Morgunblaðið - 27.11.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.11.1973, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1973 Margir hafa lagt leið sína í Norræna húsið til þess aS skoSa teikningar Ewerts Karlsson.— MeSal gesta þar sfðastliSinn laugardag var Halldór Pétursson. Eftir þá heimsókn gerði Halldór þessa m.vnd, og fylgir henni kveðja til EWK með vinsemd og virðingu. HAFA ORÐIÐ AÐ BIÐAI 5 DAGA EFTIR LOSUN Ekkert miðar í samkomulagsátt í þjónaverkfallinu SAMNINGAFUNDUR í þjóna- verkfallinu var haldinn á sunnu- daginn, en ekkert miðaði i sam- komulagsátt. Þjónar halda því sem fyrr uppi sínum hætti og loka veitingahús af fyrir gestum, sem þangað ætla. Fram til þessa hafa þjónar ein- göngu meinað fólki að komast inn á Óðal, en á sunnudagskvöldið stöðvuðu þeir fólk af, sem ætlaði f Atthagasal Hótel Sögu. V arð að aflýsa dansleik, sem þar átti að vera af þessum sökum. Örn Egilsson blaðafulltrúi Félags framreiðslumanna saeði í samtali við Morgunblaðið, að sáttafundurinn á sunnudag hefði staðið yfir frá kl. 14—20.30, en ekkert hefði miðað í samkomu- lagsátt. Þjónar hefðu slegið af sínum kröfum en veitingamenn hef ðu ekkert komið á móti. Hann sagði, að þjónar myndu halda áfram að meina gestum inn- göngu á veitingastaði, sem héldu uppi ólöglegri starfsemi. Varðskipin koma ekki — þrátt fyrir loforð SKlPEimskipafélagsísIands hafa orðið fyrir töfum í Reykjavík að undanförnu vegna þrengsla í vörugeymslum félagsins og vegná manneklu. Tvö skipa hafa orðið fyrir verulegum töfum af þessu sökum. Sigurlaugur Þtrkelsson, blaða- fulltrúi Eimskipafélagsins, sagði f samtali við Morgunblaðið í gær, að það hefði verið mjög erfitt að fá hafnarverkamenn til starfa í haust og um þessar mundir væru nokkrar konur og stúlkur við vöruflokkun í vörugeymslum félagsins. Ekki þyrfti að kvarta undan þeim vinnukrafti, því konurnar hefðu staðið sig mjög vel. Sagði Sigurlaugur, að þrátt fyrir að félagið hefði tekið nýja vörugeymslu í notkun við Sunda- höfn s.l. vetur, væru allar vöru- geymslur Eimskips fullar út að Allt óvíst með skreyt; ingar í miðbænum Þeir eru margir, sem hafa velt þvf fyrir sér, hvort Austurstræti verði skreytt að þessu sinni fyrir jólin. Finnst mörgum nú tilvalið tækifæri að skreyta götuna fal- lega, þar sem bflaumferð er þar engin og fólk gæti þvf notið þeirra skreytinga, sem þar yrðu. Við inntum Magnús E. Finns- son framkvæmdastjóra Kaup- mannasamtakanna eftir því f gær, hvort Austurstræti yrði skreytt. Hann sagði, að allt væri enn óvíst um skreytingar í miðbænum. Kaupmönnum í Austurstræti fyndist t.d. rétt, að borgin tæki þátt í skreytingum, þar sem borg- arstjórnin hefði lokað Austur- stræti í sumar. Þá sagði Magnús, að enn væri ekki búið að ákveða opnunar- og Iokunartíma verzlana í Reykjavík i desember, en hann yrði ákveð- inn um næstu helgi. dyrum. Þetta hefði meðal annars leitt til þess, að ekki hefði verið hægt að losa skipin með eðli- legum hraða. Lítið væri um það, að vörur væru teknar beint úr vörugeymslunum og