Morgunblaðið - 02.06.1960, Page 20
23
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudag^ir 2. júní 1960
-Skifibrotóm
enn
EFTIE W. W. JACOBS
— Skyldan, svaraði læknirinn.
Ég er að gæta hagsmuna
sjúklings míns. Hann er nú far-
inn í kojuna og æfingarnar rétt
að byrja!
— Það er þá bezt að hann
fremji þessar æfingar í kojunni
framvegis, sagði Knight. — Við
kærum okkur ekki um purpura-
rauða loftfimleikamenn eld-
snemma morguns. Það hefur svo
truflandi áhrif,
— Hann verður að gera æfing-
arnar sínar á morgnana í hreinu
lofti, sagði Maloney. — Þið verð
ið að fara seinna á fætur.
— Við vorum á undan ykkur,
sagði Knight.
— Félagið Árvakur! bætti Pep
low við og kinkaði kolli.
— Stofnað fyrir mörgum vik-
um, sagði Knight.
Maloney glotti. — Hvers vegna
var mér ekki sagt frá því?
— Vegna þess, að félágatalan
er takmörkuð við fjóra, sagði
Knight, um leið og ungfrú
Seacombe hnykkti til höfðinu og
gekk út, en ungfrú Blake elti. —
Þú gerir svo vel og rífur sjúkl-
inginn þinn upp klukkan fimm
og lætur hann ljúka þessum
krampateygjum sínum áður en
við komum á fætur, þá ertu
vænn!
Maloney hristi höfuðið. — Ef
þú hefðir séð hann, þegar ég
nefndi klukkan sex í gær, mynd-
irðu ekki tala svona, svaraði
hann.
— Jæja, við verðum þá víst
að vera annars staðar á þilfarinu,
sagði Knight órólegur. — Meira
að segja er víst bezt að við höld-
um okkur alfarið í reyksalnum.
— Ég skal náttúrlega nefna
það við hann, sagði læknirinn.
— Vitanlega vil ég gera það,
sem ég get fyrir unga fólkið, en
vitanlega eiga sjúklingamir for-
gangsréttinn. Pope er athuga-
vert tilfelli — einskonar ofvax-
inn rósarunnur, sem þarf að
klippa.
— Ætli hann sé þá ekki farinn
að bíða eftir þér — og garðklipp
unum, sagði Knight. — Láttu
okkur ekki tefja þig. En ég vildi
þú vildir fá rósarunninn þinn til
þess að fremja æfingarnar sinar.
eftir að við hin erum komin í
bólið, sagði Knight, er læknirinn
myndaði sig til að fara. — Ef
hitt fólkið heyrir um þær, rífur
það sig allt upp til þess að horfa
á. —
— Við verðum að leggja í þá
áhættu, svaraði hinn rólega. —
Það hefur sjólfsagt gaman af að
horfa á, en ekki trúi ég samt, að
neinn rífi sig upp oftar en einu
sinni til þess.
Eins og Knight hafði grunað,
síaðist orðrómurinn um morgun-
leikfimi Knights út meðal far-
þeganna. í fyrsta sinn nennti
ungfrú Mudge að hlusta á mál
bátsmannsins, er hann lýsti því,
hvernig Pope hefði hoppað yfir
band, og bátsmaðurinn varð svo
hrifinn af þessari óvenjulegu at-
hygli, að hann tók að gera sér
talsverðar hugmyndir um frá-
sagnarlist sína.
— Þér hefðuð átt að sjá hann
— þér hefðuð sprungið, sagði
hann blíðlega. Ungfrúin tók
þeirri tilgátu heldur kuldalega.
— Eða fengið krampa, hélt
Tarn áfram og horfði á hana von-
araugum.
— Ég trúi ekki, að ég hefði
neitt teljandi gaman af þvi, sagði
ungfrúin í höfðingjatón. — Og
ég vona, að ég sé of mikil dama
til þess að fara að rífa mig upp
klukkan sex að morgni, til þess
að horfa á karlmann — hvaða
karlmaður sem það hefði verið
— ekki sízt þegar hann er nú alls
ekki klæddur til að taka á móti
gestum.
