Morgunblaðið - 27.11.1973, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.11.1973, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1973 Pétur Hannesson r formaður Oðins Aðalfundur Málfundafélagsins Öðins var haldinn sunnudaginn 11. nóvember 1973, f Miðbæ, Háa- leitisbraut 58-60. Fundurinn hófst á þvf að frá- farandiformaður Magnús Jóhann- esson flutti skýrslu stjórnar um liðiðstarfsár. Fram kom að starfsemi félagsins hafði verið fjölþætt, haldnir voru 4 félagsfundir, 2 trúnaðarráðsfundir og 21 bókaður stjórnarfundur, auk þess sem Óð- inn stóð að 4 fræðslufundum í samstarfi við Verkalýðsráð Sjálf- stæðisflokksins. Gústaf B. Hnarsson gjaldkeri félagsins lagði fram endurskoð- aðareikninga. Hagur félagsins er góður og var samþykkt að Óðinn leggði kr. 100 þúsund til húsbyggingar Sjálf- stæðisflokksins úr félagssjóði. Haldar voru nokkrar bingó- skemmtanir bæði til styrktar félaginu og í góðgerðarskyni til styrktar fólki sem átti um sárt að binda vegna hörmulegra slysa. Miklar umræður urðu á fundin- um um félagsmál, skattamál og tillögur að breyttu skipulagi félagsstarfa Sjálfstæðisflokksins i Reykjavík. Á fundinum kom dr. Gunnar Thoroddsen og ræddi þau mál, sem efst eru á baugi i þjóðmál- um, og svaraði síðan fyrirspurn- um fundarmanna. Magnús Jóhannesson fráfar- andi formaður og Gísli Guðnason, sem sæti átti í fráfarandi stjórn gáfu ekki kost á sér til áframhald- andi stjörnarstarfa. I stjórn fyrir næsta starfsár voru kjörnir Pétur Hannesson for- maður og meðstjórnendur Gisli Guðmundsson, Gunnar Sigurðs- son, Gústaf B. Einarsson, Hilmar Magnússon, Jón Kristjánsson, Karl Þórðarson, Sigurður Anga- týsson, Stéfan Þ. Gunnlaugsson, Valdimar Ketilsson, Valur Lárus- son og Þorvaldur Þorvaldsson. Á fundinum var samþykkt eftirfarandi tillaga frá stjórn félagsins: SKATTAMÁL Aðalfundur Málfundafélagsins Óðins haldinn 11. nóvember, 1973, ályktar að skattaáþján ríkis- valdsins sé orðin umfram greiðslugetu almennings og nú þurfi að verða breyting á, þannig að tekjuskattur af lágtekjum verkafólks og hliðstæðum tekjum verði felldur niður. Tekjuskattur verði síðan lágt- stighækkandi, skattþrepum fjölg- að og bil þeirra aukið. Beinir tekjuskattar til ríkis og sveita- félaga verði aldrei hærri en 50% á hæsta skattþrepi. EJíki verði teknar 3 krónur fyr- ir hverja eina sem gefin verður eftir, með nýjum sköttum, virðis- aukaskatti eða neins konar vinstristjórnar sköttum. Ellilífeyrir frá almanna- tryggingum verði undanþegin skatt- og útsvarsálagninu svo og aðrar bætur almannatrygginga. Vel heppnað fundanám- skeið á Seyðisfírði Pétur Hannesson Staðgreiðslukerfi skatta verði tekið upp hið fyrsta, en þar til það getur orðið, ályktar Óðinn að lýsa stuðningi við tillögu Alberts Guð- mundssonar borgarfulitrúaum að skattfrádráttur: af launum verði aldrei meiri en svo, að fólk hafi ekki nægilegt eftir sér til fram- færslu mílli launaútborgunar- daga, og ber aðgæta fyllsta hófs í slíkum launafrádrætti. Á verðbólgutimum einsog nú eru þarf að tryggja, að lífeyris- greiðslur lífeyrissjóðanna rýrni ekki óeðlilega mikið. Það er nauð- synlegt að vinna að því, að allar eftirlaunagreiðslur verði verð- tryggðar. Fjárlög á valdatfma núverandi rfkisstjórnar hafa þrefaldazt og þetta verður almenningur að greiða, nauðugur, viljugur. Þá var einnig samþykkt eftir- farandi tillaga borin fram