Morgunblaðið - 02.06.1960, Qupperneq 24
Íbróttasíðan er á bls. 22. m 0¥ðtttt ÚU arpsumrœðurnar Sjá bls. 8 og 10.
124. tbl. — Fimmtudagur 2. júní 1960
Verða öll hús I Reykjavlk, Kópavogi og Hafnarfirði
hituð með jarðhita
eftir tíu ár?
Mælitæki fyrir vatn og gufu.
Gylfi snéri af Græn-
landsmiðum vegna íss
FIMM holur hafa verið bor-
aðar með stóra bornum í
dalnum ofan Hveragerðis,
400—1200 m. djúpar. Full-
komnar afkastamælingar
hafa aðeins verið gerðar á
tveimur aflmestu holunum.
Önnur reyndist vera tæp 80
tonn af gufu og 300 tonn af
vatni, en hin 95 tonn af gufu
og 200 tonn af vatni á klst.
Samkvæmt hitamælingum
virðist 180—200 stiga heitt
vatn streyma inn í holurnar,
sem síðan breytist í gufu.
Þessar upplýsingar gáfu verk-
fræðingar jarðhitadeildar raf-
orkumálaskrifstofunnar, þeir dr.
Gunnar Böðvarsson og Sveinn S.
Einarsson, m .a. er fjárveitinga-
nefnd, raforkumálaráðherra,
annar horgarstjórinn í Reykja-
vík og fleiri aðilar fóru
austur fyrir fjall fyrir skömmu,
í tilefni þess að lokið er í bili
borunum í Hengilssvæðinu og
stóri borinn fluttur til Krýsu-
víkur.
Gufuveita frá Krýsuvík
Við þetta tækifæri skýrði dr.
Gunnar Böðvarsson í nokkrum
orðum frá hugmynd sinni um
lagningu gufuveitu frá Krýsuvík
til Reykjavíkur um Hafnarfjörð
og Kópavog. Taldi hann að á
þann hátt myndi hitaverðið til
notenda verða innan við helm-
ing þess verðs, sem hiti kostar
í dag úr kolum og olíu í V.-
Evrópulöndunum.
1 skýrslu dr. Gunnars seg-
ir m .a. að gera megi fastlega
ráð fyrir því, að innan 10 ára
verði fyrir hendi möguleikar
til þess að hita alla byggð í
Reykjavík, Kópavogi og Hafn
arfirði með jarðvarma. Þessu
merki megi sumpart ná með
áframhaldandi borunum í og
við Reykjavík og sumpart
með varmaveitu frá Krýsu-
vík að Hengli.
Gufustöð i Hveragerði
Jakob Gíslason, raforkumála-
stjóri skýrði gestum frá byrjun-
aráætlun sem unnið er að, 15000
kw jarðgufuknúins orkuvers,
eins og áður hefur verið frá
skýrt hér í blaðinu. Benti hann
á að á þessu stigi gæti það reynzt
viðráðanlegra hér á suðvestur-
landi ,en að virkja jökulárnar
austanfjalls.
Holurnar á Hengilsvæðinu eru
boraðar í tvenns konar tilgangi,
í rannsóknarskyni og til fram-
leiðslu á virkjunarhæfri gufu og
Þingvallanefnd
n
kjörin í »ær
í GÆR fór fram í sameinuðu
þingi kosning þriggja alþingis-
manna í Þingvallanefnd, er hafa
skal fyrir Alþingis hönd yfir-
stjórn hins friðlýsta svæðis á
Þingvöllum o. fl. í nefndina voru
kosnir þeir Sigurður Bjarnason,
Emil Jónsson og Hermann Jónas-
son. Ekki Komu fram uppástung
ur um fleiri menn, og voru þe&sir
því sjálfkjörnir.
vatni. Meðan á borun stendur
er fylgst með hitabreytingum á
mismunandi dýpi, jarðlögin
greind, gufu- og vatnsstraumur
mældur, tekin sýnishorn af loft-
tegundum og vatni o. s. frv. og
loks eru holunrar látnar blása
stöðugt vikum og mánuðum sam-
an til að kanna hvort breyting-
ar sé að vænta á afköstum þeirra
í GÆRDAG um klukkan 4 sýndi
13 ára drengur mikið snarræði
og dirfsku vestur við Selsvör, er
hann bjagaði bíl frá eyðilegg-
ingu.