— Ekki held ég það gæti skað-
að neinn, sagði bátsmaðurinn
vonsvikinn. — Hugsum okkur nú
• bara sem fræðilegan mögu-
leika — að þetta hefði verið þér
en ekki hr. Pope. Ég skal bölva
mér upp á, að hver einasti karl-
maður í buxum hefði....
Hann þagnaði snögglega er
ungfrúin skellti bókinni aftur,
greip sauma sina og stikaði burt
með nefið upp í háaloft. Hann
sneri þá aftur að skylduverkum
og skammaði um leið nokkra há-
seta fyrir að vanrækja sín skyldu
verk.
Það er leitt frá að segja, að frú
Penrose brást ekki líkt því eins
teprulega við fregninni og þerna
hennar hafði gert, eða satt bezt
að segja: ungfrú Mudge var ekki
fyrr búin að segja henni af morg
unfimleikum Popes, en hún tók
að hugsa upp ráð til þess að geta
horft á þá.
— Ekkert er auðveldara, sagði
Carstairs, en við hann hafði hún
látið þessa ósk sína í Ijós. — Ekk-
ert annað en fara á fætur tíu mín
útum fyrir sex í fyrramálið og
verða á undan honum. Það er
hægt að liggja í leyni, t. d. í reyk
salnum eða einhvers staðar. Ég
ætla að koma líka, ef ég má.
— Haldið þér ekki að honum
falli þetta miður? spurði frú
Fenrose allt í einu, með síðbor-
inni nærgætni.
— Hvaða ástæða væri til þess?
sagði Cárstairs. — Auk þess
myndi hann ekki vita af því. Við
höfum reyksalinn alveg fyrir
okkur á þessum tíma sólarhrings
ins og ekkert mannsbarn hefur
hugmynd um að við höfum þang-
að komið.
Næsta morgun höfðu þau reyk
salinn í næði í nákvæmlega tvær
mínútur, en þá opnuðust dyrn-
ar og ungfrú Blake kom inn. —
Hræðsluóp frá henni gaf til
kynna að hún áttaði sig á kring-
umstæðunum, en Knight og Pep-
low, sem komu á eftir, ásamt ung
frú Seacombe, stilltu sig og
þögðu.
Ofurlitill skuggi leið yfir and-
lit frú Penrose. — Hjálpi mér!
sagði hún, er hún áttaði sig. —
Það er naumast þið eruð snemma
á fótum!
— Það er svo hollt, sagði
Knight.
— Það var gaman að heyra.
Hafið þið lengi iðkað þessa holl
ustuhætti?
— Ekki mjög. Ekki lengur en
þér og Carstairs komið til með
að gera, vona ég.
— Við komum nú hingað til
að sjá hr. Pope, sagði frúin.
Knight hneigði sig. — Við
komum nú í sömu erindum — öll
f jögur, bætti hann við undirfurðu
lega. — En Pope, sem er við-
kvæmur í sér, er vanur að leika
listir sínar aftur á.
Nú varð ofurlítil, vandræðaleg
þögn, en þá heyrðust einhverjir
fótaskellir úti fyrir og Pope, sem
var að æfa einhvers konar froska
stökk, með krepptum hnjám,
þaut framhjá í einu siökki.
Maloney rak höfuðið inn um
dyrnar og horfði á þau.
— Er þetta mæðrafundur eða
hvað er það? spurði hann reiði-
lega. — Hvernig á sjúklingurinn
minn að geta haldið jafnvæginu
og verða fyrir slíku sem þessu?
5
— Kannske hefur hann ekki
séð okkur, ságði Peplow.
— Vrst sá hann ykkur, sagði
læknirinn enn æstari en fyrr. —
Hann er nú farinn niður undir
þiljur, og ég vil ekki endurtaka
orðbragðið hans. Og hvernig á
læknir að geta notið sín við
svona starfsskilyrði?
— Haldið þér, að þér sjálfur
og þessi' dýrmæti sjúklingur yð-
ar eigi að hafa einkaleyfi á öllu
skipinu? spurði ungfrú Seacombe
Qg var farið að síga í hana.
— Eða að við eigum að halda
okkur í rúminu, þangað til yður
þóknast að leyfa okkur á fætur?
spurði ungfrú Blake.
— Kannske þér ætlið að læsa
okkur inni í káetunum okkar?
spurði Peplow.
