Morgunblaðið - 02.06.1960, Síða 22
22
MORGVNBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 2. júní 1960
Vithjálmur og Valbjörn
náðu lágmarkinu í gœr
Fram vann ÍBK 2:0
Keflvíkingar i fallhættu
f GÆR náðu tveir frjáls-
íþróttamenn lágmarkskröfum
Olympíunefndarinnar fyrir
þátttöku 1 Olympíuleikun-
um í sumar. Vilhjálmur Ein-
arsson stökk 15.53 metra í þrí-
stökki, en lágmarkið er 15.50
metrar. Vilhjálmur stökk tvö
stökk. 1 fyrra stökkinu stökk
hann 15.01 m, en í öðru fór
hann yfir lágmarkið, er hann
stökk 15.53. Sérstaklega gott
var að stökkva í gær, hiti í
lofti og logn.
Valbjörn Þorláksson lét sig
ekki muna um að stökkva iág
markshæðina í stangarstökk-
inu, en það er 4.30 metrar. Val
bjöm stökk 4.00 — 4.10 —
4.20 — 4.30 og 4.40 metra og
fór yfir allar hæðirnar mjög
léttilega í fyrsta stökki. Síð-
EOP
mótinu
Rannveig Lai'dal ÍR tekur
við verðlaunum fyrir 100 m
hlaup. Hún er nú fótfráust
allra íslands meyja.
an reyndi hann við 4.50, en
var auðsjáanlega orðinn
þreyttur. Hann komst yfir en
felldi á niðurleið. Eftir þess-
um árangri að dæma er Val-
björn í fremstu röð stanga-
stökkvara Evrópu það sem af
er þessu ári.
Rússarnir
afhoð.
sendu
en
MIKIÐ hefur gengið á í sam-
bandi við heimsókn rúss-
innar yrði að vænta. — Sögðu
knattspyrnumennirnir hér,
nesku knattspyrnumannanna. að ógerningur yrði að taka
í gær var allt útlit fyrir að á móti Rússum eftir næstu
þeir kæmu ekki í bráð. í við viku, því nú styttist óðum
tali við rússneska sendiráð-
ið laust eftir hádegi upplýst-
ist það, að liðsmennirnir
hefðu ekki fengið vegabréfs-
áritun í Moskvu. Þeir hefðu
með öðrum orðum ekki feng
tíminn fram til landsleiksins
við Norðmenn.
En Rússarnir koma efir
allt í kvöld. Orðsending
barst frá Moskvu síðar í gær
um að brottfararleyfi væri
ið brottfararleyfi enda þótt fengið og kemur liðið vænt-
förin hefði staðið til um anlega í kvöld með flugvél
lang skeið. I skeyti frá frá Kaupmannahöfn — og
Moskvu var heimsóknin því fyrsti leikurinn verður ann-
afboðuð en ekkert ákveðið að kvöld við úrval af SV-
sagt um hvenær heimsóknar landi á Laugardalsvellinum.
Armenningar
töpuðu í tví-
sýnum leik
KAUPMANNAHÖFN, 31. júní:
Eins og kunnugt er, fór 2. flokk-
ur körfuknattleiks drengja úr
Glímufélaginu Ármann í keppn-
isferðalag til Danmerkur og er
Bogi Þorsteinsson, form. Í.K.F.,
fararstjóri þeirra. Ármenning-
arnir léku fyrsta leikinn í gær.
Leikið var úti og fór leikurinn
fram í Fælledparken í Kaup-
mannahöfn. Mótherjar Ármenn-
inganna voru Kaupmannahafnar-
meistararnir SISU, er mættu til
leiksins með tveim núverandi og
tveim fyrrverandi landsliðsmönn
um Dana. Ageins einn dómari
var og hafði hann lítil tök á
leiknum, sem varð allharður og
lauk með sigri Dana 37:36. Má
þetta teljast mjög góður árang-
ur hjá Ármenningunum. Næst
keppa Ármenningarnir í Ála-
borg og fara þangað í dag frá
Kaupmannahöfn. —B. Þ.
4691
og 3049
DREGIÐ var í happdrætti Hand-
knattleikssambands íslands
gær og komu upp númerin 4691
og 3049. Vinningar voru tvær
flugferðir með Flugfélagi íslands
til London og til baka. Upplýs-
ingar um happdrættið gefur Axel
Einarsson, sími 13602.