Forsaga málsins er sú að utan
við verksmiðjuhús Péturs Snæ-
land við Vesturgötu 71 stóð
sendiferðabíll. Kveikjuláslykl-
arnir höfðu verið skildir eftir í
bílnum og hann opinn. Litlir
snáðar voru á götunni og fóru
Kjörínn
formaöur
á fundi
i Hels-
inki
HELSINKI, 1. júní: — Hér í
borg stendur nú yfir fundur í
Norðurlandasamtökum veitinga-
og gistihúsaeigenda. Eru þar
mörg mál til umræðu er snerta
hagsmuni þessara samtaka. í
dag fór fram kjör formanns og
hlaut kosningu Lúðvig Hjálm-
týsson framkvæmdastjóri frá
Reykjavík.
Byrjaði vel
LAXVEIÐIN fór vel af stað
í Norðurá í gær. Fyrir há-
degi höfðu veiðzt þar 7 laxar.
Einn þeirra var 10 punda,
Ífimm 8 punda og sá sjöundi
6 punda. Tveir laxanna veidd
ust á flugu. Á þessu veiði-
svæði voru fjórar stengur.
Töldu laxveiðimennirnir út-
litið sérlega gott.
Tveir nýrunnir
Fréttaritari blaðsins símaði
í gær eftirfarandi um fyrsta
daginn, sem leyfilegt var að
veiða í Laxá í Þingeyjar-
sýslu:
í morgun kl. 6 þegar veið-
in mátti hefjast, stóðu tveir
laxveiðimenn á bakkanum í
suðvestan golu og bezta
veðri. Aðeins eru leyfðar
tvær stengur í Laxamýrar-
landi. .
Áin er heldur vatnslítil og
um hádegi, þegar ég hafði tal
af laxveiðimönnunum, hafði
Birgir Steingrímsson fengið
tvo „nýrunna“, fallega laxa“,
15 punda hæng og 11 punda
hrygnu, og sögðust laxveiði-
mennirnir hafa séð fleiri og
áttu von á einhverri veiði
með kvöldinu.
í rekstri. Eru mælingar þessar
kostnaðarsamar og ýmsum erfið-
leikum bundríar, þrýstingur á
ferm. getur numið allt að 120000
kg. og magnið 80—100 tonn af
gufu og 200—300 tonn af 100
st. heitu vatni á klst., sem mæla
þarf. Einnig veldur það erfið-
leikum að holurnar eru inni í
miðri byggð, en nú hefur tekizt
að leysa þann vanda, að láta þær
blása án þess að óþægindum
valdi. Með rannsóknum þessum
er verið að kanna jarðhitasvæð-
ið -sjálft og einnig afla upplýs-
inga varðandi gerð véla og val
efnis í þær síðar meir.
þeir inn í bílinn. í mælaborði
rifu þeir út alla takka og sneru
öllu lauslegu. Allt í einu rauk
bíllinn í gang. Fór hann með
rykkjum og skrykkjum, hægt að
vísu og pollarnir stukku út. En
bíllinn hélt áfram stefndi ská-
hallt yfir götuna, í áttina að sjáv
arbakkanum. Ofan af honum er
allhátt niður í stórgrýtta fjör-
una við Selsvör. Son Péturs
Snælands, Halldór, bar að í
þessu. Hann var á reiðhjólinu
sínu. Sá hann strax hver verða
myndu örlög bílsins, ef hann
færi fram af kambinum. Hann
hjólaði bílinn uppi, stökk af reið
hjólinu, upp í bílinn og sneri
kveikjuláslyklinum, — og bíll-
inn nam staðar samstundis.
Átti hann þá aðeins 2 metra
ófarna fram af kambinum.
Try««;vi Svein-
björnsson lætur
af störfum
TRYGGVI Sveinbjörnsson sendi-
ráðunautur við sendiráð íslands
í Kaupmannahöfn, sem starfað
hefur við sendiráðið frá stofnun
þess árið 1920, mun bráðlega láta
af starfi fyrir aldurssakir.
Við starfi Tryggva tekur Páll
Ásg. Tryggvason, deildarstjóri í
utanríkisráðuríeytinu.