oftast væru vörur settar í húsin um leið og vörur væru afgreiddar úr þeim. Fyrir helgina var eitt af leigu- skipum félagsins losað í Reykja- vík. Aðeins var hægt að losa úr einni lest skipsins í senn vegna þrengsla í vörugeymslunum. Siðan varð að skipa út í þá lest sem hafði tæmzt til að rými yrði fyrir vörur úr þeirri lest, sem næst átti að tæma. Þá þurfti Lagarfoss að bfða í 5 daga áður en hægt var að byrja að losa skipið. Fyrstu þrjá dagana eftir að losun hófst var aðeins hægt að vinna með einu gengi, en eftir það komst sæmilegur hraði á losun- ina. Ennfremur er Askja nú búinn að bfða í fimm daga eftir afgreiðslu. GUÐMUNDUR Isleifur Gfslason skipstjóri á skuttogaranum Ljósa- felli frá Fáskrúðsfirði kom að máli við Morgunblaðið í gær- kvöldi og kvartaði hann undan ágengni v-þýzkra skuttogara úti fyrir Austfj örðum. Ilann sagði að sjö v-þýzkir togarar væru búnir að vera á veiðum á Breiðdalsgrunni austan við Berufjarðarálinn siðan á laugardag. Strax á laugardag hefði verið haft samband við landhelgisgæzluna og hún beðin un að stugga við togurunum, þar sem þeir voru að veiðum innan um íslenzk fiskiskip. En ekkert varðskip kom. Þá var aftur haft samband við Landhelgisgæzluna á sunnudaginn. Svarið, sem fékkst var, að varðskip væri á Ármann á Alþingi á 105 þús. kr. KNUTUR Bruun hélt bóka- uppboð í Átthagasal Hótel Sögu í gær, og voru boðin upp 100 númer. Það verk, sem fór á hæstu verði, var Ármann á Al- þingi 1.— 4. árgangur 1829—1832, en 105 þús. kr voru boðnar í verkið. Er þetta hæsta verð, sem boðið hefur verið í bók á uppboðum Knúts. Áður átti Fjölnir metið, enþað var 85 þús. kr. Gott heilsufar í borginni „HEILSUFAR í Reykjavík hefur verið gott í haust. Engir alvarlegir kvillar hafa komið upp. Það eru helzt þessir sígildu háls- og kvefsjúkdóm- ar, sem hafa skotið upp kollin- um,“ sagði Jón Sigurðsson borgarlæknir, þegar við rædd- um við hann í gær. Sagði Jón, að ef tekið væri mið af árstíma, þá mætti segja, að heilsufar borgarbúa hefði verið með bezta móti. Ilverju það væri að þakka væri ekki gott að segja, kannski góðri tfð. Samningafundir á Norðurlandi EINS og kunnugt er af fréttum, klauf Alþýðusamband Norður- lands sig út úr samninganefnd Alþýðusambands tslands við yfir- standandi kjarasamninga. Ætlar Alþýðusamband Norðurlands að semja eitt og sér við vinnu- veitendur á Norðurlandi. Öskar Garibaldason. formaður Verkamannafélagsins Vöku á Siglufirði sagði i samtali við Morgunblaðið í gær, að samninga- nefnd ASN og vinnuveitenda á Norðurlandi hefðu ekki enn komið saman. Undirnefndir hefðu að vísu starfað um nokkurt skeið, en nú væri gert ráð fyrir, að samninganefndirnar kæmu saman i lok vikunnar. Óánægðir með kvöldfréttatímann Eskifirði 20. nóvember. MEGN óánægja er rfkjandi hér með kvöldfréttatíma hljóðvarps. Almennt missir fólk hér af frétta- tímanum kl. 18.30 og nú hafa starfsmenn við byggingu Hrað- frystihúss Eskifjarðar sent útvarpsráði undirskriftalista þess efnis, að fréttatíminn verði hafð- ur seinna en nú er. Hér á eftir