Morgunblaðið - 02.06.1960, Qupperneq 17
Fimmtudagur 2. júní 1960
MORCUHBT AÐIÐ
17
Magnús Jónsson
forstjóri — minning
Nýtt Helgaíell kontið út
Blásarakvintett frá
Fíladelfíu leikur hér
X GÆR KOM hingað til
lands á vegum Tónlistartelagsins
hmn kunni Blásarakvintett írá
Fíladeilfíu í Bandaríkjunum, og
rrun hann halda hér tvenna tón-
leika fyrir styrktarmeðlimi Tón-
listarfélagsins, þá fyrstu í gær-
kvöldi (miðvikudag), en þá síðar1
í kvöld. Báðir tónleikarn-
ir eru haldnir í Austurbæjar-
bíói og hefjast kl. 7 síðdegis. Þá
mun kvintettinn halda þriðju
tónleikana á föstudagskvöldið
íyrir Kammermúsikklúbbinn í
Reykjavík.
Þetta er í annað skiptið að
þessi blásarakvintetf kemur til
tónleikahalds hér á landi. í fyrra
skiptið kom hann um haustið
1954 og hélt þá einnig tvenna
tónleika fyrir styrktarmeðlimi
Tónlistarfélagsins. Er hann talinn
standa einna fremst í flokki
þeirra blásarakvintetta, sem starf
andi eru í Vesturheimi og flutn-
ingur hans á kammermúsik þyk-
ir frábær.
Hljóðfæraleikarar þeir, sem
skipa þennan blásarakvintett, eru
allir meðlimir í sinfóníuhljóm-
sveitinni í Fíladelfíu, sem kunn
er um allan heim, en jafnframt
eru þeir, hver í sinni grein, próf-
essorar við Curtis tónlistarskól-
ann i Fíladelfíu.
Þegar Blásarakvintettinn frá
Fíladelfíu kom hingað árið 1954
lék William Kincaid á flautu í
kvintettinum en hann er einn
kunnasti flautuleikari í Ameríku.
Hann hefur nú látið af störfum
fyrir aldurs sakir, og við hlut-
verki hans hefur tekið Robert
Cole. Aðrir meðlimir, kvintetts-
ins eru þessir: Mason Jones, horn;
Sol Schoenback, fagott; Anthony
Gigliotti, klarinett og Wayne
Rasper, óbó. *
NÝLEGA er komið út hefti af
Nýju Helgafelli. Það er stórt hefti
og all fjölbreytt að efni. Stærstu
greinarnar í því eru samtalsþætt
ir við Svavar Guðnason listmál-
ara sem Matthías Johannessen
færði í letur, grein um erfða-
fræði eftir Sturlu Friðriksson og
grein eftir Sigurð Líndal um
Stjórnarbótarmál íslendinga á
Þingvallafundinum 1873.
Samtalið við Svavar Guðnason
nær yfir langt tímabil, en er að-
allega skráð í sambandi við fimm
tugsafmæli listamannsins og
koma ýmsar persónur inn í það,
m.a. dvelst Kjarval á sviðinu um
sinn. En til frágangs á samtalinu
er sérlega vandað, þar sem því
fylgja vandaðar litprentanir á
málverkum Svavars.
Greinin um Þingvallafundinn
1873 er byggð að miklu leyti á
fundargerðum frá honum sem ný-
lega komu í leitirnar úr fórum
Jóns Guðmundssonar ritstjóra.
Hafa lengi verið skiptar skoðanir
um hvað gerðist á honum, enda
voru fundargerðir taldar glatað-
ar. En á honum var haldið harð-
ar og ákveðnar fram en nokkru
sinni fyrr sjálfstæðiskröfum ís-
lands og samið frumvarp að
stjórnarskrá fyrir landið, þar
sem gert var ráð fyrir að einu
tengslin við Dani yrðu konungs-
samband.
Meðal annars efnis í Nýju
Helgafelli má nefna smásöguna
„Jónas eða listamaðurinn við
vinnu sína“, eftir Albert Camus,
greinina „Ofskipulagning" eftir
Aldous Huxley. Eitt ljóð er í rit-
inu: „Á gaukstíð“ eftir Þorstein
Yaldimarsson og loks allmargir
þættir um bókmenntir og li=t.ir.
