réttu
gengi. Undanfarið hafa gilt
mörg gengi í landinu og gjald-
miðillinn skráður á fölskum for-
sendum. Með því að komast úr
uppbótakerfinu og skrá krónuna
rétt hafa ýmsar vörur hækkað
nokkuð í verði. Er engin ástæða
til að reyna að dylja það. Þegar
frá líður mun sú verðhækkun,
sem af réttu gengi leiðir, ekki
verða tilfinnanleg, þar sem sú
verðhækkun mun leita jafn-
vægis með eðlilegum hætti. —
Verðhækkun sem stafar af réttri
gengisskráningu er því allt ann-
ars eðlis heldur en verðhækk-
un sem leiðir af álögðum skött-
um og tollum, því slíka verð-
hækkun fær kaupandinn sízt
bætta.
Álögur vinstri stjórnarinnar
á bændur
Framsóknarmenn og sósíalist-
ar tala mikið um kjararýrnunina,
sem almenningur verður nú við
að búa. Hefur verið minnzt á
bændur í því sambandi. Er því
rétt að gera sér grein fyrir því,
hvernig vinstri stjórnin bjó að
bændastéttinni 1958. Voru þá lagð
ir á rekstrarvörurlandbúnaðarins
55% skattar, án þess að tryggt
væri að bændur fengju nokkuð
til þess að greiða þessa skatta
með. Þannig hækkaði áburður
og fóðu/bætir n 50%, vélar og
varahlutir svipað, — en það
gleymdist, þegar þessir skattar
voru á lagðir, að tryggja land-
búnaðinum tekjur til þess að
standa undir sköttunum.
Bændur urðu fyrir geysilegu
tjóni vegna þess að þeir fluttu
út afurðir 1958—1959. Ekki kom
vinstri stjórninni til hugar að
bæta landbúnaðinum það tjón,
enda þótt annar útflutningur
væri a þeim tíma bættur að fullu.
Afurðasölulöggjöfin var ekki lag
færð fyrr en Sjálfstæðismenn
tóku að sér forystuna í því. Er
vitað að landbúnaðurinn hefur
nú meiri möguleika en áður til
þess að fá það verð fyrir afurð-
manna nefndar samkómulaginu.
Sex manna nefndin reiknar ut
hverjar tekjur bóndans eiga að
vera, miðað við að hann beri
ekki minna úr býtum en verka-
menn, sjómenn og iðnaðarmenn.
Páll Þorsteinsson hefði ekki átt
að minnast á bráðabirgðalögm.
Sjálfstæðismenn hafa sæmd af
lausn þeirra mála sl. vetur. Fram
sókn reyndi að spilla því máli.
Undanfarið hafa bændur ekki
fengið að fullu greitt það verð,
sem þeim var ætlað að fá. Staf-
ar það af því m. a. að löggjöf-
in um afurðasölumál landbúnað-
arins var ekki komin í það horf,
sem hún er komin í, iiú eftir
breytingarnar, sem á henni voru
gerðar sl. vetur. Að nokkru leyti
stafar þetta af því að ekki hefir
alltafverið gert ráð fyrir nauðsyn
legum kostnaði og að nokkru
leyti að sölufélög bænda hafa
ekki ávallt haft svo góðan rekst-
ur sem æskilegt er. Það er aug-
ljóst, að afkoma bóndans hlýtur
að verða slæm, ef haldið er eftir
drjúgum hluta af þeim launum,
sem honum ber að fá. Hvað
mundi launþegi segja ef skráð
tímakaup væri 22 kr., en útborg-
að væri aðeins 20 kr.? Það er
nauðsynlegt að þessu óréttlæti
verði kippt í lag — og að þvi
hefur ríkisstjórnin unnið með
endurbótum á afurðasölulögun-
um.
Afleiðingar aðgerðanna 1958
Annar þáttur þessa máls hlýt-
úr einnig að vera hjá bændun-
um sjálfum, þannig að þeir
sætti sig ekþi við annað en að
þeir aðilar, mjólkurbú, slátur-
hús og aðrir, sem með sölu land-
búnaðarvara fara, greiði fullt
verð fyrir vöruna.
Þegar stjórnarandstæðingar
tala um slæma afkorpu bænda,
«r nauðsynlegt að gerá sér grein
fyrir því að hin slæma afkoma
bændastéttarinnar er ekki nú-
verandi stjóm að kenna. Efna-
hagsaðgerðir stjórnarinnar hafa
enn lítið verkað á afkomu land-
búnaðarins. Áburður og fóður-
bætir er greiddur niður, þannig
að verðhækkun á þessum vör-
um er ekki mjög tilfinnanleg.
Hin slæma afkoma bændanna
var augljós á sl. ári, sem stafar
af fyrrgreindum aðgerðum 1958.
Auðvitað taka bændur sinn
þátt í því sem nú gerist. Erfið-
leikar þeirra eru augljósir. Aug-
ljóst er að landbúnaðarinn get-
ur ekki byggt afkomu sína á
því að krónan sé skakkt skráð.
Bændur verða að byggja af-
komu sína á því að þeir fái fullt
verð fyrir það sem framleitt er.
Geta þeir þá staðið af sér dýr-
tíð og aðra erfiðleika, sem að
steðja.