— Ekki yður .svaraði læknir-
inn háðslega. — Yður vildi ég
gefa sömu meðferð og Pope. Þér
mynduð hafa gott af því.
— Sömu meðferð og Pope? Og
til hvers ætti það að vera?
— Það vita víst allir, nema þér
sjálfur, svaraði læknirinn kulda
lega og gekk burt.
— Hvað er hann að gefa í
skyn? spurði Peplow og leit
kring um sig, eftir að læknirinn
var farinn. — Ég veit ekki annað
en ég sé við góða heilsu. Ég fæ
mér alla þá hreyfingu, sem tæki
færi er til. Ég hef verið á fótum
klukkan sex í síðustu sex....
— Sex, hvað? spurði Penrose
með hægð.
— Klukkutíma, svaraði Pep-
low, sem leið hálfilla undir
augnaráðinu, sem Knight sendi
honum.
— Ég er viss um að þér hafið
gert það, sem þér hafið getað,
sagði frú Penrose í meðaumkun-
artón. — Ekki hafði ég hugmynd
um, að þér væruð svona dugleg-
ur. Ég get ekki annað en skamm-
azt mín fyrir mína eigin leti. Ég
verð að bera mig að fara að dæmi
yðar framvegis.
— Ef það er til þess að sjá
sjúklinginn minn — fyrrverandi
— sem þér ætlið að rífa yður á
fætur, getið þér hætt við það
strax, sagði læknirinn, sem nú
var kominn inn aftur.
— Fyrrverandi sjúkling? át
Carstairs eftir og varð bilt við.
Læknirinn kinkaði kolli. —
Hann er í búrinu hjá brytanum,
sagði hann, þungur á svip. —
Markham bryti hefur tekið við
honum af mér og er nú að reyna
til við hann með sneiðum af
köldu fleski.
16.
— Þetta er nú náttúrlega gott
og blessað, sem komið er, sagði
frú Penrose og andvarpaði ofur-
lítið. — Svei mér ekki ef ég held
að við ætlum að komast kring
um hnöttinn, án þess að lenda í
einu einasta ævintýri.
— Langar yður í ævintýri?
spurði Carstairs.
— Já, eitthvað svolítið, rétt til
tilbreytingar — eitthvað sem er
svolítið öðru vísi en það hvers
dagslegasta. Skipreika menn til
að bjarga, eða eitthvað því líkt.
Hugsa sér annars að vera á báti
í þessu myrkri, aleinn með stjörn
unum og sjónum.
— Já, og láta sig vanta mat og
drykk og túlkun Popes á „Bisk-
ayaflóanum", sagði Carstairs, er
miklar söngrokur og píanóglam-
ur barst til þeirra frá setusaln-
um.
— Hann er alveg búinn að ná
sér, sagði frúin. — Segist hafa
hætt við lækninn alveg mátulega
snemma.
í
lí
ó
— Áttu við það að Bangsi geti
enn veitt, þótt hann sé stein-
þlindur?
— Bíddu bara og sjáðu, Mark-
ús! | og rekur höfuðið i trjábolina, en
— En Bjarni, eru ekki hrædd- hann lætur það ekkert á sig fá ..
ur um að hann meiði sig? Hann myndi deyja úr harmi, ef
— O, hann fær á sig skrámur ég skildi hann eftir heima.
Hvernig lízt þér nú á hann,
Markús?
— Hann er enn mesti veiði-
hundur, sem ég hefi séð!
— Það getur nú samt verið dá
lítið óviðkunnanlegt, ef hann
skyldi þurfa á honum að halda
seinna, sagði Carstairs brosandi.
— Maloney hefur aðvarað hann
um það, að sjálfur hreinunareld-
urinn sé hreinasti barnaleikur
móti næstu lækningu, sem hann
fái hjá sér. Honum finnst víst
sum okkar heldur eftirlátssöm
við sjálf okkur. í gær hnýtti hann
í Knight fyrir að vera of lingerð
ur og svo fóru þeir í hnefaleik
fyrir morgunverð til þess að
komast að niðurstöðu í málinu.
— Ég heyrði um það. Herra
Knight er fullfær til allra gagns
lausra verka.