af Björgvini Hannessyni: * Aðalfundur Málfundafélagsins1 Óðins, haldinn 11. nóvember, 1973, lýsir fullum stuðningi við launþegasamtökin um að þær lág- markskaupkröfur, sem fram hafa verið settar, kr. 35 þúsund í mánaðarlaun, nái fram að ganga. Einnig telur fundurinn að kröf- ur launþega um full yfirráð, eða meirihluta í stjórnum lífeyris- sjóðanna, eðlilegar og sjálfsagðar, þar sem sjóðsfélagar séu einir eig- endur lffeyrissjóðanna." SAMBAND ungra sjálfstæðis- manna efndi til námskeiðs í ræðumennsku og fundarstjórn á Seyðisfirði um síðustu helgi. Námskeið þetta var mjög fjölsótt, og kom fram mikill áhugi á þess- ari starfsemi. Er hún liður f starfi SUS, og stefnir sambandið að þvf að halda sllk námskeið út um allt land í vetur. Af þessu trlefni hafði Morgunblaðið tal af leið- beinanda SUS á námskeiðum þessum, Guðna Jónssyni. Guðni sagði, að um 30 manns hefðu sótt námskeiðið á Seyðis- firði, og yrði það að teljast góð aðsókn. Ánægjulegt hef ði verið til þess að vita, að það voru jafnt karlmenn og konur, sem nám- skeiðið sóttu, en oft hefði viljað brenna við, að kvenfólkið sýndi slíku lítinn áhuga. „Fyrri daginn fórum við í helztu undirstöðuatriði ræðu- mennsku og fundarstjórnar. Eftir að við höfðum rætt lítillega sam- an um þessi undirstöðuatriði, dró hver sinn miða, þar sem á var letrað ákveðið ræðuefni. Tókst mönnum misjafnlega upp f fyrstu, en margir skiluðu ræðu- efninu hins vegar prýðilega. Daginn eftir var svo efnt til málfundar, þar sem rætt var um bæjarmálefni Seyðisfjarðar. Allir þátttakendur tóku til máls í þess- um umræðum, sem voru bæði f róðlegar og skemmtilegar. Ég held, að þessi skerfur okkar hafi orðið til þess að kveikja neista af áhuga á þessari hlið félagsmála. A.m.k. ræddu þátttak- endur um það sín á milli, að nám- skeiðinu loknu, að þörf væri á að stofna málfundarklúbb, sem hitt- ist reglulega". — Hvert er ferðinni svo næst heitið með málfundanámskeið? „Næsta námskeið verður haldið á Akranesi helgina 24. og 25. nóvember, og ég vænti þess, að aðsókn að því námskeiði verði góð. Fyrir liggur svo að fara mjög víða um landið í vetur með slík námskeið, og vil ég benda félög- um ungra sjálfstæðismanna, sem áhuga hafa á að halda slík nám- skeið, á að hafa samband við framkvæmdastjóra SUS, Stefán Skarphéðinsson. Þá má loks geta þess, að Heim- dallur, samband ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, mun í lok þessa mánaðar og byrjun þess næsta gangast fyrir málfunda- kvöldum. Hefur af þessu tilefni verið send út starfskrá til allra ungra sjálfstæðismanna á Reykja- víkursvæðinu, þar sem þessi nám- skeið eru kynnt ítarlegar. Gefið Stórgjöf, gefið „Vintage" pennann frá Sheaffer. Að loknu sumarstarfi til lands og sjávar, verður allt að vera fullkomið. Þessi penni hefur verið gerður fullkominn „Vintage" frá Sheaffer — silfur eða 12 k. gull ________ í antikstíl — kúlupenni eða blýantur. SHEAFFER the proud craftsmen SHEAFFER, WORLD-WIDE, A taxtronl COMPANY Hlutafjárútboöi Samvinnubankans er nú lokið og hlutabréfín tilbúin til afhendingar. Þeir hluthafar, sem gert hafa full skil á hlutafjárloforðum sín- um, geta fengió hlutabréf sín afhent hjá aðalbankanum og útibúum hans víðsvegar um land, eða fengið þau send í ábyrgðarpósti. SAMVINNUBANKINN BANKASTRÆTI 7, REYKJAVÍK, SÍMI: 20700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.