Morgunblaðið - 27.11.1973, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.11.1973, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÖVEMBER 1973 Minning: Þórður Elías Sigurðs sort skipstióri ÞANN 17. þ.m. lézt á Landakots- spítala Þórður Elías Sigurðsson skipstjóri, til heimilis í Suðurhlíð við Þormóðsstaðaveg hér í borg. Utför hans fór fram á laugardag. Ilann var fæddur I Hvassa- hrauni, innsta bæ á Vatnsleysu- strönd, 29. sept. 1914, sonur þeirra sæmdarhjóna, sem þar bjuggu lengi, Kristrúnar Þórðar- dóttur og Sigurðar Sæmunds- sonar. Þórður byrjaði að vinna við bú foreldra sinna, þegar kraftar leyfðu, og komu snemma í ljós þeir eiginleikar, sem einkenndu hann alla ævi, ósérhlífni og sjálfs- bjargarviðleitni ásamt miklum kjarki. Þórður byrjaði ungur til sjós á bátum og togurum og fékk fljótlega fast skiprúm á togara, en til þess þurfti á þeim árum að sýna mikinn dugnað í starfi. Vorið 1940 útskrifaðist hann frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík með hið meira fiski- mannapróf. Eftir það var hann stýrimaður á togurum og fór ekki varhluta af þeim hættum, sem voru samfara siglingum á stríðs- árunum, þar sem hann varð tvisvar skipreika við Bretlands- strendur þann tima. Þórður var fyrst skipstjóri á togara frá Reykjavík, en árið 1949 varðhann skipstjóri á b/v Isólfi frá Seyðis- firði og síðar á b/v Austfirðingi frá Eskifirði. Ilann reyndist farsæll sem skipstjóri, ágætur aflamaður og hugsaði ávallt vel um hag útgerðarinnar. Um 1956 hætti Þórður á Bv. Austfirðingi og var ú tíma fram- kvæmdastjóri fyrir otgaraútgerð á seyðisfirði. Eftir það stundaði hann ýmis störf til sjós og lands og vann mikið, jafnvel eftir að hann veiktist af meini þvf sem reyndist ólæknandi. t ISLEIFUR SIGUROSSON frá Gegnishólum, andaðist að morgni 15 þm i landakotsspitala Systkini hins látna. t Dóttir mín og móðir okkar, VIGDÍS HELGA JÓNSDÓTTIR, Flókagötu 3, Hafnarfirði, andaðist i Borgarsjúkrahúsinu þann 25 nóvember Guðný Guðmundsdóttir og börn hinnar látnu. t Faðir okkar og bróðir SVAVAR GUÐJÓNSSON andaðist að Borgarspítalanum laugardaginn 24 nóvember Reynir Svavarsson, Svavar Svavarsson Anna Pálsdóttir, Sigríður Guðjónsdóttir Guðfríður Guðjónsdóttir, Sigríður Halldóra Guðjónsdóttir. t Útför móður minnar, HALLDÓRU SIGURJÓNSDÓTTUR, Fornhaga 1 1. fer fram miðvikudaginn 28 nóvember frá Fossvogskirkju kl 3 siðdegis Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á liknarstofnan- Hörður Guðmundsson. Konan mín GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR Jaðarsbraut 31, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju, miðvikudaginn 28 nóvember kl 14 Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Sjúkrahús Akraness Fyrir hönd barna, barnabarna og tengdasonar, Karl Auðunsson. Eiginmaður minn, JÓN SIGURÐSSON, fyrrv. skipstjóri, Skeggjagötu 2, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 27. nóvember kl 13 30 Blóm eru vinsamlegast afþökkuð. en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á liknarstofnanir Fyrir hönd barna og tengdabarna Dýrfinna Tómasdóttir. Jón Sigurðsson skipstjóri — Minning Árið 1941 giftist Þórður eftir- lifandi konu sinní, Ólafiu Kristinu Auðunsdóttur frá Minni- Vatnsleysu. Voru þau búsett fyrst í Reykjavík, og síðar á Seyðisfirði og Eskifirði, en fluttust aftur til Reykjavíkur 1959 og voru búsett þar síðan. Þau eignuðust fjögur mann- vænleg börn: Vilhjálm Auðunn flugmann, giftan Sigríði Sigur- björnsdóttur, Sigurð mat\'æla- fræðing, Jón Arsæl, við nám í Háskóla íslands, heitbundinn Iljördísi Valgarðsdóttur og Kristrúnu nemaí menntaskóla. Þórður var ágætur heimilis- faðir og var heimilið alla tíð rómað fyrir gestrisni og rausn. Ég sendi Ólafiu, sem liggur veik á sjúkrahúsi, börnum þeirra, barnabörnum, móður og systkin- um hins látna og öðrum vanda- mönnum hans, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Þórðí þakka ég langa vináttu; mér reyndist hann afbragðsgóður samferðamaður. Blessuð sé minning mannkosta- og dugnaðarmanns. Sæm. Auðunsson. JÓN SIGURÐSSON skipstjóri er látinn. Leiðir okkar lágu saman hjá Eimskipafélagi Islands árið 1948, og strax við fyrstu kynni tókst með okkur vinátta, sem varð æ traustari með hverju ári sem leið. Þannig var Jón, hann var vinur vina sinna og allir, sem kynntust honum, urðu betri