Morgunblaðið - 10.05.1963, Qupperneq 13
Föstudagur 10. maí 196
r MORCVNBL AÐ1D
13
-g ■». ..... ™ ™««— ......jM
Nýir frambjóðendur
Morgunblaðið mun á
næstunni birta stutt
viðtöl við þá fram-
bjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins, sem aldrei
hafa tekið sæti á Al-
þingi, ennú skipa þýð-
ingarmikil sæti á list-
um flokksins. — Birt-
ist hér hið fyrsta
þeirra.
MOBGDNBLAÐI9 hitti
Sverri Hermannsson snöggv-
ast að máli í gær, en hann er
í öðru sæti á lista Sjálfstæðis-
manna í Austuriandskjör-
dæmi. Sverrir er einn af
yngstu frambjóðendum Sjálf-
stæðisflokksins við kosning-
arnar nú, 33ja ára gamall.
— Hvar ertu fæddur, Sverr-
ir, og hverjir eru foreldrar
þínir?
— Ég er fæddur í Ögurvík
í Ögurhreppi við ísafjarðar-
djúp, og þar ólst ég upp til
fimmtán ára aldurs. Faðir
minn er Hermann Hermanns-
son, ættaður af Ströndum, og
móðir mín Salóme Gunnars-
dóttir frá Djúpi, af Arnar-
dalsætt. — Faðir minn var
trilluformaður, en samhliða
sjósókn rak hann smábúskap.
— Varstu samfleytt í Ögur-
vík til fimmtán ára aldurs?
— Já, nema hvað ég stund-
aði nám við Gagnfræðaskóla
ísafjarðar einn vetur, meðan
ég átti heima í Ögurvík. í>á
var Hannibal Valdimarsson
þar skólastjóri. Árið 1945
fluttist fjölskyldan * til Isa-
fjarðar. Hélt ég námi áfram
í gagnfræðaskólanum, braut-
skráðist þaðan vorið 1947 og
tók landspróf. Haustið 1947
hóf ég nám í Menntaskólan-
um á Akureyri og lauk stúd-
entsprófi þaðan vorið 1951.
Um haustið innritaðist ég í
Háskóla íslands og lauk prófi
í viðskiptafræðum árið 1955.
— Fórstu þá að starfa fyrir
samtök verzlunarmanna?
— Fyrst var ég fulltrúi I
rúmt ár hjá Vinnuveitenda-
sambandi íslands. I>á var ég
ráðinn framkvæmdastjóri
Verzlunarmannafélags Reykja
víkur og gegndi því starfi þar
til 1 ársbyrjun 1960. Þá varð
ég fulltrúi hjá blaðaútgáf-
unni Vísi. Frá því í septem-
ber sl. hef ég verið fram-
kvæmdastjóri Landssambands
ísl. verzlunarmanna (L.Í.V.)
Auk þess hef ég unnið fyrir
bræður mína, sem stunda út-
gerð.
— Ert þú ekki líka formað-
ur landssamtaka verzlunar-
og skrifstofufólks?
— Jú, ég hef verið formað-
ur L.Í.V. frá stofnun samtak-
anna 1. júlí 1957.
— Hefur þetta ekki verið
erfitt starf?
— Það hefur verið mjög
erilsamt allt frá upphafi.
Framkvæmdast j ór astarf inu
varð ég að gegna í hjáverk-
um fyrstu árin. Það kostaði
Sverrir Hermannsson ásamt konu sinni, Grétu Lind Kristjánsdóttur, og börnum þeirra.
félagar tókum á leigu litla
Skylda íslendinga aö sjá
til þess, að viðreisninni
sé haldið áfram
Rætt við Sverri Hermannsson
mikla vinnu að koma þessum
samtökum á fót. Ég hef verið
mjög heppinn með félaga og
samstarfsmenn í L.Í.V., og er
það grundvallaratriði þess,
hve vel okkur hefir gengið.
— Deila samtakanna við
forystu Alþýðusambands Is-
lands hefur vakið mikla at-
hygli. ViltU eitthvað segja um
það mál?
— Ekkert annað en það, að
við höfum unnið fullan sig-
ur í þeirri hörðu baráttu við
að ná fullum rétti okkar og
viðurkenningu innan laun-
þegasamtakanna í landinu. í
því sambandi skiptir ekki höf
uðmáli, þótt við höfum verið
beittir órétti á síðasta Al-
þýðusambandsþingi. Slíkar
aðgerðir verða tæpast endur-
teknar, ef ekki á að fara í
verra.