Nær 400 börn
í Siglufjarðar-
skóla
SIGLUFIRÐI, 24. mai. — Barna-
skóla Siglufjarðar var sagt upp
21. maí sl. í Siglufjarðarkirkju.
Haustskóli byrjaði 14. september,
en aðalskólinn 1. október. Skóla-
dagar voru 182 hjá yngstu bekkj-
unum, en 168 hjá þeim eldri. —-
Alls sóttu skólann 385 börn, en
4 börn fengu kennslu utan skóla.
Skólinn starfaði í 16 bekkjar-
deildum með 12 föstum kennur-
um og 4 stundarkennurum.
68 börn luku prófi frá skólan-
um og þar af fengu 7 yfir 9 í
aðaleinkunn. Hæsta einkunn við
skólann hlaut Ingi Gunnlaugsson,
9,5. Heilsufar var ágætt í skólan-
um og fjarvistardagar fáir. Skóla-
stjóri er Hlöðver Sigurðsson.
Eru LÍF og BRUNATRYGGINGAR yðar
nægilega háar? e£ svo er ekki, þá vinsam-
lega snúið yður til umboðsmanna, vorra,
eða skrifstofunnar, Lækjargötu 2, sími
1-3171.
Vátryggingaskrifstofa
Sigfusar Sighvatssonar hf.
Hótel Garður rekinn
af stúdentum í sumar
UM MÁNAÐAMÓTIN tekur
til starfa sumargistihús á
stúdentagörðunum — Hótel
Garður — og munu stúdentar
nú í fyrsta sinn annast rekst-
ur þess sjálfir.
Bætt úr brýnni þörf
munu gestir eiga kost á að fá
eitthvað matarkyns allan sólar-
hringinn, en það mun vera ný-
mæli á hótelum hér.
Það er von stúdenta, að þessi
hótelrekstur megi iakast vel —
svo að eigi líði á löngu áður en
fært verður að leggja út í bygg-
ingu nýs stúdentagarðs.
VEÐURBRIGÐI eru oft snögg, og
eins er með líf okkar mannanna,
sá sem er frískur og glaður í dag,
getur verið liðið lík á morgun.
Og þannig var það með Magnús
Jónsson, en það skeði aðeins á
nokkrum sekúndum.
Han lézt á heimili sínu, Bú-
staðarvegi 97, þann 24. maí. Bana
mein hans mun hafa verið hjarta-
bilun. Magnús er fæddur í Fljóts-
dal, en fluttist þaðan til Reykja-
víkur 7 ára gamall og hefur átt
þar heima síðan. Hann var fædd-
ur 15. september 1911, og var því
tæplega 49 ára, er hann lézt.
Magnús ólst upp hjá móður-
systur sinni Sveinbjörgu Sveins-
dóttur, sem gekk honum í móð-
ur stað, og ól önn fyrir honum
af ástríki og móðurblíðu Hann
þekkti ekki aðra móður en Svein-
björgu, því móðir hans iézt um
sama leyti og hann fæddist.
Um tvítugs aldur kvæntist
hann eftirlifandi konu sinni,
Hrefnu Þórðardóttur, sem reynd-
ist manni sínum hinn trausti og
góði förunautur öll þeirra búskap
arár. Um 20 ár bjuggu þau í aðal-
stræti 16.
Þau hjónin eignuðust fjögur
Stúdentagarðarnir hafa um ára
bil verið reknir sem hótel á sumr-
um — frá byrjun júní til sept-
emberloka — en þann tíma hefur
ferðamannastraumurinn verið
mestur. Með þessu hefur tekizt
að ráða mikilsverða bót á því
vandamáli sem gistihúsaskortur
inn hér er um sumartímann, þeg-
ar erlendir ferðamenn flykkjast
hingað víða að úr veröldinni.
Stærsta hótel landsins
Hótel Garður hefur upp á að
bjóða fleiri gistiherbergi en nokk
urt annað hótel hér á landi, þ. e.
40 á Gamla Garði og 50 á Nýja
Garði, eða 90 herbergi alls. Eru
herbergin bæði vistleg og vel
búin húsgögnum. Þar að auki
eru svo á báðum stúdentagörð-
unum rúmgóðar setustofur og
fleiri húsakynni fyrir hótel-
gesti.
börn, eina stúlku og þrjá drengi.