Ýmsar hagsbætur létta
byrðarnar
Þegar stjórnarandstæðingar
eru ekki að tala við bændur,
er mest gert úr því hvað laun-
þegar eru illa haldnir. Mætti
gera samanburð á ráðstöfunum
1958 og núverandi efnahagsað-
gerðum og kemur þá í ljós að
launþegar og landsmenn allir fá
nú nokkuð til þess að geta tekið
á sig þær verðhækkanir, sem af
réttri gengisskráningu leiðir.
Ekki var um að ræða 1958, að
fjölskyldubætur og ellilífeyrir
væri hækkaður eins og nú. Ekki
var um það að ræða þá að tekju-
skattur af almennum launatekj-
um væri afnuminn. Ekki voru
þá ráðstafanir gerðar til þess að
lækka útsvörin um 10—15%. Þá
urðu þjóðfélagsþegnarnir að taka
á sig byrðarnar bótalítið, enda
þótt verkföll væru almenn og
kauphækkanir nokkrar í krón-
um, sem reyndust algerlega ó-
raunhæfar, þar sem kaupmáttur
launanna fór stórlega minnk-
velji þann
sem leiddi af stefnu vinstri
stjórnarinnar.
Til merkis um það að um mikl-
ar upphæðir er að ræða í bót-
um til almennings í landinu, skal
þess getið að í litlum hreppi uti
á landi, hefur verið reiknað út
hversu hárri upphæð nemur
aukning fjölskyldubóta, ellilif-
eyris og afnám tekjuskatts, og
er það samkvæmt útreikningum
450 þús. kr. í þessu litla og fá-
menna hreppsfélagi. Þetta sýmr
að nú eru greiddar miklar bæt-
ur og háar fjárhæðir, sem gerir
almenningi léttara að taka á sig
þær byrðar, sem af verðhækk-
unum leiðir.
irnar, sem ætlast er til með sexi andi í hinni skefjalausu dýrtíð,
Útsvör lækka á sölufélögum
bænda
Þá er það sem stjórnarand-
stæðingar gera mikið úr, en það
er veltuútsvörin. Bezt væri að
ekki þyrftu nein veltuútsvör að
vera, en úr því ekki hefur tekizt
að afnema þau, má fullyrða að
lögfesting í þá átt, sem nú er
gerð, er til stórbóta frá því sem
verið hefur.
Talað hefur verið um að níðst
verði á samvinnufélögum með
þessu fyrirkomulagi. Geta má
þess að samvinnuskatturinn
verður afnuminn og skattur á
mjólkurbú og sláturhús sömu-
leiðis. Munu því ýms sölufélög
bænda greiða lægra útsvar eftir
nýju lögunum en áður var. Er
það að sjálfsögðu réttmætt, þar
sem skattlagning á landbúnaðar-
vörur hlýtur að leiða til hækk-
aðs útsöluverðs.
Mikið hefir íVerið gert úr því
að innlánsdeildum samvinnufé-
laga er ætlað að leggja inn í
Seðlabankann hluta af innstæðu-
aukningu. Ekkei;t er þetta nema
grýla og er vitað að kaupfélags-
stjórar gera ékkert úr þessu og
telja kaupfélögunum ejpgan óhag
að þesu ákvæði í lögum. En
stjórnarandstaðan kallar eigi síð-
ur: Úlfur, úlfur. — Má segja að
flest sé notað til þess að hræða
fólk’ og blekkja með marklaus-
um fullyrðingum.
Vaxtahækkunin er ekki vinsæl
og hefur jafnvel verið gefið i
skyn að hún sé til komin að ó-
þörfu. Vexti ber að lækka við
fyrsta tækifæri. Mætti telja það
augljóst batamerki í efnahags-
lífinu, þegar það verður talið
fært.
Ætli samdráttur að verða of
mikill og hættumerki atvinnu-
leysis gerir vart við sig, ber að
örva framkvæmdir meðal ann-
ars með vaxtalækkunum. —
Tryggja verður næga atvinnu
fyrir alla, sem vilja vinna. Stefna
ber að því að þeim fjölgi, sem
vinna að framleiðslustörfum.
Nauðsynlegt er að vinna að því
að skipaflotinn verði mannaður
íslenzkum áhöfnum, enda þótt
það leiði til þess að framkvæmd-
ir minnki nokkuð.
Batinn mun koma fyrr en
menn grunar
Öruggt er að þjóðin á fram-
undan bjarta tíma, ef hún sam-
einast um að vinna að þeim verk
efnum, sem þarf að leysa. Nauð-
synlegt er að nokkur þolinmæði
verði sýnd þangað til árangur af
aðgerðum rikisstjórnarinnar
kemur í ljós. Batinn í efnahags-
málum þjóðarinnar mun koma
og verður augljós fyrr en menn
grunar, ef áróðursöflunum tekst
ekki að koma í veg fyrir að efna-
hagsaðgerðirnar fái að njóta sin.
Reynir nú á dómgreind og
skilning alls almennings í land-
inu. Sættir þjóðin sig við að taka
á sig nokkra kjaraskerðingu um
stundarsakir til þess að unnt
verði að koma í veg fyrir varan-
lega kjaraskerðingu alþjóðar?
Ef almenningur skilur hvað í
húfi er, er ekki að efast um
hver niðurstaðan verður. Það
verður að treysta því að sá kost-
urinn sem tryggir þjóðinni far-
sæld og velgengni í framtíðinni
verði valinn.