Morgunblaðið - 27.11.1973, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.11.1973, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1973 17 „Ég hef trú á því, að hér verði aftur mjög gott mann- líf” Hið glæsilega sjúkrahús Vestmannaeyja. •• Nýi spítalinn tilbúini. i ágúst rætt við Orn Bjarnason héraðslækni „Þetta er eins og á stríðstím- um," sagði Öm Bjarnason, héraðslæknir í Vestmannaeyjum, er biaðamaður Morgunbiaðsins hitti hann og Pál Zópaníasson bæjartæknifræðing í nýjasjúkra- húsinu i Vestm annaeyjum um helgina, en þá voru þeir að gera úttekt á öllu sjúkrahúsinu til að gera eftir verkefnalista fyrir iðnaðarmenn. Nú er unniðá fullu við að gera við það, sem aflaga fór í gosinu, og lýkur því verkefni f desember. í janúar verður svo hafist handa við að fuligera sjúkrahúsið, þar sem frá var horf- ið, er gosið hófst. Er gert ráð fyrir, að það verði tekið í notkun f ágúst á næsta ári. —Örn, hvernig er aðstaðan til heilbrigðisþjönustu hér nú? — Hér er einn læknir, 1 hjúkrunarkona og ritari hálfan daginn. Ég hugsa, að við séum ekki ver sett en afskekt land- búnaðarhéruð. Aðstaðan fyrir lækninn hér í sjúki-ahúsinu er ágæt. Við erum flutt inn á neðstu hæð spítalans, þar sem þjónustudeildin er. Röntgentæki eru að vísu óuppsett enn, en von á tæknimönnum alveg næstu daga til að setja þau upp. Þá verður rannsóknarstofan væntanlega komin í gagnið eftir áramót. Við höfum aðstöðu til að hafa 2 sjúk- linga hjá okkur í 1—2 daga á sjúkrahúsinu, ef flug teppist. Við getum gert hér að einföldustu meiðslum, en höfum orðið að senda allt frá okkur, sem þurft hefur að röntgenmynda. Við höf- um verið heppin með veður og tekizt að koma öllum sjúklingum frá okkur með flugi, en það er ákaflega óþægilegt, ef senda þarf sjúkling með skipi, til Þorláks- hafnar. Ilér má skjóta inn í, að frá því að þetta viðtal var tekið frétti undirritaður af þvf, að orðið hefði að senda lítinn sjúkan dreng til uppskurðar til Reykjavíkur. Þá var flugvöllurinn ófær og bátur var mannaður í snatri og hann sigldi á útopnuðu til lands og var aðeins þrjá tíma til Þorláks- hafnar. Ilins vegar var sjúkrabíll- inn 2 klukkustundir til Reykja- víkur vegna slæmrar færðai'. Allt fór þó vel, drengurinn komst á skurðborðið í tæka tíð og er nú á góðum batavegi. Ilér vaknar sú spurnjng, hvort meira öryggi væri ekki í þvf að hafa staðsetta flug- vél f Eyjum, þvf að oftast má taka á loft, þótt ekki sé lendandi. Þetta mál hefur eitthvað verið rætt, en ekki hlotið hljómgrunn hjá við- komandi yfirvöldum. —Nú eru komin hingaö um 2000 manns, er ekki dálftið rrikið fyrir einn lækna að þjöna þeim fj ölda? —Ég hef ráðið við þetta einn higað til, en ef fjölgar mikið úr þessu, verður reynt að bæta við lækni, en það er eins og kunnugt er mikill læknaskortur víða ann- ars staðai’. Læknarnir, sem hér voru, eru í störfum annars staðar og bíða eftir, að lokið verði við spítalann, og sama er að segja um hjúkrunarkonurnar sem koma til með að vinna fulla vinnu, starfa nú flestar á heilbrigðisstofnunum í Reykjavík. —Hvernig verður spítalinn full- gerður? —Í honum verða 48 sjúkrarúm á tveimur deildum auk 4 á gjör- gæzlustofu. Þá er sjúkrahúsið þannig hannað, að hægt er, ef nauðsyn krefur, að breyta lækna- miðstöðinni á annarri hæð í sjúkrastofur og þarf aðeins að taka niður tvo veggi, til að hægt verði að vista þar 16 sjúklinga. Gert er ráð fyrir, að framkvæmd- um verði lokið f ágúst nk., en þá verður að vísu eftir að ganga endanlega frá kjallara og öðru slfku. Við getum hugsanlega byrjað fyrr með aðra deildina. Gert