menn fyrir. Jón var í senn traustur sjó- maður og traustur vinur. Jón Sigurðsson var fæddur 8. júlí 1892 og var því liðlega 81 árs, er hann dó, að morgni 19. þ.m. Fæðingarstaður Jóns var Fagurhóll á Vatnsleysuströnd. Þaðan er skammt til sjávar, enda byrjaði hann sjósókn aðeins 12 ára gamall, og eftir það var hann meira á sjó en landi. Arið 1916 lauk hann farmannaprófi frá Stýrimannaskólanum f Reykja- vík, en réðst til Eimskipafélags Islands 1918 og var í þjónustu þess til 1958, er hann hætti siglingum fyrir aldurs sakir. Þegar m.s. Gullfoss hóf siglingar 1950 var Jón 1. stýrimaður þar. Pétur Björnsson var skipstjóri og Hallgrímur heitinn Jónsson yfir- vélstjóri. Þarna voru á ferðinni úrvalsmenn, sem áttu stóran þátt í því, að vel tókst til. Síðan var Jón Sigurðsson skipstjóri þessa skips frá 1951, þar til hann lét af störfum. I starfi þessu eignaðist Jón marga vini, bæði innlenda og erlenda, enda var hann einstakt prúðmenni og alúðlegur við alla, jafnt skipshöfn sem farþega, unga sem aldna. Jón Sigurðsson var tvíkvæntur. Með fyrri konu sinni, Guðrúnu Halldóru Sigurðardóttur, sem lést 1948, eignaðist hann 7 börn, sem öll eru á lífi. Seinni kona Jóns er Dýrfinna Tómasdóttir frá Borð- eyri, og er hún einstök ágætis- kona, sem hefur reynst manni sín- um mikil hjálparhella, þegar eitt- hvaðerfittstaðjaði að. Nú er Jón, vinur minn, allur. Minning hans geymist okkur öll- um, sem honum kynntust, þar sem prúðmennska, glaðværð og traustgnæfa hæst. Börnum, tengdabörnum og barnabörnum, sem og eftirlifandi eiginkonu, sendi ég og fjölskylda mfn innilegar samúðarkveðjur og biðjumviðGuðaðblessa þau. V.E.Maack. Valgerður Jóhanns- dóttir — Minning F.ll. 12.1915. D. 18.11.1973. Svo örstutt er bil milli blíðu og éls, og brugðizt getur lánið frá morgni til kvelds. I dag verður til moldar borin frá Fossvogskirkju Valgerður Jó- hannsdóttir, Gnoðarvogi 30, sem lézt af völdum heilablæðingar þann 18. þ.m., tæpra 58 ára að aldri. Valgerður fæddist að Fagurhóli í Ólafsvík og var elzt níu barna hjónanna Mariu Magnúsdóttur og Jóhanns Agústssonar, sjómanns, erþar biuggu. Af þeim systkinum eru nú aðeins fimm á lífi, þrjú búsett í Ólafsvík og tvær systur í Borgarnesi. Átján ára gömul, árið 1933 giftist Valgerður ung- um sjómanni, Lýði Brynj- ólfi Skarphéðinssyni, ættuð- um úr Hrútafirði. Bjuggu þau í Ólafsvfk samvistarár sín, sem urðu ekki mörg. þvf Lýður drukknaði sumarið 1940. Synir þeirra eru Skarphéðinn, bryti á Selfossi, Magnús, vélstjóri á m.b. Svani frá Reykjavík. Eru þeir báðir kvæntir og búa i Hafnar- firði. Barnabörnin eru fimm. Eftir að Valgerður var orðin ekkja réðst hún ráðskona til þess manns, er varð seinni maður hennar, Gunnars Guðjónssonar, sem þá bjó með föður sínum, Guðjóni Einarssyni, prentara, aó Laugavegi 59 í Reykjavík. Kom hún sem sól inn í lff Gunnars, svo t Minningarathöfn um föðurokkar, ÁSGEIR GUÐNASON, fyrrverandi kaupmann og útgerðarmann frá Flateyri, fer fram frá Fossvogskírk/u miðvikudaginn 28. nóvember kl. 10.30 Jarðsett verður á Flateyri n.k laugardag kl 1 4 00 Börnin. Minningarathöfn um ástkæran son okkar, bróður, mág og dótturson SÆMUND HELGASON, stýrimann, Holtsgötu 23, fer fram frá Dómkirkjunni i Reykjavík miðvikudaginn 28. nóvember klukkan 1 5.00 Þeim sem vildu minnast hins látna. er vinsamlegast bent á líknarstofnanir Fyrir okkar hönd og annarra vandama nna, Valný Bárðardóttír. Ásdis Asmundsdóttir Gisli Már Helgason, Ásdis Stefánsdóttir, Sigurður Helgason, Helgi Sæmundsson, Helgi E. Helgason, Gunnar Hans Helgason, Óttar Helgason, Bárður Helgason, Guðlaug Pétursdóttir. að notuð séu orð hans sjálfs. Hef- ur sambúð þeirra varað í þrjátíu ár. Valgerður og Gunnar bjuggu aldrei við mikil efni, en voru ráð- deildarsöm og áttu eigin íbúð. Þau lifðu hvort fyrir annað og fyrir fjölskyldu sína, en hirtu lítt um heimsins glaum og veraldar- legt prjál og ekki blótuðu þau Bakkus. Þau fóru aldrei út fyrir landsteinana en ár hvert heim- sóttur þau föður Valgerðar og systkini f Ölafsvík og nutu þau þeirra ferða. Ég kynntist Valgerði og manni hennar, er ég hóf störf við Ár- bæjarsafn fyrir hálfu fjórða ári, en þar störfuðu þau bæði við góð- an orðstír. Það fór ekki framhjá neinum, sem umgekkst þau, hve samrýmd þau voru. Væri á annað þeirra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.