Morgunblaðið - 27.11.1973, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.11.1973, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR27. NÖVEMBER 1973 3 Minningar að vestan En Wilma tolldi Utiðá sviðinu, hún virtist kunna bezt við sig úti f salnum með áhorfendum, sem sungu og klöppuðu með henni. Kom - söng og sigraði Það er fremur óvenjulegt, að fslenzkir áheyrendur syngi al- mennt með listafólki, sem þeir eru að hlýða á, og jafnvel enn óvenjulegra, að þeir rfsi úr sæt- um sfnum sem einn maður fagni þvf með lófataki og húrrahrópum. En þetta hvort tveggja gerðist í Háskólabfói á sunnudagskvöld, þegar þau Wilma Reading og John Hawkins héldu tónleika með hljómsveit Félags fslenzkra hljómlistamanna. Ástæðan var augljós þeim sem voru svo heppnir að ná sér í miða, en það voru mun færri en vildu. Wilma Reading er ekki aðeins frábær söngkona, sviðsframkoma hennarog hæfi- leiki til að hrífa áheyrendur og fá þá með sér upp f sjöunda himin tónlistar er nokkuð, sem við sjáum ekki oft hér á landi. John Hawkins er ekki síðri á sínu sviði og hann hefur að sögn reynzt hljómsveit FÍH gullnáma, sem hefur og á eftir að auðga hana verulega. Fróðir menn halda því fram, að eftir nokkurra mánaða frekari æfingar í þessum dúr verði hun orðin fyrsta flokks og frambærileg hvar og með hverjum sem er. Og þá gæti ævintýrið byrjað. Ray Lehr, eiginmaður Wilmu er starfs- maður fyrir skemmtikrafta í heiminum, og hann hefur lýst því yfir, að ef áhugi væri fyrir hendi og svo hljómsveit FÍH, væri ekkert þvf til fyrirstöðu að fá einhverja af frægustu skemmtikröftum heims til að koms hér við. Hann hefur í því sambandi nefnt nöfn eins og Engelbert Humperdinck, Tom Jones, Andy Williams og Gil- bert O’Sullivan. Þetta er í þriðja skipti, sem Wilma kemur hingað til lands, en nú f des- ember verður hún hlaupandi milli leikhúsa í Austur-og Vest- ur-Berlín, þar sem hún er ráðin til að skemmta. HUn er hins vegar fastráðin í að koma aftur til Islands í júní næstkomandi. Sjónvarpið tók skemmtunina á sunnudag upp á myndsegul- band og gefst því væntanlega fleiri tækifæri til að njóta hennar, þótt vafasamt sé, að sU „stemmning", sem þar nkti, komist alveg til skila á skján- um. x Sviðið f Háskólabfói: Wilma syngur, Hawkins spilar og stjórnar o Ray situr við sfn elektrónisku tæki fyrir framan sviðið og stilli hl jóðnemana eftir þvf, sem við á. Vilja rann- saka Hafstein íþriöjasinn HAFSTEINN Björnsson, miðill, er nýkominn heim úr annarri ferð sinni til Bandaríkjanna, þar sem hann var til rannsóknar vegna óvenjulegra miðilshæfi- leika hjá vfsindamönnum við sálarrannsóknastofnun American Society for Psychial Research f New York. Með honum f förinni var dr. Erlendur Haraldsson, sem tók þátt í rannsóknunum ásamt bandarísku vísindamönnunum. Hafsteinn hélt vestur 12. október sl. og bjó hann ásamt konu sinni í húsi sálarrannsókna- félagsins, en það á 5 hæða hús við 73. stræti. Að félaginu standa aðilar Ur öllum fylkjum Banda- ríkjanna og i byggingu þess fer fram mikið starf allt árið um kring. Starfsliðið er 6—8 manns, auk prófessoranna, sem annast yfirstjórn vísindastarfsins. I byggingunni eru skrifstofur, fundasalir, bókasafn og ein hæðin er rannsóknarstöð, búin margvís- legum vísindatækjum. Til stofn- unarinnar berast skýrslur hvaðanæva úr heiminum um dul- ræn fyrirbrigði og eru þau könn- uð mjög ftarlega. 1 upphafi dvalar si|jnar fyrir vestan hélt Hafsteinn almennan miðilsfund þar sem saman voru komnir Islendingar búsettir í New York og einnig Bandaríkja- menn. Allir miðilsfundir voru teknir upp á segulband af starfs- liði stofnunarinnar. Hafsteinn hafði einnig skyggni- lýsingarfundi, bæði fyrir hópa og einstaklinga. Var hann einangr- aður í herbergi og gestir hafðir í öðru á meðan athuganirnar voru gerðar. Fékk Ilafsteinn hvorki að sjá gestina né vita nöfn þeirra. Ýtarlegar rannsóknir fóru fram á líkama Hafsteins, bæði í dá- svefni og einnig á skyggnilýsing- arfundum. Ýmsum vísindatækj- um var komið fyrir á höfði hans meðan athuganirnar voru gerðar. Skýrslur um niðurstöður rann- sóknanna verða ekki birtar fyrr en að ári liðnu. Ein tilraunin, sem gerð var á Ilafsteini, var að láta hann segja til um hluti, sem komið var