er ráð fyrir, að sex læknar starfi við sjúkrahúsið sérfræðing- ar í skurðlækningum og lyflækn- ingum, svæfingalæknir, röntgen- læknir og tveir almennir læknar, sem fá aðstöðu fyrir sjúklinga á sjúkrahúsinu. Gert er ráð fyrir, að hjúkrunarkonur verði 15—20 og meinatæknar, ritarar hjúkrun- arliðar, gangastúlkur, starfsfólk í eldhúsi o.s. frv. verði um 50—60 talsins. —Ilver er áætlaður kostnaður við sjúkrahúsið fullgert? — Kostnaður rétt fyrir gos var orðinn 70 milljónir. Nú er gert ráð fyrir, að kosti 140 milljónir að ljúka við og búa spítalann tækj- um. Þess má geta hér, að hin stórrausnarlega gjöf Lions- hreyfingarinnar á Norðurlönd- um, 30 milljónir króna, nægir til að kaupa á öllum lausum búnaði fyrir spítalann, en það hefði bær- inn annars þurft að greiða einn. Þá hafa Rauði kross Islans og Hjálparstofnun kirkj- unnar samþykkt að veita til bráðabirgða 40 milljónir kr. af þvf fé, sem Ilándslag til ísland safn- aði i Noregi. Er gert ráð fyrir, að fé þetta verði síöan endurgreitt, er framlag hins opinbera kemur. Þá vantar okkur um 30 milljónir til aðganga endanlega frá sjúkra- húsinu, en ég hef ekki áhyggjur af því, að það fé fáist ekki. Þegar sjúkrahúsið verður fullgert, verð- ur um mjög glæsilegt og fullkom- ið sjúkrahús að ræða. — Það ætti að geta orðið gaman að starfa á svona glæsilegu og fullkomnu sjúkrahusi. — Já, þvi að hér verður mest um hópstarfsemi að ræða. — Að loknu Öm, finnst þér hafa orðið einhver breytíng á fólkinu frá því fyrirgos? — Ég var nú úti í Bretlandi við framhaldsnám, er gosið byrjaði og kom ekkert heim, því að þess gerðist ekki þörf, með þá Einar Yiðreisn r i Vestmanna eyjum Val Bjarnason og Kristján Eyjólfsson hér, sem unnu frábært starf. Frá því að ég kom heim i ágústbyrjun, hef ég ekki orðið var við nein eftirgosseinkenni. Það hefur aðeins verið um smávægi- leg mál að ræða, er fólk hefur leitað til mfn. Þetta fólk er ákaf- lega bjartsýnt og sér ekkert nema jákvæðu hliðarnar á gosinu. Ég hef trú á því, að hér verði aftur mjög gott mannlíf. Skýringin er kannski sú, að hið nána sambýli fólksins hér við nátturuöflin hafi búið það betur undir að mæta slfku áfalli og aðlagast nýjum aðstæðu. — ihj. Óm Bjarnason og Páll Zophaníasson við úttekt f sjúkrahúsinu. Það gefur á bátinn Ganga 5 millj. lesta af loðnu meðfram landinu? LOÐNULÖNDUNARNEFND og loðnuflutningasjóður hafa nú sent frá sér skýrslu um loðnuveiðarnar á sl. vetri f bók- arformi. Þessi skýrsla er hin athyglisverðasta aflestrar og kemur þar margt fram, sem al- menningi er ekki áður kunn- ugt. Bókin.sem er 55 blaðsíður, skiptist f 18 kafla, sem allar fjalla á einhvern hátt um loðn- una. Fram kemur í skýrslunni, að framleiðsluverðmæti loðnu- afurða á þessu ári eru áætiuð 3.360 millj. kr., sem skiptast þannig: mjöl 2350 millj. kr., lýsi 410 millj. kr. og fryst loðna 600 millj. kr. Á síðasta ári voru framleiðsluverðmæti loðnuaf- urða 820 millj. kr. Þannig hef- ur framleiðsluverðmætisaukn- ingin orðið rúmlega 300% frá sfðasta ári. Flest bendir nú til þess, að mikil verðmætaaukning verði á næsta ári vegna loðnuveiðanna, jafnvel þó að aflinn verði svip- aður og á þessu ári. Kemur þar margt til, mjöl- og lýsisverð hef- ur stórhækkað frá síðasta ári, líkur eru fyrir aukinni sölu á frystri ioðnu til Japans og jafnframt verulega hærraverði fyrir þær afurðir. Á þessu ári stunduðu rösk- lega 80 skip loðnuveiðar að ein- hverju marki. Nú er útlit fyrir, að skip, sem stunda loðnuveið- ar á vetri komanda verði a.m.k. 120—130. Flutningastyrkir í kaflanum um starfsemi