— Þú minntist á það áðan,
að þú ynnir við útgerð
bræðra þinna að einhverja
leyti?
— Já, ég á lítinn hlut með
Gunnari bróður mínum í vb.
Eldborgu frá Hafnarfirði, og
hef ég snúizt smávegis fyrir
hann í landi. Þá eru tveir
aðrir bræður mínir í þann
veginn að fá tvö ný skip frá
Noregi. Hef ég annazt fyrir-
greiðslu fyrir þá í því sam-
bandi.
— Eruð þið margir bræð-
urnir?
— Ég á fimm bræður, sem
allir eru sjómenn, og fjórir
þeirra eru skipstjórar.
— Ég heyrði ávæning af
því á seinasta ASÍ-þingi, að
þú værir síldarsaltandi.
— Það má til sanns vegar
færa. Við fimm gamlir skóla-
söltunarstöð norður í Siglu-
firði. Það var Hannibal af-
skaplegur þyrnir í augum, en
góður var hann við vinn minn
Guðmund Björnsson frá
Stöðvarfirði ,og er hann þó
stórtækari í þessum sökum
en ég.
— Hvernig lízt þér á að
fara í framboð eystra?
— Mér lízt í einu orði
ágætlega á það. Það fólk, sem
ég hef hitt eystra og að aust-
an, hefur tekið ágæta vel við
mér. Ég á eftir að koma víða
þar eystra og kynna mér
menn og málefni.
— Hvernig er vígstaðan?
— Ágæt, betri en nokkru
sinni fyrr. Það er öllum ljóst,
að sú stjórn, sem við höfum
átt við að búa undanfarin ár,
er hin langbezta, sem setið
hefur hérlendis. Ég tel það
skyldu okkar íslendinga að
sjá til þess, að hún geti hald-
ið áfram uppbyggingarstarfi
sínu. Það er lífsspursmál fyr-
ir okkur íslendinga.
— ★ —
Sverrir Hermannsson er
kvæntur Grétu Lind Kristj-
ánsdóttur frá ísafirði, og eiga
þau hjón fjögur börn, 3ja til
10 ára, þrjár stúlkur og einn
dreng.
KVIKMYNDIR
KVIKMYNDIR *
★ KVIKMYNDIR ★ SKRIFAR DM: KVTKMYNDIR ■*■
Hafnarbió:
Romanoff og Juliet.
MYND ÞESSI, sem tekin er í lit-.
um, er gerð efitir samnefndu leik-
riti ensika rithöfundarins og leik-
arans, Pefcer Ustinov, sem einnig
er framleiðandi myndarinnar og
deikstjórL — Margir hér munu
fcannast við leikritið, því að það
VEir sýhit í Þjóðleikihúsinu fyrir
tfiáum árum. Ustinov leikur sjáilf-
úr aðallhluitverkið í þessari mynd,
ifiorseta lýðveldisins Condoria.
Hefur hann leiikið þetta sama
hlutverik víða þar' sem leikritið
hefur verið sýnit og fenigið mikið
lof fyrir, enda er hann ágætur
leikari, svo sem sjá má í mynd-
inni Spartacus, sem nú er sýnd
í Háskólabíói, en þar fer hann
mjög skemmtilega með eitt aif
mieiriháittar hlutverkunum. —
Þegar leikritið var sýnt hér, lék
Robert Arnfinnsson forsetann
með mikiili prýðL
Myndin hefst á þingi Samein-
uöu þjóðanna, þar sem verið
er að greiða atkvæði um miikil-
vægt mál. Atkvæðin hafa verið
margtalin, en reynast alltaf jöfn.