Þá hefur Hörður Helgason,
sendiráðunautur, sem starfað hef
ur við sendiráð íslands í París
undanfarin ár, tekið við starfi i
utanríkisráðuneytinu
Stormar og
þokur hamla
STORMAR og þokur hafa haml
að mjög hvalveiðunum hér við
laríd að undanförnu. í gær
hafði veður lægt, en í kjölfar
þess skall á svarta þoka á veiði
svæðinu og sá vart út fyrir
borðstokkinn.
í gær voru liðnir 10 dagar frá
því að hvalveiðivertíðin hófst og
voru þá komnir á land alls 27
hvalir.
UM Hvítasunnuna efna ungir
Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyj-
um til vormóts. Verða haldnar
tvær samkomur, sú fyrri á laug-
ardagseftirmiðdag en sú seinni á
sunnudagskvöld. Á báðum þess-
um samkomum verða fluttir þætt
MIKILL ís er nú víða á fjarlæg-
ari miðum íslenzku togaranna.
í gær sagði Mbl. frá ísbreiðunni
á Nýfundnalandsmiðum og að-
stæður til veiða við syðri hluta
A-Grænlands munu sízt betri.
Á hinum svonefndu Syðri-Fylk-
ismiðum er mjög mikill hafís og
nær ísbreiðan frá Tingmiarmiut
suður fyrir Hvarf, lengst um
120 mílur út frá ströndinni, að
því er Ólafiy K. Björnsson, loft-
skeytamaður á Úranusi tjáði
Mbl. i gærkveldi.
Kvöldfagnaður
fyrir finnska
blaðamenn
í DAG klukkan 6,30 koma hing-
að í heimsókn 38 finnskir blaða-
menn og dvelja hérlendis til 6.
júní. Finnlandsvinafélagið Suomi
hefir í tilefni af komu blaða-
mannanna kvöldfagnað í Tjarnar
café í kvöld kl. 9. Sýnir Guð-
mundur Einarsson frá Miðdal
þar kvikmynd sína frá Heklu-
gosinu ásamt fleiri kvikmyndum
í litum víðs vegar af landinu. —
Ennfremur verður dansað. Allir
Finnar, sem dvelja hér eru boðn-
ir á kvöldfagnaðinn og meðlim-
ir Finnlandsvinafélagsins Suomi
hafa ókeypis aðgang.
ir úr revíunni „Eitt lauf“ og þeir
Gunnar Eyjólfsson og Bessi
Bjarnason munu flytja hinn vin-
sæla skemmtiþátt sinn. Eftir mið
nætti á sunnudag verður stiginn
dans. Mjög verður vandað til
þessa vormóts.
Sagði hann, að Patreksfjarðar
togarinn Gylfi hafði byrjað að
veiða við A-Grænland ekki alls
fyrir löngu, en snéri aftur heim
á leið vegna ísreksins. Ólafur Jó
hannesson snéri einnig frá
Syðri-Fylkismiðum og fór norð-
ur með ströndinni.
Syðst við Vesturströnd Græn-
lands er mikill ís, m.a. á Juliane
hábs-flóanum þar sem islenzku
togararnir veiða oft. Nokkrir
íslenzkir togarar eru að veiðum
norðar undan vesturströndinni
og hafa fengið sæmilegan afla
síðustu dagana.
Þar sagði Olafur, að væru all-
ir færeysku togararnir að Jó-
hannesi Paturssyni einum undan
skyldum — og veiddu þeir allir
í salt. Portugalskir, þýzkir og
rússneskir togarar eru þar
einnig. Rússneskt móðurskip
undan V-Grænlandi á dögunum
og brezka verksmiðjuskipið Fair
try I. er einnig þar.
Vormót að Flíiðum
UNGIR Sjálfstæðismenn efna
til vormóts aff Flúðum í Hruna-
mannahreppi að kvöldi annars í
hvítasunnu. — Nánar verður get-
ið um mótið síðar.
Hvítasunmiferð
ENN eru nokkur sæti laus í
Hvítasunnuferð Heimdallar og
Stefnis á Snæfellsnesið. Farið
verður frá Valhöll kl. 2 á laugar-
dag og komið til baka á mánu-
dagskvöld. Nánari upplýsingar
gefnar á skrifstofu Heimdallar í
Valhöll milli 2—6 (sími: 17102)
og í Sjálfstæðishúsinu í Hafnar-
firði milli 8—9 i dag og á morg-
un.
Snarróður drengur bjargnr bíl
Vormót ungra Sjálf-
stœBismanna í Eyjum