Fram sigraði Keflavík 2:0 á
sunnudaginn í leik þeirra í 1.
deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu. Leikurinn fór fram á
nýjum knattspyrnuvelli þeirra
Keflvíkinga, sem hafði áður ver-
ið valtaður rétt fyrir leikinn og
var mjög glæsilegur á að líta,
en suð-austan stormur kom í veg
fyrir að menn gætu sýnt góðan
leik og má segja að leikurinn í
heild hafi verið barningur við
að hemja knöttinn.
Framarar betrl.
Það kom fljótlega fram að
Framarar voru leiknari með
knöttinn og tókst að hemja hann
betur en Keflavíkingunum. Þetta
varð til þess að Fram náði upp
betri samleik og yfirhöfuð má
segja, að sú knattspyrna sem
sást í þessum leik, sem að vísu
var ekki mikil, var viðleitni
Fram til að ná upp samleik og
halda knettinum niðri. í Kefla-
víkurliðinu stóðu sig bezt bak-
verðirnir Gunnar Albertsson og
Þórhallur Helgason og innherj-
inn Einar Magnússon, er eftir-
tektarverður leikmaður. Hólm-
bert var ekki með IBK og vant-
aði mikið og hefði leiknj hans
með knöttinn getað notið sín i
þessum leik. Er gefið að fram-
línan mun styrkjast mikið, er
þeir Einár og Hólmbert eru báð-
ir komnir sem innherjar í lið
inu. í Framliðinu bar Rúnar
Guðmannsson höfuð og herðar
yfir samherja sína. En að öðru
leyti átti framlínan nokkuð góð-
an leik. Samleikur þeirra Guð-
mundar Óskarssonar, Grétars
Sigurðssonar og Guðjóns Jóns-
sonar var oft mjög skemmtileg-
ur. En upp úr einu slíku upp-
hlaupi skoraði Fram fyrra mark-
ið. Grétar lék þá snilldarlega á
Hafstein Guðmundsson, og gaf til
Guðm. Óskarssonar, augsýni-
lega bara til þess að láta mark-
ið líta betur út, því hann sjálfur
gat vel skorað úr þeirri stöðu,
sem hann var í, þe*gar hann gaf
til Guðmundar.
Síðara markið getur Hafsteinn
kennt sér um, en það kom upp
úr aukaspyrnu, sem var dæmd
fyrir að Hafsteinn hafði bruðgið
Guðjóni Jónssyni. Tók Guðjón
aukaspyrnu á horni vítateigsins
og sendi þrumuskot að markinu,
sem Heimi markmanni tókst ekki
að verja þótt hann kæmi við
knöttinn efst uppi í vinstra horni.
Eftir þennan leik þurfa Kefl-
víkingar alvarlega að fara að
taka sig saman, ef þeir ætla sér
að vera áfram í 1. deild, og væri
ekki úr vegi fyrir þá að taka upp
léttari knattspyrnu og láta svip
Hólmberts og Einars Magnússon-
ar verða. ríkjandi yfir leik liðs-
ins, en láta styrkleikaknattspyrn
una hverfa.
Sannur
iþróttaandi
RÓM, 1. júní. — (Reuters).
— ítalska Olympíunefndin
tilkynnti í dag að hún hefði
ákveðið að bjóða íþrótta-
mönnum frá Chile til
Ólympíuleikanna og greiða
dvalarkostnað þeirra meðan
á leikjunum stendur.
ítalska Ólympíunefndin
tók þessa ákvörðun eftir að
Olympíunefndin í Chile
hafði ákveðið að hætta við
þátttöku í Olympíuleikun-
um og láta þá peninga, sem
nefndin hafði til ráðstöfun-
ar vegna þjálfunar og ferða-
kostnaður íþróttamannanna
renna til viðreisnarinnar
eftir náttúruhamfarirnar
þar í landi í sl. mánuði.
Forustumenn Olympíu-
leikanna í Róm sögðu, að
Chile hefði ávallt sent þátt-
takendur til leikanna og að
ítölsku Olympíunefndinni
hefði þótt leitt ef fáni
Chile myndi ekki blakta
meðal fána þátttökuríkj-
anna í Róm.
Á FRJÁLSÍÞRÓTTAMÓTI í
Tallin kastaði eistlenzki spjót-
kastarinn Vallman spjótinu
79.93 metra. Þetta er eist-
lenzkt met og jafnframt
lengsta kast er spjótkastari
hefir náð í ár.
Friffrik Friffriksson, ÍR kem-
ur aff marki sem sigurveg-
ari í 600 m hlaupi drengja.