fyrir í lokuðu herbergi á annarri hæð í húsinu. Fundargestir gátu ekki vitað neitt um þetta og hugar- lestur því ekki mögulegur. Nokkr- ar slíkar tilraunir voru gerðar. Ilafsteini er kunnugt um að tvær þeirra a.m.k. tókust fullkomlega. Ilafsteinn Björnsson dvaldi í tvær vikur í New York og á hverj- um degi hafði hann 2—4 fundi. Áður en hann hélt heim fékk hann afhenta skýrslu stofnunar- innar um rannsóknirnar, sem gerðar voru í ferðinni 1972. For- ystumenn sálarrannsóknastofn- unarinnar hafa óskað eftir því við Hafstein, að hann komi aftur á næsta ári til enn frekari rann- sókna. Þess má geta, að á skyggnilýs- ingarfundi i Austurbæjarbíói kl. 9 á miðvikudagskvöld mun Ævar Kvaran skýra frá ýmsu úr efni skýrslunnar um fyrstu rann- sóknarferð Hafsteins til New York og fleiru um sálarrannsókn- ir, sem nú farafram. Dr. Erlendur Haraldsson, sem för vestur með Ilafsteini, er nú í Indlandi við rannsóknarstörf ásamt vísindamanni frá sálar- rannsóknastofnuninni í New York. myndefni allt aftur til landnáms- aldar — i þann mund er Æsir og KriStur eru að bftast um sálir áa okkar og þar segir frá heiðinni konu, sem berst gegn kristninni. ,,Ég hef alltaf málað frá íslandi, jafnvel öll þessi 19 ár, sem liðu, án þess að ég kæmi heirn," segir Maria. „Og ég hef alltaf haft mikla þörf fyrir að segja frá, það er víst ríkt i öllurn íslendingum. En samt reyni ég að gera hverja mynd þannig úr garði, að hún geti staðið sjálfstæð. Margar mynd- anna eru með naturalísku yfir- bragði, en í mínum huga eru þær fremur ljóð en náttúrulýsingar.” María hefur einnig skotið fáein- um myndum, sem ekki eru i reynd tengdar fyrrgreindum flokkum, inn í sýninguna, og má þar nefna stórt málverk.sem hún nefnir Njálsbrennu. Á þeirri mynd byxjaði hún hér í Reykjavík f fyrra, þegar hún var hér í heim- sókn. Sýning Maríu Ólafsdóttur verð- ur opin daglega frá 2 — 10 til mánudagsins 3. desember. Tillaga á Alþingi: Z verði tek- in upp aftur Fram er komin á Alþingi tiI- laga til þingsályktunar uni að hrundið skuli þeirri ákvörðun að fella z niður 1 fslenzku ritmáli. Flutningsmenn þessarar tillögu eru þeir Sverrir Hermannsson (S), sem er fjTsti flutnings- maður, Helgi F. Seljan (Ab), Ellert B. Schram (S) og Bjarni Guðnason (ut.fl.). Talið er, að auk þessara þingmanna muni vera verulegur stuðningur við málið í þinginu. Greinargerðin, sem fylgir til- lögu þessari, er stutt og án mála- lenginga. Ilún hljóðar svo: „Ákvörðunin um að fella z niður i ritmáli er tuidanhald. Öllu undati- haldi, er varðar fslenzkt mál, talað eða ritað. ber þegar í stað að snvia í sókn ." r María Olafsdóttir opnar sýningu í Norræna húsinu MARtA H. Ólafsdóttir opnaði málverkasýningu f Norræna hús- inu sl. laugardag kl. 2. Þetta er fyrsta sjálfstæða sýning Marfu hérlendis, en hún hefur verið bú- sett f Danmörku síðustu 26 árin. Þar hefur hún sýnt árlega með samtökum myndTistarföTks, sem nefna sig SE, og eins hefur hún haldið þar nokkrar sjálfstæðar sýningar. Hér heima hefur hún átt fáeinar myndir á samsýning- um á undanförnum árum. A sýningu Maríu í Norræna húsinu eru alls um 40 myndir. Sýningunni skiptir María f tvo myndaflokka, og eru þeir frá tveimur tfmabilum. Ilinn fyrri nefnist „Þegar amma dó“. Er sá málaður á árunum 1962 — 64, en myndefnið er sótt til Vestfjarða árið 1924. María fæddist þar — nánar tiltekið í Vindheimum í Tálknafirði árið 1921, en í þessum myndaflokki rifjar hún upp bernskuminningu um jarðarför ömmu sinnar. María hafði ekki vitjað fósturlandsins um árabil, þegar hún málaði þessar myndir, og ekki var laust við, að það lædd- ist að henni sá grunur, að minni hennar um litbrigði vestfirzkrar náttúru væri eitthvað farið að ryðga. „En einmitt þegar ég var að fást við eina af þessum mynd- um, leit Hörður (Ágústsson, en hann og Karl Kvaran voru með Maríu á Listaakademfunni) við hjá mér, og égspurði hann auðvit- að, hvort litirnir í myndinni væru ekki út í bláinn hjá mér. — Nei. þetta er alveg eins, sagði hann, ég er einmitt nýkominn frá Vest- f jörðum. — Þetta gladdi mig mik- ið,“ segir Marfa. Ilinn flokkurinn nefnist Kol- finnusaga. Þar sækir María sér Marfa við málverk sitt — Njálsbrennu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.