En þá kemur í ljós að eitt ríki
hefur alveg gleymzt, lýðveldið
Oonoordia, sem raunar enginn
kannast við. Fulltrúi þessa litla
lands er sjálfur forseti þess. Hann
fer í ræðustólinn og lýsir yfir
því í stuttri ræðu, að þar sem
hann botni ekkert í því máii,
sem sé til umræðu, þá geti hann
ekki greitt atkvæði. Að því búnu
gengur forsetinn út og hraðar
sér út á flugvöll, þar sem einka-
flugvél hans bíður. — Þairna hitt-
ir forsetinn fyrir unga og fríða
stúlku, Juliet að nafni, dóttur
brezka sendiherrans í Concordiu,
sem einnig er á leið heim til
Conoordiu. — Þegar forsetinn
kemur heim í ríki sitt gerast
ýmsir atburðir. Juliet, sem hafði
trúlofasit í Bandaríkjunum, verð-
ur ástfanginn af ungum og mynd-
arlegum manni í Gonoordiu og
hann í henni og á forsetinn sifin
þátt að þessu, enda tekur hann
mál þetta í sínar hendur og leys-
ir það á mjög snjallan hátt. Var
það þó ekki vandalaust verk,
því að foreldrar elskendanna
verða ókvæða við þegar þau kom
ast að ástum unglinganna. enda
er hér um að ræða brezku sendi-
herrahjónin og rússnesku sendi-
herrahjónin, en þau eru foreldr-
ar Romanoffis, elskhuga Juliets,
og höfðu ætlað honum atlt ann-
an ráðahag. — En eins og áður
segir, tók forsetinn sem er hjarta
góður og friðelskandi maður,
málið í sínar hendur og ræður
því farsællega til lykta. — Þetta
er aðeins önnur hlið þessarar
skemmtilegu myndar, því jafn-
framt gerir hofundurinn góðlát-
legt gys að gagnkvæmum njósn-
um hinna tveggja sendiherra og
lætur forsetann nota sér þessar
njósnir á skemmtilegan hátt til
þess að afla fjár í ríkiskassann.
Mynd þessi er afbragðsskemmti
leg, vel gerð og ágætlega leikin.
Ustinov er frábær í hlutvenki
forsetans, Sandra Dee heillandi
í hlutverki Juliet og leikur henn-
ar mjög góður. Þá er og John
Gavin prýðilegur sem Romancnff
og þeir Akim Tamiroff og John
Philips, sem leika rússneska og
brezka sendiherrana fara mjög
skemmtilega með hlutverk sán.
Stjörnubíó:
Maðurinn frá Scotland Yard.
MYND ÞESSI er ensk-amerísk,
leikstjóri er John Ford, en Jack
Hawkins leikur aðalhlutvenkið,
yfirleynilögreglumanninn Gid-
eon.
Myndin hefst á þvi, að Gideon
fær vitneskju um það, að einn
af fulltrúum Scotland Yard, Kirk
by að nafni, hafi þegið mútur
a£ glæpamönnum sem stunda
eiturlyfjasölu í umdæmi hans. —
Gideon heldur þegar til Seotland
Yard og ber á Kirkby þessar
sakir, enda hafði hann fleiri sann
anir fyrir sekt hans. Lauk þessu
svo að Gideon rekur Kirkby úr
starfinu. Skömmu síðar er fram-
ið bíræfið peningarán, — mikilli
tfjárhæð slbolið frá bókhaldana
nakkrum. Gideon segir konu
Kirkby’s hversu komið er fyrir
manni hennar, en hún neitar öll-
urn ásökunum á mann sinn en er
þó mjög hrædd og taugaóstyrk.
Um það leyti sem Gideon er hjá
frú Kirkby, berst honum fregn
um að Kirkby hafi látið lífið í
umferðarslysi, en bifreiðin ekið
á brott af slysstaðnum, en síðar
kemur í ljós að hjólförin eru hin
sömu og fundust er peningaránið
var framið. — í skrifborðsskúfifu
Kirkby’s finnst mynd af stúlku,
Joanna Delafield og kemur hún
síðan allimikið við sögu. Hún
neitar að hafa þekkt Kirkby, en
bregður þó mjög er hún fréttir
iát hans ... Er ekiki að orðlengja
það að Gideon tekst að komast
fyrir þá glæpL sem þarna hafa
verið framdir og hafa hendur í
hári bófunum...
Það er mikil spenna í þessari
mynd og Jack Hawkins hefur
aldrei leikið betur, og er þá tölu-
vert sagt. En það sem gefur
myndinni alveg sérstakt gildi er
hinn bráðskemimtilegi „húmor*4,
sam hún er krydduð með.
Kosningaskrif-
stofa Sjdlfstæð
isflokksins
UTANKJÖRSTAÐA-
KOSNING
er I Valhöll við Suðurgötu.
Skrifstofan er opin alla daga
kl. 10 f. h. til kl. 6 e. h.
Stuðningsfólk Sjálfstæðis-
flokksins er beðið að hafa
samband við skrifstofuna og
gefa henni upplýsingar varð-
andi kosningarnar.
\ Gefið skrifstofunni upplýs-
ingar um fólk sem verður
fjarverandi á kjördegi innan-
lands og utanlands.
Utankjörstaðakosning hefst
sunnudaginn 12. maí.
!Símar skrifstof unnar eru
23118 — 22136.