— Maloney yrði yður víst al-
veg sammála um þá lýsingu á
hnefaleikum. Hann er ekki bú-
inn að jafna sig enn, þvií að svo
bætti Knight gráu ofan á svart
þegar hann var búinn að dusta
lækninn, með því að játa sig lin-
gerðan og biðja um að gefa sér
eitthvað styrkjandi.
— Frúin hló. — Herra Knight
hefði ekki haft nema gott af að
vera dustaður dálítið til, sagði
hún.
Carstairs kinkaði kolli. —
Þetta sama sögðu einn eða tveir
óeigingjarnir áhorfendur, sagði
hann hægt. — Þeir náðu í einn
kyndarann upp á þilfar, sem
ímyndar sér að geta eitthvað í
hnefaleik, og árangurinn varð sá
að þeir hafa „einum kyndara of
fátt í dag. Skipstjórinn var að
kvarta yfir því við mig, rétt áð-
an, og var aðallega gramur yfir
því, að ekki skyldi hafa verið
kallað á sig til að horfa á viður-
eignina. — Hættið þið þessu!
sagði hann, en ég skildi nú vel,
hvað hann átti raunverulega
við.
aitltvarpiö
*
Fimmtudagur 2. júní
8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn — 8.05
9.25 Morguntónleikar: — (10.00 Veð-
Morgunleikfimi — 8.15 Tónleikar
— 8.30 Fréttir — 8.40 Tónleikar
10.10 Veðurfregnir),
12.00—13.15 Hádegisútvarp.
12.50—14.00 ,,A frívaktinni", sjómanna
þáttur (Guðrún Erlendsdóttir
stjórnar).
15.00 Miðdegisútvarp. — (16.00 Fréttir).
16.30 Veðurfregnir.
x9.00 Þingfréttir. — Tónleikar.
19.35 Tilkynningar.
19.40 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Þrjátíu ára starf íslenzku skóg-
ræktarfélaganna; erindi (Snorri
Sigurðsson skógfræðingur).
20.55 Einsöngur: Sigurður Björnsson
syngur með undirleik Fritz Weiss
happels.
a) Tvö lög eftir Þórarin Jónsson:
„Lóan“ og „Fjólan'*.
b) „Bikarinn“ eftir Eyþór Stef-
ánsson.
c) Þrjú lög eftir Schubert: „Des
Mullers Blumen“, „Warum?**
og „Mein“.
21.15 „I landvari": Lestur úr nýrri
ljóðabók eftir Gísla Olafsson frá
Eiríksstöðum (Baldur Pálmason).
21,. 25 Tónleikar: „Leikfangabúðin“ eft-
ir Rossini-Respighi. (Hljóm-
sveitin Fílharmonía í Lundún-
um leikur; Alceo Galliera stj.).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Smásaga vikunnar: „A götunni"
eftir Knut Hamsun í þýðingu
Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðar-
nesi (Valur Gústafsson leikari).
22.25 Sinfónískir tónleikar:
„Háry János“, svíta eftir Zoítan
Kodály (Sinfóníuhljómsveitin i
Minneapolis leikur; Eugene Orm
andy stjórnar).
23.00 Dagskrárlok.
Föstudagur 3. júní
8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn — 8.05
Morgunleikfimi — 8.15 Tónleikar
— 8.30 Fréttir — 8.40 Tónleikar —
10.10 Veðurfregnir).
12.00—13.15 Hádegisútvarp.
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
13.25 Tónleikar: Gamlir og nýir kunn-
ingjar.
15.00—16.30 Miðdegisútvarp.
16.30 Veðurfregnir.
19.00 Þingfréttir. — Tónleikar.
19.25 Veðurfregnir.
19.40 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Samtalsþáttur um lax og lax-
veiði: Gísli Kristjánsson ritstjórl
ræðir við Þorstein Guðmundsson
bónda á Skálpastöðum og Ola J.
Olason, form. Stangaveiðifélagg
Reykjavíkur.
20.55 Kórsöngur: Karlakór Keflavíkur
syngur undir stjórn Herberts
Hriberscheks.
21.30 Utvarpssagan: „Alexis Sorbas**
eftir Nikos Kazantzakis, í þýð-
ingu Þorgeirs Þorgeirssonar; XXI
(Erlingur Gíslason leikari).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Auglýst síðar.
22.25 I léttum tón: Lög frá Berlínar-
útvarpinu.
-23.00 Dagskrárlok.