loðnulöndunarnefndar segir m.a., að f byrjun vertíðar hafi verið greiddir lágir flutninga- styrkir til margra hafna og var þá miðað við fjarlægðir frá ein- stökum veiðisvæðum til við- komandi hafna. Fljótlega varð þó ljóst, að lágir flutningastyrk- ir örvuðu ekki siglingar til f jar- lsegari hafna. Þá var tekinn upp sá háttur aðgreiða háaflutningastyrki til færri hafna, eða þar sem álitið var, að þörfin væri mest hverju sinni. Þetta mæltist vel fyrir og 1. Á þessari mynd sést, hvernig loðnuafli tslendinga hefur auk- izt frá 1964—1973. f mörgum tilvikum má telja víst, að siglingar til fjarlægari hafna hafi komið í veg fyrir löndunarerfiðleika austan- og suðvestanlands. Nefndin hafði sérstakan hátt á skiptingu veiðisvæða varð- andi styrkveitingar til ein- stakra löndunarhafna. Alls var heildarveiðisvæðinu skipt nið- ur í sjö styrksvæði. 1. svæðið var fyrir Austurlandi, en 7. svæðið var Breiðifjörður. Hæsti flutningastyrkur, sem var greiddur, var kr. 1,75, en sá lægsti 10 aurar. Fyrsta loðnan veiddist 8. jan- úar, en fór ekki að veiðast í neimum mæli fyrr en í lok mán- aðarins. Vikuna 4.—10. febrúar veiddust 42 þúsund tonn á svæðinu austan og vestan við Vestrahorn, sem er mesta veiði á einu svæði yfir vikutímabil. Hámarki náði veiðin vikuna 4.—10. marz, en þá veiddustum 69 þúsund lestir, fékkst sá afli á mörgum svæðum. A svæðinu 2. Móttekið heildarmagn eftir veiðisvæðum. austan við Dyrhólaey veiddust 247 þús. lestir, eða um 56% af heildaraflanum. Alls veiddust á vertíðinni 440.925.026 lestir, og aflahæsta skipið var sem kunn- ugt er Guðmundur RE 29 með 18.098, næsta skip, Eldborg GK, fékk því sem næst 3000 lestum minna. Greiðslur loðnu- flutningasjóðs Það var ærið misjafnt, hve mikið skipin fengu greitt i flutningastyrki, en öll fengu þau einhvern flutningastyrk. Hæsta flutningastyrkinn fékk Eldborg GK, samtals 5.405.249,00 kr., Guðmundur RE fékk 4.736.457.00 kr. og Börkur NK fékk 2.576.795,00 kr. Hæsta flutningastyrk fyrir hvert veitt kfló fékk Kristbjörg VE, 89 aura. Skipting greiðslna loðnu- flutningasjóðs eftir löndunar- höfnum var mjög mismunandi. Á eftirfarandi þremur höfnum var landað mestu magni af loðnu, sem flutningastyrkur var greiddur á: Seyðisfjörður 12.827.808 kg, Revkjavfk 11.716.240 kg og Neskaupstað ur 11.708.340 kg. En ekki er þar með sagt, að þessar hafnir hafi fengið hæstu flutningastyrki, þá snýst dæmið nokkuð við, þó að ekki sé mikil breyting. Hæsti flutningastyrkurinn var greidd- ur til Siglufjarðar, kr. 11.023.027, Seyðisfjörður 6.841.831 kr. og Neskaupsstað- ur 5.395.789 kr. Síldarvinnslan með beztu nýtinguna Tuttugu og fimm verksmiðj- ur tóku á móti loðnu á vertíð- inni. Á Austfjörðum vartekið á móti mesta magninu, 11 verk- smiðjur tóku á móti 188.533 lestum, á Vesturlandi tóku 5 verksmiðjur á móti 146.790 lest- um og á Suðurlandi tóku 3 verksmiðjur á móti 53.494 lest- um. Þær verksmiðjur, sem tóku á móti mesta magninu, voru: Síldar- og fiskimjölsverksmiðj- an h.f. 48.736 lestir, Sfldar- vinnslan h.f. Neskaupstað 38.366 lestir, Fiskiðjan . h.f. 34.360 lestir og Sfldar- og fiski- mjölsverksmiðjan Akranesi 25.422 lestir. Framleiðsla mjöls og lýsis hjá einstökum verksmiðjum var nokkuð mismunandi. Heildar- framleiðsla loðnumjöls varð 62 þús. lestir og heildarfram- leiðsla loðnulýsis tæpiega 21 þús. lestir. Meðalnýting loðnu- mjölsframleiðslunnar varð 14,84% og loðnulýsisframleiðsl- unnar 4.98%. Heildarnýting varð því að meðaltali 19,82%. Eftirfarandi þrjár verksmiðj- Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.