Fyrsta barnið misstu þau um árs
gamalt, hin heita Margrét, og er
hún giff Hauk Guðmundssyni
bifreiðarstjóra, starfsmanni hjá
Eimskip. Karl Lúðvík, sem er að
verða vélstjóri, og Magnus Hrafn
13 ára.
Þeir sem fátækir fæðast í þenn
an heim, verða snemma að leggja
út í baráttuna við lífið.
Um 13 ára aldur fór Magnús að
vinna fyrir sér, og réðist hann
þá sem sendisveinn til Heild-
verzlunar L. Andersen.
Það má segja, að sá sem er
trúr yfir litlu mun verða settur
yfir stærra, og var það með
Magnús svo, þar eð hann skipti
aldrei um vinnustað. I 36 ár;
starfaði hann við fyrirtækið L.
Andersen, fyrst sem sendisveinn,
síðan sem aðstoðarmaður, og svo
sem fulltrúi og síðustu árin sem
meðeigandi og forstjóri.
Það má segja, að þeir sem ekki
ganga mentaveginn, eiga örðugra
með að leysa úr verkefni
síns daglega lífs, ekki sízt þegar
um verzlunarstörf er að ræða,
en það mun ekki hafa háð
Magnúsi að neinu verulegu leyti
að ganga ekki menntabrautina,
því að hann menntaðist í starfi
sínu, sem einkenndist af ná-
kvæmni í öllu reikningshaldi,
’ skyldurækni og að töluð orð
stæðu eins og starfir á DÓk, það
var hans aðalsmerki.
I daglegri umgengni var hann
viðmótsþjáll og orðlipur, og not-
aði aldrei stóryrði, þó um mein-
ingarmun væri að ræða, en hélt
með lipurð á sínu máli.
Ég get ekki látið hjá líða að
minnast á heimili þeirra hjóna,
því þaðan á ég og aðrir þeirra
vinir og kunningjar margar
ánægju og gleðistundir, því
heimilið var svo heimilislegt, við-
feldið og gestrisnin svo hlý.
Nú erf þú horfinn vinur af
brauf hins erilssama lífs, og þú
getur kvatt kinnroðalaust í sátt
við allt og allá.
Ég þakka sambylgdina bæði í
sorg og gleði.
Ég votta öllum ástvinum hans
samúð mína og bið Guð að blessa
hann og varðveita.
Þorkell Einarsson
Hótelrekstur stúdenta erlendis
til fyrirmyndar
Eins og að var vikið, er það
í fyrsta skipti nú, sem stúdentar
sjálfir annast rekstur hótelsins.
Slíkur hótelrekstur stúdenta er
algengur á hinum Norðurlönd-
unum og hefur þótt vera til mik
illar fyrirmyndar, t. d. rekstur
dönsku stúdentagarðanna Eg-
mont og Solbakken í Kaup-
mannahöfn. Stúdentaráð Há-
skóla íslands hefur því undan-
farin ár stefnt að því, að taka
ireksturinn í eigin hendur og
hefur þeim áfanga nú verið náð.
Stefnt að byggingu
nýs stúdentagarðs
Markmið stúdenta með þessu
er fyrst og fremst það, að afla
tekna, svo að unnt verði að
greiða þær skuldir, sem á görð-
unum hvíla og ryðja þannig
brautina að byggingu nýr stú-
dentagarðs. Jafnframt er svo
stefnt að því að bæta nokkuð
aðstöðu þeirra stúdenta, sem á
görðunum búa á veturna.
Kostað kapps um góða þjónustu
Stúdentum er vel ljóst, að
mikið veltur á því, hversu til
tekst þegar fyrsta sumar, sem
þeir annast reksturinn sjálfir.
Þeir munu því kosta kapps um,
að þjónusta öll og aðhlynning
verði svo sem bezt má verða og
reksturinn til sóma. Starfsfólk
hótelsins verður að verulegu
leyti stúdentar, og hefur Hörð-
ur Sigurgeirsson, stud. oecon.,
sem verið hefur fastur starfs-
maður stúdentaráðs undaníarið
ár, verið ráðinn hótelstjóri. Hef
ur hann m. a. kynnt sér rekstur
stúdentahótelanna í Danmörku.
— Svo vel hefur tekizt til, að
hinn kunni veitingamaður
Tryggvi Þorfinnsson mun hafa
með höndum matargerð alla og