K. R. sigmði
á ísafirði
K. R. fór um síðustu helgi keppn
isför til ísafjarðar og léku þar
tvo leiki. Fyrri leikurinn fór
fram á laugardagskvöld og vann
K. R. 3:0. Um kvöldið var K.R.
ingum boðið á dansleik, sem hald
inn var að Uppsölum og er það
mál manna að þar hafi K. R,-
ingarnir staðið sig með prýði.
Á sunnudaginn léku K. R. ing-
arnir aftur við ísfirðinga og voru
þá enn tápmeiri en daginn áður
og unnu leikinn 5:1.
K. R.-ingar róma mjög allar
móttökur ísfirðinga og gestrxsni
alla. Ferðin var hin skemmti-
legasta og vænta K. R.-ingar
þess að þeim gefist tækifæri til
að endurgjalda ísfirðingum gest
risni þeirra, er þeir koma hingað
suður til að leika í 2. deildar-
keppninni.
Deilur um norska landsliðið eigi
minni, en um hið íslenzka
I NOREGI deila menn nú, sem
hér á Iandi um hvernig lands-
liffiff í knattspyrnu eigi aff
vera skipað 9. júní, er ísland
og Noregur keppa Iandsleik á
Ullaválvellinum í Osló. Af
norskum blaffaskrifum virðast
þeir í enn meiri erfiðleikum
en viff hér heima, því margir
telja að stórar breytingar
þurfi að gera á landsliðinu frá
því þaff tapaði 3:0 fyrir Dön-
um í Kaupmannahöfn 26. maí
s.l
FRAMLÍNAN GJÖRBREYTT
Mestar breytingar er taliff
að þurfi að gera á tramlín-
unni. Aftenposten segir t.d. aff
aðeins einn af sóknarmönnun
um frá landsleiknum við Dani
hafi rétt á aff leika leikinn viff
Island. Það er Rolf Björn
Backe og aff vísu ætti Steinar
Johannessen rétt á að leika, en
hann er meiddur og allar lík-
ur á að hann verði ekki búinn
að ná sér fyrir landsleikinn
við ísland.
Aftenposten leggur til að
framlínan verði skipuð eftir-
töldum mönnum: Björn Borg-
en, Harald Hennum,Rolf Björn
Backe, Erik Engsmyhr og
Wille Eliassen eða Axel Berg.
— Borgen er sagður vera i
góffri æfingu og Erik Esng-
myhr byggir vel upp leik og
sendingar hans þykja sérlega
vel útfærffar og eftirtektar-
verffar. Þaff eitt ætti aff
nægja honum til aff eiga rétt
á aff leika í landsliffinu gegn
íslandi.
VÖRNIN BREYTIST
EINNIG
f vörninni má einnig búast
viff breytingum. Káre Björn-
sen, sem lék sinn fyrsta lands
leik í Kaupmannahöfn, átti
mjög lélegan leik og telur Aft
enpósten lausnina vel geta
verið fólgna í aff láta Eiks
Tore Halvorsen og Arne Nat-
land verffa í stöðum hliðar-
framvarða. Thorbjörn Svens-
sen og Arne Bakker segir
blaðið aff eigi að halda sínum
stöðum og því muni það aff-
eins vera vandamál meff
vinstri bakvörðinn. Þar kem-
ur sterklega til greina Ragn-
ar Larsen frá Sandaker, en
hann lék í þessari stöðu í B-
landsleiknum í Álborg um
daginn og eftir Ieikinn sagði
ibróttafréttaritari Politiken,
að frammistaða hans hafi ver
ið það góð, að hún hafi nægt
til að hann gæti leikið í A-
liffi Danmerkur. Hann gæti
einnig leikið vinstri fram-
vörð ef landsliffsnefndin teldi
aff Arne Natland ætti aff vera
í vinstri bakvarðarstöðunni.
ALLUR ER VARINN
GÓÐUR
Þannig rökræffa Norffmenn
um landsliðið og skipan þess
og eru margar og misjafnar
skoðanir uppi þar um. En
eitt telja Norffmenn að megi
ekki koma fyrir. Þeir megi
ekki gera of litið úr getu ís-
Ienzku kanttspyrnumann-
anna, þótt ísland ætti aff vísu
aff vera léttur mótherji fyrir
Noreg.
En menn verffi aff hafa í
huga þá staðreynd, aff Noreg
ur tapaði fyrir íslandi í
Reykjavík í fyrra og vann aff
eins nauman sigur í síðari
leik landanna í undankeppni
Olympkileikjanna. Og því
síður megi menn gleyma
hinni fræknu frammistöffu ís-
lenzka landsliðsins í Idrætt-
parken í fyrrasumar, er þeir
gerðu jafntefli við Dani.