er svo orðsending starfsfólksins: Við Éskfirðingar viljum mót- mæla breyttum fréttatíma hljóð- varps á kvöldin og teljum, að Iðnlánasjóður lánar 10% til skipasmíða innanlands IÐNAÐARRAÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að fela stjórn Iðnlána- sjóðs að annast úthlutun og afgreiðslu á 10% lánum vegna skipasmfða innanlands, en af- greiðsla þeirra lána var áður f höndum Framkvæmdastofnunar- innar. Þessum lánum er ætlað að styrkja samkeppnisaðstöðu fslenzkra skipasmfðastöðva með því að veita hærri lán til skipa, sem smfðuð eru innanlands en þeirra, sem smfðuð eru eða keypt erlendis. Mun iðnaðarráðuneytið beita sér fyrir þvf, að lögum um Iðn- lánasjóð verði breytt þannig, að þau nái til þessa nýja verkefnis og að tryggt verði fjármagn til þess. fréttatíminn kl. 18.30 þjóni aðal- Iega takmörkuðum hópi fólks, svo sem skrifstofufólki, sem yfirleitt hættir snemma í vinnu, en alls ekki öllum þorra verkafólks og iðnaðarmanna og þá sérstaklega fólki úti á landi, sem yfirleitt hættir ekki vinnu fyrr en kl. 19 á kvöldin. í bæ eins og Eskifirði með 900 — 1000 íbúa má fullyrða, að 70 — 80% bæjarbúa missa af fréttum kvöldsins í hljóðvarpi. Því förum við fram á það, að fréttatíminn verði færður á sama tima og hann var fyrir breytinguna. Fréttaritari. Lyftari og leigu- bíll í árekstri MJÖG harður árekstur varð um kl. 08 á mánudagsmorgun á mótum Ilringbrautar og Njarðar- fötu, er gaffallyftari og leigu- bifreið lentu saman. Verulegar skemmdir urðu á bifreiðinni og tveir menn, sem á henni voru, hlutu minni háttarmeiðsli. leiðinni. Ekki var skipið komið í gærkvöldi og í gær höfðu skip- stjórarnir á Barða og Ilvalbak haft samband viðGæzluna. Fengu þeir þá eitthvað loðin svör. Og því spyrja skipstjörarnir. Á ekki að verja landhelgina? A móti frjálsum fóstureyðingum BLAÐINU hefur borizt eftirfar- andi ályktun, sem Kvenfélag Sayðárkróks sendi til alþingis. „Fundur hakdinn f Kvenfé- lagi Sauðárkróks mótmælir eindregið þeim ákvæðum frum- varps til laga um fóstureyðingar o.fl., sem miða að þvf að gera fóstureyðingar frjálsar. —Skorar fundurinn á háttvirt alþingi að fella þessi ákva'ði úr frumvarp- inu. _ Nýir fulltrúar Landbúnaðarráðherra hefur ný- verið skipað tvo nýja fulltrúa f landbúnaðarráðuneytið. Eru þeir Haukur Jörundsson búfræð- ingur og Guðmundur Sigþórsson búnaðarhagfræðingur. Hákoni veitt lausn frá embætti FORSETI tslands hefur aðtillögu dómsmálaráðherra veitt Hákoni Guðmundssyni yfirborgara- dómara lausn frá embætti frá 1. janúar nk. að telja samkvæmt eigin ósk. Hákon Guðmundsson erfæddur 18. október árið 1904. Hann lauk stúdentsprófi frá MR vorið 1925 og embættisprófi f lögfræði frá Háskóla íslands árið 1930. Hákon var skipaður hæstaréttarritari árið 1936 og gegndi þvf embætti til ársins 1964, er hann var skipaður yfirborgardómari. Auk þessa hefur Hákon gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum öðrum, m.a. verið forseti Félags- dóms frá stofnun hans 1938.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.